Íslendingur - 20.01.1984, Blaðsíða 8
0
Rafiagnir - viðgerðarþjónusta
á raflögnum og heimilistækjum.
RAFORKA HF.
GLERÁRGÖTU 32 Simar: 23257 og 21867
AKUREYRI BOX 873'SÍMI: 25951
VERSLIÐ
S/ HJÁ FAG'
MANNI
Ólafur Rcifn kœrir
rithandarfölsun!
Eins og íslendingur skýrði frá 5.
janúar s.i. hafði embætti sak-
sóknara beðið í 8 mánuði eftir
svari dómsmálaráðuneytisins
við bréfi, þar sem leitað var
umsagnar þess á kæru Daniclle
Somers uin, að húsinu Þing-
vallastræti 22 hefði aldrei verið
Árni Jónsson
sextugur
Árni Jónsson,landnámsstjóri, er
sjötugur í dag.
Árni starfaði um árabil af
mikilli ósérhlífni að málefnum
íslendings og var formaður
blaðstjórnar um hríð.
Þá var hann bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins þangað til
hann flutti úr bænum.
skipt löglega og þinglýsing væri
jafnframt ólögleg.
Saksóknari rannsakaði málið
en óskaði síðan umsagnar ráðu- -
neytisins fyrir 8 mánuðum.
Nú hefur dómsmálaráðu-
neytið sent Elías I. Elíassyni,
bæjarfógeta, bréf þar sem
óskað er eftir hans umsögn um
málið, eins og hann orðaði
þetta í samtali við íslending.
Hann varðist frétta af málinu
en kvað bæði kaupmála og
leigulóðarsamning vera til hjá
embættinu varðandi þessa
eign. Kaupmálinn er ekki þing-
lýstur.
í íslendingi hefur komið
fram áður, að undirskrift
Grímu Guðmundsdóttur á af-
salsplagginu sé harla ólík
undirskrift hennar á öðrum
plöggum.
Nú hefur Ólafur Rafn Jóns-
son farið þess á leit viö rann-
sóknarlögreglu bæjarins, að
þetta mál verði rannsakað.
cWcU ílti'
2.
Á þessari mynd sést munurinn á rithönd Grímu. Llndirskriftin til vinstri er
frá 1969 en hin frá 1981.
Ný geðdeild stofnuð
Stefnt er að því, að setja á
stofn nýja geðdeild við Fjórð-
ungssjúkrahúsið og samkvæmt
áætlunum ætti deildin að geta
tekið til starfa innan eins árs.
Þessi deild verður sett upp í
svokallaðri tengibyggingu á 1.
hæð og er stefnt að því, að
múrarar hefjist handa innan
mjög skamms tíma.
Nyja geðdeildin kemur í stað
T-deildarinnar, sem hefur veriö
lokuð í nokkra mánuði.
Þarna verða á milli 10-12^
rúm og verður þessi deild bæði
legudeild og göngu- og dag-
deild.
Fjórðungssjúkrahúsið fær á
þessu ári um 18 milljónir króna
til framkvæmda og verður fénu
meöal annars varið í nýju
deildina, auk þess sem boðinn
veröur út á næstunni frágangur
á nýrri slysadeild og göngu-
deild fyrir sjúkrahúsið.
Gunnar Ragnars, stjórnar-
formaður FSA, sagði við ís-
lending, að Matthías Bjarna-
son, heilbrigðisráöherra, heföi
komið til Akureyrar í desem-
ber, og þetta væri niðurstaðan
afþeirri heimsókn.
Eins og mönnum er kunnugt
sagði Brynjólfur lngvarsson
Fá raðskipin ekki að veiða
íslcndingur hefur eftir áreiðan-
legum heimildum, að Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, hyggist veita togurunum
þremur, sem hafa verið smíó-
aðir í Póllandi, veiðileyfi.
Hins vegar ætli ráðherra ekki
að veita skipunum tveimur,
sem Slippstöðin vinnur við sem
lið í raðsmíðaverkefninu svo-
kallaða, veiðileyfi.
