Tíminn - 25.05.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritiS um
%
þjóðfélagsmál.
Þeir, sem vilja kynna sér þjóðfélagsmál, ittn-
Iend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
A stjórnarliðið að stöðva
framíarir landbúnaðarins?
Dómur útvegs-og fiskimanna
í Kórabmálinu
/
Stjórn Isfískssamlagsíns hyg-gst að leita rétt-
ar síns fyrir dómstólunum
(FramhalcL af 1. síðu)
nota aukna tækni tll að létta
störf þeirra, sem að landbúnað-
inum vinna. Það þarf að gera
landbúnaðarframleiðsluna ódýr-
ari, bæði til hags fyrir fram-
leiðendur og neytendur.
Það skortir vissulega ekki nú
frekar en fyrir styrjöldina, að
bændur skilji ekki nauðsyn
þeirra stórfelldu framfara, sem
hér þurfa að gerast. Það sýna
hinar miklu vélapantanir þeirra
gleggst. En bændum eínum er
ofvaxið að gera allt það, sem
gera þarf næstu árin. Ríkis-
valdið verður að veita öfluga að-
stoð. Án aðstoðar þess verða
framfarirnar ekki nógu stór-
felldar, þótt bændur væru allir
af vilja gerðir. Framfarir land-
búnaðarins er ekki heldur sér-
mál bænda einna, því að þær
verða einnig allri þjóðinni til
hagsbóta.
Hm „svarta hönd“
st jórnarliðsins. i
Framkoma núv. ríkisstjórnar
og stuðningsflokka hennar á
seinasta þingi, er sú „svarta
hönd“, sem nú grúfir yfir land-
búnaðinum, og vekur þann illa
ugg, að framsókn landbúnaðar-
ins verði ekki eins stórfelld á
næstu árum og nauðsyn krefur,
að hún verði.
Fyrsta markmið þessarar
sóknar þarf að vera það, að
koma öllum heyskap á véltækt
land á allra næstu árum, svo að
vélavinnan geti leyst handverk-
færin af hólmi. Þetta mikla
verkefni er bændum einum of-
viða og því er það óhjákvæmi-
legt að stórhækka jarðræktar-
styrlýnn um ákveðið árabil.
Framsóknarmenn hafa beitt sér
fyrir frv. um slíka breytingu á
jarðræktarlögunum á tveimur
undanförnum þingum, en það
hefir verið fellt í bæði skiptin,
af stjórnarliðinu. Þeir hafa tal-
ið, að núgildandi jarðræktarlög
væru „nægileg 10 ára áætlun“,
Með því' að fella þessa nauðsyn-
legu hækkun jarðræktarstyrks-
ins, er stjórnarliðið ekki að gera
annað en að stöðva óhjákvæmi-
lega ræktunarsókn landbúnað-
arins, ef hann á ekki að drggast
algerlega aftur úr og verða horn-
reka þjóðfélagsins.
Annað engu þýðingarminna
mál fyrir framsókn landbúnað-
arins er raforkumálið. Raforkan
myndi stuðla að margvíslegum
framförum í landbúnaðinum,
m. a. skapa möguleika fyrir
vélþurrkun á heyi i stórum stíl,
auk þess sem hún myndi ger-
breyta sveitaheimilunum. Fyrir
atbeina Framsóknarmanna hef-
ir milliþinganefnd nýlega sam-
ið frv. um heildarskipulag raf-
orkumálanna og stórfelldar raf-
virkjunarframkvæmdir. Var
þetta frv. lagt fyrir seinasta
þing. Stjórnarliðið stakk þvi
undir stól.
Þriðja málið, sem miklu skipt-
ir fyrir framtíð landbúnaðarins
er áburðarverksmiðjumálið. —
Aukin ræktun krefst stórauk-
innar áburðarnotkunar, en hún
er ekki tryggð, nema áburður-
inn sé framleiddur í landinu
sjálfu. Stjórnarliðið veitti þessu
máli hina hraklegustu meðferð
á seinasta þingi, felldi niður
framlag til áburðarverksmiðju,
sem var komið inn í fjárlög, og
drap frv. um verksmiðjubygg-
ingu með hinum fáránlegustu
röksemdum, eins og sprenging-
arhættu!
Fjórða málið, sem varðar líka
landbúnaðinn miklu, er fram-
kvæmd laganna um landnám
ríkisins. Byggðin í sveitunum
þarf m. a. að aukast á þann
hátt, að þar rísi upp byggða-
hverfi eða smáþorp. Að þessu er
stefnt með lögum um landnám
ríkisins, en þar er gert ráð fyrir
að ríkið komi upp samliggjandi
býlum á góðum ræktunarsvæð-
um. Lögin gera ráð fyrir fastri
fjárveitingu 1 þessu skyni og
lögðu Framsóknarmenn til að
því fyrirmæli þeirra yrði fram-
fylgt. Stjórnarliðið felldi það og
stöðvaði þannig þessa nýju sókn
í ræktunarmálunum.
