Dagur - 04.11.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 04.11.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, miðvikudagur 4. nóvember 1992 210. tölublað ■ -f Vel ífc 1 >1 1 klæddur ■ |m frá BERNHARDT -^^1 II II The Taik>r I.iH>k ernabudin 1 1 HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397 Súkkulaðiverksmiðjan Linda: Nauðasairniingar ræddir Greiðslustöðvun Súkkulaði- verksmiðjunnar Lindu hf. á Akureyrw- rennur út á þriðju- dag í næstu viku. Línur eru að skýrast í fjárhagslegri endur- skipulagningu verksmiðjunnar Fyrirtækið Hex hf.: Smíðar tæki fyrir Flugmálastjóm - mælir vindátt, vindstyrk, raka og hita- stig við flugbrautir Fyrirtækið Hex hf. á Berghóli í Glæsibæjarhreppi hóf fyrir tveimur árum hönnun og smíði á tækjum fyrir Flugmála- stjórn, sem þegar hafa verið sett upp á flestum þeirra flug- valla er Fokker F50 flugvélar Flugleiða hafa viðkomu á. Tækið mælir vindátt, vindstyrk, raka, hitastig við yfir- borð flugbrautar og í framtíðinni geta starfsmenn Flugmálastjórn- ar lesið þessar upplýsingar af tölvuskjá. Tækið hefur verið sett upp á Akureyrarflugvelli, en kapallögn frá tækjahúsi og í afgreiðslu hefur ekki verið fram- kvæmd enn vegna kostnaðar, en engu að síður geta starfsmennirn- ir fengið allar upplýsingar frá tækjunum með beinum aflestri. Jóhann Jónsson hjá Flugmála- stjórn segir mikið gagn af þessum tækjum, ekki síst þegar meta þarf hvenær sandbera þarf flugvelíi vegna hálku eða snjóa. Framtíð- armarkmiðið er að samtengja þessi tæki þannig að flugmaður sem ætlar t.d. að fljúga frá Ak- ureyri til Fagurhólsmýrar getur kynnt sér ástand flugvallarins sem fljúga á til og sá þáttur er ekki síst verulegt öryggisatriði. GG og er ákveðið að ræða nauða- samninga við skuldareigendur en langsamlega stærstur þeirra er Landsbanki íslands. Sigurður Arnórsson, fram- kvæmdastjóri Lindu, segir að alltaf hafi legið fyrir að gerðir verði nauðasamningar ef takist að semja við Landsbanka íslands. Eitt meginmál í endurskipu- lagningu fyrirtækisins er að því verði komið fyrir í minna hús- næði og er það talið vera ein af forsendum fyrir því að fyrirtækið eigi sér rekstrargrunn í framtíð- inni. Væntanlega mun þá Lands- banki íslands taka húsið en ekk- ert liggur fyrir um kaupverð og þar af leiðandi er ekki ljóst hver skuldastaðan verður að húsinu seldu. JÓH Í fyrrinótt snjóaði töluvert á Akureyri. Smáfólkið fagnaði snjónum að vonum og hafði nóg að gera við að skapa hin- ar furðulegustu kynjamyndir. Mynd: Robyn Nýi leikskólinn við Brekkugötu upp- fyllir ekki kröfúr Vinnueftirlitsms - verulega skortir á lofthæð og hæð stigaops og hurðaopa í kjallara Nýr leikskóli, Klappir, sem staðsettur er að Brekkugötu 34 var formlega tekinn í notkun í gær. Húsið var keypt fyrr á árinu og var staðgreitt kaup- verð 10 milljónir króna. Fast- eignamat húsins 1. desember 1991 er kr. 7.772.000,- Þegar kaupin á þessu húsnæði komu til afgreiðslu bygginganefndar var vitað að húsnæðið uppfyllti ekki allar þær kröfur sem gerð- ar eru um starfsemi leikskóla. Þau mistök voru gerð við afgreiðslu málsins og meðan á hönnunarvinnu stóð að gengið var fram hjá þremur aðilum sem lögboðið er að leita til, en það eru Brunaeftirlit ríkisins, Heilbrigðiseftirlit ríkisins og Vinnueftirlit ríkisins. Tvö fyrrnefnd eftirlit gáfu sam- þykki sitt en Vinnueftirlitið skoð- aði húsið ekki fyrr en fimmtudag- inn 29. október sl. og gaf ekki | samþykki sitt fyrir því að kjallari húsins yrði nýttur til starfseminn- ar eins og fyrirhugað var þar sem lofthæð er þar ekki nægjanleg, aðeins 2,02 metrar og minnsta lofthæð í stiga milli hæða er 1,75 m. Hæð hurðaropa er aðeins 1,70. Aðspurður segir Helgi Har- aldsson hjá Vinnueftirliti ríkisins að það sé mjög slæmt mál að ekki skuli leitað fyrr til eftirlitsins en raun beri vitni í umræddu máli. í Úthlutun bygginganefndar á lóðinni Skipagata 9 kærð: „Óeðlilegt að bygginganeM velji hönnuði að byggmgum“ - segir Sigurður Sigurðsson hjá SS Byggi hf. Byggingafyrirtækið SS Byggir hf. á Akureyri hefur kært vinnubrögð bygginganefndar bæjarins til umhverfisráðu- neytisins vegna úthlutunar lóð- arinnar Skipagata 9, en A. Finnsson hf. hyggst reisa þar 1780 fermetra hús á fjórum hæðum. Á jarðhæð verða verslanir, á næstu tveimur hæð- um skrifstofur en fjórar íbúðir á efstu hæðinni. „Við sendum kæru vegna þess- arar afgreiðslu bygginganefndar til umhverfisráðuneytisins og viljum fá úrskurð