Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 1

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 1
HELCARPÓSTURINN 9. NÓVEMBER 1995 73. TBL. 2. ÁRG. VERÐ 250 KR. „Það er auðvitað ófyrirgefan- legt hvernig ég hagaði mér á Akureyri í október, sérstaklega gagnvart eiginkonu minni og mínum nánustu. En ég gat ekki betur skilið en að maðurinn, sem nú hefur kært mig, væri alveg sáttur við nærveru mína. Hann bað mig í það minnsta aldrei að fara út úr herberg- inu. Ég tel að óprúttið fólk hafi verið að notfæra sér annarlegt ástand mitt,“ segir Heiðar Jónsson í opinskáu viðtali við HP. Mynd af Heiðari hálfnöktum hefur verið dreift á Inter- netinu um heim allan og á sú myndbirting líklega rætur sínar á Akureyri. „Hafi ég sært svona illa blygð- unarkennd þessa manns álít ég að hann hefði átt að biðja mig að fara í stað þess að ljós- mynda mig í bak og fyrir, að mér forspurðum og án þess að ég vissi nokkuð af því. Ég hef ekki í hyggju að breyta eðli mínu, en ég mun gera mitt besta til að bregðast ekki mín- um nánustu aftur. Ég er ekki syndlaus frekar en aðrir menn. Mig langar heldur ekkert til að þekkja svoleiðis fólk.“ Heiðar Jónsson sætir kæru vegna kennd ungs manns a Akureyri

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.