blaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 28

blaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 28
28 I HELGIN FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaóiö Hinsegin dagar Hinsegin dagar í Reykjavík, Gay Pride, eru þessa dagana haldnir í sjöunda skiptið, en opnunarhátíðin er haldin í Loftkastalanum í kvöld. Dagarnir eru orðnir hefðbundinn þáttur í borgarlífi Reykjavíkur og á hverju ári tekur hátíðin á sig nýja mynd og fleiri bætast í hópinn. Á hátíðina fjölmenna allir þeir sem vilja sýna málstað samkynhneigðra samstöðu. Þá vilja aðstandendur há- tíðarinnar minna þegna landsins á það að lesbíur og hommar á íslandi eiga sér menningu og sögu auk þess að hafa með stolti náð lengra en sam- kynhneigt fólk flestra annarra ríkja í mannréttindabaráttu sinni. ■ Reykjavik 2005 - Gay Pride nú um helgina Dagskrá Hinsegin daga: HAFNARGÖTU 30 - KEFLAVIK FÖSTUDAGUR Fríttinn. di Stef LAUGARDAGUR Brynjar IVlár á FWl 95.7 5 í f ötu á 1500 kr tnilli 22-01 Miðaverð kr. 1.000 20 ára aldurstakmark alla helgína Föstudagur Laugardagur 6.ágúst 5.ágúst Loftkastalinn kl.20:30 Þar munu koma fram Carol Laula, hamskiptingar frá San Francisco, drottningar frá hommaleikhúsinu Hégóma, tví- eykið Tarnín, Rut & Vigdís frá Osló og Namosh frá Berlín. Aðgangseyrir 1.500 kr. Pride partý og ókeypis veitingar fyrir gesti að lokinni sýningu. Pravda og Iðnó á miðnætti Eftir opnunarhátíðina verður stelpnadansleikur á Iðnó og strákadansleikur á Pravda en eingöngu stelpum verður hleypt inn á Iðnó og aðeins strákum inn á Pravda þetta kvöld. Gleðigangan hefst kl.15:00 Án efa stærsti viðburður Hinsegin daga. Allir safnast saman á Rauðar- árstíg, rétt hjá Hlemmi, í síðasta lagi klukkan 13:30. Lagt verður af stað í glæsilega gleðigöngu stundvíslega klukkan 15:00 niður Laugaveginn og þaðan niður Lækjargötu. Hinsegin hátíð í Lækjargötu kl. 16:15 Skemmtihátíðin í Lækjargötu hefur jafnan verið vinsæl hjá landanum en í ár stíga á svið Þórunn Lárusdóttir, Magnús Jónsson, Felix Bergsson og fleiri söngvarar úr Kabarett, Ylfa Lind, Arnar Þór, Allstars með Evu Maríu og Love Guru, Páll Óskar og margir fleiri skemmtikraftar. Hátíðardansleikir kl.23:00 Dansleikir verða á skemmtistöðunum NASA við Austurvöll, Pravda og Nelly's. Páll Óskar mun þeyta skífum á NASA. Sunnudagur 7.ágúst Fótboltaleikur á KR velli kl.15:00 The New York Ramblers Soccer Club og íslensku boltalesbíurnar etja kappi í skemmtilegum fótboltaleik. Aðgangseyrir kr. 500. Páll Óskar er spenntur fyrir Hinsegin dögum - „þetta verður œðislegt“ Páll Óskar Hjálmtýsson er einn af forsprökkum Hinsegin daga en hann segist vera orðinn afar spennt- ur fyrir hátíðinni í ár. „Mér líst bara alveg rosalega vel á þetta, allt er að verða tilbúið og það eru 27 atriði búin að skrá sig í göng- una. Þetta verður æðislegt“, sagði Páll Óskar þegar Blaðið náði tali af honum í gær. Hann segist vongóður um veður þó svo að ekki sé margt sem geti skyggt á hátíð sem þessa. „Maður fer núna bara á hnén og bið- ur um gott veður. Reyndar er spáin ágæt og væntanlega ekki rigning, nema kannski aðeins á sunnu- daginn. Annars er voða fátt sem skyggir á þessa gleði svo að ég er ekkert smeykur.“ Páll hvet- ur alla þá sem láta sig málið varða til þess að mæta í gönguna sem verður á laugar- daginn. „ Þ e i r sem láta sér lág- marks mann- réttindi varða og hafa snefil af sjálfsvirðingu ættu að sjá sér fært að koma og vera með“, segir hann og hlær. Aðstæður samkyn- heigðra góðar hér á landi Páll segir hátíðina hafa gríðarlega þýðingu og að hún gegni sínum hlut- verkum. „Samkynhneigðir þakka fyrir hversu gott er að búa á íslandi en við erum komin langt á veg í bar- áttu okkar og meira er á leiðinni. Svo má ekki gleyma þeim sem komu á undan okkur og þeim sem eiga eftir að koma. Ég t.d. þekki persónulega fólk sem man þá tíma þegar fólk var rekið úr vinnu og íbúðum eða barið á götum úti fyrir kynhneigð sína. Þeir einstaklingar sem háðu þá bar- áttuna fyrir kynhneigð sinni misstu margir geðheilsuna og suma kostaði þetta lífið", segir hann og leggur áherslu á að það fólkhafi að mörgu leyti lagt línurnar fyrir þær ágætu aðstæður sem samkynhneigðir búa við hér á landi í dag. „Auð- • vitað er ísland engin paradís en aðkastið sem við verðum fyr- ir hérna er ekkert í samanburði við það sem samkyn- hneigðir lenda í annars staðar í heiminum. Ég var t.d. að koma frá Osló þar sem fólk verður hvítt ef það sér tvær stelpur leiðast. Hérna erum við mun meira með á nótunum og eina hug- rekkið sem hommahatarar hafa er að kalla á mann með fúkyrðum út úr bíl á fullri ferð“, segir Páll og bætir við að það lýsi því best að hatur á samkyn- hneigðum geti ekki rist djúpt í ljósiþessa. ■ halldora@vbl.is Hvað ætlar þú að gera um helgina? -Gefa smokka og fara í Landmannalaugar Sigríður Arnardóttir, dagskrárgerðarkona. Það fer svolítið eftir veðrinu hvað ég geri. Ég ætla að sjálf- sögðu að taka þátt í Hinsegin dögum niðri í bæ og fagna fjölbreytileika mannlífsins. Ég held að við á Skjá einum ætlum meira að segja að gefa smokka af þessu tilefni. Síðan langar mig að skreppa í Landmannalaugar í göngu- túr. Ég labba á hverjum degi og finnst alveg yndislegt að fara í tveggja til þriggja tíma göngu- túr í borginni og enda hann nieð góðum kaffisopa undir berum himni. Svo vona ég að veðrið leyfi mér að sitja í garðinum mínum með kaffibollann og lesa blöð- in.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.