Þjóðviljinn - 22.12.1940, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.12.1940, Blaðsíða 2
Sunnudagur 22. desember 1940 ÞJOÐVILJINN þiðaimJiNN Sameiniugarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokkurinn. Bitetjórar: Einar Olgeirsaon. Sigfús A. Slgurhjartarson. Kitstjórn: Hverfisgðtu 4 (Vikings- prent) aími 2270. Afgreiðsla og auglýsingaskrif stefa: Austarstrasti 12 (1. hœð) sími 2184. Áskriftaxgjakl á mánuði: Reykjavík og nigrenni kr. 2.50. Annarsstaðar á land- inn kr. 1,75. 1 lausa»ölu 10 aura eintaldð. Víkingsprent h.f., Hverfisgötu Samfylking verka manna gegn sam- fylkingu Skjald~ borgarínnar ÞaS er dálítið einkennileg flokkaskipting, sem fram hef- ur komið í Dagsbrún við at- kvæðagreiðslu þá sem nú stend ur yfir. Til þess að gera sér þetta mál fyllilega ljóst, verður að minnast þess að hin raunveru- lega ástæða til þess að at- kvæðagreiðsla þessi var hafin, var sú, að stjórn Dagsbrúnar þorði ekki að kalla saman fé- lagsfund, til þess að raéöa brott rekstur þeirra Jóns Rafnssonar og Sveins Sveinssonar úr félag- inu. Stjórnin veit að verka- menn kjósa annað fremur en aö reka verkamenn úr félag- inu, en telur þó ekki með öllu vonlaust að takast megi að telja mönnum, sem ekki voru á síðasta Dagbrúnarfundi, trú um að eitthvað hafi verið við framkomu þessara tveggja manna að athuga á þeim fundi Svo lengi má ljúga að einhver trúi. En hverjir eru það nú sem vilja losna við þessa menn? Allir vita, að það er hin margseka og gjörspillta Skjald borg. Allir vita, að . það var Haraldur Guðmundsson, þessi einstaklega ámáttlegi Skjaldborgari, sem olli óspekt- unum á Dagsbrúnarfundinum, og það er hann og hans borg, sem vill kenna saklausum og refsa saklausum, fyrir þau ó- dáðaverk, sem hann sjálfur hef ur framið. Það hefur heldur ekki stað- ið á því, að verkamenn úr öll- um flokkum hafa mætt þessu óþokkabragði með réttmætri fyrirlitningu og andúð, og þannig hefur það orðið að myndast hafa samfylkingar verkamanna úr öllum stjórn- málaflokkum um að berjast á móti Skjaldborgarrekstrum þeim sem fyrirhugaðir voru. Það hefur hinsvegar ekki staðið á því, að mynduð hafi verið önnur samfylking gegn samfylkingu verkamanna, það er samfylking við Skjaldborg- ina, þessa samfylkingu mynda þjónar atvinnurekenda í Dags- brún og Héðinn Valdimarsson BÆKUR SIG THORLACIUS: UM LOFTIN BLÁ. Út- gefandi: ísafoldar- prentsmiðja. Það þarf ekki að orölengja um þessa sögu. Eins og fyrri bók höfundarins, Sumardagar, stingur hún í stúf við flestar barnabækur íslenzkar, sem út hafa komið á seinni árum. Höf- undurinn gerir hvergi tilraun til þess að tala við lesendur sína í hjákátlegum apakatta- stíl, eins og væru þeir hálfvit- ar, sem ekki skildu mælt mál, en því miður virðist það vera bjargföst trú margra íslenzkra barnabókahöfunda, aö þannig beri að tala viö hina yngstu lesendur. Sagan Sumardagar fjallaði um líf sauðkindarinnar, þar sem hún unir sælust í frelsi af- réttarins, en þessi nýja bók er um fuglana við strendur lands ins, og höfuðpersónurnar eru æðarhjónin Skjöldur og Brún- kolla. Eg hef fáar barnabækur lesið, sem eru jafn skemmtileg- ar og þessi, jafn kvikar af lífi og fjöri, jafn myndríkar og fræðandi. Þessi saga er ekki að eins gamanlestur fyrir börnin, heldur einnig fróðleiksbrunn- ur og mennta, enda getur varla hjá því farið, að hún glæði ást þeirra og auki skilning þeirra á náttúru landsins og lífi dýr- anna. Frágangur bókarinnar er góður, en hinsvegar finnst mér það bera vott um óþarflega sparsemi, að útgefandinn skuli ekki hafa prýtt hana með nokkrum fallegum teikningum Ó. J. S, HORACE MC COY: HOLLYWOOD HEILLAR Karl ísfeld íslenzkaði. Heimdallur. Bókaútgáfa Reykjavík. Horace Mc Coy er Bandaríkja maður og hefur skrifað nokkrar skáldsögur, sem vakið hafa at- hygli. Þessi