Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 31. mars 1988 Tíminn 3 Aku rey rarsam n i ng u ri n n: Samþykktur í 8 félögum hin bíða fram yfir páska Akureyrarsamningnum hefur ver- ið vel tekið í þeim 8 verkalýðsfélög- um sem um hann hafa þegar greitt atkvæði. Samningurinn hefur verið samþykktur í þeim öllum með rífleg- um meirihluta atkvæða. Á Suðurlandi hafa eftirtalin félög samþykkt samninginn: Þór á Selfossi (22:12), Boðinn í Þorlákshöfn (21:3), Víkingur í Vík í Mýrdal (8:0), Báran á Eyrarbakka (17:1) og Rangæingur á Hellu (28:3). Þrjú önnur félög hafa gefið grænt ljós á samninginn: Verkakvennafélögin Framtíðin í Hafnarfirði (50:24), Framsókn í Reykjavík (115:8) og Verkalýðsfélagið á Kópaskeri (17:1). Af öðrum verkalýðsfélögum er það að fregna að þau ætla að bíða með atkvæðagreiðslu um Akureyr- arsamninginn fram yfir páska, eftir því sem næst verður komist. Frestur félaganna til að taka afstöðu til samningsins er til 12. apríi nk. óþh Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, talar um subbu- skap og fúsk í ríkisfjármálum, en bíður ekki eftir 200 milljóna kr. ávísun frá Leifsstöðvarbyggingarformanni: Jón Baldvin Hannibalsson segir ummæli sín um að hann biði eftir 200 milljóna kr. ávísun vegna Leifsstöðvar hafa verið háð. Auglýsir eftir klögumálum? Fjármálaráðuneytið birti í gær í einu dagblaðanna heilsíðu auglýsingu í fjórlit, þar sem spurt er: „Hvar er bruðlað í ríkisrekstrinum?“ í auglýsingunni biður fjármálaráðuney tið skatt- borgarana um að senda sér ábendingar um hvað mætti fara betur í ríkisrekstrinum til þess að nýta megi betur skattana. Hefur auglýsing þessi vakið gífurlega athygli og raunar áhyggjur hjá ýmsum ríkisstarfsmönnum. Einn slíkur, sem hafði samband við blaðið í gær, benti á að augljóst væri að ráðuneytið væri að hvetja almenning til þess að klaga starfsmenn og stofnanir ríkisins, í því skyni að unnt væri að fylgjast betur með ýmsum smáatríðum varðandi störf þeirra. Sagði sá hinn sami að verið værí að stuðla að eftirlitskerfi með opinberum starfsmönnum sem minnti á hugmyndir um „stóra bróður“. Þó áhyggjur þessa tiltekna starfs- manns séu trúlega óþarflega miklar, er ljóst að fjármálaráð- herra er ekki að auglýsa eftir stefnu fyrir flokk sinn um það hvaða meginþætti ríkisútgjalda beri að skera niður, heldur eftir ábendingum um smærri mál sem varða daglegan rekstur, útgjöld sem ekki er gott að festa hendur á í reikningum stærri rekstrarein- inga. Auglýsing fjármálaráðuneytisins er einkar nýstárlegt uppátæki, en Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra, gerði bruðl í ríkis- rekstri að umtalsefni í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks- ins um síðustu helgi. í máli Jóns Baldvins þar kom fram að formaður byggingarnefnd- ar flugstöðvarinnar hafi sagst geta skrifað undir ábyrgð á 200 milljón- um af þeim milljarði sem byggingin fór fram úr áætlun. Sagðist Jón Baldvin vera að bíða eftir tékk- anum. Blaðamaður Tímans spurði ráð- herrann hvort hann biði enn eftir þessari ávísun. „Auðvitað var þetta sagt í háði en flugstöðvarmál- ið er dæmi um það að það er enginn maður dreginn til ábyrgð- ar.“ „Hvers vegna gat þessi bygg- ingarnefnd efnt til þessara útgjalda án þess að lenda í greiðsluþroti? M.a. vegna þess að einn af ríkis- bönkunum veitir þeim stórfelld lán og það var einfaldlega farið framhjá fjármálaráðuneytinu. Og framhjá því verður ekki litið að því er yfirlýst af fyrrverandi pólitískum yfirmanni, fyrrverandi utanrfkis- ráðherra og ráðherrum, að þeir hafi tekið fulla ábyrgð á þeim umfram kostnaði sem þarna var efnt tii,“ sagði Jón Baldvin. „Sama máli gegnir að því er varðar forsvarsmenn ríkisstofn- ana. Það er merkilegt að lesa yfirlýsingar frá þeim sem segja að það væri mjög æskilegt ef hægt væri að reka stofnanirnar innan ramma fjárlaga og því þurfi auka- fjárveitingar! Bakreikningafúskið í þessu kerfi er yfirgengilegt, það ríkir aukafjárveitingafár og annar