Helgarpósturinn - 08.12.1983, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 08.12.1983, Blaðsíða 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson Ritstjórnarf ulltrúi: Hallgrímur Thorsteinsson Blaöamenn: Egill Helgason og Sigmundur Ernir Rúnarsson Utlit: Björr. Br. Björnsson, Björgvin Ólafsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Hildur Finnsdóttir Útgefandi: Goðgá h/f. Framkvæmdastjóri: Guðmundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen Skrifstofustjóri: Ingvar Halldórsson Innheimta: Jóhanna Hilmarsdóttir Afgreiðsla: Þóra Nielsen Lausasöluverð kr. 30. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 8-15-11. Afgreiðsla og skrif- stofa eru að Ármúla 36. Sfmi 8-15-11. Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Blaðaprent hf. Ábyrgð lögreglunnar Lög og regla í hverju landi verða ekkert annað en orðin tóm ef ekki rikiróskorað traust milli þeirra sem eiga að hlíta þeim, þ.e. borgaranna, og þeirra sem eiga að framfylgja þeim, þ.e. lögreglunnar. Um nokkurraáraskeiða.m.k. hefur þessu trausti ekki veriö fyrir að fara. Aldrei hefur trúnaðar- bresturinn verið meiri en ein- mitt núna vegna handtöku blaðamanns og meðferð lög- reglu á honum. Gegnum tíðina hafa hlið- stæð mál komið upp og þegar á þá heild erlitið getur lögregl- an ekki undan því vikist að stærstur hluti ábyrgðar á trún- aðarbrestinum er hjá henni sjálfri. Sá borgari er varla til sem ekki hefur beint eða ó-. beint kynnst harðneskjuleg- um aðferðum lögreglu. Flest þessara mála dagar uppi og koma aldrei upp á yfirborðið. Ástæðan er einfaldlega sú að menn telja það yfirleitt engan tilgang hafa að sækja sjálfa lögregluna til saka. Hún verði aldrei sek fundin. Það er lofsvert hug- rekki hjá þeim blaðamanni sem nú kærir að láta á þetta reyna og skemmst er að minn- ast þess þegar einn af blaða- mönnum Helgarpóstsins sætti ólögmætri handtöku í miðborg Reykjavikur: Þá kom fram að lögreglumenn veigra sér ekki við að Ijúga, — og þetta eru orð sem eru stór en sannleikanum samkvæm —, upþ á borgara þegar þeir þurfa að verja mistök sín. Það var staðfest í opinberri rannsókn á þessari handtöku. Öllum geta orðið á mistök. Líkalögreglunni. Þááaðviður- kenna mistökin og beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig. Það gerir lögreglan ekki. Hún virðist ekki hafa dug til að taka á innri vandamálum — að hreinsa út þá fáu óhæfu einstaklinga sem komaóorði ástörf hennar I heild og eyða þeim gagn- kvæma trúnaði sem fyrr var um fjallað. i Helg- arpóstinum I dag er ítarleg grein um þessi mál og m.a. kemur fram að innan lögregl- unnar eru menn sem gera sér þettaljóst og viljaaðá vandan- um sé tekið. Á þessu öllu hljóta yfirmenn lögreglunnar nú að taka mark. Það er auðvitað ósækilegt að þessi mál koniist einvörð- ungu í brennidepil þegar full- trúar fjölmiðlaverða fyrir barð- inu á mistökum við löggæslu. Hvað um hinn almenna borg- ara? Og „gagnárás" lögregl- unnar I formi svokallaörar fréttatilkynningar Rannsókn- arlögreglu ríkisins er ekki til' þess fallin að skapa traust á ný. Dómsmálayfirvöld islands þurfa aó finna hlutlausa rannsóknaraöferö I málum eins og þessum. Ófært er að lögreglan rannsaki eigin mál. Slíkterekkertannaðen skrípa- leikur.semeykurfrekareneyð- ir því vantrausti sem nú rlkir milli lögreglu og borgara. víða líf og fjör. Sigmar B. Hauksson, sælkeri, útvarpsmaður og karlrétt- indamaður. hefur nú tekið við rekstrarstjórn á veitingahúsinu Rán við Skólavörðustíg og hyggst brydda þar upp á ýmsum nýjung- um, bæði hvað varðar matseðil og persónulegri þjónustú við gesti. Á Hótel Sögu hafa einnig orðið miklar breytingar undanfarið og er stefnt að enn frekari breytingum, sem ganga flestar í þá átt að yngja upp fastagestahóp staðarins. Mun þetta hafa gefist vel. Ein helsta fyrir- hugaða breytingin er að gera hina gamalgrónu vínstúku Mímisbar að diskóteki. Liggja nú fyrir teikningar að því. Við heyrum að þá hafi gaml- ir og grónir fastagestir gert strik í reikninginn. Er sagt að einn stjórn- enda staðarins, Wilhelm