Tíminn - 22.12.1988, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 22. desember 1988
Tíminn 5
Tveir af þingmönnum Borgaraflokks, Óli Þ.GuðbjartssonogAðalheiður Bjarnfreðsdóttir, styðja ríkisstjórnina:
Meirihluti tryggður
Nú er ljóst að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur meirihluta fyrir
öllum tekjuöflunarfrumvörpum sínum og bráðabirgðalögunum í báðum
deildum Alþingis. Þá er einnig talið víst að ekki verði þinghald á milli jóla
og nýárs. Frumvörp um tekju- og eignaskatt og frumvarp um vörugjald verða
afgreidd sem lög frá þinginu í dag og fjárlög verða afgreidd á fyrstu dögum
næsta árs.
Atkvæðagreiðsla um lög til stað-
festingar bráðabirgðalögunum fór
fram í neðri deild í gærmorgun og
ríkti mikil spenna um úrslit hennar,
en hún skar úr um hvort ríkisstjórnin
hefði meirihluta á þingi. Greidd
voru atkvæði um frumvörpin eftir
aðra umræðu og eftir það var þeim
vísað til þriðju umræðu í deildinni.
í stuttu máli fóru leikar svo að allar
breytingartillögur við frumvörpin
voru felldar eða dregnar til baka.
Tveir af þingmönnum Borgara-
flokksins, þau Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir og Óli Þ. Guðbjartsson,
gengu til liðs við stjórnina og studdu
hana, ýmistmeð hjásetu eðagreiddu
atkvæði með henni. Óli Þ. Guð-
bjartsson gerði grein fyrir atkvæði
sínu þar sem hann sagði það ábyrgð-
arhluta að fella stjórnina á þeim
óvissutímum er nú ríktu í efnahags-
lífi þjóðarinnar og í ljósi þeirrar
yfirlýsingar forsætisráðherra um að
hann mundi hefja viðræður við
A.S.Í. og B.S.R.B. styddi hann
stjórnina.
Haildór hættir að þæfa
Sjálfstæðismenn hafa lýst því yfir
að þar sem meirihluti ríkisstjórnar-
innar sé kominn í ljós muni þeir ekki
koma í veg fyrir að afgreiðsla mála
verði með eðlilegunt hætti hér eftir.
Það mun hafa náðst samkomulag á
fundi sem haldinn var með formönn-
um þingflokka og forsetum þingsins
um að tekjuöflunarfrumvörpin verði
afgreidd fyrir jól en annað verði
látið bíða. Á þetta hefur stjórnar-
andstaðan fallist. Halldór Blöndal
sem er ókrýndur leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar í efri deild þingsins
hefur þrátt fyrir að meirihluti ríkis-
stjórnarinnar sé kominn í Ijós haldið
uppteknum hætti og var hann tíður
gestur í ræðustól deildarinnar í gær.
Samt er talið líklegt að hann muni
lúta vilja meirihlutans innan þing-
flokksins og halda ekki uppi málþófi,
þó svo að haft hafi verið eftir einum
af samflokksmönnum hans í gær að
samkomulag væri um skipan þing-
starfa í neðri deild en ekki í þeirri
efri.
Fruinvörpin um tekju- og eigna-
skatt og vörugjald voru rædd í neðri
deild þingsins í gær en þau verða
send til efri deildar aftur í dag vegna
þeirra breytinga sem á þeim hafa
orðið í meðförum fjárhags- og við-
skiptanefndar deildarinnar. Það eina
sem gæti komið í veg fyrir að þessi
frumvörp verði afgreidd fyrir jól
væri að Halldór Blöndal tæki þá
ákvörðun að halda uppi málþófi.
Það má segja að visst spennufall
hafi orðið á Alþingi í gær er meiri-
hlutinn kom í Ijós og hlutirnir fóru
að skýrast. Þó að stuðningur hluta
Borgaraflokksins hafi ef til vill ekki
komið mjög á óvart voru sumir
óhressir með úrslitin. Albert Guðm-
undsson fráfarandi formaður Bor-
garaflokksins var þungur á brúnina
enda þessi hjáseta alls ekki með
hans samþykki og ekki honum að
skapi. Menn spyrja sig nú þeirrar
spurningar hvort flokkurinn sé að
klofna í höndunum á honum og að
þeir sitji einir eftir hann, Ingi Björn
og Hreggviður Jónsson en aðrir
gangi til liðs við stjórnina. Það lá
ekki heldur neitt sérstaklega vel á
sumum af þingmönnúm Sjálfstæðis-
flokksins. Geir H. Haarde var þung-
orður í umræðum um vörugjalds-
frumvarpið sem fóru fram á eftir
atkvæðagreiðslunni um bráða-
birgðalögin og sagði m.a. að sér
þætti hart að hæstvirtur iðnaðarráð-
herra gæti ekki hundskast til að vera
viðstaddur umræðuna, en Jón Sig-
urðsson hafði þá brugðið sér úr
salnum.