Þetta eiga menn bágt með
að skilja á sama tíma og skipa-
smíðaiðnaðurinn stendur á
brauðfótum.
Afleiðingin af þessu verður
sú, að raðsmíðabátarnir verða
óseljanlegir!
Alcan sendir tvo
fulltrúa norður
upp starfi sínu sem yfirlæknir á
T-deild, m.a. vegna ágreinings
við starfsfólk og yfirstjórn um
vinnulag o.fl.
Staða hans hefur verið aug-
lýst, en enginn sótt um.
Því er haldið fram, að um
samantekin ráð geðlækna sé að
ræða, en eftir því sem Islend-
ingur kemst næst munu þeir,
sem könnuöu aðstæður hér
með umsókn um starfið í huga,
ekki hafa haft áhuga á stöð-
unni af svipuðum ástæðum og
urðu til þess að Brynjólfur
sagði upp.
Kanadískir álsérfræðingar
komu hingað til Akureyrar í
morgun til þess að kanna
hugsanlega staðsetningu á
álveri hér við Eyjafjörð.
Þeir eru hér á vegum Stór-
iðjunefndar og Alcan sem er
eitt stærsta álfyrirtæki heims og
á mörg álver í Kanada og jafn-
framt í öðrum löndum. Þeir
hafa meöal annars haft sam-
vinnu við Norðmenn í áliðnaði.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur Sverrir Hermans-
son, iðnaðarráðherra, lýst yfir
því, að hann telji, að fslending-
ar eigi að stefna að því að fá
erlenda meðeigendur að stór-
iðjufyrirtækjum.
Heimsókn þessara manna er
að líkindum í tengslum við slí
áform.
Kanadamennirnir tveir
komu til landsins í gærmorgun
til þess að kanna aðstæður fyrir
rekstur álvers hérlendis, og í
gær heimsóttu þeir Álverið í
Straumsvík.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
formaður stóriðjunefndar,
sagði í samtali við fréttastofu
útvarpsins í gær, að för mann-
anna hingað væri kynnisför.
Þeir væru ekki komnir hingað
til að gera samninga.
Að lokinni athugun þeirra á
aðstæðum hér við Eyjafjörð
fara mennirnir strax af landi
brott eftir tveggja daga viðdvöl.
Vargatítlur heimtufrekjunnar
Nú í vetur hefur verið skotiö
nokkrum lausum skotum á
Jafnréttisnefnd Akureyrar. en
viökvæmnin á þeim b;e er svo
mikil. að manni er næst að
halda, að vitrar vargatítlur
‘•bæjarins myndu banna alla
jákvæða umfjöllun um þessi
mál, og neikvæða, ef þeim
væri þaö í sjálfsvald sett. Það
eru einkum kvennaframboös-
konur, sem kunna ekki að
taka gagnrýni. Og það er
kannski ekki nema von, því
minna hefur oröið úr störfum
þessarar nefndar en efni stóðu
til.
Jón G. Sólnes lét á haust-
dögum orðiö „húmbúkk” út
úr sér í sakleysislegum hryss-
ingstón á bæjarstjórnarfundi.
þegar til umræðu var fundar-
gerð Jafnréttisnefndar.
Og þá fór boltinn að rúlla.
Og það svo að um munaði.
Nefndin vaknaði af værum
blundi. Konurnar í bæjar-
stjórn föttuðu ekki gálgahúm-
orinn í Jóni og tóku „húm-
búkk” athugasemd Jóns
óstinnt upp, svo úr varð ein-
hvers konar „umræða" þar
sem því var jafnframt lýst
yfir, að karlar væru alls ófærir
um að-íjalla um jafnréttismál.
Þar kemur sennilega til þessi
sérstaki ..reynsluheimur”
kvenna, sem viröist eftir öll-
um sólarmerkjum að dæma
vera eins konar tilvist á ööru
plani, af öðrum heimi, með
sínum eigin gúrúum og trúar-
athöfnum.