Fleiri dæmi lík þessu mætti
nefna, en þessi verða látin
nægja að sinni. Þau eru líka
nægileg til að sýna það.að stefna
núv. ríkisstjórnar í landbúnað-
armálum er sú „svarta hönd“
afturhaldsseminnar, sem virðist
reiðubúin til að stöðvá fram-
farir landbúnaðarins, ef hún
fær að ráða til frambúðar.
Sóknin fyrir framför-
nm landbúnaðarins.
Stjórnarsinnar hafa gripið til
sérstakra vinnubragða til þess
að reyna að leyna því, að þeir
eru hin „svarta hönd“, sem vinn
ur að því að stöðva nauðsyn-
lega framsókn og framfarir
landbúnaðarins. Þeir reyna að
telja almenningi trú um, að þeir,
sem veittu forustu hinni miklu
framsókn landbúnaðarins fyrir
stríðið, séu afturhaldsmennirn-
ir, en nú sé stjórnarliðið komið
til að hefja landbúnaðinn úr
niðurlægingu og kyrrstöðu og
tryggja honum þá réttu „ný-
sköpun“.
Þeir bændur og aðrir, sem
landbúnaðinum unna, mættu
vera meira en lítið sljóskyggnir,
ef þeir leggðu meiri trúnað á
þetta orðaglamur stjórnarsinna
en meðferðina á jarðræktar-
lagafrv., raforkulagafrv., áburð-
arverksmiðj umálinu og lögun-
um um landnám ríkisins.
Meðferð stjórnarliðsins á þess-
um stóru framfaramálum land-
búnaðarins mætti vissulega
sanna bændum og öðrum þeim,
sem skilja þýðingu landbúnað-
arins, að nú er um tvennt að
gera, annað hvort að láta hina
svörtu afturhaldsloppu stjórn-
arliðsins stöðva framsókn og
framfarir landbúnaðarins að
mestu, eins og raunin varð á
seinasta þingi, ellegar að hefja
nú samstillta sókn til að létta
dauðataki þessarar svörtu hand-
ar af landbúnaðinum og gera
honum kleift að sækja fram,'
eflast og aukast, eins og verða
mun með landbúnaðinn annars
staðar á næstu árum.
Enginn bóndi, enginn um-
bótamaður, hvort heldur er í
sveit eða kaupstað, ætti að þurfa
að hugsa sig um það, hvert
heldur skuli gera. Ekki aðeins
vegna bændanna og landbúnað-
arins, heldur fyrst og fremst
vegnl þjóðarinnar allrar og
efnalegrar afkomu hennar í
framtíðinni, verður nú að hefja
sókn til að hnekkja kverkatök-
um hinnar svörtu afturhalds-
handar stjórnarliðsins og
tryggja landbúnaðinum fram-
farir, fullkomlega hliðstæðar
þeim, sem verða munu annars
staðar. Leiðin til að ná þessu
marki er að efla Framsóknar-
flokkinn, sem nú eins og fyrr
er hinn eini öruggi forsvari
landbúnaðarins á hinum póli-
tíska vettvangi, en þar verða
þessi og önnur mál endanlega
útkljáð.
Listamannavikan
(Framhald af 1. síðu)
Á sunnudaginn klukkan tvö
flytur dr. Einar Ól. Sveinsson
prófessor erindi 1 hátíðasal há-
skólans um Jónas Hallgrímsson.
Kristján Kristjánsson syngur
lög við kvæði eftir Jónas, og
Lárus Pálsson les upp kvæði
eftir hann.
Klukkan hálffjögur hefst at-
höfn við líkneski Jónasar, er nú
hefir verið flutt suður í Hljóm-
skálagarð. Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur undir stjórn Al-
berts Klahns, Davíð Stefánsson,
forseti listamannaþingsins legg-
ur sveig á fótstall líkneskisins.
Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður flytur ræðu.
Klukkan 9,15 verður tónlistar-
kvöld í Tjarnarbió. Félag ís-
lenzkra tónlistarmanna stendur
fyrir því. Verða leiknar nýjar,
íslenzkar tónsmíðar — verk eftir
Hin lélega vörn, sem Þjóðvilj-
inn hélt uppi fyrir Áka Jakobs-
son atvinnumálaráðherra í Kor-
ab-málinu, er nú algerlega
hrunin til grunna. Stjórn ís-
fisksamlagsins í Vestmannaeyj-
um hefir birt yfirlýsingu í til-
efni af þessum skrifum, sem er
sá dómur útvegs- og sjómanna
í málinu, er eigi verður hrundið.
