Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
ÞRIÐJUDAGUR
SÆNSKT Í BÆJARBÍÓI Kvikmynda-
safn Íslands sýnir í kvöld sænsku kvik-
myndina „Här har du dit liv“ eftir Jan
Troell frá árinu 1966. Myndin verður sýnd
í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði og
hefst sýning hennar klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ER AÐ ÞYKKNA UPP í Reykjavíkinni
og vestantil á landinu og síðan einnig annars
staðar. Fer að rigna síðdegis á vestanverðu
landinu. Hlýnandi veður. Sjá síðu 6
23. mars 2004 – 82. tölublað – 4. árgangur
● keppir í fótbolta við faber&faber
Snæbjörn í Bjarti:
▲
SÍÐA 38
Dvergur
gegn risa
● saman á ný
ABBA:
▲
SÍÐA 34
30 ár frá
Waterloo
● 39 ára í dag
Einar Sveinbjörnsson:
▲
SÍÐA 22
Afmæli á alþjóð-
legum veðurdegi
● hvað kosta jakkafötin?
Dúfa Einarsdóttir:
▲
SÍÐA 24
Aldrei farið á
kortaflipp
ÞAGÐI Prestur, sem leitað var til í febrúar
2003 þegar upp komst um afleysingaprest
sem leitaði sambands við drengi á Netinu,
gerði aldrei neitt í málinu. Sjá síðu 2
ENGIN AFSKIPTI Fagráð kirkjunnar
um kynferðisafbrot ætlar ekki að hafa af-
skipti af prestinum sem nú er til rannsókn-
ar vegna meints kynferðissambands við 15
ára pilt. Sjá síðu 2
KJÓSENDUR TREYSTA STEIN-
GRÍMI Formaður Vinstri grænna nýtur
mests trausts samkvæmt skoðanakönnun
blaðsins. Formaður Samfylkingarinnar nýtur
minnst trausts. Davíð Oddsson er umdeild-
ur sem fyrr. Sjá síðu 10
HAMAS HÓTAR HEFNDUM Á þriðja
hundrað þúsund Palestínumenn fylgdu
Ahmed Yassin, stofnanda og trúarlegum
leiðtoga Hamas-samtakanna, til grafar í gær.
Samtökin hóta hefndum. Sjá síðu 12-13
SAMKEPPNISMÁL Samkeppnisráð
ákvað í gær að sekta Lögmannafé-
lag Íslands um þrjár og hálfa millj-
ón króna fyrir að hafa hvatt til
hækkunar og samræmingar á
gjaldskrá lögmanna. Lögmennirnir
ætla að áfrýja.
Í fréttatilkynningu frá Sam-
keppnisstofnun segir að Lög-
mannafélagið hafi með því að láta
semja kostnaðargrunn og birta
hann brotið gegn bannákvæðum
samkeppnislaga um ólögmætt
verðsamráð.
Andri Árnason, lögmaður Lög-
mannafélags Íslands, segir að
reiknað sé með því að úrskurðin-
um verði skotið til áfrýjunarnefnd-
ar þótt ekki hafi enn verið tekin
formlega ákvörðun þar um.
„Lögmannafélagið lét gera
þessa könnun í fullkomlega lögleg-
um tilgangi. Samkeppnisstofnun
telur að orðalag hafi falið í sér
hvatningu til lögmanna en menn
eru ekki sammála um það. Það hef-
ur aldrei staðið til af hálfu Lög-
mannafélagsins að hvetja lögmenn
til að breyta gjaldskrá sinni,“ segir
Andri.
Hann segir málið snúið þar sem
Lögmannafélagið hafi það hlutverk
að gera verðskrárkannanir sem
meðal annars eru notaðar til þess
að ákvarða þóknun til lögmanna á
grundvelli dómsúrskurða. ■
fjármál o.fl.
SLYS Í ÁRTÚNSBREKKU Árekstur tveggja bíla olli gríðarlegum umferðartöfum um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Ökumenn bílanna voru
fluttir á sjúkrahús. Þeir voru ekki taldir alvarlega slasaðir en losa þurfti annan þeirra með tækjabíl. Talið er að annar ökumannanna hafi
sveigt yfir á rangan vegarhelming. Lögregla lokaði tveimur af þremur akreinum Ártúnsbrekku í austur í um klukkustund eftir að slysið varð.
EINKAVÆÐING „Áreiðanleikakönnun
hefur staðið yfir undanfarnar vik-
ur og hafa stjórnendur fyrirtækis-
ins verið önnum kafnir við upplýs-
ingagjöf,“ sagði Rannveig Rist,
stjórnarformaður Símans, á aðal-
fundi fyrirtækisins í gær og bætti
við að söluferli Símans myndi hefj-
ast innan skamms.