Hvað um þaö. nefndin hafði
fengiö ungan félagsfræöing úr
Reykjavík til þess að vinna
skýrslu um atvinnuöryggi
kvenna á Akureyri og fyrir-
myndin var viðlíka skýrsla
eftir sama mann um ástand
þessara mála í Reykjavík.
Til þess að sýna. að Jafn-
réttisnefnd væri nú aldeilis
ekki dauð úr öllum æöum er
rokiö í símann og félagsfræö-
ingnurn uppálagt að skila af
sér verkinu, sem þó var ekki
að fullu lokið. Pólitískar
heimtufrekjur Jafnréttis-
nefndar höfðu sitt fram, og
fræðimaðurinn varð að skila
af sér hálfkaraðri skýrslu.
Hún er um margt merkileg,
en Jafnréttisnefnd hefði að
skaölausu mátt leyfa höfund-
inum aö klára verk sitt enda
han.n manna hæfastur til þess.
Nei, það var ekki hægt
vegna þess, að Jafnréttisnefnd
þurfti að sanna, að hún væri
til, að hún hefði eytt 100
þúsund krónum í skýrsluna,
eða m.ö.o. að hún væri maöur
með mönnum.
Undirritaður leyfir sér að
halda því fram, að þetta hafi
verið gert í óþökk höfundar.
En sagan er ekki þar með
öll sögð.
Jafnréttisnefnd og síöan
bæjarstjórn samþykkja síðan
nú á dögunum að spandera
20 þúsund krónum til viðbót-
ar í einhvern félagsfræðinema
á fyrsta ári eða öðru, til þess
að koma skýrslunni í læsilegt
form fyrir hinn almenna
mann.
Auðvitaö hefði höfundur
ált að vinna þetta verk, færa
tölfræðilegar upplýsingar í
læsilegt form o.s.frv., en ekki
einhver fulltrúi af lista
Kvennaframboðsins. Þetta er
eikkert annað en sóun, bitling-
ur handa tannlæknisfrú, sem
hefur efni á því aö stunda
nám viö Háskóla íslands með
búsetu á Akureyri. Nema að
20 þúsund kallinn hafi veriö
hugsaður sem ferðastyrkur
fyrir félagsfræðinemann.
Undirritaöur er ekki á móti
skýrslum Undirritaður er
heldur ekki á móti þessari
tilteknu skýrslu. Undirritaður
hefur lesið skýrsluna, og þótt
þar komi margt fram, sem
„vitaö” var, þá hefur sú
vitneskja nú hlotið staðfest-
ingu. Eftirleiðis höfum við því
upplýsingar til að byggja á.
Undirritaður er heldur ekki
á móti því, að skýrslan eða
útdráttur hennar, verði gerður
aðgengilegur fólki, birtur og
jafnvel gefinn út í litlu upp-
lagi fyrir þá, sem áhuga hafa.
Undirritaður er hins vegar
á móti því, að nefnd, sem
ekkert virðist gera, ætli að slá
sig til riddara á því, sem hún
hefur sjálf ekki gert. og pína
ungan fræðimann til þess að
skila af sér handriti að verki,
sem honum hafði ekki unnist
tími til að fullvinna.
Og síðan er bætt um betur
og litlar 20 þúsund krónur
réttar upp í hendurnar á vel-
efnuðum námsmanni til þess
að vinna tveggja daga verk!
Jón G. Sólnes hefði kannski
aldrei átt að segja „húm-
búkk”?
Þá sætum við e.t.v. ekki
uppi með þessi snartauga-
veikluðu viðbrögð Jafnréttis-
nefndar?
En fyrst nefndin er til, þá
gerir undirritaður það að til-
lögu sinni, að hún fari að gera
eitthvað raunhæft og hætti aö
fussa og sveia vegna umræðu,
sem á sér ofureölilegar orsakir
og er raunar af hinu góða.
Orðvar.