Yfirlýsing þessi er svohljóð-
andi:
„f ritstjórnargrein í Þjóðvilj-
anum, 93. tölublaði, frá 26. ap-
ríl s. 1., varðandi svokallað Kor-
ab-mál, eru óvenju stráksleg og
með öllu ósönn og ómakleg um-
mæli um framkvæmdastjóra ís-
fiskssamlagsins í Vestmanna-
eyjum,herra Ragnar Stefánsson.
Vegna ummæla þessara, svo
og yfirleitt vegna túlkunar
Þjóðviljans á nefndu Korab-
máli, lýsir undirrituð stjórn fs-
fiskssamlagsins í Vestmanna-
eyjum yfir því, að allar ráðstaf-
anir framkvæmdasíjórans í
þessu máli eru gerðar sam-
kvæmt skýlausum samþykktum
samlagsstjórnarinnar, en fram-
kvæmdir samlagsstjórnarinnar
og ráðstafanir framkvæmda-
stjórans byggjast hins vegar á
umboði, sem fengið er, í önd-
verðu, hjá almennum samlags-
fundi.
Enn er ekki fullkunnugt,
hversu mikið fjárhagslegt tjón
samlagið kann að bíða, vegna
hinna hæpnu ráðstafana hins
íslenzka framkvæmdavalds í
Korab-málinu, en það verður
að sjálfsögðu nokkuð tilfinnan-
legt útgerðarmönnum ofan á
aflarýra vertíð.
Þegar séð verður hverju tjón
samlagsins nemur, mun stjórnin
leggja skýrslu, fyrir almennan
samlagsfund og fá úr því skor-
ið, hvort ekki sé rétt að freista
þess að fá skaðabætur dæmdar
Hallgrím Helgason, Helga Páls-
son, Karl 'Runólfsson og Jón
Nordal, ungan pilt, son Sigurð-
ar Nordals prófessors. Tónsmið-
arnar verða leiknar af strengja-
hjómsveit Tónlistarfélagsins
undir stjórn dr. Viktors Ur-
bantschitsch, Birni Ólafssyni og
Árna Kristjánssyni.
v Á mánudaginn verður rittiöf-
undakvöld í háskólanum og
hefst klukkan hálfníu. Þar lesa
upp úr verkum sínum Eyjólfur
Guðmundsson á Hvoli, Svanhild-
ur Þorsteinsdóttir, Guðmundur
Böðvársson, Steinn Steinarr og
Guðmundur Daníelsson.
Á þriðjudaginn verður sýning
leikþáttarins endurtekin í Iðnó,
en Félag íslenzkra myndlistar-
mann fær kvölddagskrá útvarps-
ins til umráða.
Á miðvikudagskvöldið verður
kirkjukonsert. Páll ísólfsson
leikur á orgel. Pétur Á. Jónsson
.syngur.
Á fimmtud^gskvöldið verður
annað rithöfundakvöld í háskól-
anu^n. Lesa þá upp úr verkum
sínum Gunnar Gunnarsson,
Snorri Hjartarson, Ragnheiður
Jónsdóttir,. Jóhannes úr Kötl-
um, Sigurður Róbertsson og Ól-
afur Jóh. Sigurðsson.
Á föstudagskvöldið lýkur svo
listamannavikunni með hófi að
Hótel Borg.
Gagnfræðaskólanum
í Reykjavík
var slitið 16. maí. í skólanum voru
alls skráðir í vetur 453 nemendur. Þar
af voru í fyrsta bekk og undirbúnings-
deildum 257 nemendur. í öðrum bekk
voru 129 og í þriðja bekk 67 nemendur.
Undir gagnfræðapróf gengu 62 skóla-
nemendur og 7 að auki utan skóla.
Allpaargir nemendur úr öðrum og
þriðja bekk ganga og undir gagn-
fræðapróf við Menntaskólann. Hæstu
einkunn við gagnfræðapróf hlaut Ei-
ríka K. Þórðardóttir, Vesturvallagötu
3, úr 3. bekk B.
úr höndum þeirra opinberu að-
ila, em tjóninu hafa valdið.
Vestmannaeyjum, 3. maí 1945.
Stjórn ísfiskssamlagsins.
Eiríkur Ásbjörnsson.
Kjartan Guðmundsson.
Sighvatur Bjarnason.
Jónas Jónsson.
Þorgeir Jóelsson.
