Fréttablaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 54
42 19. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Textílsýningu Heidi Strand í
Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík.
Sýningunni lýkur um helgina...
Disneymyndinni Oliver Twist í
Sjónvarpinu klukkan 20.10, en
leikritið um þennan munaðar-
lausa dreng verður jólasýning
Leikfélags Akureyrar...
Syngjandi fréttamanni tilfinn-
ingalífsins, Herði Torfasyni á
tónleikum í Salnum í Kópavogi,
klukkan 20.00.
JPV útgáfa býður til samkomu í Salnum í
Kópavogi á morgun, laugardaginn 20. nóvem-
ber, milli kl. 15 og 16 í tilefni af sögu Jónasar
Ingimundarsonar, Á vængjum söngsins.
Jónas mun flytja nokkur lög og kynna bókina.
Tveir geisladiskar fylgja bókinni þar sem Jónas
leikur meðal annars með Sinfóníuhljómsveit
Íslands og verða þeir einnig kynntir. Höfundur
bókarinnar, Gylfi Gröndal, segir að þó að bók-
in sé fyrst og fremst ævisaga fjalli hún jafn-
framt um sögu tónlistar. Jónas hefur komið
fram við ótal mörg tækifæri, er mikill
húmoristi og hefur frá ákaflega mörgu
skemmtilegu að segja. Auk píanóleiksins hefur
hann starfað sem kórstjórnandi og hann stýrði
meðal annars Fóstbræðrum um tíma. Það er
Jónasi að þakka að fyrsta tónlistarhúsið reis á
Íslandi en Salurinn, sem var byggður í heima-
bæ hans Kópavogi, er eina húsnæðið á Ís-
landi sem er hannað eingöngu með tónlistar-
flutning í huga.
Á vængjum söngsins verður til sölu á staðn-
um og mun Jónas árita hana fyrir þá sem vilja.
Kaffiveitingar verða á staðnum í boði JPV og
eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Kl. 16.00
á morgun: Laugardagur í Listagili, tón-
leikar í Deiglunni á Akureyri. Á tónleik-
unum koma fram þau Hallveig Rúnars-
dóttir sópran og Árni Heimir Ingólfsson
píanóleikari.
menning@frettabladid.is
Útgáfuhátíð Jónasar
Þegar Jökull Valsson gekk inn á for-
lagsskrifstofuna með handritið að
þessari fyrstu bók sinni undir hend-
inni ku hann hafa lýst henni þannig:
Einar Áskell hittir Alien. Hér er sem
sagt um að ræða hrollvekju sem lýst
er frá sjónarhorni barna. Þetta mun
vera fyrsta bók sinnar tegundar sem
skrifuð er hér á landi, þar sem þó er
hefð fyrir hryllingi í þjóðsögum. Jökull
skrifar undir áhrifum frá Stephen King
og ætlar reyndar bókina yngri lesend-
um, eða frá 15-30 ára. Hún á þó er-
indi til allra þeirra sem hafa áhuga á
hrollvekjum og samfélagsrýninni sem
oft felst í þeirri bókmenntagrein. Þessi
fyrsta bók rúmlega tvítugs höfundar er
enginn eftirbátur ættingja sinna utan
eyjunnar.
Sagan gerist öll í blokkinni
Húmdölum, sem vel mætti ímynda
sér sem einhverskonar félagslega
vandamálablokk, miðað við bágborn-
ar aðstæður margra íbúanna. Börnin í
blokkinni eru aðal söguhetjurnar og
fáum við að fylgjast með mörgum
þeirra. Eitthvað skuggalegt er á seyði í
Húmdölum, sem ungviðið verður fyrst
vart við. Að sjálfsögðu tekur enginn
mark á krökkunum – þau þurfa sjálf
að rannsaka málið og verja sig. Und-
arlegheitin rekja þau til skuggalegs
pars á 11. hæð; gamallar blindrar
konu og græneygðs sonarsonar
hennar. Upphefst mikil barátta milli
barnanna og óhugnaðarins meðan
gjörningaveður umlykur Húmdali alla.
Einn af kostum bókarinnar er jafnt
og stöðugt spennuris sem byrjar strax
í fyrsta kafla og nær glæsilegu hám-
arki í þeim næst síðasta. Maður er á
sætisbrúninni nær allan tímann. Þótt
sagan sé síður en svo ætluð börnum
einfaldar frásagnarmiðjan, krakkarnir,
stílinn, því veruleikinn er skoðaður
með þeirra augum. Bæði yfirnáttúru-
legur og veraldlegur hryllingur verður
enn meiri vegna þess að sjónarhornið
er ungt. Börn eiga ekki að þurfa að
kljást við slíkan viðbjóð. Í stílnum felst
styrkur og veikleiki bókarinnar. Hið
bernska sjónarhorn og stíll sneiðir frá-
sögnina ljóðrænu sem gæti dýpkað
ánægju lesenda, en á hinn bóginn á
einmitt þessi stíll þátt í að gera sög-
una jafn áhrifaríka og raun ber vitni.