saga, sem hér er þýdd, gerizt í Hollywo<od „borg persónulega, og stendur hann einn sinna manna, því enginn telur Guðmund Ó, sjálfstæöa persónu, fremur en bílinn hans Héðins. Fróðlegt veröur að sjá hve margir ljá þessari Skjaldborg- arsamfylkingu lið, og hve margir koma fram við þessa kosningu, sem óbrjálaðir verka menn. Samfylking Skjaldborgarinn ar segir já við rekstrartillög- unni, en samfylkingarverka- menn nei. Það eru miklar líkur til að þessar sömu fylkingar komi fram við stjórnarkosningar í Dagsbrún í vetur. Þeir sem fylgja verkamönn- um setja X fyr in framan nei-ið við þriðju spurningunni á kjör- seðlinum. hinna gullnu tækifæra", sem leikhneigt fólk í öllum löndum dreymir um. Höfundur er kunn- ugur Hollywood af eigin reynd, og hann skrifar ekki skáldsögu um kvikmyndadísirnar qg hetj- urnar, sem svífa um tjöldin í bíóum heimsins, heldur tekur hann sem aðalpersónur pilt og stúlku úr hinum stóra her at- vinnulausra leikara, sem látið hafa lokkazt af ljómanum frá Hollywood, og dárgp fram líf- ið við bág kjör. Bók Mc Goy er bitur ádeila á það þjóðfélags- lega óréttlæti, er lýsir sér í hinni óhófslegu misskiptingu auðsins í þessári höfuðborg kvikmyndanna innan um frásagnir af lífi hinina fátæku aufcaleikara koma lýsing- ar á óhófsveizlum auðmannanna. En Mc Coy gerir úr öllu þessu spennandi skáldsögu og lær- dómsrika, þó Ijót sé hún áköfl um. MAJA JÁDERIN-HAG- FORS: TVÍBURASYST- URNAR. ísak Jónsson þýddi. Útgefandi: ísa- foldarprentsmiðja. Þetta er skálcisaga um tvíbura systur, er missa móður sína í æsku, og alast upp hjá skiln- ingslitlum ættingjum. Það eru mestu myndartelpur, og komiast til borgarinnar, þegar þeim vex fiskur um hrygg og vinna fyr- ir sér í verzlunum og sem einka- ritarar hjá forstjóra einum. Það þarf varla að segja, hvernig slík saga endar, en nægir að geta þess, að forstjórinn er ógiftur. Höfundur hefur tekið upp á þeim skolla að láta abra stúlkuna heita Maríu-Önnu en hina Önmu-Maríu, og lesandinn þarf að fylgjast vel með til að vita hvor fékfc for- stjórann, enda var hann í mestu vandræðum með að þekkja þær að, þó hann fengi síðast (að ég held), þá sem hann langaði meira í fyrst. Málið á samtölunum er sumstaðar full bóklegt og há- tíðiegt og það engu síður þó elskendur tali&t við, en fjandinn má vita hvað hin alræmda sænska kurteisi gengur langt — og sízt er þýðandinn líklegur til að slá af siðgæðiskröfunum. En auðvitað er bókin siðspillandi eins og all- ar þær sögur er enda á því, að forstjórinn giftist fátæku stúlk- unni og verður því vafalaust mik ið lesin. S. G. Æ» F» R' * * r X Skemtifund heldur Æ.F.R. á annan 1 jólum. — Nánar aug- lýst á þriðjudaginn, l <X><X>0<X>0<^00<><><>0<><> Svana-kaffí handa góðvinum og góðuhi gestum Svana-kaffí í næstu búð. Blcmasafan LAUGAVEG 7, tilkynnir: Jólatré — Grenigreinar — Birkigreinar — Borðskraut Blómakörfur. — Bæjarins lægsta verð — Opið frá kl. 2. Nýjasia og bezta jólabókín handa drengjum er nú komin i bókaverzlanír. — Hún heífír: CLl/n íoftin blá effír $í$urð Thovlacíus, skólasfjóra. Nýjasta Ijóðabókin Æskuljóð, þrungin af sólskini og sumarilmi. Góð jólagjöf handa eldri sem yngri. Skíðahetjurnar Hertaka Kíímasjárví. Eftír Gennady Físch. ¥ Lesið þessa ágætu bók. Hún lýsir þætti í frelsisbaráttu finnsku alþýðunnar og segir frá einum glæsilegasta foringja hennar, Toivo Antik- ainen. Auk þess*gefur bókin góða hugmynd um hernað skíða- hersveita og er hrífandi og spennandi eins og skáldsaga. Bókaútgáfan Rún Siglufirði. I^||||^■IIIHI '!■ iiilll!<■ 1111« i iiiiihii ii—iii>ili iii ir i' r 'i' i[nrmnrimiirg~~~ Þú þarft að fá þér hina hug- nœmu og skemmtilegu skáldsögu ,Svona störc ellir Edne Ferber fyrir jólin. Fæsl á afgr. Pjóðvilians Verð kr. 3.50

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.