Hannes Hansson.
(— sign. —).
Þótt yfirlýsing þessi sé ekki
stórorð, lýsir hún Ijóslega áliti
útvegsmanna, er skipa stjórn
ísfiskssamlagsins, á umræddu
framferði ráðherrans. Það má
líka óhætt segja, að það er bú-
ið að hljóta fyllstu fordæmingu
um allt land. Og meiri á hún þó
eftir að verða, því að það á eftir
að sjást enn betur, hve fráleitt
það hefir verið að hafna hag-
stæðri leigu á góðu flutninga-
skipi en leigja svo í staðinn lítt
nothæf skip til flutninganna,
eins og hinár miklu fisk-
skemmdir eru Ijósast dæmi um.
Við þá ráðleysu ráðherrans bæt-
ist svo sú viðleitni hans að
reyna að valda einum andstæð-
ingi sínum fjárhagslegu tjóni og
má vera, að ríkið eigi eftir að
blæða fyrir það háttalag hans*
eins og niðurlagsorð framan-
greindrar yfirlýsingar ber* með
sér.
Þegar þetta mál er krufið nið-
ur í kjölinn, þarf engan að
undra, þótt þeim Sjálfstæðis-
mönnum fjölgi, er varpa fram
þeirri spurningu, hve lengi
flokkur þeirra æ'titi að þola at-
vinnumálaráðherra, sem helzt
virðist hugsa um að spilla fram-
taki einstaklinganna og félags-
samtaka þeirra.
Tjón af fiskskemmd-
um nemur miljónum
(Framhald af 1. síðu)
fyrir hendi, eins og lelgan á
Korab bendir til. En stjórnin
vanrækti að mestu að leita eftir
skipum annars staðar. Sú van-
ræksla, ásamt seinlætinu í
samningunum við Færeyinga,
hefir orðið þess valdandi, að
notast hefir verið við lítt not-
hæf skip. Jafnhliða hefir stjórn-
in vanrækt að herða eftirlitið,
sem var nauðsynlegt, þegar not-
ast var við verri farkost en áð-
ur. Með þessum slóðaskap og
hirðuleysi sínu hefir stjórnin
ekki aðeins bakað útgerðinni
stórfellt tjón, heldur einnig rek-
ið hina verstu landkynningu,
því að fátt er nú ámælisverðara
en að eyðileggja matvæli fyrir
hreina handvömm meðan milj-
ónir manna búa við matarskort.
Samkv. samningnum við Fær-
eyínga mun stjórnin leigja
30 færeysk skip til fiskflutn-
inga í sumar, og mun það
engan veginn vera beztu
skipin. Ekki er óeðlilegt, að
búast við meiri fiskskemmdr
um, þegar hitnar í veðri, og
verður því að leggja stóraukna
áherzlu á bætt eftirlit með
flutningunum. En jafnvel þótt
eftirlitið verði bætt, er það eng-
anveginn tryggt.að ekki geti enn
hlotizt verulegt tjón af hátta-
lagi stjórnarinnar I samninga-
gerðinni við Færeyinga.
Athygli hlýtur það að vekja,
að stjórnarblöðin segja ekkert
frá fiskskemmdunum.Er nú önn
ur tíðin en haustið 1943, þegar
þau ætluðu alveg að rifna af
vandlætingu yfir lítilfjörlegum
kjötskemmdum. Með þessari
þögn játa stjórnarblöðin það, að
fiskskemmdirnar megi rekja til
slóðaskaps og ráðleysis stjórnar-
innar í fisksölumálunum, því að
ella myndi þeim ekki finnast
varhugavert að segja frá þeim.
Það mun þó eiga eftir að sýna
sig, að fiskskemmdlrnar verða
engan veginn eina tjónið, er
hlýzt af háttalagi stjórnarinnar
í fisksölumálunum.
.. G A M L A BÍÓ
Mjallhvít og
dvergarnír sjö
Hin unduríagra og bráð-
Bkemmtilega litskreytta teikni-
mynd snillingsins
WALT DISNEYS
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
■
»>l — O — O— 0»0»0—O—
• * N Ý J A B í Ó *>
EYÐIMERKUR-
SÖNGURIM
(,J)esert Song“)
Hrífandi fögur söngvamynd
í eðlilegum lltum.
Aðalhlutv. leika:
Dennis Morgan,
Irene Manning.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
—
Þeir gerðu garðinn
frægan
OG
Dáðir
vorn drýgðar
eru ágætar skemmtibækur og
hafa auk þess þann kost að
vera ódýrar.
