Fréttablaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 21. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR8 F R É T T A V I Ð T A L ndustria hlaut nýverið út- nefningu viðskiptatímarits- ins CNBC Europe sem eitt af fimmtíu framsæknustu fyr- irtækjum Evrópu. Fyrirtæk- ið var þar meðal fjögurra annarra í flokki upplýsingatæknifyrir- tækja. Af þeim viðurkenningum sem fyrirtækið hefur fengið seg- ist Guðjón Már Guðjónsson fram- kvæmdastjóri einna stoltastur af þessari, enda sé hún veitt fyrir nýsköpun. „Við höfum markað okkur þann sess í samkeppni við önnur fyrirtæki af svipuðum toga að búa okkur til markaði með nýj- ungum og þjónustu. Þannig náum við að starfa og eflast í tærum sjó, fremur en að berjast við marga um hituna í gruggugum sjó.“ Með þessu segir Guðjón að Industria hafi getað verið skrefinu á undan samkeppninni í umhverfi þar sem tekjumyndun sé hagstæðari. Með þetta að leiðarljósi hefur Industria tekist að búa til há- gæðahugbúnaðarlausn fyrir staf- rænt sjónvarp og tekist í opnum útboðum á evrópska efnahags- svæðinu á við risa á borð við Siemens og haft betur. Í umsögn dómnefndar CNBC Europe segir enda að fyrirtækið gæti reynst eitt það mikilvægasta í samruna sjónvarps og stafrænna miðla í Evrópu. „Þetta gefur okkur góðan byr í seglin. Þótt við séum að- eins um 140 manna fyrirtæki og þar með í smærra lagi á þessum markaði, höfum við náð að fikra okkur áfram í samkeppni við ris- ana,“ segir Guðjón og bætir við að hafi fyrirtæki ekki að bjóða stór og þekkt vörumerki á borð við Siemens eða Ericsson, þá verði þau að hafa að bjóða mestu gæði og besta verð. „Það höfum við lagt mikla áherslu á.“ TEKJURNAR MESTAR Í ÚTLÖNDUM Auk þess að búa til og selja hug- búnaðarlausnir fyrir gagnaflutn- inga stafræns sjónvarps undir merkjum Zignal býður Industria fyrirtækjum og heimilum þjón- ustu við ljósleiðaravæðingu og uppfærslu fjarskiptabúnaðar. Þá tók Industria að sér að setja hér upp þriðju kynslóðar farsímanet fyrir fjarskiptafyrirtækið Nova. „Ef starfsemi okkar er líkt við ís- jaka þá er sýnilegi hlutinn sem upp úr stendur Zignal-hugbúnað- urinn. Meginþorri starfseminn- ar sem er í kafi og ekki eins sýni- legur er svo öll þessi þjónusta. Þar má segja að sé grunnurinn sem Industria hefur á að byggja og tryggir okkur tekjur til frek- ari framþróunar,“ segir Guðjón Már. Industria hefur þannig tekið að sér verkefni sem snúa að því að byggja upp tæknilega innviði fyrirtækja til þess að gera alla nýmiðlun gagna mögulega. „Hér á landi og víðar, svo sem á Ír- landi, höfum við hjálpað til við að byggja upp þau kerfi sem ráða við sýn okkar um gagnamiðlun. Hér á landi þarf að ljósleiðaravæða og uppfæra fjarskiptakerfi og fleira slíkt.“ Guðjón segir tekjur Industria fyrst og fremst verða til utan landsteinanna, en tækniþjón- ustan spili þar, líkt og hér, stærsta hlutverkið enn sem komið er. „Við erum með innan við 15 prósent af okkar tekjum héðan.