Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 1
nýr alfa romeo ● jeppaferð ▲ SÍÐUR 14-17 bílar o.fl. Kallaður ljóna- bíllinn Vanda Sigurgeirsdóttir: ● á leið út á land Bubbi Morthens: ▲ SÍÐA 26 Einn á ferð með gítarinn ● leikir kvöldsins Meistaradeildin: ▲ SÍÐA 24 Burst hjá United nám o.fl. ● öldungadeild mh Lovísa Viðarsdóttir: ▲ SÍÐUR 18 til 19 Saumar daginn langan MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 23 Sjónvarp 28 MIÐVIKUDAGUR RÉTT AÐ SELJA LANDSSÍMANN Framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Lands- bankans telur að nú sé rétti tíminn til að selja fyrirtæki eins og Landssímann og hugsanlega skoða sölu eignarhluta opin- berra aðila í orkufyrirtækjum. Sjá síðu 2. VILL AÐSKILNAÐ RÍKIS OG KIRKJU Össur Skarphéðinsson telur að breytingar á samfélaginu kalli á endurskoð- un á stöðu þjóðkirkjunnar í stjórnarskrá. Hann segir mikilvægt að allir, óháð trú- hneigð, finni sama skjól undir stjórnarskrá Íslands. Sjá síðu 2. LÍKUR Á MINNI ÞENSLU Hagvaxtar- skeiðið er hafið, fyrr en vænta mátti. Sam- kvæmt langtímaspá Landsbankans verður verulegur hagvöxtur til ársins 2007. Skilyrði í efnahagslífinu eru góð og líkur á þenslu minni en fyrri spár hafa gert ráð fyrir. Sjá síðu 4. NÝ VERKSMIÐJA Á BÍLDUDAL Björgun hf. vinnur að stofnun kalkþörunga- verksmiðju á Bíldudal í samstarfi við írska fyrirtækið Celtic Sea Minerals. Verði verk- smiðjan að veruleika mun hún gefa um 15 störf á staðnum. Sjá síðu 6. UNDANÚRSLIT Í BIKAR Skagamenn og KA mætast í undanúrslit- um Visa-bikarsins í knattspyrnu í dag. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 19.40. Sigurliðið mun mæta FH í úrslitum laugardaginn 27. september. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG HÆGT KÓLNANDI Veður fer hægt kólnandi í dag og á morgun. Nokkur vind- ur víða á landinu. Sjá síðu 6. Stakk fimm og beit lögreglu DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært 23 ára gamlan mann úr Mosfellsbæ fyrir tilraunir til manndráps og líkamsárásir með því að stinga fimm pilta. Málið tók óvænta stefnu við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Dómarinn í málinu sagði sig frá því á síðustu stundu vegna vanhæfis. Hann hefði í vor úrskurðað manninn í gæsluvarðhald með vísan til al- mannahagsmuna og væri því van- hæfur í dómar- sætið. Ekki kom til þess í gær að árásarmaðurinn lýsti afstöðu sinni til á k æ r u n n a r . Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins mun hann bera fyrir sig minnisleysi. Hnífaatlagan var gerð að morgni laugardagsins 10. maí í vor á einkaheimili í Mosfellsbæ. Árás- irnar á tvo mannanna telur ríkis- saksóknari hafa verið lífshættu- legar. Annar var stunginn í kviðinn svo af hlaust 10 sentímetra langur skurður rétt yfir lifur. Hinn var skorinn 15 sentímetra löngum og „nokkuð djúpum“ skurði ofan við viðbein þar sem „undir liggja stórar slagæðar til höfuðs“. Þrjú fórnarlömbin í sam- kvæminu telur ríkissaksóknari hafa orðið fyrir sérlega hættu- legri líkamsárás. Einn var stung- inn löngum skurði á handlegg „og fór í sundur bláæð sem leiddi til mikillar blæðingar“. Annar var stunginn í upphandlegg og hlaut djúpan og langan skurð „sem náði að hluta inn í vöðva“. Sá þriðji fékk tvo litla skurði á hendi. Allir voru mennirnir fimm fluttir á sjúkrahús. Enginn reyndist í lífshættu. Þeir eru 19 til 25 ára gamlir. Heimsókninni í samkvæmið lauk árásarmaðurinn að sögn rík- issaksóknara með því að bera hníf að hálsi gestgjafans og „neyða hann þannig til að opna útidyrahurð íbúðar sinnar“. Þá er maðurinn ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás með því að hafa í mars á þessu ári slegið 18 ára gamlan pilt í gólfið, sest á hann og látið hnefahögg dynja á höfði hans og endað með því að slá hann með bjórkönnu. Fékk fórnarlambið nokkuð djúpt sár á hvirflinum. Að endingu er maðurinn ákærð- ur fyrir að hafa í fangaklefa bitið lögregluþjón í upphandlegg „svo af hlaust stórt mar með tannaförum“. Fórnarlömb árásarmannsins krefjast samtals um 3 milljóna króna bóta. gar@frettabladid.is „Undir liggja stórar slagæðar til höfuðs. 