Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2000, Blaðsíða 30
Krydd-Mel C er alltaf að rembast til að halda í vinsældirnar. Til þess fær hún Left Eye úr TLC til að rappa í laginu Never Be The Same. Svo tók hún myndbandið upp í Bláa lóninu og safnaði hári undir höndunum. vikuna 6.4- 13.4 2000 14. vika Topp 20 (oj) American Pie Madonna Vikur á lista ©7 (02) Freistingar Land Og Synir t 8 03) Orginal (órafmagnað) Sálin Hans Jóns Míns t 9 (04) In Your Arms (Rescue Me) Nu Generation 4,5 (05) The Ground Beneath Her U2 4, 7 (06) Never Be The Same Mel C & Lisa Left Eye t 4 (07) 1 Regret It Selma 6 (08) Run The Water Live 4,5 (09) Pure Shores All Saints (The Beach) 00 (70) Other Side Red Hot Chilli Peppers 115 (71) Sexbomb (Remix) Tom Jones 115 (72) Hann (Ben úr Thriller) Védís HervörÁrnad. M10 (73) Caught Out There Kelis 4, 9 (74) You Can Do It lce Cube t 2 (75) Ex-Girlfriend No Doubt >U4 16 Freakin’it Will Smith ^ 3 (7 7) Don't Wanna Let You Go Five CVJ (78) Freestyler Boomfunk MC’s X1 (79) Say My Name Destiny’s Child (2Ö) Búinn að fá nóg Buttercup /2 Sætin 21 til 40 © topplag vikunnar 21. Only God Knows Why Kid Rock 8 , 22. Bag It Up Geri Halliwell f 4 J hástúkkvari C4.íii m vikunnar 23. Stlll Macy Gray 4, 5 24. Fool Again Westlife X 1 ^ 1 25. Feelin’So Good Jennifer Lopez 4, 7 JoJ stendur l staO 26. Stand Inside... Smashing Pumpkins 4, 3 + hækkar sig frá 27 He Wasn t Man- Tony Braxton T 3 1 slOistuviku 28. Hryllir (Thriller) Védís Hervör (Verzló) 4. 6 X lækkarsigfrá 29. I Wanna Mmmm siáistu viKu 30. Vertu Hjá Mér The Lwyer X 1 Á Mót Sól t 2 ■n' fall vikunnar 31. Go Let It Out Oasis 4,10 * 32. Are You Still... Eagle Eye Cherry t 3 33. The Time Is Now Moloko X 3 34. Don't Give Up Chichane&Brian A. t 3 35. Be With You Enrique Iglesias X 4 36. Who Feels Love? Oasis X 1 37. Never Let You Go Third Eye Blind 4, 5 38. The Last Day Of Summer Cure 4, 5 39 My Heart Goes... French Affair X 1 40. Waste Smash Mouth X 1 if Ó k U S Pantera finnur aftur upp stálið á nýju plötunni sinni. Þetta er hin full- komna Pantera-plata, segja þeir sjálfir. Dr. Gunni setti sig í stellingar. Nýlega gaf Pantera út plötuna „Reinventing the Steel“. Gítarleikar- inn Dimebag Darrell segir að bandið hafi ekki átt í neinum erfiðleikum með að ákveða að platan ætti að halda í hefðina og vera þungarokk af gamla skólanum. „Þetta eru okkar trúarbrögð," segir hann. „Þetta er það sem keyrir mig áfram frá því ég vakna á morgnanna þangað til ég sofna á kvöldin.“ Og mið- að viö viðbrögðin - platan fór beint í 4. sætið í Bandaríkjunum - eru þessi trúarbrögö, gömlu öskrandi gítaramir og stálsmiðjutrommurnar, fyllilega ásættanleg fyrir hina fjölmörgu og tryggu aðdáendur. Engin tilvistarkreppa „Það er ails konar rokk í gangi og það -getur verið ruglandi," heldur Dimebag áfram. „En við eigum ekki í neinni tilvistarkreppu og fórum ekki í gegnum neina ímyndamaflaskoðun. Við erum ekki að reyna að passa í ein- hvem flokk og vomm ekki í örvænt- ingu að reyna að semja nýjan srnell." Svo í stað þess að breytast og daðra t.d. við rapp-rokkið ákvað Pantera að gera „Reinventing the Steel“ að því sem þeir vonast til að sé hin full- komna Pantera-plata og blönduðu saman því besta af fyrri plötum. „Við rúlluðum því öllu saman en fók- useruðum á spark í rass, spark í rass, spark í rass! Þú veist ekki hve oft ég hef keypt plötu með kannski 17 lögum og mest af þeim er drasl. Við hugsuð- um, skítt með magnið, og einbeittmn okkur að gæðunum. Höldum okkin- við 10 lög sem em öll frábær. Og við gerðum það.“ í því ferli reyndi bandið að forðast yfirgengilega öfgarokkið sem ein- kenndi síðustu plötu, „The Great Southern TrendkiU", sem kom út 1996. „Við ákváðum að fara aftur að semja lög,“ segir trommarinn Vinnie Paul, sem er bróöir Dimebag. Eitt helsta einkennið á árásar- kenndu rokki Pantera hefur verið raf- magnaður söngstíll Phils Anselmo. „Það sneri enginn upp á handlegginn á honum,“ segir Vinnie, „en Paul vildi syngja á þessari plötu. Hann vildi gera meira með röddina í sér en að ærast í hverju einasta lagi.