blaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 1
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■ MEHNIHG
Óli G. Jóhannsson sýnir
bæði ný verk og bók
| SÍÐA 29
■ IPROTTIR
Strákarnir okkar í
Englandi undirbúa sig
| SÍÐA 21
171. tölublað 2. árgangur
mánudagur
31. júlí 2006
Jarðvarmi fyrir níu milljón Ijósaperur
Raforkuframleiðsla frá jarðvarmavirkjunum tvöfaldast á næstu árum framkvæmdastjóra Orkuseturs. Holurnar sem hafa verið boraðar til að
komi ekkert óvænt upp á. Framleiðslan verður þá komin upp í 3.300 virkja jarðvarmann eru orðnar tíu þúsund talsins og má búast við að sú
gígavattstundir. Sú orka myndi duga til að láta níu milljón 40 vatta Ijósa- tala éigi enn eftir að hækka ef ráðist verður í að virkja háhitasvæðin á
perur loga allan sólarhringinn að sögn Sigurðar Inga Friðleifssonar, Norðausturlandi. | sfÐA6
Selfoss:
Spörkuðu
linnulaust
„Þeir voru sennilega fimmtán
sem komu heim til mín,“ segir
Björn Gylfason, en hann ásamt
félaga hans urðu fyrir ofbeldi
hóps ungra manna á Selfossi um
helgina.
„Þeir spörkuðu linnulaust í
okkur,“ segir Björn sem reyndi
að verja höfuðið eins og hann gat.
Að sögn Björns kom lögreglan
stuttu eftir að barsmíðarnar
hófust. Þá lágu þeir báðir í blóði
sínu og þurfti að kalla sjúkrabíl
til. Vinur hans reyndist höfuð-
kúpubrotinn og með heilahrist-
ing auk innvortis blæðinga, að
sögn Björns. Sjálfur þurfti hann
að láta sauma skurði og fékk
glóðurauga, einnig kvarnaðist úr
tönnum.
SJÁ SlÐU 8
Stykkishólmur:
Flugvél lenti
á golfvellinum
„Það var í gangi heljarmikið
mót þennan dag en sem betur fór
voru ekki mjög margir úti á vell-
inum þegar þetta gerðist,“ segir
Eyþór Benediktsson í Stykkis-
hólmi en einshreyfils flugvél var
lent á golfvelli bæjarins í miðju
golfmóti. „Þetta var svona venju-
leg einshreyfilsvél en hún virtist
vera alveg ómerkt. Vélin kom
fyrst inn yfir völlinn mjög lágt
og hægt. Við tókum einmitt eftir
henni því hún lækkaði sig þegar
hún fór yfir völlinn.“
SJÁ SÍÐU 2
Vélhjólamaður segir frá ofsaakstri og spennuþörfinni:
Á 240 með kærustuna
■ Hefur ekið á meira en 300 ■ Hjólin gerð fyrir ofsaakstur ■ Kærastan vildi fara svona hratt
Eftir Val Grettisson valur@bladid.net
Tæplega þrítugur mótorhjólakappi keyrði á
240 kílómetra hraða með kærustuna á hjólinu.
Maðurinn, sem vill ekki gefa upp nafnið sitt,
segist hafa verið úti á landi ásamt þremur kunn-
ingjum og fullyrðir að þeir hafi keyrt á ríflega
300 kílómetra hraða þegar þeir óku hraðast.
„Hjólin eru gerð fyrir þennan hraða,“ segir
hann en hjólið er svokallaður „racer“ sem nær
gríðarlegum hraða á stuttum tíma.
Mikil umræða hefur spunnist um ofsaakstur
mótorhjólakappa. Þeir hafa mælist á allt að 200
kílómetra hraða.
„Þetta er spurning um kikkið,“ segir maður-
inn og bætir við að sér þyki magnað að upplifa
hraðann. Hann segir tilfinninguna allt aðra en
á bílum. Hann segir vissulega hættu á að detta af
hjólinum, og þá sérstaklega á vondum vegum.
Hann ítrekar að hann myndi aldrei keyra svo
hratt innanbæjar enda hættan þar mikil á að
slasa aðra. „Það er betra að hendast af út í sveit
heldur en í bænum,“ segir hann.
„Það var hún sem vildi keyra svona hratt,“ segir
maðurinn um hvort kærastan hafi verið sátt á
hjólinu með honum. Hann segir bæði hafa verið
í góðum göllum og segir gallana góða og fólk sé
vel varið. Hann segir helstu hættuna vera að þeir
lendi á einhverjum hörðu þegar þeir detta.
„Það er vissulega leiðinlegt að lesa um þessa vit-
leysinga sem eru að stinga lögguna af og keyra
eins og brjálæðingar," segir hann og áréttar að
hann sjálfur hafi aldrei verið sektaður né stungið
lögregluna af.
SJásíðu 2
Reykjavík:
Beit eyra af
plötusnúði
„Hann rankaði bara við sér og
beit af mér eyrað,“ segir Kári Ey-
þórsson hálfhissa á viðbrögðum
ÍBH mannssem
3 hannvarað
styðja eftir
að sáhafði
dáið áfeng-
isdauða á
Kaffibarnum. Dyravörður staðar-
ins segir manninn hafa hlaupið
út um leið og hann beit eyrað af
Kára. Tveir menn eltu hann og
náðu honum. Dyravörðurinn
hringdi á lögregluna sem keyrði
Kára upp á spítala.
SJÁSIÐU4
KAFFIBARINN
ILÍFIÐ
Háð háum hælum
Jessica Simpson elskar háa hæla
svo mikið að hún klæðist þeim
jafnt á ströndinni og heima við.
| SÍÐA 26
■ VEÐUR
Ekki bjart
Ekki er hægt að búast við
björtu veðri á landinu í dag.
Hiti verður 10 til 20 stig
| SÍÐA2
■ MATUR
Aukablað um
mat fylgir
Blaðinu í dag
jSÍÐUR 13-20
LÆGRI
VEXTIR
BÍLALÁN
Finndu bara bíiinn sem þig dreymir um og við sjáurn um
fjármögnunina. Reiknaöu lánið þitt á www.frjalsi.is,
hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur línu á
frjalsi@lrjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!
MATUR
r
7
FRJÁLSI
Fj'ÁRFESTINCARBANKINN