subbuskapur í fjármálum," sagði Jón Baldvin að lokum. JIH/BG Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarinsáfundi í,gær: Ákvörðun um 800 kr.lánáásettalæðu Á fundi stjórnar Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins í gær var m.a. rætt um hlut hans í úrlausn á vanda refabænda. En eins og kunn- ugt er var tillaga þingmannanna Stefáns Guðmundssonar, Árna Gunnarssonar og Halldórs Blöndal um fjárhagslega fyrirgreiðslu til refabænda og fóðurstöðva, sam- þykkt frá ríkisstjórn eigi alls fyrir löngu. Samþykkt var á fundinum að Framleiðnisjóður lánaði 800 kr. á hverja ásetta læðu, en þessi upp- hæð er í samræmi við tillögu þing- mannanefndarinnar. Stjórnin samþykkti að verja ti! þessa liðar tæpum 13 milljónum að sinni. Áður hafði Stofnlánadeild landbúnaðarins fallist á að veita 17 milljónum króna til þessa liðar. Það hefur orðið að samkomulagi milli Stofnlánadeildar og Fram- leiðnisjóðs að hann annist fram- kvæmd lánveitinganna fyrir hönd beggja aðila. „Skilyrði af okkar hálfu til þess- ara lánveitinga er að þessir pening- ar gangi í uppgjör vanskila, fyrst og fremst til fóðurstöðva. Það er sett á oddinn hjá okkur,“ sagði Jóhannes Torfason, formaður stjórnar Framleiðnisjóðs landbún- aðarins. Hann sagði ennfremur að ætlunin væri að úthlutun lánanna hæfist strax eftir páska. óþh Vandi Kaupfélags Svalbarðseyrar: Frekari aðstoð við ábyrgðarmenn Samþykkt hefur veriö að fela forstjóra Sambandsins, Guðjóni B. Ólafssyni, og stjórnarfor- manni þess, Vali Arnþórssyni, að halda áfram aðstoð við þá einstaklinga sem voru í ábyrgð- um fyrir hluta af skuldum Kaup- félags Svalbarðseyrar. Aðstoðin verður fólgin í því að létta af þeim hluta af þeim ábyrgðum sem þeir höfðu gengið í fyrir þetta gjaldþrota kaupfélag. Ekki hefur enn verið svarað þeirri kröfu Jóns Oddssonar hrl., fyrir hönd Jóns Laxdals fyrrum stjórnar- manns í Kaupfélagi Svalbarðseyrar, að fá greidda eignarhlutdeild í Sam- bandinu til að vega upp á móti skuldum í félaginu. Fól stjórn Sam- bandsins Jóni Finnssyni að svara kröfu Jóns Laxdals. Þó að þessari kröfu hafi ekki enn verið svarað var lögð fram álitsgerð Jóns Finnssonar hrl. á stjórnarfundinum í gær um málið. Þar kemur fram að þessar bolla- leggingar um hugsanlega eignarhlut- deild sambandsfélaganna í hreinni eign Sambandsins eru ekki jafn ein- faldar og kröfuhafar vilja vera láta. Telur Jón Finnsson að verið sé að rugla saman réttarreglum um hluta- félög og sameignarfélög. Samkvæmt lögum um samvinnufélög er ekki um ótakmarkaða ábyrgð að ræða líkt og gildir um hlutafélög. Telur Jón Finnsson hrl. að hugmyndirnar sem Frá stjórnarfundi Sambandsins. liggja að baki kröfunni eigi sér ekki neina stoð í lögum um samvinnufé- lög, enda fara þær í bága við ákvæði laganna og samþykkta Sambandsins og sambandsfélaganna. Stofnsjóður- inn er skuld Sambandsins við aðild- arfélag og stofnsjóður kaupfélags er á sama hátt skuld við félagsmann. Stofnsjóðurinn er ekki ávísun á eignarhlutdeild, eins og segir í álits- gerðinni. „Einstök sambandsfélög hafa eng- an lagalegan rétt til þess að krefjast skipta á eignum Sambandsins fremur en einstakir félagsmenn í kaupfélagi eiga rétt á að krefjast skipta á því. Eina lögformlega leiðin til þess að eignir Sambands íslenskra sam- vinnufélaga geti komið til skipta milli sambandsfélaga er sú, að félög- in samþykktu að slíta Sambandinu. Tillaga þess efnis verður að hljóta samþykki 3/4 hluta allra fulltrúa á tveimur lögmætum fulltrúafundum í röð og málið verið borið undir fundi í öllum sambandsfélögum milli funda,“ segir í fréttatilkynningu frá stjórnarfundinum. Segir Jón Finnsson einnig að mörg fordæmi séu fyrir uppgjöri á stofn- sjóðseign kaupfélaga í SÍS við gjald- þrot kaupfélaga í samræmi við reglur og lög samvinnufélaga. „Hefur það ekki vafist fyrir lögmönnum né skiptaráðendum hingað til svo kunn- ugt sé, hvað lög séu í þessu efni.“ KB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.