Vísir - 06.01.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 06.01.1934, Blaðsíða 3
V í SIR ipmæccm §® ©saGsaBaiis q p] y pwLWfm^GíHrl ^misaa^saímsaasú^S^í bælt niður kommúnismann i Japan og Kína me'ð því að berja á Rúss- nm og flæma þá svo langt vestur á bóginn, a'ö engin hætta sé á, að þeir fái nokkuru sinni fótfestu aftur í austurhluta Sibiríu eða geti náð Mansjúríu á sitt vald. í Japan eru nú 3000 kommúnistar i fangelsum. Ríkisstjómin hefir á- kveðið að verja 7 miljónum yen til þess að ..uppræta hættulegar hug- sanir“! — „Nýlega“, segir Scope „sagði Araki hershöfðingi við einn vina minna, að ef Rússar hætti ekki undirróðri sínum i Jap- an yrði hann aö hreinsa til í Sibiríu.“ „I.oks," segir Scope, „er þess að geta, að Japanar geta ekki sætt sig við það til lengdar, að vcra klemdir á milli tveggja stór- velda (Rússl. og Bandar.), sem liæöi vilja koma í veg fyrir, að hinir miklu veldisdraumamr Jap- ana rætist. Vilji Rússar komast hjá ófriði verða þeir að sætta sig við, að Japanar hakli áfram að mjaka sér vestur á bóginn, alt vestur að Baikalvatni. En rússneski björn- inn er farinn að sýna vígtennur sínar. Rússar eiga nú her vel búinn •að nútímahemaðartækjum og vel -æfðan. Og Rússar hafa gert hlut- leysis og vináttusamninga við ná- grannaríki sin i Evrópu. Og þótt svo kynni að fara, að Rússar fengi ekki að vera í friði í Evrópu, ef til styrjaldar kæmi milli þeirra og Japana, er margs annars að gæta. Bandaríkin hafa nú viðurkent Rússland og það er lítið efamál, að þeir myndi styðja Rússa fjárhags- lega ef þeir þá lenti ekki sjálfir i ófriði þeim, sem fyrr eða síðar Elýtur að brjótast út milli Japana og Rússa. Japanir hafa látið blekkjast. Þeir hafa ekki varað sig á því, að á nieðan Rússar létu undan hVað eftir annað því meira sem Japanar gengu á þá, voru þeir að búa sig undir að taka á móti þeim. Japanar sjá þetta nú og eru leið- togum sínum sárgramir. Close getur þess í grein sinm, að hann hafi í september 1931, er Japanar voru farnir að hreiðra um sig í Mansjúríu, átt tal við jap- anska aðalræðismanninn í Harbin, eri hann heitir Chuichi Ohashi. Hefir hann nú með höndum utan- ríkismál Mansjúkóríkisins og kemur fram fyrir þess hönd i samningaumleitunum þeim, sem áður var að vikið, um kaup á járn- brautinni, sem Rússar eiga hlut i. Kveðst Closc hafa þekt Ohashi, er hatm var ungur maður og þá ræð- ismaður í Seattle, Washington, Bandaríkjunum. Hann gat þess við Close, að hann hcfði verið á ferða- lagi um Amurdalitm og tjáð yf- irvöldunum rússnesku, að Japanai myndi fúslega kaupa dalinn. — „Bjuggust þér við að Rússar myndi vilja selja hann?" spurði Close. „Þeir seldu ykkur Alaska fyrir 57 miljónir dollara," svaraði Ohashi. „Því skyldu þeir ekki vilja selja okkttr Amurdalinn fyrir fimtn miljarða. Þeir þurfa á fé að halda.