•>
TJARNARBlÓ"
LANGT FIIVNST
ÞEIM SEM BtÐUR
(Since You Went Away)
Hrífandi fögur mynd um hagi
þeirra, sem heima sltja.
Claud. Colbert, Jennifer Jones,
Joseph Cotten, Shirley Temple,
Monty Wooley, L. Barrymore,
Robert Walker.
Sýning kl. 6 og 9.
HækkaS verð.
Á biðilsbuxum
(Abroad With Two Yanks)
Sprenghlægileg gamanmynd.
Sýnd kl. 4.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurinn í Feneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare.
Sýning næsta sunnudagskvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 á morgun.
Aðgangur bannaður fyrir börn.
Barnakórinn Sólskinsdeildin. Uandssöfnunin.
Nön^kemmtnn
í Gamla Bíó sunnudaginn 27. maí kl. 1,30 e. h.
AUur ágóði rennur til landssöínunarinnar
.. H
Aðgöngumiðar í bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar, Hljóðfærahúsinu, Bljóðfæra-
verzlun Sigr. Belgadóttur og í skrifstofu lands-
söfnunarinnar, Vonarstræti 4.
Ú R B Æ N U M
Kvennaskólanum í Reykjavík
var sagt ,upp 17. maí. Sýning á
hannyrðum námsmeyja fór fram 12.,
13. og 14. maí. Pjöldi fólks sótti sýn-
inguria. 164 stúlkur settust í bekki
skólans s.l. haust ,en 157 gengu undir
próf í vor. Starfaði skólinn í 6 deild-
um, en í skólanum eru 4 bekkir:
2. og 3. bekkur voru tvískiptir. 26
stúlkur útskrifuðust úr skólanum Af
þeim hafði ein ágætiseinkunn í bók-
legum greinum, Ingibjörg Elíasdóttir,
Reykjavík, 9,23 stig. Inntökupróf til
1. bekkjar að vetri fóru fram í lok
aprllmánaðar og voru 27 nýmeyjar
teknar inn í 1. bekk. Vegna mikillar
aðsóknar varð að hafa samkeppnis-
próf.
Ólafur Guðmundsson,
fyrrum ferjumaður f Sandhólaf^rju,
nú til heimilis að Svanavatni á Stokks-
eyri, verður áttræður 28. þ. m.
Ungfrú Anna Þórhallsdóttir
efndi til söngskemmtunar i Gamla
Bíó í Reykjavík á annan í hvítasunnu.
Við hljóðfærið var frú Guðríður Guð-
mundsdóttir. Ungfrúin hefir öðlazt
miklar vinsældir með söng sínum í
útvarpinu. Ungfrúin endurtók söng-
skemmtun sína í gærkvöld.
Ferðafélag íslands
fór hina árlegu Hvítasunnuför á
Snæfellsjökul um seinustu helgi. Um
40 manns tóku þátt í förinni. Veður
var gott og skemmtu menn sér hið
bezta.
irshátíð Færeyingafélagsins
var nýlega haldin í samkomuhúsinu
Röðli við Laugaveg. Samkoman fór i
illa staði vel og virðulega fram. Hana
sóttu um 100 manns. Formaður félags-
ins, Peter Wegelund skipasmiður, flutti
ræðu, Stig Gregerius Rasmusen, prent-
ari flutti kveðjur frá ungmennasam-
bandi Færeyja og Sámal Davidsen
flutti kvæði, ort til Færeyja. Þá söng
Haraldur Kristjánsson einsöng með
imdirleik Gunnars Sigiu-geirssonar og
sýnd var kvikmynd. Loks var stiginn
dans fram eftir nóttu.
Brennivínsstuldur
var nýlega framin í e. s. Kötlu, þar
sem sekipið lá við bryggju í Reykja-
vík. Áfengið var innsiglað i lest skips-
ins og átti að fara til Áfengisverzlunar ■
ríkisins. Var alls stolið tveimur kössvun
með 24 flöskum og tveim flöskum þar
að auki. Tekist hefur að hafa hendur
í hári þjófanna og voru þeir þá búnir
að drekka úr 11 flöskum.
Landssöfnunin
komin hátt á aðra
miljón
í gær höfðu landssöfnuninni
borizt peningagreiðslur og til-
kynningar um greiðslur, sem
námu meira en 1 milj. og 600
þús. kr., auk fatnaðargjafa, sem
nema áreiðanlega mikilli upp-
hæð, þegar þær hafa verið metn-
ar til verðs. Auk þess er kunnugt
af fregnum hvaðanæva af land-
inu, að söfnunin hefir gengið
með afbrigðum vel, en skila-
grein mun ekki berast þaðan,
fyrr en um helgina, þegar söfn-
uninni lýkur.