Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 29
LAUGARDAGU R 22. FEBRÚAR 2003 He Iqa rb lctö JOV 29 leiminu McDonald’s er með rúmlega 30 þúsund veitiugastaði á sín um snærum í heiminum. Þessir staðir eru almennt taldir merkisberar bandarískra lífshátta og hafa sem slíkir oft orðið skotspónn manna af pólitískuin ástæðum. Davíð fyrstur McDonald’s hefur verið á íslandi í ailmörg ár og vakti mikla athygii þegar fyrsti staðurinn var opnaður og Dav- íð Oddsson beit í fyrsta hamborgarann í sviðsljósi fjöl- miðlanna. Mörgum fannst að loksins væri ísland oröið reglulega „cosmopolitan". McDonald’s er í sérbyggðu húsi við Faxafen en nýlega var veitingastaðnum í Austur- stræti lokað eftir nokkurra ára rekstur en enn er opið í Smárahverfmu í Kópavogi. Faraldur fitunnar Þau málaferli sem eru í pípunum gegn McDonald’s og varða of feita viðskiptavini er athyglisverður í ljósi þró- unar holdafars amerísku þjóðarinnar og þeirra þjóða sem aðhyllast skyndibitaát að ameriskum hætti. Offita er nú skilgreind í Bandaríkjunum sem faraldur og vex hröðum skrefum í öllum aldurshópum, burtséð frá kyni, aldri eða menntun. í dag eru um 44 milljónir Bandaríkjamanna of feitar og 6 milljónir í viðbót eru ofurfeitar sem þýðir meira en 100 pundum yfir kjörþyngd. í 37 ríkjum Bandaríkjanna eru meira en 15% íbúanna of feit. Eftir því sem bandarískir skyndibitastaðir hafa breiðst út um heiminn í keðjuformi hefur þyngd íbúa hvers lands hækk- að í kjölfarið. Á árunum milli 1983 og 1993 tvöfaldaðist fiöldi skyndibitastaða í Bretlandi en fjöldi þeirra sem töld- ust of feitir tvöfaldaðist einnig á sama árabili. Það stríð sem er að hefjast með málaferlum fyrir bandarískum dómstólum gæti því boðað upphaf endaloka þessarar þróunar. Kannski er tími hamborgara og franskra að líða undir lok. -PÁÁ (Byggt á: salon.com, Herald Tribune og Fast Food Nation eftir Eric Schlosser) McDonald’s og aðeins jólasveinninn gat státað af meiri frægð. Það er erfitt að meta áhrifrn af útbreiðslu McDonalds um heiminn en fleiri þekkja vörumerki þeirra en hinn kristna kross. Þegar McDonald’s var opnaður á íslandi í fyrsta sinn borðaði Davíð Oddsson fyrsta hamborgarann. McDonalds hefur átt undir högg að sækja að undanförnu og var rekið með tapi í fyrsta sinn í sögunni á síðasta árs- fjórðungi. Lokað á verkalýðsfélög Margt í starfsháttum McDonald’s hefur orðið tilefni málaferla og baráttu en hörðust hefur barátta þeirra verið gegn þvi að starfsmenn þeirra í Banda- ríkjunum gangi í verkalýðsfelög. Sú barátta varð hvað hörðust snemma á áttunda áratugnum en var jafnan kveð- in niður. Starfsmenn McDonald’s voru þá neyddir í lygamælispróf og hótað brottrekstri ef svör þeirra um afstöðu til verkalýðsfélaga þóttu grunsamleg. Svo virtist sem baráttunni væri að ljúka 1997 þegar hópur starfsmanna McDonald’s í Montreal í Kanada ákvað að ganga í verkalýðsfélag staðarins. McDonalds’ réð 15 lögfræðinga til að berjast gegn þessari fyrirætlan starfs- mannanna. Málaferlin stóðu i heilt ár og lauk með því að réttur starfsmanna til að ganga í verkalýðsfélag var viður- kenndur. Þegar það var ljóst lét McDon- ald’s loka veitingastaðnum fyrir fullt og allt. Þetta hafði áður gerst i kringum 1970 í Lansing í Michigan þar sem McDonald’s var lokað af sömu ástæðu og nýr veitingastaður reistur neðar við götuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.