“ Rekstur Industria hefur geng- ið vel segir Guðjón og telur fyr- irtækið þar njóta góðs af fyrri reynslu aðstandenda úr upplýs- ingatæknigeiranum. Sjálfur var Guðjón áberandi með fyrirtæk- ið OZ á árum áður. „Við höfum náð að auka hagnað um 50 pró- sent síðustu þrjú árin og höfum verið með reksturinn í hagnaði frá upphafi,“ segir hann og bætir við að frá upphafi hafi mikið púður verið lagt í að skilgreina alla verkferla. „Þegar ég stofn- aði Industria var ég alltaf með tvö þúsund manna fyrirtæki í hugan- um. Nafnið Industria átti líka að endurspegla þá hugsun út á við þegar við vorum bara fimmtán manna félag að gera okkar fyrstu samninga.“ Með því að staðla vöru og þjón- ustu sem fyrirtækið býður segir Guðjón að tekist hafi að auka bæði hagkvæmni og skilvirkni. Hluti af þeim lausnum sem Industria býður erlendis er ljós- leiðaravæðing heimilanna, mark- aðssett undir heitinu „Digital Living“. „Við höfum selt 45.000 slíkar einingar, þar sem hver ein- ing er tengt hús. Af þeim samn- ingum höfum við þegar afhent 7.000 einingar. Markmið okkar í Evrópu næstu tvö árin er að ná sölunni þarna upp í 200.000 ein- ingar. Nú þegar erum við með undirritaða samninga upp á rétt rúma fjóra milljarða hvað varð- ar sölu á þessum einingum og það gefur okkur vissulega sterka fót- festu með okkar rekstur og tryggt tekjustreymi. Markmiðið er svo að ná fram aukinni hagræðingu, sveigjanleika og hraða í afhend- ingu á þessari lausn.“ INTERNET-STAÐLAR RÁÐA Í upphafi reksturs kynnti Indus- tria framtíðarsýn sína á tækni- þróun í heiminum og hvar fyrir- tækið ætlaði sér að starfa í þeirri framtíð. Að sögn Guðjóns bygg- ir fyrirtækið þannig á þeim sam- runa sem er að verða á sviði af- þreyingar og fjarskipta þar sem gagnamiðlun færist yfir á inter- netið frá gervihnatta- eða öðrum útvarps- og sjónvarpssendingum, svo sem um örbylgju. „Breytingarnar eru einhverj- ar þær mestu í þessum iðnaði áratugum saman. Fyrirtæki á afþreyingarmarkaði og aftur á fjarskiptamarkaði eru víðast hvar að endurhugsa þessi við- skiptamódel hvað varðar bæði tekjuöflun og miðlun á efninu.“ Þessa þróun segir Guðjón að hafi fyrst mátt sjá í innkomu Apple á tónlistarmarkað þar sem tón- list er dreift yfir internetið og fólk notar í tölvum sínum og tónlistarspilurum. „Nýjar hljóm- sveitir selja tónlist á netinu, svo er MySpace og öll þessi bylting tengd tónlistinni. Okkar staða hjá Industria er meira tengd miðlun sjónvarpsefnis. Sýn okkar hefur ávallt verið að þessi miðlun fær- ist í æ meira mæli á netið og við sem dæmi farin að sjá nýjar línur af flötum skjám sem tengja má netinu beint. Þessi þróun á eftir að halda áfram næstu fimm til sjö árin þar sem miðlunin fær- ist yfir á internetið og þá staðla sem þar eru notaðir,“ segir Guð- jón og bætir við að Industria hafi unnið markvisst að því að verða sterkt lausnafyrirtæki á þessum markaði. „Í dag hefur iðnaðurinn sætt sig við að taka upp internet- staðla til að miðla efninu og tölu- verð bylting í því hvað varð- ar endurskipulag dreifinetsins.“ Guðjón segir sjónvarpsstöðvum dýrt að halda uppi gervihnatta- netum og því mikil hagræðing í því fyrir þá sem eiga efni til að miðla að spara sér kostnað í burðarnetinu með því að nýta sér tækni internetsins. Þá segir Guð- jón margvíslegan annan virðis- auka fólginn í því að nota gagn- virkni internetsins. Þannig geti auglýsendur búið til verðmæt- ari og hnitmiðaðri auglýsingar. „Þannig ættu tekjur fyrirtækja ekki að verða minni um leið og þau spara með nýrri miðlunar- leið.