Þjóðviljinn - 17.01.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.01.1986, Blaðsíða 1
UM HELGINA GLÆTAN HEIMURINN Viðrœðurmillifjármálaráðuneytis, samgönguráðuneytis og sérleyfishafa umsölu Umferðarmiðstöðvarinnar. Afhenda einkaaðiljum ríkiseignir? Verðmœti eignarinnar talið 25-30 miljónir króna Jú það er rétt, það eru við- ræður í gangi milli samgöngu- ráðuneytis og fjármálaráðuneytis annars vegar og hins vegar félags sérleyfishafa og BSI, sagði Olafur Steinar Valdimarsson ráðuneyt- isstjóri í samgönguráðuneytinu, er Þjóðviljinn leitaði eftir því hvort hafnar væru viðræður um sölu Umferðarmiðstöðvarinnar. Umferðarmiðstöðin var byggð á sínum tíma á grundvelli laga um miðstöð fólksflutninga í Reykja- vík og hýsir miðstöðin margvís- legan rekstur. Aðstaðan hefur verið leigð út til Pósts og síma, Verslunarbankans, Félags sér- leyfishafa og BSÍ, - og rekur BSÍ hf. veitingasölu og nætursölu í húsnæðinu. Áður hefur oftsinnis komið til tals að einkaaðiljar keyptu þessa eign ríkisins, en aldrei komist til alvarlegra um- ræðna fyrr en nú. Bygging húss- ins naut margs könar fríðinda af hálfu sveitarfélags (Reykjavíkur) og ríkisins. Samkvæmt heimild- um Þjóðviljans hefur ágóði verið töluverður af nætursölu og greiða leigjendur lága leigu. Olafur Steinar kvað umdeilan- legt hvort leigan stæði undir rekstri hússins, - húsnæði skorti viðhald og leigan nægði ekki fyrir þeim kostnaði. Hann kvaðst ekki geta sagt til um verðmæti hússins, en Þjóðviljinn hefur hlerað að það sé metið á bilinu 25-30 milj- ónir króna. „Það er deginum Ijósara að það hefur aldrei verið til þess ætl- ast að einstaklingar fengju að dandalast með þessa eign“, sagði maður í hópferðaviðskiptum við Þjóðviljann í gær. „Að áliti mjög margra er engin trygging fyrir því að sama starf- semi og til var ætlast af hálfu sveitarfélags og ríkis verði áfram í húsnæðinu. Okkur grunar að hér ætli Sjálfstæðisflokkurinn enn einu sinni að aflienda gæðingum sínum ríkiseignir", sagði hóp- ferðarviðskiptamaðurinn að lok- um. -óg Umferðarmiðstöðin á söluskrá ríkisstjórnarinnar. Viðræður hafnar. Mynd. E.ÓIason. Reykjavíkurborg 800 miljónir af launum Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi: Kjaraskerðing ríkisstjórnarinnar eykur framkvœmdafé borgarinnar úr200 miljónum í1000 miljónir. Borgin grœðirá fátœktinni. Stjórnleysi ífjármálum síðanl982 Rúmlega 80% framkvæmda- fjár borgarinnar á fjárhags- áætlun þessa árs er til komið beinlínis vegna kjaraskerðingar ríkisstjórnarinnar en hefði hún ekki komið til hefði borgin 200 miljónir til framkvæmda í ár í stað rúmlega miljarðs, eins og gert er ráð fyrir á Ijárhagsáætl- un, sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins í samtali við Þjóðviljann í gær. Ef laun hefðu haldið verðgildi sínu frá árinu 1982 væri launa- kostnaður borgarinnar 1986 633 miljónum króna hærri, en þessar miljónir nýtast þess í stað til framkvæmda. Kjaraskerðingin hefur vitanlega leitt til þess að almenningur á í sívaxandi erfið- leikum með að greiða gjöld sín til borgarinnar og áætlaðar tekjur borgarsjóðs af dráttarvöxtum eru 182 miljónir króna. Þannig hafa 815 miljónir af framkvæmdafénu borist í borgarsjóð beint og óbeint vegna kjaraskerðingar- innar. „Það að búið er að koma fjölda fólks niður að fátæktarmörkum hefur komið Davíð Oddssyni og félögum hans til bjargar við fjármálastjórnun borgarinnar. Þyrfti þessi meirihluti að stjórna við sömu astæður og meirihlutinn 1978-1982 hefði hann aðeins um 200 miljónir til framkvæmda í stað rúms miljarðs", sagði Sigur- jón í gær. „Þrátt fyrir að stjórnin hafi bjargað meirihlutanum að þessu leyti, er hægt að benda á fjölmörg dæmi þess hvernig stjórnleysið hefur ríkt í fjármálum síðan 1982. Borgarskipulagið hefur þanist svo út á síðustu árum að nú er kostnaður vegna aðkeyptrar vinnu þar orðinn slíkur að í raun eru reknar tvær álíka kostnaðar- samar stofnanir úti í bæ og þessi sem borgin rekur. Fjárhagsáætlunum meirihlut- ans hefur reyndar aldrei verið fylgt eftir. Það er allt látið vaða á súðum og svo gera menn fjár- hagsáætlanir án nokkurs tillits til fortíðarinnar. Meirihlutinn getur almennt engar skýringar gefið á hækkunum og lækkunum út- gjalda milli ára“, sagði Sigurjón. -gg Tónlist Stuðmenn til Kína? Kínversk stjórnvöld hafa boðið um. rokkhljómsveit til Kínaferðar ef hinum íslensku Stuðmönnum til Boðið mun hafa borist þeim fé- þeirþiggjaboðið.íkjölfarhinnar þriggja vikna dvalar í ríkinu í lögum fyrir tilstilli Kínversk-ís- kunnu bresku hljómsveitar miðið; í apríl og maí á þessu ári. lenska menningarfélagsins, og Wham. Stuðmenn eru enn að hugsa sig yrðu Stuðmenn önnur vestræn _m Neysluþjóðfélagið Öilu er nú fleygt Sacramento — Yfirvöld í Kalif- orníu eyddu í fyrra tæplega hálfum miljarði króna í að hreinsa upp rusl meðfram þjóðvegum fylkisins. Ruslið sem sorphreinsunar- menn tíndu upp var af öllu mögu- legu tagi. Þar gat að líta haus af villisvíni, falskar tennur, pappa- líkan af nashyrningi í líkamss- tærð, nokkra pakka af fíkniefn- um, djúpsprengju frá bandaríska flotanum, hrygglengju úr nauti, mannsfingur í heilu lagi og „ótrú- legt úrval af eftirlíkingum af hin- um ýmsu líffærum mannsins, flestar úr gúmmíi“, eins og einn embættismaður fylkisstjórnar- innar orðaði það. —ÞH/reuter Frjálshyggjan Umferðarmiðstöðin seld?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.