17. september 2003 – 224. tölublað – 3. árgangur KÁRAHNJÚKAR Erlendur starfsmað- ur við virkjanaframkvæmdirnar við Kárahnjúka, sem sagt var upp vegna ágreinings um launakjör, er enn á Íslandi þótt hann hafi fengið fyrirskipun frá Impregilo um að yfirgefa landið í gær. Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, líkir með- ferð kjarasamninga starfsmanna Impregilo við svikamyllu. Hann heldur því fram að félagið hafi staðið skil á staðgreiðslu skatta svo að af mætti ráða að launakjör starfsmanna væru í samræmi við íslenska kjarasamninga en að starfsmennirnir sjálfir hafi fengið miklum mun lægri greiðslur. Þorbjörn segir að líklegt sé að höfðað verði innheimtumál gegn Impregilo þar sem félagið verði krafið greiðslu á þeim mismuni sem er á milli raunverulegra launa erlenda starfsmannsins sem vikið var úr starfi og þeirra launa sem kveðið er á um í kjarasamn- ingi starfsmannsins, sem sendur var Samiðn til umsagnar vegna veitingar atvinnuleyfis. Þorbjörn segir einnig að óskað verði eftir því að Vinnumálastofn- un hefji sérstaka rannsókn á því hvort Impregilo hafi ráðið til starfa sérfræðinga sem ekki búi yfir nauðsynlegri kunnáttu sem sé forsenda starfsleyfis á Íslandi. ■ Deilur milli Impregilo og verkalýðsfélaga harðna enn: Höfðað verði innheimtu- mál og óskað eftir rannsókn ÞORSTANUM SVALAÐ Sumrinu fer brátt að ljúka, þó reyndar ekki fyrr en eftir rúman mánuð. Í Nauthólsvík nýtir unga fólkið hverja stund til útiveru áður en veturinn skellur á. Morðið á Önnu Lindh: Maður handtekinn STOKKHÓLMUR, AP Sænska lögreglan handtók í gærkvöldi mann sem grunaður er um að hafa myrt Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Stina Wessling, talsmaður lög- reglunnar, sagði í gærkvöld að mað- urinn hefði verið handtekinn á veit- ingastað við Råsunda-leikvanginn í Solna, útjaðri Stokkhólms, á meðan á leik Djurgården og Hammarby stóð í sænsku knattspyrnunni. Mað- urinn var fluttur á Kronobergs-lög- reglustöðina til yfirheyrslu. Sænska fréttastofan TT hafði það eftir heimildarmanni innan lögreglunnar að maðurinn væri 35 ára heimilislaus síbrotamaður sem ætti m.a. átta mánaða fangelsisvist að baki. Lars Grönskog, talsmaður lögreglunnar, vildi ekki staðfesta þetta, né heldur hvort maðurinn væri sá sami og sést á myndum sem teknar voru í verslunarmiðstöðinni, þar sem Lindh var myrt. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T KLAPPARHLÍÐ Samkvæmi í þessu húsi lauk með skelfingu. Ungur maður er ákærður fyrir að hafa lagt til fimm annarra pilta með hnífi. Hann er sakaður um að hafa ætlað að stytta tveimur þeirra aldur. Enginn reyndist þó lífshættulega slasaður. Ungur maður sem stakk fimm pilta í samkvæmi í Mosfellsbæ er ákærður fyrir tilraun til mann- dráps. Dómarinn sagði sig frá málinu við þingfestingu í gær vegna vanhæfis þar eð hann hefði áður úrskurðað manninn í gæsluvarðhald. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Þerney: Mannbjörg SJÓSLYS Mannbjörg varð úti við Þerney í gærkvöld þegar hraðbát- urinn Inga Dís sökk. Tilkynnt var um atburðinn á ní- unda tímanum og var Ásgrímur Björnsson, björgunarskip Slysa- varnarfélagsins Landsbjargar, sent af stað. Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík voru tveir menn um borð í hraðbátnum. Við Þerney er bryggjuprammi sem ekki er land- fastur og komust mennirnir upp á hann áður en björgunarskipið kom. Að sögn lögreglu er talið líklegt að báturinn hafi siglt á prammann og þess vegna hafi hann sokkið. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.