“ — En Close getur þess jafnframt, að þetta boð hafi aðeins verið gert til þess að þreiía fyrir sér cg kom- ast að, hvort þcir gerði ekki ráð fyrir, að Japanar næði dalnum á sitt vald hvað sem tilboðum utn kaup liöi. — Bæði Rússar og Jap- anar gera sér nú Ijóst, að þeir verða að láta vopnin slcera úr, hverjir eigi að vera leiðtogar Asíu- þjóða. En fyrir Rússum vakir, að fá aðstoö Bandaríkjanna, að minsta kosti til þess að koma mat- vælum, vopnum og skotfærum til Vladvivostock. Þá kemur vitanlega til þcss, hvort Jajmnar gera til- raun til að hindra slíka flutninga. En vitanlega geta Bandaríkja- menn ekki látið sig engu skifta, svo ekki sé meira sagt, hvernig skipast um deilumál Rússa og Japana. — Nú er síður en svo, að Japanar séu öruggir um að vinna sigur á Rússum, og því lengur sem úrslita er að bíða, því mimti verður sigurvissan. Og þeir óttast mest flugvélaflota Rússa. I>að er talið, að Rússar hafi 200 flugvél- ar austur í Síbiríu, reiðubúnar til þess að fljúga til Japan og varpa sprengjum á japanskar borgir. Þær mundu aldrei komast þangað allar, því að ólíklegt er annað en að Japanar verði vel á verði, en ])ó aö aðeins kæinist nokkur hluti svo mikils flota gæti þeir gert feikna usla i Japan, því að húsin i borgunum þar í landi eru að mestu bygð úr tré og papptr. Og frá flugvélastöðvum Rússa í Aust- ur-Síbiriu er aðeins sex klukku- stunda flug til Japan. En þjóðitt verður að gera ráð fyrir, að til slíkra árása komi, segja hernað- arsinnar í Japan. Varnarráðstafan- ir ])eirra heima fyrir gegn loftá- rásuni verða ekki skipulagðar að fulltt fyrr en seint á þessu ári. En Rússar eiga líka mikið t hættu, að 1640 er símanúmer Félagsprentsmiðjunnar öðru leyti en því, að Japanar ná aldrei til „hjarta Rússlands.“ En Rússar ganga út frá því, að Banda- ríkin myndi ekki geta setið hjá. — Frá Mansjúríu fór Close til Moskwa. Hann átti þar tal við und- ir-utanríkismálaráðherrann, sem lét svo urn tnælt, að Bandaríkja- tnenn gæti ekki látið afskiftalausa til lengdar framkomu Japana í Austur-Asíu, — þeir yrði að taka afstöðu — og Rússar gæti beðið þangað til. Bæjarfréttir Messur á morgun: í dómkirkjunni: Kl. 11, sira Bjarni Jónsson. Kl. 5, síra Friö- rik Hallgrímsson. I fríkirkjunni: Kl. 5, síra Árni Sigurðsson. Veðrið í morgun. t Reykjavík —1 stig, ísafirði 1, Akureyri 1, Seyðisfirði 3, Vestmannaeyjum 0, Grímsey 1, Stykkishólmi 0, Blönduósi 0, Raufarhöfn 3, Grindavik —2, Færeyjum 7, Julianehaah —20, Jan Mayen —5, Angmagsalik -—5 stig. Mestur kuldi hér i gær —3, mcstur hiti 2 st. Úrkoma 9,4 mm. Yfirlit: Stormsveipur yfir Austfjörðum á ltraðri hreyfingu norðaustur eftir. Horfur: Suð- vesturland, Faxaflói, Breiða- fjörður: Norðaustan og norðan 4tt. Hvass i dag, en lægir í nótt. Éljagangur. Vestfirðir, Norður- land: Breytileg átt. Norðaustan stormur með ströndum fram. Snjókoma eða slydda. Norð- austurland, Austfirðir: Norð- austan og norðan stormur. Bleytuhríð. Suðausturland. Hvass norðvestan og vestan. I Vestmannaeyjum fara bæjarstjómarkosningarfram í dag. Kosið er um þrjá lista. Listi sjálfstæðismanna er C-listi, konim- únista A-lisrí og jafnaðarmanni B-listi. — Á lista sjálfstæðismanna eru: Jóh. Þ. Jósefsson alþm., Páll V. G. Kolka, læknir, Ástþór Matt- hiasson framkvstj., Páll Eyjólfs- son, fiskimatsmaður, Ólafur Auð- unsson, útgerðarmaður, Karl Jón- asson, læknir o. fl. Á lista jafnað- armanna eru: Páll Þorbjörnsson, kaupfélagsstj., Gttðm. Sigurðsson, verkstj., Guðlaugur Hansson, heil- br.fulltr. o. f 1., en á lista komm- únista, Jón Rafnsson, ísleifur Högnason, Haraldur Bjarnason o. fl. — Á kjörskrá em um 1700 og er búist við, að talning atkvæða hefjist í kveld. Áfengisbruggun. Lárus F. Jósefsson, Hrauui við Hólsveg, var nýlega sektað- ur um 500 kr. fyrir áfengis- bruggun. Leikfélagið sýnir „Mann og konu“ ann- að kveld kl. 8 e. h. Aðsókn að leiknum er ágæt. Póstferð til Englands. E.s. „Ophir“ fer til Englands í kveld. Pósti sé skilað fyrir kl. 0 e. h. Mesti botnvörpungur heims. Skipasmíðastöðin í Frederiks- ltavn i Danmörku hefir nýlega afhent Joseph Hunet & Co. út- gerðarmannafélaginu i Borde- aux botnvörpung, sem stöðin hafði tekið að sér sniíði á, en botnvörpungur þessi er að lík- indum mesta skip sinnar tcg- undar, sem smiðað hefir verið. Botnv. þessi lieitir „Jutlande“ og hefir 1200 ha. dieselvél. Stefni skipsins er alt stálklætt, svo að þvi verði ekki í neinu hætt, þótt það lendi í ís. Er þvi ætlað að vera við fiskveiðar á miðum við ísland og Grænland. Á skipinu verður 60 manna á- höfn og fer það i fvrstu veiði- för sína um miðjan febrúar, annað hvort til Spitzbergen eða Islands. (Sendiherrafregn). Skógarmenn K. F. U. M. Árshátíð skógarmanna verð- ur haldin í húsi K. F. U. M. í kveld kl. 8V2. — Til skemtunar verður meðal annars: Fiðlusóló, upplestur, Mickey Mouse o. fl. — Skógarmenn, mætið vel og stundvíslega. E.s. Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn í gær. E.s. Dettifoss fór frá Hamborg í dag. E.s. Selfoss fer til útlanda næstkomandi ntánudag. Þrettándabrennunni, i sem halda átti í kveld, er frestað vegna óhagstæðs veðurs. Nýja Bíó sýnir kvikmyndina „Cavalcade“ í síðasta sinn í kveld. Kvikm. hefir verið sýnd frá því á annan t jól- um og þvkir mikið til hennar komá. Voröld heldur ársfund sinn í Varðar- húsinu annað kveld kl. 8}/>. Áríð- andi að félagar mæti. Hnefaleikafélag Reykjavíkur hefir æfingu kl. IOV2 f. h. á sunnudag i K.R.-húsinu. Áríð- andi að allir mæti. íþ. Kolaskip með farm tll gasstöðvarinnar kom í gærkveldi. Næturlæknir er i nótt Halldór Stefánsson, Lækjargötu 4. Simi 2231. Næturvörður er í nótt í Reykjavikur apó- teki og lyfjabúðinni Iðunni. Gengið í dag. Sterlingspund ...... kr. 22.15 Dollar ............... — 4.32 100 ríkismörk þýsk . — 162.02 —■ frankar, frakkn. . — 26.90 — belgur .... —- 95.03 — frankar, svissn. . — 132.31 — lírur ............ — 36.35 — mörk, finsk .... —- 9.93 — pesetar ...........— 56.97 — gyllini ........274.80 — tékkósl. kr....— 20.67 — sænskar kr....—. 114.41 — norskar kr....— 111.44 — danskar kr....— 100.00 Gullverð ísl. krónu er í dag 54.35 — miðað við frakkn. franka. Áheit á fríkirkjuna í Reykjavik, aflient Vísi: 5 kr. frá M. M. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 3 kr. frá V. B.t 20 kr. frá H. J., 5 kr. frá R. G., 10 kr. frá H. G. og S. S., 3 kr. frá E. J., kr. 12,50 frú S., 2 kr. frá G. G., 3 kr., gamalt áheit frá ó- nefndum, 15 kr. (gömul áheit) frá stúlku, 10 kr. frá V. S„ 5 kr. frá J. B. G„ 15 kr. frá K. Ó„ 5 kr. frá S„ 10 kr. frá S. og N„ 1 kr. frá G. Útvarpið í dag. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. Endurtekning frétta o. fl. 18,45 Barnatimi. (Guðjón Guð- jónsson). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynningar. 19,25 Tónleikar. (Útvarpstrióið). 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Upplestur. (Einar H. Kvaran). 