Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 1
"... PÁLL ÁSGEIR Tryggvason sendiherra afhenti nú í vikunni Kurt Waldheim, forseta Austurríkis, trúnaö- arbréf sitt sem sendiherra íslands í Austurríki. STJÓRN VERÐBRÉFAÞINGS Islands var kosin óbreytt. I stjórn sitja Eiríkur Guðnason formaður, og Svein- björn Hafliðason frá Seðlabanka íslands, Gunnar H. Hálfdánarson frá Fjárfestingafélagi íslands, Pétur H. Blöndal frá Kaupþingi hf. og Tryggvi Pálsson frá Landsbanka íslands. MÁNAFOSS RAKST á trillu í mynni Eyjafjarðar um miðjan dag á laugardag. Það verður að teljast mesta mildi að ekki fór verr. Báturinn komst heilu og höldnu í land en hann var skemmdur lítilsháttar á stefni. Veðurhæð var sex vindstig og stórhríð geisaði þegar atvikið átti sór stað. Þrennt var um borð í trillunni en sakaði ekki. Mánafoss stoppaði og hugaði að fólkinu um borð en hélt síðan til Húsavíkur. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987 - 63. TBL. 71. ÁRG. Sjávarútvegsráðherra á fundi á Sauðárkróki: NYSKIPAÐUR utanríkisráð- herra Noregs, Thorvald Stoltenberg kemur í opinbera heimsókn til íslands 24. mars. Er þetta fyrsta utanlandsferð Stoltenberg í embætti utanríkisráð- herra, en hann varskipaður í embættið 9. mars eftir fráfall Knut Frydenlunds. ÓÁNÆGJA hefur ríkt meðal lögreglunnar í Reykjavík með vakta- fyrirkomulag og verður gerð tilraun með nýtt skipulag frá næstu mánaða- mótum. Það var samþykkt með naum- um meirihluta atkvæða, 56 gegn 54, í allsherjaratkvæðagreiðslu lögreglu- manna um helgina. Kjörgengir voru um 130 manns. I stað mismunandi vaktalengda áður verða teknar upp tólf tíma vaktir. „Þetta er tilraun sem verður gerð næstu þrjá mánuðina," sagði Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn, eftir að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru kynntar í gærmorgun. „En það er of snemmt að segja nokkuð um hvernig þetta verður áfram. Eftir þennan reynslutíma verður jafnvel gerð tilraun með enn eitt vaktakerfið.“ Og það er ekki óliklegt, með hliðsjón af því hve margir virðast gegn því kerfi, sem reynt verður nú. ÚTHLUTUN úr Tónlistarsjóði Ármanns Reynissonar fer fram í fjórða sinn í júní nk. Úthlutunarfé sjóðsins nemur 175.000,- og er óskað eftir umsóknum aðila sem hafa tónlist að aðalstarfi og hafa hug á að semja eða flytja tónverk innanlands eða utan. Þeir sem hyggjast sækja um úthlutun þurfa að senda skriflegar umsóknir þar sem gerð er grein fyrir fyrirhuguðum verkefnum, fyrir 1. maí nk. til sjóðsins að Laugavegi 97, Reykjavík. FRAMBOÐSLISTI Fiokks mannsins í Norðurlandskjördæmi eystra hefur verið ákveðinn. Efstu sætin skipa: 1. Ragnheiður Sigurðardóttir, tölvun- arfræðingur, Akureyri. 2. Melkorka Freysteinsdóttir, bankastarfsmaður, Reykjavík, 3. Friðrik Einarsson, nemi, Akureyri. 4. Hrafnkell Valdimarsson, verkamaður, Dalvík. 5. Hólmfríður Jónsdóttir, kennari, Arnarvatni, Mý- vatnssveit. 6. Guðrún María Berg, læknaritari, Húsavík. 7. Bjarni Björnsson, útgerðarmaður, Ólafsfirði. KRUMMI „Mér heyrist Halldór hafa valið sér sóknarmark í kosningabaráttunni!' Framsókn í forsvari fyrir næstu stjórn - Alþýðubandalag hefur dæmt sig úr leik. Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur vilja leysa vandann með markaðshyggjusjónarmiðum Heldur færri mættu á baráttufund framhaldsskólanema á Lækjartorgi í gær en vonast hafði verið eftir, enda veðrið ekki til fundarhalds fallið. Kennarar og ríkið: Tímamynd: Pjetur. Samningaviðræðum miðar nokkuð áfram - skólastarf liggur að mestu niðri Samninganefndir kennara í HÍK og ríkisins hófu samningafund í gær kl. 17, þann fyrsta eftir að verkfall kennara skall á í gær. Stóð sá fundur enn þegar Tíminn fór í prentun og gaf hljóðið í samning- amönnum tilefni til hæfilegrar bjartsýni. Hafa aðilar skipst á til- lögum og reynt að meta þær, og vildu þeir lítið segja um hvort samningar væru að nást eða ekki. Hefur ríkið lagt fram tillögu um samning til tveggja ára, en kennar- ar meta þær launahækkanir sem þar er gert ráð fyrir sem of litlar, með tilliti til lengdar samningsins. Hafa þeir því stungið upp á að gerður verði skammtímasamning- ur. Skólanefnd Verslunarskóla ís- lands gerði í gær kennurum við skólann tilboð, þar sem gengið er til móts við kröfur kennara. Felur tillagan í sér51 þús. kr. byrjunarla- un fyrir kennara með BA próf, en kennari með MA próf og 15 ára starfsreynslu fái 73 kr. í mánaðar- laun. Þá er gert ráð fyrir 26 stunda kennsluskyldu á viku. Kennarar við VÍ ætla sér að íhuga tilboðið gær, í tilefni kjaradeilu kennara. fram á miðvikudag, áður en þeir Hvöttu þeir aðila til að semja hið gefa svar. fyrsta, en starf í framhaldsskólum Um 150 framhaldsskólanemar liggur nú að mestu niðri vegna söfnuðust saman á Lækjartorgi í verkfallsins. -phh „Ég fer ekkert leynt með það að ég tel það vera höfuðatriði að hér verði mynduð ríkisstjórn eftir kosningar þar sem Framsóknar- flokkurinn verðurforystuafl. Hann hefur verið forystuafl um langan tíma. Það hefur líka kornið í ljós að enginn annar flokkur hcfur getað leitt fram þær sættir sem þurfa að vera í þjóðfélaginu til að hægt sé að hafa hér ríkisstjórn sem heíur bærileg tök. Hitt er annað mál að við getum ekki orðið for- ystuafl nema hljóta góða kosningu. Þó er undantekning á því og var það árið 1978. Þrátt fyrir að við fengjum slæma kosningu var leitað til okkar eftir að hinir höfðu allir gefist upp," sagði Halldór Ás- grímsson á fundi með frambjóð- endum á Sauðárkróki um helgina. Guttormur Óskarsson bar fram þá spurningu hvað tæki við eftir kosn- ingar, hverjir væru möguleikar á stjórnarmyndun. Halldór tók hvern flokk og ræddi lítillega um hann í framhaldi af spurningu Guttorms. „Alþýðubandalagið virðist hafa dæmt sig úr leik. Það er orðið flokkur sem fyrst og fremst vill vera á móti, finna eitthvað að og ala á svartsýni og ná í atkvæði út á að tala um að þetta sé allt í tómri vitleysu og það geti iagað eitthvað. Ekki trúi ég því. Þetta er staðan. Ef Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur ná saman þá munu hin ýmsu samfélagsmál verða Ieyst eft- ir lögmálum markaðshyggjunnar. Við teljum það vera okkar höfuð- hlutskipti að koma í veg fyrir það. Vegna þess að við teljum að slík stjórn muni leiða til mikillar ógæfu fyrir okkar þjóðfélag. Þannig að það er okkar ætlan að verða for- ystuafl í næstu ríkisstjórn og til þess höfum við ágætan leiðtoga sem hefur sannað ágæti sitt og stýrt ríkisstjórninni prýðilega. Eg sé ekki að hinir flokkarnir hafi upp á það að bjóða," sagði Halldór. - ES Tíminn 70 ára í dag - tekið á móti gestum frá kl. 12-18 Tíminn er 70 ára í dag, en fyrsta tölublaðið kom út 17. mars 1917. Af því tilefni kemur út sérstakt fylgirit með blaðinu í dag. Þar er stiklað á stóru um útgáfu Tímans í fortfð og nútíð. í tilefni dagsins verður „opið hús“ í bækistöð blaðsins að Síðu- múla 15 á milli kl. 12.00 og 18.00. Á þeim tíma verður boðið upp á kaffi og meðlæti og er þess vænst að sem flestir velunnarar Tímans * * Timinn sjái sér fært að líta inn og heilsa upp á afmælisbarnið. Þar sem búast má við að vinna við blaðið verði tafsöm og starfs- fólk í hátíðarskapi langt fram á kvöld, verður gengið frá efni blaðs morgundagsins snemma dags, þar á meðal fréttum, og verða þær því ekki alveg nýjar af nálinni í næsta tölublaði. Að fagnaði loknum verða Tímamenn svo tilbúnir í slaginn á ný.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.