Austurland


Austurland - 13.04.1989, Blaðsíða 1

Austurland - 13.04.1989, Blaðsíða 1
Tölvu- pappír I/Z* lNESPRENT ® 71189 & 71135 SU210 Andey fánum prýdd í skemmtisiglingu á mánudag. Breiðdalsvík Nýtt frystiskip Andey SlJ-210, nýr frystítogari Hraðfrystíhúss Breiðdælinga kom til heimahafnar á Breiðdalsvík á mánudagsmorguninn. Breiðdæl- ingar fögnuðu komu skipsins og um miðjan dag var farið með börn bæjarins í skemmtísiglingu á togar- anum. Síðan var móttaka um borð í skipinu, þar sem gestum var gef- inn kostur á að skoða það. Andey er um 260 brúttólestir og sem fyrr segir frystiskip. Skipið er smíðað í Póllandi og skipstjóri á því er Guðmundur ísleifur Gíslason, sem áður var skipstjóri á Hafnarey, sem Hraðfrystihúsið á fyrir. Andey heldur fljótlega á veiðar og frystir aflann um borð. hb Breiðdœlingarfjölmenntu um borð í Andey. Myndir Sigursteinn Melsteð Alþingi Spurt um Hornafjarðarós Hjörleifur Guttormsson al- þingismaður hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til samgöngu- ráðherra um Hornafjarðarós. Fyrirspum Hjörleifs er svo- hljóðandi: „Hvaða athuganir hafa farið fram á breyttum að- stæðum við Hornafjarðarós og hvaða aðgerðir telja hafnamála- yfirvöld að helst komi til greina til að tryggja innsiglinguna til Hafnar í Hornafirði?" Eins og komið hefur fram í fréttum í vetur hefur innsigling- in til Hornafjarðar oft lokast nú eftir áramót vegna breytinga sem urðu á Austurfjörutangan- um. Fyrirspurn Hjörleifs er í beinu framhaldi af þeim vand- ræðum sem af þessu hafa hlotist. Búist er við að Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra, svari fyrirspurninni í næstu viku. hb Neskaupstaður Hagnaður af rekstri Síldarvinnslunnar hf. í fyrra Hreinn hagnaður af rekstri Síldarvinnslunnar hf. í Nes- kaupstað nam 11 milljónum króna á síðasta ári. Þar af var hagnaður af útgerð 2 milljónir króna en hagnaður af vinnslunni varð 9 milljónir. Þetta kom m. a. fram á aðalfundi fyrir- tækisins sem haldinn var í Eg- ilsbúð á laugardagin. Rekstrartekjur félagsins á ár- inu 1988 námu samtals 1507 milljónum króna en heildarvelt- an var um 1920 miljjónir að meðtöldum innlögðum afla frá eigin skipum og er það 33% aukning frá árinu 1987. Hagn- aður fyrir afskriftir og fjár- magnsgjöld nam 302 milljónum króna. Afskriftir námu 90 millj- ónum og nettó fjármagnskostn- aður var 201 milljón þannig að hreinn hagnaður var 11 milljón- ir, eins og áður segir. Neskaupstaður Góður smábátaafli Góður afli var hjá smábátum í Neskaupstað í síðustu viku. Alls lönduðu smábátar um 70 lestum af fiski hjá Síldarvinnsl- unni hf. þá vikuna pg er það metvika þetta árið. Um 30 bátar leggja nú upp afla sinn hjá Síld- arvinnslunni og eru flestir þeirra á netum en tveir eru á dragnót. Gullfaxi landaði mestum afla hjá Síldarvinnslunni í síðustu viku, 12 tonnum en Gullfaxi er á dragnót. Af netabátunum var Mónes hæst með tæp 7 tonn. Hjá Ness hf. lögðu 5 bátar upp afla í síðustu viku og lönd- uðu þeir um 10 tonnum þá vik- una. Enginn netabátur leggur upp hjá Ness en 3 bátanna eru á línu og tveir á dragnót. Á mánudaginn fékk Sævar NK góðan afla í dragnót innarlega á Norðfirði og landaði um þrem- ur tonnum. Á þriðjudag landaði Neptúnus frá Seyðisfirði tæpum 5 tonnum af línufiski hjá Ness og er það besti línuaflinn í lang- an tíma. hb Frá aðalfundi Síldarvinnslunnar hf. Mynd hb Fjármunamyndun í rekstri störruðu á síðasta ári um 450 nam samtals 167 milljónum manns að meðaltali og námu króna. Bókfært eigið fé var í árs- heildarlaunagreiðslur til starfs- lok neikvætt um 30 milljónir en fólks 533 milljónum króna, sem endurmetið raunverulegt eigið að meðaltali gera 1.180 þúsund fé félagsins er talið nema, yfir krónurástarfsmannáárinu. Sjá 500 milljónum króna. nánar í viðtali við Finnboga Hjá Síldarvinnslunni hf. Jónsson á bls. 3. hb Ofögur umgengni Það var ófögur sjón sem blasti við á sorphaugunum í Neskaup- stað í gærmorgun. Þar hafði ver- ið losað mikið magn af fiskiköss- um sem fylgdi úldinn fiskúr- gangur og fiskimjöl ásamt öðru rusli. Þessu hafði öllu verið sturtað á svæðið ofan við brenn- arann og eins og nærri má geta var þefurinn ógeðfelldur. Benedikt Sigurjónsson bæjar- verkstjóri sagði, er blaðið leit- aði til hans, að svona umgengni væri óþolandi. í þessu tilfelli hefðu viðkomandi aðilar átt að hafa samband fyrst við bæjar- starfsmenn svo þeir gætu útbúið gryfju fyrir þetta. Þetta ætti forsvarsmönnum allra fyrir- tækja í bænum að vera kunnugt. „Svona lagað verður eingöngu til þess að við getum ekki haft haugana opna fyrir almenning", sagði hann. hb NESVlDEÓ S iunmsiiBii wm RAÐGREIÐSLUR

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.