Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Tölublað
Aðalrit:

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 09.01.1937, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 09.01.1937, Blaðsíða 1
VEIKAHANNAFELIGID HllF 1907 — 30 ára — 1937 ..'9. jan. Fylgirit Alpýðublaðsins. 1937 Starf brautryðj endanna STJÖRN VERKAMANNAFÉLAGSINS HLÍF Standandi frá vinsitri til hægri: Þ órður Þórðarsion forraaður og Albert Krfis'tmsson ritari. Sitjandi í ísjömiu röð: Halldör Halldörs- sjpn gialdkeri, Jóhann Tómasson fjármálarítari og Þorvaldur Guðmundsson varaformaður. \iðtal við Guðmund Jónasson bcejarfulltrúa. VERKAMANNAFÉLAGIÐ fflíf í Hafnarfirði «r 30 ára þessa diagiana. Fyrsta fundargerðabók féliajgsins er glötuð fyrir mörgum árum, og er því ekl<i hægt að sjá, hvjajða, dag- félagið var stofnað, og þelim mönnum, sem enn lifa og voru stofnendur félagsins, en þeir voru 30—40, kemur ekki saman um þetta atriði. Það veltur rglunar ekki á miklu um stofn- djaginn. Þegiar rifja á upp Sögu slíks félagsskapar sem verka- mjannaíélagið Hlíf er, þá er eðli- legast að minnast þeirra tíma, er félajgsskapurínn var stofnaður á, og þeirrar aðstöðu, er verka- mjainnastéttin hafði þá í þjóðfé- laginu, og síðan baráttuáranna. — Er það gert í þessu blað|i. Verkamannafélagið Hlíf er fé- lagsskapur hafnfjurzkra verka- rmanna. Fyrst framan af vorn einnig í félaginu sjómenn og vlefrlmkonur, en síðan voru stofn- nð félög fyrír báðar þessar stétt- lr, Sjómannafélag Hafnarfjarðar og verkakvennafélagið Framtíðin. Verkamannafélagið Hlíf hefir ioú um fjöldamörg ár verið grundvöllurínn, sem hafnfirzk al- þýðia hefir bygt alla opinbera starfsemi á, og ráðin, sem þar taafa verið tekin, hafa gefist vel. Hafnarfjörður er verkamannabær og er stjórnað af verkamönmim. Hér fara á eftir frásagnir tveggjia stofnenda Hlífar um á- standið meðal alþýðu í Hafnar- firði á þeim árum, þegar aiþýðan var að vakna til samtafca. Er fyrst viðtal við Guðmund Jónas- son bæjarfulltrúa, sem nú um fjöldamöig ár hefir verið einn af traustustu forvígismönnum al- þýðunnar í Hafnarfirði, en síðan er istutt viðtal við Gísla Jónsson, aldraðan verkamann, sem alt af hefir staðið traustur í baráttu al- þýðunnar og aldrei hvikað frá þeim hugsjónum, er lágu til grundvallar fyrir stofnun verka- mannafélagsins Hlífar veturinn 1907. Afmælashátíð fél. er í kvöld. EG fluttist hingað til Hafnar- fjarðar 1903. Þá var Hafn- arfjörður að vaxa. Um alda- mótin voru hér 6—700 manns. Enginn sem lifði þá hér, getur þekkt Hafnarfjörð nú fyrir sama bæ. Breytingarnar hafa hér orðið svo örar eins og víð- ar. Þá Voru hér aðeins þrír vegspottar, Reykjavíkurvegur, sem var auðvitað aðalgatan, Garðavegur að Garðakirkju og auk þess örlítill vegspotti, sem einstakur maður byggði og átti. Þá var Hafnarfjörður og Garðahreppur eitt hreppsfé- lag, og land bæjarins sem nú er, var þá eign Brydesverzlun- ar og Garðakirkju. Bærinn átti enga spildu. Hinsvegar gátu menn þá feng'ið stórar lóðir leigðar fyrir lítið verð. Hafnarfjörður gat í raun og veru ekki heitið verzlunarbær fyrr ,en skúturnar komu. Þá leituðu menn héðan vor og haust í atvinnu, aðallega í vegavinnu austur, norður og vestur og til hvalastöðvanna á Vesturlandi. Þá þekktist hér lítil vetrarvinna. Menn gengu um auðum höndum. Garðrækt var svo að segja engin og bygg ingar mjög lítilfjörlegar, bæir voru á víð og dreif um hraun- ið, skipulagslítið og dreifðir. 1902—1903 flytja menn hingað úr öllum áttum, eins ört og hægt var. En byggða- leyfislögin stóðu á móti og takmörkuðu fólksflutningana. Voru þau illa séð af mörgum í þá daga, og fá lög hafa ver- ið jafnmikið hötuð af alþýðu. Mestu dugnaðarmenn sóttu hér um byggðarleyfi til hrepps- nefndar, en það var á valdi hennar, hverjir fengju leyfi til að setjast að í hreppnum. Það voru aðallega fjölskyldumenn sem urðu fyrir barðinu á þess- um lögum, ,en undanskyldir þessu voru þeir menn, sem höfðu konunglegt lausamanns- bréf og þeir menn, sem höfðu kost á því að fá grasbýli. — Eg man marga góða drengi, sem áttu í baráttu við þessi lög.l Eg gæti nefnt nöfn al-* kunnra dugnaðarmanna hér í Hafnarfirði, sem urðu að þola óréttlætið, sem þau sköpuðu. Eg man t. d. að Ólafur heitinn Þorkelsson varð fyrir þessar hömlur að gerast vinnumaður með konu og 2 börn hér áður en hann fékk byggðarleyfi. Unga fólkið ætti að minnast þessara manna, feðra sinna og mæðra, og þeirra erfiðleika, sem þeir áttu við að búa, er það kvartar undan því sem á- bjátar nú. Byggðarleyfislögin eru nú úr gildi felld fyrir löngu. Þau höfðu mikinn órétt í för með sér á þeim tíma, hinsvegar horfir nú til vandræða með fólksflutn ingana, það finnum við bezt, sem lifum í vaxandi bæjarfé- lagi. — Á þessum árum — um 1908, þegar eg fluttist hingað, um tvítugt, var aðalatvinnuvegur- inn eins og nú sjávarútvegur- inn. Skipastóllinn var meirá en GUÐMUNDUR JÓNASSON.

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.