Þess má svo að lokum geta að nú
þegar allir hnútar eru leystir eru
þingmenn ekki að stressa sig yfir
framvindu mála fyrir jól og munu
sumir landsbyggðarþingmenn leggja
af stað heimleiðis í dag. - ág
Rætt við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um opinbera heimsókn hans til Póllands:
Valdhafarnir vilja bætt
samskipti við Norðurlönd
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra er nýkom-
inn heim úr opinberri heimsókn til Póllands, þar sem hann
átti viðræður við helstu ráðamenn pólsku þjóðarinnar.
Heimsóknin stóð í fjóra daga, frá 12. til 16. þessa mánaðar.
Utanríkisráðherra átti viðræður
við fjóra af helstu valdhöfum nú-
verandi ríkisstjórnar í Póllandi,
utan ríkisráðherrann Olevchowski,
utanríkisviðskiptaráðherrann Jas-
trzebski, forsætisráðherrann Ra-
kowsky og Jaruzelski æðsta valda-
mann Póllands sem ber titilinn
formaðurráðherraráðs. „Mérþótti
talsvert til Jaruzelski koma og fann
á viðtölum við pólska borgara að
hann er talsvert metinn," sagði Jón
Baldvin. Að auki ræddi hann við
fulltrúa kaþólsku kirkjunnar, erki-
biskupinn yfir Varsjá, Aljozy
Orzulik og annan af tveim nánustu
ráðgjöfum Walesa sem heitir Ma-
zowiecki og er úr hinum kaþólska
armi Samstöðu. Þá gafst ráðherra
einnig kostur á að ræða við ýmsa
óbreytta borgara, sem gegna ýms-
um störfum í Póllandi.
Aðalumræðuefnin voru sam-
skipti austurs og vesturs, ákvörðun
Gorbatsjovs um fækkun í herafla
og fækkun venjulegra vopna í A.-
Evrópu. Tillögur Atlantshafs-
bandalagsins um niðurskurð her-
afla og fækkun venjulegra vopna í
Evrópu, Perestrojka Gorbatsjovs,
endurnýjunaráætlun hinnar nýju
ríkisstjórnar Póllands, samskipti
Póllands og Norðurlanda og tví-
hliða samskipti íslands og
Póllands. Jón Baldvin sagði að auk
þess hafi umræðan beinst mjög að
fyrirhuguðum viðræðum stjórn-
valda og andstöðuafla í Póllandi,
sem ýmsum finnst að muni skera úr
um hvort umbótaáætlun ríkis-
stjórnarinnar nái fram að ganga,
eða öllu heldur hvort hún skili
einhverjum raunverulegum ár-
angri þegar til framkvæmdanna
kemur.
„Menn þurfa ekki lengi að dvelja
í Póllandi til að sjá að þeir búa við
efnahagslegt neyðarástand,“ sagði
utanríkisráðherra. Hann sagði áð
menn mættu ekki gleyma því að á
síðasta áratug réðust Pólverjar í
gríðarlegar fjárfestingaráætlanir
sem fjármagnaðar voru með er-
lendum lánum. Endurbæturnar
sem þetta átti að leiða af sér
mistókust gersamlega, m.a. vegna
þess að stjórnkerfið bauð ekki upp
á að rekstur verksmiðja væri sam-
keppnishæfur um verð og gæði.
Vegna þessa hafa lífskjör hrunið í
landinu, en voru þó ekki beysin
fyrir. Það er orkuskortur, vöru-
skortur, matarskortur og það er
ríkjandi vonleysi almennt í þjóðlíf-
inu. „Miðað við fyrri veru.mína
þar, þó langt sé um liðið, duldist
mér ekki að það hefur orðið um
verulega afturför að ræða í land-
inu,“ sagði Jón Baldvin.
Hin svokallaða endurnýjunar-
áætlun Rakowsky er við fyrstu sýn
mjög róttæk umbótaáætlun, að
sögn utanríkisráðherra. Aðalatriði
hennar eru: Skilyrðislaus heimild
til að starfrækja einkafyrirtæki, í
öðru lagi skilyrðislaus heimild fyrir
erlenda aðila til að eiga og starf-
rækja fyrirtæki í Póllandi með
100% eignaraðild útlendinga, jafn-
vel þótt fyrirtækin séu alfarið undir
stjórn erlendra aðila. Þá er í þriðja
lagi gjaldeyrisfrelsi, heimiíd án
íhlutunar stjórnvalda til að eiga og
skipta pólskum gjaldmiðli í erlend-
an gjaldmiðil, í fjórða lagi skatta-
ívilnanir til fyrirtækja sem skila
ákveðnu hlutfalli af tekjum sínum
af útflutningi og í fimmta lagi
opnun í milliríkjaviðskiptum, í
þeim skilningi að fyrirtæki semji
beint við einkafyrirtæki erlendis
um útflutning og viðskipti.
„Þetta hefði í gamla daga verið
kallað prívatísering og kapítalismi,
en samkvæmt hugmyndum ráða-
manna segja þeir lýðræðisleg jafn-
aðarstefna, þ.e. blandað hagkerfi,
markaðsbúskapur undir opinberri
stjóm og viðurkenna þar með að
gamli formúlukommúnisminn, að
öll framleiðslutæki skuli vera í
höndum ríkisins og afnám sam-
keppni og frjáls markaðsbúskapar,
að það kerfi hafi gersamlega brugð-
ist á þeim 40 árum sem Sovétmenn
hafa þröngvað því hagkerfi upp á
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra.
