Dagur - 05.01.1955, Blaðsíða 1

Dagur - 05.01.1955, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR D A G U R sendir lesendum sínurn óskir um farsælt ár. DAGUR kemur næst út n.k. mið- vikudag, 12. janúar. XXXVIII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 5. janúar 1955 1. tbl. Álasundstréð á Ráðhústorgi Jófagjöf Álasundsbúa til Akureyringa — jólatré rnikið og fagurt — var afhent við hátíðlega athöfn á Ráðhústorgi, eins og til stóð, 22. desember og þá kveikt á því. — Sverrir Ragnars, vararæðismaður Norðmanna hér, flutti ræðu og afhenti gjöfina, en Þorst. M. Jónsson, forseti bæjarstjórnar, veitti henni viðtöku og þakkaði með ræðu. Barnakór Akureyrar söng og Björgvin Jörgensson söngstjóri flutti ávarp. Tréð er a m. k. 11 metra hátt og mjög fagurvaxið. Skreyting tókst mjög vel og eiga starfsmenn rafveitunnar, garðyrkjuráðunaut- ur, slökkviliðsmenn og aðrir, er að því unnu, þakkir skildar fyrir sitt verk. — Á nýjársdag var barnasamkoma við tréð, séra Kristján Róbertsson talaði en Lúðrasveitin lék. Gengið var umhverfis tréð og jólalög sungin. Var þarna fjöldi manns, áhorfendur og þátttak- endur. Að öllu samanlögðu hefur norska jólatréð orðið bæjarbúum til mikillar ánægju. — Tréð var sannkölluð prýði hér á jólunum. Úlsvörin áætluð 10.6 milljónir við lyrri umræðu fjarhðgsáætlunar í bæjarstjórn aRáðgert að 750 þúsund króna famlag til hrað- frystihúss verði tekið með útsvörum í ár Síðasti bæjarstjórnarfundur fyrra árs hér á Akureyri var haldinn 28. desember og var aðalmál fundarins að ræða fjár- hagsáætlun kaupstaðarins fyrir árið 1955, og var þetta fyrri umræða, en seinni umræða mun fara fram nú innan skanumi. Mun áætlunin væntanlega taka einhverjum breytingtim við þá umræðu. Breyting á lokunartíma sölubúða gengur í gildi Nú um áramótin verður tek- ið upp nýtt fyrirkomulag á sölutíma sölubúða í bænmn og er árangur af samningum Fé- lags verzlunar- og skrifstofu- fólks og verzlananna í bænuin. Verður búðum framvegis lokað kl. 1 á laugardögum, í stað kl. 4, sem verið hefur á vetrum um nokkurt árabil. Búðir verða cpnar á föstudögum til ld.7 síðdegis. Útgjöld hækka. En aðalsvipmót áætlunarinnar er hækkun útgjalda bæjarins miðað við áætlunina í fyrra. Eru niður- stöðutölur tui 13,6 millj., en voru 11,7 ntillj. við fyrri umræðu í árs- lok 1953. Utsvör eru nú áætluð 10,6 millj., en voru áætluð röskar 8 millj., í síðustu áætlun, en urðu nokkru hærri endanlega. Stærsti ný- liður áætlunarinnar er 750 þúsund króna framlag til hlutabréfakaupa í Utgerðarfélagi Akureyringa. Leið- ir það af samþvkkt bæjarstjórnar t sumar, að bærinn legði þetta fé fram, og var engin fjáröflun undir- búin í sambandi við þá samþykkt. Ríkissfjórnin styður nágranna- kaupstaði fil fogaraúfgerðar Þau tíðindi harfa gerzt í at- vinnumólum hér nyrðra, að ríkis- stjórnin mmi styðja nágranna- kaupstaði Akureyrar til togara- kaupa og togaraútgerðar, en hin mesta þörf er að bæta atvinnu- ástand þessara staða. Enn er ekki gengið frá því, hvernig þessari útgerð verður háttað, eða hverjir standa að henni, en talið er að Ólafsfirðing- ar munu helztu hluttakendur í væntanlegu hlutafélagi, auk þess sem Sauðárkróksbúar og e. t. v. Framhald á 2. síðu). Akueyringar sæmdir fálkaorðu Meðal þeirra, sem forseti fs- lands sæmdi heiðursmerkjum fálkaorðunnar ó nýjársdag, eru Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi, sem hlaut stórridd- arakross fyrir bókmenntastörf, en Davíð verður sextugur 21. þ. m., og Ólafur Thorarensen bankastjóri hér í bæ, er hlaut riddarakross fyrir störf að bankamálum. Helztu tekjuliðir. Helztu tekjuliðir bæjarins eru, samkvæmt áætluninni nú við fyrstu gerð (Tölur frá í fyrra í svigum'): Skattar af fasteignum 1.5 millj. (1.4 millj.), tekjur af jarðeignum 550 þús. kr. (600 þúsj, endurgreidd- ir fátækrastyrkir 222 þús. (140 þús.), hluttaka bæjarstofnana í rekstri bæjarins 667 þús. (730 þús.), hlut- ur bæjarins af stríðsgróðaskatti 5 þús. (32 þús.), sætagjald kvikmynda- húsa 20 þús. (20 þús.), útsvör 10,601,550,00 (11,755,100,00). At- \hugandi er, að nú er ráðgert að leggja á mun fleiri gjaldendur en í fyrra vegna stækkunar lögsagnar- umdæmis bæjarins. Helztu gjaldaliðir. Vextir og afborganir af föstum lánum 643 þús. (284 þús.) og veld- ur afborgun af sjúkrahússláni hækk- uninni, en sú afborgun er 460 þús. (Framhald á 0. síðu). Allir togarai- Akureyringa náðu því að vera í höfn á jólum, þótt tveir þeirra yrðu síðbúnir vegna óveðurs í hafi, á leið frá Þýzkalandi. Komu þeir á jóladagskvöld, SvaJbakur fyrr, en Kaldbakur scinna, og var ljósum prýddur stafna í rnilli og með fallegt jólatré á stjómpalli. Harðbakur og Sléttbakur komu skömmu fyrir jól, en Jör- undur á aðfangadag, eftir Ianga útivist að heiman að síldveiðmn í Norðursjó. Að morgni annars jóladags gat því að líta, hvar allur togaraflotinn lá hér við hafnar- bryggjur og samfögnuðu bæjarmenn sjómönnunum að hafa náð hcim til að njóta þessarar stundar með óstvinum sínum. Myndirnar hér að ofan sýna Jörund t. v., þá Svalbak og Kaldbak við Torfunefsbryggju syðri og loks Harðbak og Sléttbak við nyrðri Torfunefsbryggju. Togarar Útgerðarfélags Akureyringa eru farnir á veiðar. Allir togarar Akureyringa voru hér við bryggjur á jólunum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.