Dagblaðið - 22.09.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 22.09.1975, Blaðsíða 1
1. árg. — AAánudagur 22. september 1975 —11. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12 sími 83322, afgreiðsla Þverholti 2 sími 22078. ÞREM RÁÐHERRUM OG BISKUPI VERÐUR STEFNT - BAKSIÐA EFTIR SÚLDINA í SUMAR: ALGJÖRT „SYNDAFLÓÐ" Verkamenn borgarinnar voru ab reyna aö lagfæra þá furöulegu verkfræöilegu skekkju, sem gerö hefur veriö i Fossvoginum og ræstu fram flóöið á einni aöalgötu borgarinnar, sem jafnan myndast þar. Myndin var tekin skömmu fyrir hádegiö i dag. (DB-mynd Björgvin). „Það hefur verið geysilega mikil úrkoma i nótt og i morgun. Frá þvi kl. sex til kl. niu höfðu fallið um tiu milli- metrar til jarðar, sem þýðir eins sentimetra jafnfallið vatn á jörðinni,” voru upplýsingarnar, sem við fengum frá veðurstofunni i morgun. Þetta var þó ekki mesta rigningin á landinu, — i Vestmannaeyjum hafði rignt 50 millimetra og á Reykja- nesvita 34. í Reykjavfk var allt á floti á götunum og voru allir vinnu- flokkar borgarinnar önnum kafnir við að vaða elginn og ræsa fram vatnið, sem hafði safnazt saman. Ekki hafði frétzt um nein óhöpp vegna flóða, og hjálpar það mikið, að frost er ekki ennþá komið i jöröu, svo að vatnið nær að siga talsvert niður. Vegagerðin hafði ekki haft neinar fregnir af skriðuföllum á þjóðvegum, en það þarf þó ekki að þýða, að engir skaðar hafi orðið. Þó vissu þeir af slyddu á Akureyri og töldu, að þar hafi hálka náð að myndast. —AT— VAR AÐEINS 3 MERKUR VIÐ FÆÐINGU - hring- urinn passaði sem armband — sjó bls. 5 TVO UNG- MENNI FÓRUST — tvö önnur stórslösuð ó sjúkrahúsi — baksíða BÁTURINN FANNST Á HVOLFI FJÓRAR MÍLUR FRÁ LANDI — 26 óra gamals Fáskrúðsfirðings er saknað, var að koma af dansleik Ottazt er, að 26 ára gamall maður i Fáskrúðsfiröi hafi farizt á firðinum aðfaranótt sunnudagsins. Var gerð umfangsmikil leit að hinum týnda í gær m.a. með aðstoð þyrlu og deildar Slysavarna- félagsins undir forystu Bjarna Bjömssonar, en hún hefur ekki borið árangur. Tildrögin eru þau, að á laugardagskvöld var dansleikur á Reyðarfirði og þar margt aðkomumanna. Meðal gesta voru tveir menn af bóndabæjum sunnan Fáskrúðsfjarðar. Þeim var ekið heim og komið heim undir bæi þeirra um kl. 4 um nóttina. Var ekki vitað annað en báðir hefðu haldið heim. Um níuleytið á sunnudags- morgun verður bóndinn á Vik i Fáskrúðsfirði þess var, að bátur sem hann átti uppsettan við bæ sinn, var horfinn, og um sama leyti er saknað annars mann- anna, er ekiö var af ballinu á Reyöarfirði um nóttina. Var hvarf hans sett i samband við hvarf bátsins og skipulögð leit hafin. Tóku þátt i henni sveit SVFI, auk lögreglu og fleiri. Leitin bar þann árahgur að um 4 milur frá landi fannst báturinn frá Vik. Varhann þar mannlaus á hvolfi, neglulaus og áralaus. Ekkert hefur hins vegar spurzt til mannsins sem ekki kom heim til sin af dansleiknum. Sýslumaðurinn i S-Múlasyslu, Valtýr Guðmundsson, tjáöi blaðinu að i ljós hefði komið að mennirnir tveir hafi haft eitt- hvert vin um hönd. —ASt SÁLRÆNN FLEYGUR REKINN MILLI FÖÐUR OG SKÁKDROTTNINGAR? - bls. 5 VAÐIÐ FYRIR LIST Hann sýndi listaverkin sin i Tjörninni I gærdag, hann Gunnar Geir. Fjöldi manns horfði á verkin hans og mæltist þessi óvanalega list- sýning vel fyrir. En I miðri sýningunni lagði eitt verkanna af staö út Tjörn- ina. Listamaðurinn vatt sér þá bara út I forarpoliinn og öslaði eftir verkinu. (Ljósmynd ÓB).

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.