2!
1 -
3 #
i f
Tveir af valdamestu mönnun Samstöðu, JLech Walesa og Tadeus Maco-
wicki.
Jaruzelski formaður ráðherraráðs
Póllands.
Pólverja," sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að þetta væri út af fyrir
sig neyðaráætlun og staðfesting á
hruni hins svokallaða sósíalíska
hagkerfis og er að því leyti skyld
perestrojku Gorbatsjovs.
Þessar áætlanir Pólverja eru ekki
farnar af stað þar sem ný ríkisstjórn
tók við í september. Frumvörpin
Iiggja nú fyrir pólska þinginu og
eiga að taka gildi frá árslokum og
fram í mars, apríl á næsta ári.
Jón Baldvin sagði að Pólverjarn-
ir hefðu lagt mikla áherslu á að
kynna þessar áætlanir sínar og
töluðu mjög opinskátt um mistök
fortíðar og viðurkenndu að þeim
væri lífsnauðsyn að virkja frum-
kvæði og dugnað einstaklinga sem
hefðu verið drepin í dróma áratug-
um saman. Þeir töldu hins vegar að
viðbrögð Vesturlanda skæru úr um
árangurinn. Jón sagði að hann
túlkaði viðræður Jaruzelski á þann
veg að Jaruzelski teldi að stefna
þyrfti að auknu félagafrelsi í áföng-
um. Byrja þurfi á umbótaáætlun til
að bæta lífskjörin og vona að
alþjóðlega umhverfið stuðli að því
að umbætur heima fyrir komi hönd
í hönd með friðsamlegri samskipt-
um.
Utanríkisráðherra sagði að þeg-
ar rætt hefði verið við fulltrúa
Samstöðu um þessi mál, þá sögðu
þeir að þessi ríkisstjórn væri sama
ríkisstjórnin og hefði komið Pól-
landi á kaldan klaka á undanförn-
um áratugum. Þetta er sami flokk-
urinn og sömu forystumennirnir,
sama valdastéttin, sama valdakerf-
ið, sem aldrei hefur notið trúnaðar
þjóðarinnar, heldur tekið sér völd
með valdi. Þess vegna segir Sam-
staða: Við erum vissulega viðbúin
til að ræða þessa umbótaáætlun og
teljum hana í höfuðatriðum rétta,
en við setjum það skilyrði að fyrst
verði komið á félagafrelsi í landinu
og þá ekki eingöngu viðurkenningu
á frjálsum verkalýðsfélögum, held-
ur félagafrelsi í merkingunni marg-
flokkakerfi og lýðræðislegar kosn-
ingar þar sem pólska þjóðin fengi
að velja sér menn sem hún treysti
til að fara með framkvæmdina.
„Þarna stendur hnífurinn í kúnni,"
sagði utanríkisráðherra.
Jón Baldvin sagði að það hefði
komið fram bæði í máli stjórnvalda
og almennings að menn telja mikið
skorta á skilning Vesturlandabúa á
hlutskipti og örlögum Austurevr-
ópuþjóða. Pólverjar vilja ekki að
þeim sé ruglað saman við pere-
strojku, því menn verði að átta sig
á því að Pólland er vestrænt ríki,
sem fer fram á lýðræði, frelsi og
sjálfstæði.
„Það sem mér þótti athyglisverð-
ast og gekk eins og rauður þráður
í gegnum málflutning valdhafanna
var sá mikli áhugi á því að ná
bættum samskiptum og tengslum
við Norðurlönd," sagði Jón
Baldvin. Hann sagði að Pólverjar
litu svo á að Norðurlöndin hefðu
miklu að miðla þeim. Norðurlönd-
in eru ekki stórveldi og verða ekki
grunuð um græsku fyrir yfirráða-
hneigð, en þau eru tæknilega sterk.
Jón sagði að þarna gætu Norður-
lönd lagt fram mikinn skerf ef þau
hættu að bíða átekta og réttu fram
hjálparhönd. „Þessu mun ég koma
á framfæri við ríkisstjórnir Norður-
landa og sér í lagi kollega mína
sosíaldemokrata, því ég tel þetta
mjög athyglisverðan hlut,“ sagði
utanríkisráðherra.
Viðskipti íslands og Póllands
komu til umræðu á þessum fundum
Jóns með ráðamönnum í Póllandi.
Viðskiptin síðustu ár hafa verið á
þann hátt að Pólverjar hafa smíðað
og lengt fyrir okkur skip en í
staðinn höfum við selt þeim aðal-
lega fiskimjöl til svína- og alifugla-
framleiðslu. Þetta hafa verið við-
skipti upp á 13 milljónir dollara á
ári, sem er um 1% af okkar
heildarútflutningi. í viðræðum við
utanríkisviðskiptaráðherrann kom
fram að Pólverjar væru tilbúnir til
að fimmfalda viðskiptin að verð-
mætum milli landanna á næstu
þrem árum. -ABÓ