West- mann, hafi fengið langan undir- skriftalista með yfir hundrað nöfn- um Mímisbarssáta þar sem mælst er eindregið til þess að lífi brynningar- bólsins verði þyrmt. Mun nú fram- kvæmdum við diskótekun Mímis- bars hafa verið frestað fram á næsta ár a.m.k.... tónleikum þeim sem enska reggíljóðskáldið Lynton Kwesi Johnson hélt hériendis í fyrri viku, mun mörgum hafa ofboðið hassneyslan sem þar var höfð í frammi, ekki af hálfu Ijóðskáldsins eða hljómsveitar hans, heldur hinna íslensku gesta. Mun svo rammt hafa kveðið að þessu að myndarlegt hassský hafði myndast yfir hausamótum gesta um miðbik tónleikanna, sumum til sárs sviða. Þá er sagt að menn hafi lítt verið að fela þessar reykingar sínar, heldur hafi hassmolarnir legið óbyrgðir á borðum og rauðgióandi pípan verið látin ganga milli manna svo sem ekkert væri sjálfsagðara. Tónleik- arnir voru haldnir í Sigtúni og lög- reglan var víst víðs fjarri þessu góða gamni... lEinnig hefur vakið athygli í sambandi við heimsókn Johnsons þessa að hann mun hafa krafist peningagreiðslna fyrir viðtöl fjöl- miðla. Sagt er að Sjónvarpið hafi ,,keypt“ viðtal fyrir Kastljós, en út- varpið ekki gengið að slíku. Engin blöð tóku viðtöi við þennan fégráð- uga fulltrúa öreigaskálda... sig í verslunum Aíengis- og tóbaks- uerslunar ríkisins í vikunni í kjölfar fréttar Morgunblaðsins um fyrir- hugaðar hækkanir á áfengi, enda ó- venjulegt að blöð komist í siíkar fyr- irætlanir. Flýttu margir kaupum á jólavíninu eins og eðlilegt er, en við höfum fyrir satt að hækkunin verði mjög veruleg, einkanlega á dýrustu áfengistegundum eins og koníaki og kampavíni. Með slíkri sam- ræmingu í verðlagningu má búast við að nokkurt lag komist á verð- hlutföll á vínmarkaðnum... Leiðrétting Eftirfarandi kafii féll niður úr ball- ettumsögn Gunnlaugs Ástgeirs- sonar í síðasta HP: En hitt er víst að fagrar listir sem veita áhorfendum gleði og ánægju auka tvímælalaust heildarham- ingjuvísitölu þjóðarinnar og veitir ekki af eins og nú er komið. Heil ný iistgrein sem festir rætur hlýtur að auka þessa stærð verulega, og því er það ekki aðeins skylda lands- feðra að hlú að slíku, heldur bein- línis lífsnauðsyn ef mannlíf á að haldast við í þessu kalda landi. Þeir vita ekki hverskonar refsingu þeir kalla yfir sig ef þeir þrengja að vaxtarbroddum menningarinnar. Akademía eda ekki akademía — dálítil leiörétting Lítið og með öllu ofaukið smá- orð varð höfundi viðtals við Jóhann Hjálmarsson í Helgarpósti til óblandinnar hrellingar og mæðu. Það var eitt örlítið ,,ekki“ sem slæddist inn í síðustu máls- grein viðtalsins, þannig að merk- ing setningarinnar snerist algjör- lega við. Leiðrétt og kórrétt er setningin á þennan veg: Nei... þú þarft heila akademíu til að svara svona stórri spurningu. Kátt.í koti dagur ó barnaheimili Falleg bók á lágu verði - fyrir börn fullo^ðna JOLA- TILBOÐIN HUOMAVEL -en hvernig hljóma „græjurnar“? NAD - hljómtækin sem hin tækin eru dæmd eftir! NAD5120 Plötuspilari PERFORMANCE TABLE I 2 34 5 í í 8 S Build quality Armquality Feedback isolation Ease of use Appearanceéi finish PERFORMANCE TOTAL SOUND QUALITY VALUE FORMONEY 94% 94% NAD7120 Magnari PERFORMANCE TABLE 123456 789 Build quaHty Power output FM sensitivity Ease of use Appearance & fmish PERFORMANCE TOTAL SOUNDQUALlTY~ valueformönEy w. Popular Hi-Fi Magnarar ársins í Danmörku s.l. 3 ár. = MI-FI /QRAND PRIX\ AWARD * AurttMcteo n__ S b 35 Ö © 5hbb|©119 hh © Grand Prix sigurvegarar s.l. 4 ár. •*böoö: Hvers vegna mæla allir með Boston Acoustic? „Boston Acoustic A40 eru litlir hátalarar sem veita mikiðfyrir lágt verð“. Audio „Boston Acoustic A40 standast fyllilega samanburð við margfaldlega stærri hátalara í mikið hærri VerðflOkkum". New York Times „Boston Acoustic A40 eru tvímælalaust einhverjir allra hagkvæmustu hátalarar sem við höfum kynnst í lengri tírna". stereo Review Sound Quality Value for £ Boston Acoustics A40 90% 93% Popular Hi-Fi Þeir sem qera kröfur til tónlistar versla við okkur. 10 HELGARPOSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.