“ Paul heldur svo sem alveg kraftin- um, en bætir við melódíum. Hin melódíska nálgun er auðheyrð á fyrsta smáskífulaginu, „Revolution Is My Name“, sem er gott dæmi um strípaða áferð plötunnar þar sem þungur gítar er í forgrunni. „Það eru helvíti hefi riff í því lagi,“ segir Dimebag og hlær, „og líklega fleiri riff í því eina lagi en á heilu plötunum hjá flestum öðrmn.“ Hafa stjórn á örlögum sínum Plötima tók Pantera upp í eigin hljóðveri í heimabænum Dallas í Texas. Bræðumir hljóðunnu sjálfir og fannst mörgum tími til kominn að þeir fengju að ráða. Þeir stofnuðu Pantera 1981 með bassaleikaranum Rex, sem enn er með, og söngvaran- um Terrence Lee. Fyrstu plötumar þóttu lélegar og þótti Terrence slapp- ur. Phil tók við af honum og fyrsta platan með honum, „Power Metal“, kom 1988 en þótti þó ekkert sérstök. Hjólin fóm fyrst að snúast 1990 með plötunni „Cowboys from Hell“. Þyngra hafði þungarokkið varla verið áður og þrátt fyrir litla fjölmiðlaum- fjöllun varð Pantera geysivinsæl, þökk sé tryggu neti aðdáenda. Hinar klassísku plötur „Vulgar Display of Power“ (1992) og „Far Beyond Driven" (1994) juku enn á hróður Pantera. Hljómsveitin túraði eins og vitlaus væri en 1996 kom babb í bátinn þegar Phil næstum því drap sig á of stóram heróínskammti. Hann er mjög var um sig þegar fjölmiðlar era annars vegar en kom þó fram þegar hann var búinn að ná sér og sagði: „Ég hef náð mér fullkomlega og túrinn mun halda áfram. Ég er ekki heróínfíkill en það sem ég hef lært af þessu er að allar hryflingssögur sem sagðar hafa verið um heróín era sannar. En ég er eng- inn aumingi og væli ekki um samúð. Ég dey ekki svona auðveldlega! Ég er hér til að angra fjölmiölana i langan tíma í viðbót.“ Sama ár náðu þeir fufl- komnun í rokkhrottaskap með „The Great Southern Trendkill" og tón- leikaplata kom ári síðar. Síðustu árin hafa þeir spilað mikið en gerð nýju plötunnar tók langan tíma. „Það skiptir öllu máli að vinna í eigin hljóðveri," segir Vinnie. „Við höfum algera stjórn á örlögum okkar og þannig viljum við hafa það.“ Með óstöðvandi tónleikahaldi og góðu sambandi við aðdáenduma hefur Pantera afltaf þótt „ekta“ í augum rokkara og aldrei „selt sig“. „Við höfum aldrei reynt að vera eitthvað annað en við eram," segir Vinnie. „Það samband sem við eram í við aðdáendur okkar verður aldrei slitið því þeir sjá sjálfa sig upp á sviði þegar við spilum. Svona samband er ekki hægt að feika." Loksins tala Bítlarnir Þær era óteljandi bækumar sem era til um bestu og vinsælustu hljóm- sveit allra tíma, hina einu sönnu Bítla frá Liverpool. Þann 5. október nk. kemur út Bítlabók sem mun slá öllum hinum við því hún er skrifuð af Bítl- unum sjálfum. Hún heitir The Beatles Anthology. „Þetta er saga Bítlanna skrifuð af þeim sjálfum en ekki saga Bítlanna skrifuð af einhverjum öðrum eins og þetta hefur verið hingað til,“ segir útgefandinn. Þetta verður engin smábók. Hún mun kosta um 4500 kafl i Bandaríkj- unum (sem þýðir 10 þúsund kall hér) og inniheldur sögur frá fyrstu hendi frá Paul McCartney, George Harri- son og Ringo Starr og einnig efni sem John Lennon skrifaði áður en hann var myrtur 1980. Aðrir úr innsta hring Bítlanna láta ekki heldur sitt eftir liggja, m.a. verða hugleiðingum frá „fimmta Bítlinum", Sir George Martin, túrastjóranum Neil Aspinall og bassaleikaranum Stuart Sutcliffe gerð skil. Fyrst og fremst er þetta þó hugsað sem bók Bítlanna sjálfra. í henni verða 1300 Ijósmyndir, margar áður óséðar og úr einkasöfnum. Bókin verður 375 bls. og stór og þykk eins og alfræðibók. Hún hefur verið sex ár í smíðum en æstustu aðdáendumir era efins um að þeir viti ekki aflt sem stendur i henni nú þegar. Bítlamir fara þó engum vettlingatökum um sögu sína og í bókinni verða drykkju- og dópsögur og nákvæm útlistun á því hvemig hljómsveitin hætti. í bókinni kemur líka fram að eftirlifandi Bítlum var árið 1996 boðið 175 milljónir dala fyrir að spila á sautján tónleikum. Þeir afþökkuðu og vantar eflaust ekki peninga þó þessi bók sé að koma út. Búist er við að hún seljist í milljónum eintaka og eflaust verður hún efst á óskalista Bitla-aðdáenda um allan heim um næstu jól. The Beatles Anthology kemur út 5. október. f Ó k U S 7. apríl 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.