Uppbygging sögunnar og persónu-
gerð er í sjálfu sér ekki nýstárleg. Jök-
ull er að vinna úr staðlaðri bók-
menntagrein, en hann gerir það bara
svo vel. Hann nær að flétta inn í grein-
ina íslenskan veruleika og koma á
framfæri gagnrýni á eitt okkar versta
samfélagsmein – ofbeldi gagnvart
börnum. Söguheimur hrollvekjunnar
er smækkuð mynd samfélagsins og
skrímslið er myndhverfing hinnar
raunverulegu samfélagslegu ógnar.
Hvort sem það kann að vera kjarn-
orka, lauslæti eða vanræksla gagnvart
börnum, hrollvekjan sker á kýlið. Jök-
ull hefur nýtt sér þetta form listavel og
færir lesandanum á fati öll þau elem-
ent sem góð hryllingssaga þarf að
hafa til að bera; ógeðið, spennuna og
meininguna. Þetta er allt þarna og
hann á sjálfsagt eftir að þróa áfram stíl
og fínpússa í næstu bókum. ■
Það besta og versta í elskuðum bókum
BÓKMENNTIR
MELKORKA ÓSKARSDÓTTIR
Börnin í Húmdölum
Höfundur: Jökull Valsson
Útgefandi: Bjartur
!
JPV útgáfa hefur sent frá sér nýjaskáldsögu eftir Guðberg Bergsson
sem ber heitið Löm-
uðu kennslukon-
urnar. Þetta er fyrsta
skáldsaga Guðbergs
í 10 ár. Heim kominn
frá námi í útlöndum
uppgötvar sjálfur
vonarneisti og stolt
móður sinnar að
hans bíður ekkert við sitt hæfi á Ís-
landi, heldur situr hann fastur í
teppalyktinni í samliggjandi stofum
þeirra mömmu og pabba eftir að
hafa baðað sig frjáls í sólinni hjá
stærri og meiri þjóðum. Uns hann
verður fastur starfskraftur í heimilis-
þjónustunni, þar sem hann endar við
rúmstokkinn hjá systrunum lömuðu,
Lóu og Jónu, og tekur að segja þeim
sögur. Áður en hann veit af hafa löm-
uðu kennslukonurnar neytt hann út
á braut þaðan sem ekki er aftur snú-
ið.
Hjá Sölku er komin út skáldsaganRigning í nóvember eftir Auði
Ólafsdóttur. Ung kona stendur á
tímamótum. Hún
stígur upp úr volgri
hjónasæng og held-
ur í ævintýralegt
ferðalag um myrkt
og blautt landið.
Með í för er heyrnar-
laust barn sem
henni hefur verið
falið að gæta. Þar með hefst leit að
týndum þræði og stefnumót við
heim handan orða. Heitir líkamar,
matur, nærgöngul samskipti og
leyndarmál úr fortíðinni mæta sögu-
hetjunni í kaldri nóvemberrigning-
unni.
Hjá Almenna bókafélaginu erkomin út Eyjólfur sundkappi.
Ævintýraleg saga drengs af Gríms-
staðaholtinu eftir Jón Birgi Péturs-
son. Eyjólfur Jónsson vakti gríðarlega
athygli og aðdáun á sínum tíma fyrir
sjósund sín en hann synti meðal
annars frá Reykjavík til Akraness. Líf-
ið hafði þó ekki brosað við Eyjólfi á
æskuárum hans á Grímsstaðaholt-
inu því erfið veikindi vörpuðu myrk-
um skugga á tilveruna. Í starfi sínu
sem lögreglumaður var Eyjólfur síðar
með fingurinn á púlsi bæjarlífsins og
hafði afskipti af ótrúlegustu málum.
Eftir að hafa misst eiginkonu sína
fann Eyjólfur aftur ást og hamingju í
Ástralíu þar sem hann býr nú.
Hjá Sölku er komin út bókin Lauf-skálafuglinn eftir Margréti Lóu
Jónsdóttur. Ína
Karen stendur á
krossgötum og
kannar nýja stigu í
fleiri en einum skiln-
ingi. Hún yfirgefur
mann sinn og barn
og á ferðalagi um
Spán kynnist hún
ástinni með óvæntum hætti. Í brenn-
andi sólinni skrásetur hún ýmislegt
sem leitar á hugann og reynir þannig
að átta sig á tilfinningum sínum jafnt
sem annarra.