21,00 Tónleikar: Fiðlusóló. (Einar Sigfússon). Grammófónkórsöngur. (Norðurlandakórar). Danslög til kl. 24. Dokað við í Hraunahreppi. ’skýin sé bjart af sólu. Eg geng áfram, þar sem ilm- ar af gróðri i hverju spori, en að baki mér ómar enn af fólataki tugþúsundanna, i erfiðri leit um kaldan, grýttan veg, þeirra, sem gengu sömu braut °g eg — og ganga enn — án ]>ess nokkuru sinni að ná sólar megin þessa lífs. Minningamar um þú fyltu hugann þessa björtu júnínótt við Laxá. Og eg — en þeir ekki — fékk þá uppbót fyrir alla erfiðleika liðna timans, allar sorgir, mótlæti og raunir — að búa við faðm íslenskrar, kyrrar, bjartrar sumar- nætlir! Getur nokkuð verið yndislegra, kyrrara, get- ur nokkuð svalað huganum betur, sætt mann betur við alt, við lífið, sjálfan sig og aðra menn? Ég gekk eins og í leiðslu upp með ánni og niður- ínn lét vel í eyrum. Það var svo dásamlega kyrt. AUir fuglar flognir til hreiðra sinna. Ekkert liljóð barst að eyra, nema niður árinnar, hægur og þýður. Eg var nú kominn þangað, sem mýrlendið liætt- og liraunin laka við, upp undir múlana, sem voru livanngrænir upþ i miðjar hliðar, þar sem birki- kjarrið prýddi græna slakkana. Eg gekk upp á há- an hól við ána og svipaðist um. Fjöllin voru dimm- hla til að sjá, en sumstaðar sá á hvítar jökulbung- ur handan hláfjallanna. Langt fram undan, til hafs að sjá, voru sund og eyjar og sker. Þama af hóln- um sást til nokkurra bæja, en hvergi leið reykur i loft upp eða sáust nokkur merki lífs. Þar var alt i fasta svefni. 1 austri sló roða á himin. Nýr dagur var að renna. — Eg sat þarna og hvíldist. Eg mintist þess, er eg var litill hnokki og sat yfir ánum, áhyggjulaus um alt, nema eitt: Að æmar týndi tölunni. Eg mintist bernskudaganna í sveit- inni og eg reyndi að bægja öðrum minningum frá. Eg reyndi að verða ú ný litli hnokkinn, sem Jjekti ekki Iífið og öll raunaspor mannanna. Eg reyndi það — en eg gat það ekki. Þó var hirta teskuminninganna yfir sál minni þessa nótt — yfir leið minni. En skuggar reynsluáranna voru þar einnig. Eg lagði af stað og það var mjúkt undir fæti. Það var bjart framundan, en eg mundi þær stundir far inna leiða, er harl var undir fæti, ]>ar sem liinir fót- sáru og lúnu ganga enn. í dag og leita brauðs, en fá steina. Þegar eg kom að Hraunkoti var dagur um alt loft. Þorgeir tók mér vel, eins og hans var von. Hann var nýrisinn úr rekkju, er eg gekk í hlað. Hann hafði séð til ferða minna, þar sem hann stóð snögg- klæddur ú lilaði. Eg hafði það á tilfinningunni, að hann væri ekki búinn að átta sig á því, að það var gamall félagi hans, sem var að koma. Hann lireyfði sig ekki úr sporum, fyr en eg átti að eins ógengiu fácin skref til lians. Þá var eins og glaðnaði yfir honum. Hann kom á móti mér og rétti mér höndina. „Eg ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum. — Komdu nú blessaður og sæll!“ Hann tók hlýtt í liönd mér, en úr stúlgráu, en þó góðlegu augunum hans, skein sama velvildin og fyrr- um. Eg sá lítinn mun á lionum. Og andartak gleymd- ist alt, sem eg hafði lifað frá þvi við skildum og til þessarar endurfundarstundar. Eg sagði honum frá ferðum mínunt og þegar eg hafði lokið því, sagði hann: „Þú dokar nú við lijá okkur, lagsi. Og nú skulunt við ganga í bæinn til Guðrúnar. Eg sé, að það er farið að rjúka.“ Það er fagurt i Hraunkoti. Bærinn stendur undir múla, sem Hraunkotsmúli nefnist. Eg reis úr rekkju íyrir sólarupprás næsla dag og kleif múlann og komst upp i það mund, er fyrstu geislar nýrisinnar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.