Rannveig sagði undirbúning að
sölu fyrirtækisins hafa staðið frá
hausti en Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu fól Pricewaterhouse-
Coopers og Landwell lögmannsstofu
að vinna áreiðanleikakönnun á Sím-
anum vegna fyrirhugaðrar sölu.
Rannveig sagði að farið hefði
verið gaumgæfilega yfir alla þætti
sem snerti efnahag félagsins.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytis-
stjóri í forsætisráðuneytinu og for-
maður einkavæðingarnefndar, seg-
ir að ráðgjöf vegna einkavæðingar
Símans verði boðin út á næstunni.
„Það hefur verið unnið að þessu
að undanförnu og sú vinna er langt
komin,“ segir Ólafur, en segir eng-
ar dagsetningar ákveðnar.
Aðstæður fyrir sölu Símans eru
ákjósanlegar um þessar mundir.
Eftirspurn er á hlutabréfamarkaði
og miklir peningar í umferð sem
að mati sérfræðinga verður sífellt
erfiðara að finna farveg fyrir.
Stærstu fjárfestar á markaðnum
eins og Straumur fjárfestingar-
banki og Burðarás eru að skoða
hug sinn til kaupa á Símanum. Ís-
landsbanki og Straumur hófu und-
irbúning fyrri hluta vetrar.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður Burðaráss, fór
fyrir hópi fjárfesta sem keyptu
búlgarskt símafyrirtæki. Með hon-
um í þeirri fjárfestingu voru
Straumur, Burðarás og Síminn.
Síminn er fjárhagslega
stöndugt fyrirtæki, en fjárfestar
telja hættu á að verðmiðinn geti
orðið of hár. Norræn símafyriræki
fóru á markað við slíkar aðstæður
og lækkuðu hratt í verði í kjölfarið.
Síðast þegar sala Símans var reynd
var verðið hærra en markaðurinn
var tilbúinn að borga, 40 milljarð-
ar. Nú er stemningin á markaðnum
betri og ólíklegt að seljandinn, ís-
lenska ríkið, sé tilbúinn að lækka
verð frá því sem þá var.
haflidi@frettabladid.is
Samkeppnisráð:
Dæmir lögmenn í 3,5 milljóna sekt
Síminn að verða
tilbúinn til sölu
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að áreiðanleikakönnun til undirbúnings sölu Símans.
Formaður einkavæðingarnefndar gerir ráð fyrir að ráðgjöf við söluna verði boðin út á næstunni.
Margir öflugustu innlendu fjárfestarnir eru áhugasamir um fyrirtækið.
Grafa hrapaði:
Bjargaði sér
frá stórslysi
KÁRAHNJÚKAR Starfsmaður við
Kárahnjúka getur þakkað snörum
viðbrögðum að ekki fór illa í gær
þegar beltagrafa sem hann vann á
rann niður bratta brekku í Hafra-
hvammsgljúfri.
Maðurinn fleygði sér út úr
gröfunni þegar hún byrjaði að
renna niður brekkuna en hún féll
fimmtíu til sjötíu metra og er mik-
ið skemmd eða ónýt að sögn lög-
reglu á Egilsstöðum. Lögregla
segir að starfsmaðurinn, sem er
íslenskur, virðist hafa verið
snöggur að átta sig og slapp hann
því frá óhappinu með skrámur og
smávægileg meiðsl.
Slysið varð síðdegis í gær.
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
Rannveig Rist:
Sakar OR
um lögbrot
SAMKEPPNI Rannveig Rist, stjórn-
arformaður Símans, sakaði Orku-
veitu Reykjavíkur um brot á sam-
keppnislögum í ræðu sinni á aðal-
fundi félagsins í gær.
„Orkuveita Reykjavíkur hefur
um nokkurt skeið byggt upp fjar-
skiptaþjónustu í samkeppni við
Símann. Síminn telur líklegt að
uppbygging á fjarskiptastarfsemi
fyrirtækisins hafi verið fjár-
mögnuð með tekjum úr sjóðum
sem til hafa orðið af annarri starf-
semi Orkuveitunnar, sem nýtur
einkaleyfisverndar,“ sagði Rann-
veig.
Í fjórtándu grein samkeppn-
islaga er sérstaklega kveðið á um
að óheimilt sé að niðurgreiða sam-
keppnisrekstur með einkaleyfis-
eða verndaðri starfsemi. ■FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÚR HÉRAÐSDÓMI
Lögmenn gerðu verðkönnun meðal ann-
ars til að afla upplýsinga til leiðbeiningar
þegar málskostnaður er ákvarðaður fyrir
dómstólum.