“ ÆTLA AÐ HRAÐA VEXTI Frá stofnun, fyrir um fjórum árum, hefur Industria vaxið hröð- um skrefum, starfsmannafjöld- inn tífaldast og fyrirtækið nú með skrifstofur víða um heim. Höf- uðstöðvarnar eru hér, en svo er starfsstöð í Dyflinni á Írlandi, ein í Lundúnum, önnur í Sofiu í Búlg- aríu og svo nýjasta skrifstofan í Shenzen skammt frá Hong Kong í Kína. „Varðandi Kína og Búlgar- íu, svona fyrir utan hversu mikil tækifæri er þar að finna og vöxt í mörkuðum, þá byggðum við þær skrifstofur upp sem þróun- arstöðvar þar sem við höfum að- gang að mjög færu vinnuafli og getum í leiðinni aukið hagkvæmni í rekstri.“ Þetta segir hann lið í því að hafa góð tök á kostnaðarmynd- un í fyrirtækinu, enda nauðsyn- legt þegar slagurinn sé tekinn við risafyrirtæki upplýsingatækni- og fjarskiptaiðnaðarins í heimin- um. Engu að síður segir Guðjón að fyrirtækið finni fyrir áhuga á vörum þess í Kína og að óform- legar viðræður standi yfir um af- notarétt og dreifingu við mjög stóra aðila á Kínamarkaði. „Þetta er svo sem spennandi, en engar sérstakar væntingar hjá okkur um niðurstöðu í þessum þreif- ingum og hvergi gert ráð fyrir sölu og dreifingu á Kínamark- aði í okkar markaðsáætlunum. Að minnsta kosti ekki ennþá.“ Guðjón segir engu að síður að fyrirséður sé aukinn og hraðari vöxtur fyrirtækisins. „Við sjáum fyrir okkur á þessu, eða hugsan- lega næsta ári, Bandaríkjamark- að sem vænlegt næsta skref fyrir okkur. Bæði er það vegna menning- artengsla og svo eins út af almenn- um vexti á því svæði.“ Guðjón segir Industria hafa á frábærum grunni að byggja með heilbrigðan rekstur í hagnaði og engar þung- ar lánabyrðar að standa undir. „Miðað við árangur okkar í dag á tiltölulega skömmum tíma telj- um við okkur vera búin að sanna að módelið gangi upp og eigi fullt erindi inn á fleiri og stærri mark- aðssvæði.“ Hluti af þeirri fram- sókn segir Guðjón að kunni að fel- ast í því að kaupa smærra fyrir- tæki í skyldum rekstri og laga að Industria. Þetta segir hann að gæti gerst á næsta ári. Aðspurður úti- lokar hann ekki að aukinn hraði í vexti og sókn á stærri markaðs- svæði kunni að kalla á aðkomu fjárfesta og þá jafnvel skráningu á markað þegar fram í sækir, en fullsnemmt sé að spá fyrir um það núna. „Þetta eru hlutir sem stjórn og stjórnendur félagsins ígrunda stöðugt, en miðað við núverandi samninga er ekkert aðkallandi á því sviðinu,“ segir Guðjón og telur ákveðið aðhald í rekstrinum fólg- ið í því að fyrirtækið standi undir sér sjálft án þess að til þurfi að koma utanaðkomandi fjármagn. Svo verði bara að koma í ljós hve- nær Industria nær því marki að verða tvö þúsund manna fyrir- tæki. „Vonandi næst það bara sem fyrst.“ Starfa reynslunni ríkari í tærum sjó Tæknifyrirtækið Industria sem vakið hefur heimsathygli fyrir hugbúnaðarlausnir sínar hefur vaxið hratt síðustu ár og hyggur á enn frekari vöxt og útrás á nýja markaði. Óli Kristján Ármannsson ræddi við Guðjón Má Guðjónsson, stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, um stöðu þess og framtíð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.