NÝJAR BÆKUR
Sigurður Gylfi Magnússon
sagnfræðingur hefur gert
heildarsamantekt á sjálfs-
bókmenntum Íslendinga
Fortíðardraumar – Sjálfsbók-
menntir á Íslandi er bók sem að-
standendur Sýnisbókar íslenskrar
alþýðumenningar hafa sent frá
sér og er hún sú níunda í röðinni.
Fyrsta bókin var gefin út 1977.
Höfundur Fortíðardrauma er Sig-
urður Gylfi Magnússon sagnfræð-
ingur sem hefur einbeitt sér að
einsögurannsóknum á síðari
árum. En hvað á hann við með
sjálfsbókmenntum?
„Ég kalla þetta sjálfsbók-
menntir, sem er nýyrði,“ segir
Sigurður Gylfi: „og fjallar um
sjálfsævisögur, þar sem höfund-
urinn er jafnframt aðalpersónan;
um endurminningarit, þar sem
höfundurinn er annar eða önnur
en aðalpersónan; samtalsbækur,
sem er yfirleitt bara samvinna
tveggja með aðgreindum spurn-
ingum; skáldævisögur, þar sem
höfundurinn telur sig ekki þurfa
að fylgja sannfræði ævi sinnar; og
loks eru það ævisögur þar sem
aðalpersónan er fallin frá.“
Sigurður Gylfi segir íslenskar
sjálfsbókmenntir ekkert öðruvísi
en slíkar bókmenntir erlendis.
„Þetta fylgir mjög svipuðu
formi,“ segir hann, „en það er
óhætt að segja að sjálfsævisagan
hafi náð miklum þroska hér á
landi sem bókaform. Hins vegar
hefur ævisögunni ekki verið sinnt
fyrr en á allra, allra síðustu árum.
Ég skilgreini þessar ólíku birting-
armyndir sjálfsins með lýsandi
dæmum úr þessum bókmennta-
arfi sem Íslendingar elska – og
fjalla líka um nýlega samtímaum-
ræðu, eina tegund þessara bóka,
það er að segja stóra Hannesar-
málið, sem tengist verki Hannes-
ar Hólmsteins Gissurarsonar um
Halldór Laxness. Í bók minni er
rúmlega sextíu síðna kafli sem
bregður ljósi á menningarlega
stöðu þessara bókmennta, það er
að segja, áhersluna á mótun ein-
staklingsins og hvaða þýðingu
slíkt getur haft í pólitísku sam-
hengi.“
Sýnisbækur íslenskrar alþýðu-
menningar er ritröð sem nokkrir
fræðimenn í Reykjavíkurakadem-
íunni eru með á sínum snærum og
gefin er út af Háskólaútgáfunni.
Markmiðið er, í fyrsta lagi, að
gefa út sýnishorn úr frumheimild-
um frá 18., 19. og 20. öld, eins og
dagbókum, bréfum og slíku,“ seg-
ir Sigurður Gylfi, „en núna höfum
við einnig afráðið að vera með
samtímagreiningu á þessum sömu
heimildum sem við erum að gefa
út. Þessi bók er sú fyrsta í þeim
flokki, en um leið sú níunda í rit-
röðinni. Bók númer átta er ný-
komin út, Jónsbók – Lögbók Ís-
lendinga, sem Már Jónsson tók
saman og í næstu viku kemur út
bók númer sjö sem heitir Lands-
ins útvöldu synir. Þar birtum við
sýnishorn úr íslenskum stíl Lærða
skóla pilta frá 1846 til 1904. Sá
sem tók þetta saman er Bragi Þor-
grímur Ólafsson. Það er því mikil
útgáfa hjá okkur. Þrjár bækur í ár
og allar um og yfir fjögur hund-
ruð blaðsíður.“
Sigurður Gylfi segir ritröðina
eiga mikið erindi við íslenska al-
þýðu. „Íslendingar elska þessar
bókmenntir,“ segir hann, „og
þarna er skýring á því um hvað
þær snúast og síðan er þarna rúm-
lega þúsund blaðsíðna skrá yfir
allar sjálfsævisögur, endurminn-
ingarit, samtalsbækur og skál-
dævisögur sem hafa komið út á Ís-
landi frá upphafi. Þannig að þarna
er heildarsamantekt á þeim bók-
menntum sem Íslendingar elska -
og spennandi umræða um ýmis
birtingarform þessara bók-
mennta, sem komu á óvart og eru
ótrúlega fjölbreytt. Í þessum
flokki eru mörg af öndvegisverk-
um íslenskra bókmennta og líka
ýmislegt af því versta sem skrifað
hefur verið, þannig að þetta á tví-
mælalaust erindi.
sussa@frettabladid.is
Íslensk hrollvekja eftir ungan höfund
SIGURÐUR GYLFI MAGNÚSSON Ævisögunni hefur ekki verið sinnt hér fyrr en á allra,
allra síðustu árum.
54-55 Menning (42-43) 18.11.2004 18.45 Page 2