Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Blaðsíða 8
24
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002
Rafpóstur: dvsport@dv.is
- keppni í hverju ordi
Blcmd i poket
John Gregory, sem i síðustu viku sagði
starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri
Aston Villa, hefur verið ráðinn stjóri hjá
Derby County.
Gregory verður þar með þriðji fram-
kvaemdastjóri Derby á yfírstandandi
leiktíð. Jim Smith hóf leiktíðina, síðan
kom Colin Todd og nú er það John
Gregory sem á að bjarga Derby frá falli
í iyrstu deild.
Dwight Yorke, leikmaður Manchester
United, fer ekki til Middlesbrough eins
og allt benti til. Búið var að semja um
kaupverð en Yorke vildi fá hærri laun
en Middlesbrough bauð. Þar með er það
nokkuð ljóst að Dwight Yorke verður
áfram hjá United út leiktíðina. Það þýð-
irsvoað ekkert verður af komu Paulos
Di Canio til Old Trafford.
Jamie Carragher leikmaður Liverpool
verður ekki ákærður af lögreglu fyrir að
henda smápeningi upp í stúku í leik
Liverpool og Arsenal. Carragher slapp
með áminningu en enn er eftir að úr-
skurða um málið hjá enska knattspyrnu-
sambandinu. ,,h„
Dickinson til
Njarðvíkur
Kvennalið Njarðvíkur í
körfuknattleik mun tefla fram er-
lendum leikmanni í bikarúrslita-
leiknum um aðra helgi. Þetta er
Ebony Dickinson sem lék meö KFÍ
tímabilið 1999-2000.
Dickinson er frábær leikmaður
og aö margra mati, sá besti sem hér
hefur leikið. Hún skoraði 32,2 stig í
leik og tók 18,7 fráköst með KFÍ og
var nánast óstöðvandi. Fyrir fram
er búist við öruggum sigri KR í úr-
slitaleiknum en koma Dickinson
gefur fyrirheit um spennandi leik.
Hún mun aðeins verða á landinu í
u.þ.b. viku og ekki leika með Njarð-
vík út tímabilið en gæti náð leikn-
um við Grindavík um næstu helgi.
Grindavíkurliðið er einmitt þessa
dagana að leita sér að Kana til að
leysa Jessicu Gaspar af hólmi sem
mun ekki leika meira þetta tímabil-
ið vegna meiðsla. -Ben
Dennis Bergkamp fagnar öðru marka sinna gegn Blackburn í gærkvöld.
Reuters
-c
Enska úrvalsdeildin í gærkvöld:
Glæsimark
Eiðs Smára
- Arsenal, Newcastle og Liverpool
setja aukna pressu á Man. Utd.
Arsenal, Newcastle og Liverpool
settu öfl pressu á Manchester
United í ensku úrvalsdeildinni með
því að vinna leiki sína í deildinni í
gær. Leeds tókst hins vegar ekki að
gera slíkt hið sama þar sem liðið
tapaði fyrir Chelsea á Stamford
Bridge og dróst því aðeins aftur úr
fjórum efstu liðunum, að minnsta
kosti í bili.
Liðið í öðru sæti, Arsenal, hélt
sínu striki og vann Blackburn á
Eawood Park þrátt fyrir að missa
niður tveggja marka forskot.
Arsenal virtist ætia að klára leikinn
strax því eftir 25 mínútur voru
Dennis Bergkamp og Thierry Henry
búnir að koma Arsenal í 2-0. En
Matt Jansen jafnaði síðan fyrir
Blackbum með tveimur mörkum og
ekki bætti það svo stöðuna fyrir
Arsenal að fá á sig enn eina brott-
vísunina þegar Oleg Luzhny fékk
rauða spjaldið snemma í seinni hálf-
leik. En Blackburn náði ekki að
nýta sér liðsmuninn og í staðinn
tryggði Bergkamp Arsenal sigurinn
eftir góða stungusendingu frá Ro-
bert Pires sem átti enn einn stór-
leikinn fyrir Arsenal. Lundúnaliðið
er nú í góðri stöðu, stigi á eftir
Manchester United og á auk þess
ieik til góða.
í þriðja sæti er lið Newcastle enn
eftir góðan útisigur á Tottenham,
1-3. Það blés þó ekki byrlega fyrir
Newcastle til að byrja með því
Norðmaðurinn Steffen Iversen kom
Tottenham yfír snemma leiks eftir
vandræðagang í vörn Newcastle.
Staðan var 1-0 í hálfleik en
Newcastle-menn komu sterkir til
leiks í siðari hálfleik og þrjú mörk á
ellefu mínútum frá Clarence Acuna,
Alan Shearer og Craig Bellamy
gerðu út um leikinn. Newcastle
heldur því sínu striki í toppbarátt-
unni, tveimur stigum á eftir toppliði
Man. Utd. og á leik til góða.
Liðið í fjórða sæti, Liverpool,
sneri síðan blaðinu við frá ósigrin-
um gegn Arsenal í bikarkeppninni
um síðustu helgi og vann 1-0 sigur
á heimavelli gegn Leicester. Það var
Emile Heskey sem skoraði sigur-
mark Liverpool gegn sínum gömlu
félögum og var þetta fyrsta mark
hans í 14 leikjum fyrir Liverpool
auk þess sem þetta var aðeins þriöja
mark hans í úrvalsdeildinni i vetur.
Leikurinn var annars ekki mikið
fyrir augaö en Liverpool getur
huggað sig við að vera enn aðeins
tveimur stigum frá toppsætinu. Fátt
annað en fall virðist hins vegar bíða
Leicester eftir þessi úrslit.
Sjö mörk Eiös í fimm leikjum
Leeds situr áfram í fimmta sæti
en dróst aftur úr hinum fjórum lið-
unum við 2-0 tap fyrir Chelsea á
Stamford Bridge. Leikurinn hefði
reyndar ekki getað byrjað verr fyrir
Leeds því Eiöur Smári Guðjohnsen
kom Chelsea á bragðið eftir rúma
mínútu með glæsilegu, viðstöðu-
lausu vinstrifótarskoti sem hafnaði
efst í markhorninu. Eiður skoraði
þarna sitt sjöunda mark í síðustu
fimm deildarleikjum Chelsea. Um
miðjan fyrri hálfleik bætti svo Sam
Dalla Bona öðru marki við, en
markið var reyndar æði vafasamt
þar sem boltinn fór greinilega í
hönd Dalla Bona áður en hann skor-
aði og mótmæltu leikmenn Leeds
markinu ákaft. Fleiri ákvarðanir
dómarans orkuðu reyndar tvímælis
í leiknum en þegar á heildina er lit-
ið var sigur Chelsea fyllflega verð-
skuldaður.
Ipswich heldur áfram sigurgöngu
sinni og Fulham varð fyrir barðinu
á þeim í gær. Ipswich lét þó eitt
mark duga í þetta skiptið og kom
það frá Marcus Bent sem þar með
skoraði sitt sjöunda mark í átta
leikjum. Með þessum sigri komst
Ipswich úr fallsæti.
Gott gengi Southampton undir
stjórn Gordons Strachan heldur
áfram og nú var það West Ham sem
lá á St. Mary’s. Kevin Davis skoraði
fyrra mark Southampton undir lok
fyrri hálfleiks þegar David James
kýldi boltann í hann og í netið en
fram að þessu hafði West Ham verið
sterkari aðilinn. í síðari hálfleik
bætti Southampton síðan öðru
marki við þegar Fernandes skoraði
beint úr aukaspyrnu.
Að lokum gerðu Aston Villa og
Everton markalaust jafntefli í afar
slökum leik. -HI