Tíminn - 03.06.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.06.1986, Blaðsíða 1
OLÍUFÉLAGIÐ HF (ESSO) og Skeljungur hf (Shell) hafa nú hafiö sölu á super-benslni á höfuöborgarsvæöinu og nokkrum bensínstöövum í stærri byggö- arlögum úti á landi. Félögin munu selja bensín sem hefur oktantölu 98. Til samanburöar má geta þess aö venjulegt bensín er meö oktantölu 93 og þaö bensín sem Olíuverslunin (Olís) hefur veriö aö selja aö undanförnu er meö oktantölu 97,1 RANNSÓKNARLÖG- reglan telur aö þeir aöilar sem keyptu falsaða dollaraseðla sem voru í umferö fyrir skömmu muni fá skaöan sinn bættan. Hún lagði hald á fé um leið og tveir menn voru handteknir vegna rannsóknar málsins. Talið er aö falsaðir seðlar hafi veriö seldir fyrir um 172 þúsund íslenskar krónur. ARNARFLUG fékk verö Boing- þotu er þeir seldu fyrir stuttu hækkaö um 9 milljónirkróna í gærdag í kjölfarskoðun- ar er fram fór á vélinni hjáBoeing-verk- smiðjunum. Kaupandi vélarinnar hafði samþykkt aö hækka kaupveröiö ef skoðunin leiddi í Ijós gott ástand þotunnar og er verðið nú komiö í um 60 milljónir króna. Þessar 9 milljónir króna sem Arnarflug fær nú gera félaginu kleift aö greiða upp skuldir þess hjá ríkisábyrgðar- sjóöi og Samvinnubankanum. VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR var hagstæður um 1,7 milljarö króna fyrstu fjóra mánuöi þessa árs. Á sama tíma í fyrra var 500 milljóna króna halli á viðskiptajöfnuðinum. Útflutningsverö- mæti var þessa mánuöi 16% hærra en á sama tíma í fyrra. BÚVÖRUVERÐ hækkaöi í gær um 0,7-3,0%. Dilkakjöt hækkaði mest eöa um 3%. Dilkakjöt í heilum skrokkum kostar nú 221,50 kr. kílóið. Mjólk og nautakjöt hækkaöi um 2% og kostar mjólkurlítrinn nú 36,20 kr. Smjör hækkaði um 1,5% og kostar kílóið nú 279,10 kr. Aörar mjólkurvörur hækkuðu um 0,7%. FARÞEGAR sem flogið hafa meö Arnarflugi voru 10.482 fyrstu fimm mánuöi ársins og er þaö um 20% aukning frá samatíma í fyrra. Vöruflutningará vegum fyrirtækisins jukust mun meira eða um 48%. Tekjuaukning fyrirtækisins sökum þessa er meiri en aukning á farþega- og vöruflutningum. Arnarflugsmenn búast viö aö flutningar aukist mikið í sumar. YOSHI Kamata er ekki lengur elsta persónan í Japan. Embættismenn hafa komist aö því að vegna mistaka var tíu árum bætt viö líf hennar. Kamata, sem hingaö til hefur opinberlega veriö 110 ára gömul, er „aöeins" 100 ára. Mistökin áttu sér staö í opinberum skýrslum stuttu eftir jaröskjálftann mikla LKanto áriö 1923. Titilinn „Elsta persóna Japans" er nú í eigu annarrar konu, Mitsu Fujisawa sem varö 110 ára í apríl síðastliðnum. RANNSÓKN rannsóknarlögregl- unnar á Hafskipsmálinu miöar vel áfram. Yfirheyrslur fara fram daglega jafnhliöa gagnaöflun. Fjórir af fyrrverandi forsvars- mönnum Hafskips sitja enn í gæsluvarð- haldi og aöstoöa lögregluna viö aö kom- ast til botns í málinu. HEÐINN STEINGRÍMSSON Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Arnason voru sigurvegarar á 8. landsmóti Skólaskákar sem haldiö var nýlega i Reykjavík, Héöinn í yngri flokki og Hann- es og Þröstur uröu efstir og jafnir í eldri flokki. Hannes vann síðan Þröst í tveggja skáka einvígi. Sigurvegararnir hlutu út- skorna riddara og feröir á skákmót erlend- is í verölaun. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra: Framsóknarflokkurinn er aftur á uppleið Mikil vinna skilaði góðum árangri á ýmsum stöðum „Ég er mjög þakklátur fyrir mikið starf, sem stuðningsfólk Framsóknarflokksins vann fyrir þessar kosningar og ég tel að á sumum stöðum hafi verið unnið svo að það hafi verið til mikillar fyrirmyndar. Mér er t.d. kunnugt um að svo var á Akranesi og víða var svo annars staðar. Hér í Reykjavík á lokasprettinum þar sem Sigrún Magnúsdóttir sýndi hvað í henni býr. Ég nefni einnig Seltjarnarnes, Patreksfjörð, Þing- eyri, Suðureyri og Seyðisfjörð, Eg- ilsstaði og Vestmannaeyjar og vafalaust má nefna fleiri staði. Hins vegar verður því ekki neitað að kosningaúrslitin eru tap fyrir Framsóknarflokkinn, þó miklu minna en skoðanakannanir gáfu til kynna fyrir ári. Úrslitin undirstrika því að Framsóknarflokkurinn er á uppleið," sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins. Steingrímur sagði staðbundin mál oft ráða miklu um úrslit sveit- arstjórnarkosninga, en landsmál hefðu þar einnig áhrif og hann kvaðst telja að flokkurinn hafi goldið þess í þessum kosningum að hafa í ríkisstjórn þurft að standa að hörðum og oft óvinsælum ráð- stöfunum til að ná jafnvægi í efna- hagsmálum. T.d. hefði orðið að skera niður ríkisframlög til fram- kvæmda á ýmsum stöðum. „Ennþá eiga menn eftir að sannfærast um að markmið okkar í efnahagsmál- um nái fram að ganga og verðbólga verði hér eins stafs tala, en ég leyfi mér að halda fram að það muni takast á þessu ári. Um kosningarnar að öðru leyti vil ég segja það að mér þykir ákaflega leitt að maður tapaðist í Kópavogi, Hafnarfirði og í Mos- fellssveit. Þarna kunna að ráða einhverjar staðbundnar ástæður en þetta bendir til þess að við þurfum að herða róðurinn í þéttbýlinu. Hafa úrslitin í sveitarstjórnar- kosningunum einhver áhrif á þjóð- málin? Steingrímur svaraði þeirri Steingrímur Hermannsson. spurningu neitandi. „Stjórnar- flokkarnir hafa ennþá mikinn meirihluta og ég segi enn og aftur að við gengum til ákveðinna samn- inga við aðila vinnumarkaðarins nú í febrúar og okkur ber skylda til að standa við þann samning. Hann er ekki útrunninn fyrr en um áramótin og við verðum að sýna að við stöndum við okkar þátt í hon- um og náum þeim markmiðum sem þar eru sett fram. Steingrímur sagði að lokum að eitt af því sem honum sem for- manni Framsóknarflokksins þætti sérlega ánægjulegt varðandi þessar kosningar, væri stóraukið hlutfall kvenna meðal fulltrúa flokksins í i sveitarstjórnum en konur væru nú um fjórðungur þeirra og góð vinna kvenna hefði haft mikla þýðingu á þeim stöðum þar sem vel gekk. Framsóknarflokkurinn hefði nú hærra hlutfall kvenna í sveitar- stjórnum en bæði Alþýðuflokkur- inn og Alþýðubandalagið. „Ég sé þannig ýmsar bjartar hliðar á þess- um kosningaúrslitum og er sann- færður um að flokkurinn er á uppleið." Framsóknarmenn fagna úrslitum í Reykjavík. Mikill fögnuður greip um sig í aðalstöðyum framsóknarmanna í Reykjavík, að Rauðarárstíg 18, þegar Ijóst var að Sigrún Magnúsdóttir hafði örugglega hlotið kosningu í borgarstjórn. Á myndinni eru Þráinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins og Sigrún. Að baki þeim eru Margeir Daníelsson og Þrúður Helgadóttir, sem bæði skipuðu sæti á listanurn.Tímamynd: Sverrir. Fínt. Nú ætlar Svavar að vinna kosninga- sigur út á íhalds- atkvæði kratanna. Svavar boðar stjórnarmyndun með krötum - Viðbót Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins er saman- lagt um 11.000 atkvæði og þessi úrslit geta boðað mikil tíðindi í íslenskum stjórnmálum. Þar á ég við samstöðu félagshyggjuafla og vinstri manna, sem eiga auðvitað að setja sér það mark í næstu alþingiskosningum að ná meiri- hluta og mynda nýja ríkisstjórn. Þetta segir Svavar Gestsson í viðtali við Tímann í dag. Hér er ótæpt biðlað til krata og skírskot- að til kosningasigurs þeirra. Jón Baldvin telur að Alþýðu- flokkurinn eigi góða möguleika á 25% atkvæða í alþingiskosning- um og segist eiga inni verulegan kjósendafjölda í Reykjavík á banka hjá Sjálfstæðisflokknum, sem hann ætlar að endurheimta með vaxtavöxtum í næstu þing- kosningum. Jón Baldvin minnist ekki á stjórnarmynstur eftir þingkosn- ingar. Viðtöl við flokksformennina eru á bls. 7.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.