frá ráðuneytinu um það hvort vinnubrögð nefnd- arinnar séu rétt“, segir Sigurður Sigurðsson, „og okkur finnst það mjög óeðlilegt að bygginganefnd sé að velja hönnuði að ákveðnum byggingum eins og gert var í þessu tilfelli." Að sögn Hrafns Hallgrímsson- ar í umhverfisráðuneytinu hefur verið beðið um umsagnir frá Skipulagsstjórn ríkisins og Bæjar- stjórn Akureyrar og þær hafi enn ekki borist. Urskurður ráðuneyt- isins þarf að liggja fyrir innan sex mánaða frá afgreiðslu bygginga- nefndar Akureyrar. í fyrravetur barst álitsgerð frá þáverandi ráðuneytisstjóra, Páli Líndal, og niðurstöður þeirrar álitsgerðar eru þær að bygginga- nefnd Akureyrar hafi ekki farið út fyrir verksvið sitt. Sigurður Hannesson, varafor- maður bygginganefndar Akur- ; eyrar, segir að málið verði rætt á næsta fundi nefndarinnar en sjálf- ur telji hann kæruna ekki á rökum reista því ekki hafi verið óeðlilega að málinu staðið. Hugsunin að baki þessarar afgreiðslu hafi verið sú að kanna áhuga, þörf og fram- kvæmdahraða en nefndin vildi koma í veg fyrir að framkvæmdir yrðu hafnar en byggingartími yrði síðan mjög langur. Sigurður segir það rangt að nefndin hafi valið hönnuð að byggingunni, en hins vegar vildi hún fylgjast með hönnuninni því reynslan hafi sýnt að þeir séu eins misjafnir eins og þeir eru margir en fyrir kemur að sendar eru inn teikningar sem standast ekki reglugerðir og það vildi bygginganefnd forðast. GG niðurlagi bréfs sem Vinnueftirlit- ið sendi bæjarstjóra, Halldóri Jónssyni, segir: „Vinnueftirlit ríkisins harmar að þessi staða hef- ur komið upp. Samkomulagi Vinnueftirlits ríkisins og bygg- inganefndar var komið á að frum- kvæði Vinnueftirlitsins til að koma í veg fyrir óþægindi sem þessi og þann kostnað sem þau hljóta að hafa í för með sér. “ Afrit þessa bréfs voru send til bygginga- nefndar, dagvistadeildar og öryggisnefndar. Samkomulagið gengur út á það að bygginganefnd tekur ekki til afgreiðslu teikningar af atvinnu- húsnæði fyrr en umsögn Vinnu- eftirlitsins liggur fyrir. Helgi segir að innan bæjarkerfisins sé mikil óánægja með afskipti þeirra Jóns Geirs Ágústssonar, Ágústs Bergs og Einars Jóhannssonar af málinu en sá síðastnefndi hannaði leik- skólann að Brekkugötu 34. Einar mun hins vegar hafa gert grein fyrir þeirri skoðun sinni fljótlega eftir kaupin á húsinu að þetta væri ekki „gott mál“ og álitamál hvort hann ætti að leggja vinnu í að gera húsið að leikskóla. Helgi Haraldsson segir að hann sé frekar svartsýnn á að komist verði að einhverju sam- komulagi um takmarkaða nýt- ingu á kjallara hússins enda eigi f lofthæð að vera 2,50 metrar og þar skorti verulega á og slysa- hætta því þarna fyrir hendi. Á þriðjudag var haldinn fund- ur á skrifstofu Vinnueftirlitsins með þeim Sigurði Hannessyni, varaformanni og starfandi for- manni bygginganefndar, Jóni Geir Ágústssyni, byggingafull- trúa, Jóni Björnssyni félagsmála- stjóra og Ingibjörgu Eyfells deildarstjóra dagvistadeildar þar sem reynt var að ná samkomu- lagi, en án árangurs. Jón Geir Ágústsson bygginga- fulltrúi segir skiptar skoðanir vera um nýtingarmöguleika kjall- ara Brekkugötu 34 og þegar unn- ið er í gömlum húsum séu ekki alltaf gerðar stífustu kröfur eins og um lofthæð og hæðir á hurða- opum. Hann hafi gefið skýrslu um ástand hússins til félagsmála- stjóra, Jóns Bjömssonar og deildarstjóra dagvistadeildar, Ingibjargar Eyfells, áður en ráð- ist var í kaup á því. Jón Geir seg- ir það spurningu hvort ekki megi gefa undanþágu frá reglum Vinnueftirlitsins t.d. með því að annað komi í staðinn eins og t.d. loftræsting og takmörkuð nýting á kjallaranum og það hafi reynd- ar alltaf legið fyrir því þarna komi 6 til 8 börn í senn og í skamman tíma. Auk þess er gert ráð fyrir hvíldarherbergi (starfs- mannaaðstöðu) í kjallaranum. GG Akureyri: Atvmnulausum ijölgar Atvinnulausum hefur fjölgaö á Akureyri síðasta mánuðinn. Sé litið til sama tíma í fyrra þá eru nú 50 fleiri á skrá. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumiðlunarskrifstofunni á Akureyri voru 224 á atvinnuleysis- skrá í byrjun nóvember, 113 karl- ar og 111 konur. í lok september var talan 162, 59 karlar og 103 konur. Sé litið til atvinnulausra í einstökum stéttarfélögum þá eru 78 félagar atvinnulausir í Einingu, 30 í Iðju, 46 í Félagi verslunar og skrifstofufólks, iðn- aðarmenn eru 13, sjómenn 10 og bílstjórar 18. ój

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.