Tíminn - 11.07.1944, Blaðsíða 4
272
TÍM1IV3V, þriðjjudagiim II. jálí 1944
68. blafS
Kennar apingí ð
Áttunda fulltrúaþingi Sam-
bands íslenzkra barnakennara
er nýlokið. Ræddi þing þetta
meðal fræðslumála almennt,
launamál kennara, menntunar-
og starfsskilyrði og ýms félags-
mál stéttarinnar.
Alls sátu þingið 47 fulltrúar
af 19 kjörsvæðum. En auk full-
trúanna mættu og á þinginu
fjórir menn, sem átt hafa sæti
í milliþinganefnd í skólamálum:
ÁrmannHalldórsson skólastj.,Ás-
mundur Guðmundsson prófess-
or, Helgi Elíasson skrifstofustjóri
og Kristinn Ármannss. mennta-
skólakennari. Aðalforseti þings-
ins var Karl Finnbogason skóla-
stjóri, en aðalritarar Eyþór Þórð-
arson skólastjóri og Hermann
Hjartarson kennari.
Þingið féllst á tillögur milli-
þinganefndar um tilhögun
skólamála og lengingu skóla-
skyldunnar í landinu og taldi
þær líklegar til bóta.
Þá lagði þingið til, að fræðslu-
málastjórninni yrði veitt vald
til þess að skipuleggja skóla-
hverfi sveitanna og ákveða
skólahúsum stað. Sé byggingu
skólahúsa í sveitum hraðað sem
mest, svo að öll byggðarlög
landsins hafi sín skólahús inn-
an skamms tíma.
Þingið lagði einnig ríka á-
herzlu á, að komið yrði hið bráð-
asta upp deild við háskólann,
sem annist rannsóknir í upp-
eldis- og sálarfræði og leiðbein-
ingar í þágu íslenzkra skólamála.
Verði ráðnir til þess þrír eða
fjórir sérfræðingar og fengnir
útlendir menn, ef nauðsyn þykir.
Deild uppeldisvísinda hafi með
höndum lokastig undirbúnings-
menntunar kennara, að loknu
almennu kennaranámi.
Samþykkt var svohljóðandi
ávarp til Jakobs Kristinssonar
f ræðslumálast j ór a:
„Áttunda fulltrúaþing Sam-
bands ísl. barnakennara vottar
Jakobi Kristinssyni, sem sagt
hefir lausu fræðslumálastjóra-
embættinu sakir vanheilsu, inni-
lega samúð og hugheilar þakkir
fyrir margþætt og gifturík störf
í þágu barnaskóla vorra og
menningar, jafnframt því, sem
það óskar honum batnandi
heilsu og allra heilla á komandi
timum og að þjóð vorri megi
enn um langt skeið njóta frá-
bærra hæfileika hans og mann-
kosta til eflingar menningu
vorri. — Þingið lætur einnig í
ljós ánægju sína yfir því, að
Helga Elíassyni hefir verið veitt
fræðslumálastjóraembættið og
árnar honum allra heilla og
giftu við hin veglegu og ábyrgð-
armiklu embættisstörf."
Loks gerði þingið þá kröfu,
að laun kennara yrðu verulega
bætt frá því, sem nú er, svo að
þeír njóti eitthvað sambærilegra
kjara við aðrar stéttir þjóðfé-
íagsins.
Fyrri stjórn Sambands ís-
lenzkra barnakennara var öll
endurkosin. Skipa hana Ingi-
mar Jóhannesson, Sigurður
Thorlacius, Pálmi Jósefss., Arn-
grímur'Kristjánsson, Gunnar M.
Magnúss, Guðmundur T. Guð-
jónsson og Jónas B. Jónsson.
Verkfollum aflétt
Verkfalli vörubifreiðastjóra í
Reykjavík er lokið. Náðist sam-
komulag síðastl. fimmtudag.
Vinnuveitendafélagið gekk að
nær öllum kröfum bifreiðastjór-
anna.
Verkfalli sjómanna og vél-
stjóra á síldveiðiskipunum í
Vestmannaeyjum lauk á sunnu-
daginn var. Samkomulag náð-
ist milli útgerðarmanna og sjó-
manna, án sérstakrar milli-
göngu. Hins vegar náðist sam-
komulag í sjómannadeilunni
fyrlr milligöngu umboðsmanns
sáttasemjarans, Sveins Guð-
mundssonar. Gerði hann miðl-
unartillögur, sem báðir aðilar
féllust á.
Flugvélakawp
Flugfélagið Loftleiðir hefir
nýlega fest kaup á flugbát og
flugvél í Ameríku til viðbótar
flugvél þeirri, sem það á nú.
Tekur flugbáturinn 8 farþega,
en flugvélin 4. Hefir Sigurður
Ólafsson flugmaður annast
kaup þessi fyrir félagið.
Flugvél félagsins mun annast
síldarleit i sumar.
Cr bænum
Sundhöllin.
Fyrri helming þessa árs hafa 130374
menn sótt Sundhöll Reykjavíkur. Þessi
aðsókn skiptist þannig: 54.280 karlar,
13.349 konur, 24.990 drengir, 25.760
stúlkur, 10.579 skólaböð, 109 kerlaugar,
1185 karlar úr sundfélögun og 104 kon-
ur úr sundfélögum.
Skemmtun Hringsins
í Hijómskálagarðinum síðastl. laug-
ardag og sunnudag tókst mjög vel.
Fjöldi fólks var þar báða dagana.
Höfðu menn hina mestu ánægju af
ýmsum skemmtunum, sem þar voru
á boðstólum.
Leikfélag Reykjavíkur
hélt aðalfund sinn síðastl. laugar-
dagskvöld. Á fundinum fór fram
stjórnarkosning og skipa nú stjórnina:
Brynjólfur Jóhannesson formaður,
Ævar R. Kvaran ritari og Þóra Borg
Einarsson gjaldkerl. Til að aðstoða
stjórnina við val leikrita voru kosnir
Gestur Pálsson og Jón Aðiis.
Reykjavíkurkvikmynd Lofts.
Loftur Guðmundsson ljósmyndari
vinnur nú að því að gera kvikmynd af
Reykjavíkurbæ, þar sem sýndar eru
helztu stofnanir bæjarins, atvinnu-
greinar, bæjarbragur o. s. frv. Mun
myndin vera langt komin.
Aðalsafnaðarfundur
Hallgrímsprestakalls var haldinn
sunnudaginn 2. þ. m. Á fundinum var
samþykkt að hefjast handa úm kirkju-
byggingu og byrja á nokkrum hluta
kirkjunnar, eins og byggingarnefnd
bæjarins bæjarins var búin að sam-
þykkja, en bæjarstjórnin hindraði
síðar. Var skorað á bæjarstjórnina að
hætta þessari mótstöðu. í sóknarnefnd
voru endurkosnir Ingimar Jónsson
skólastjóri og Gísli Jónsson yfirkenn-
ari.
Fimmtugsafmæli.
Guðmundur Njáisson, Böðmóðsstöð-
um í Laugardal, átti fimmtugsafmæli
10. þ. m.
Hjónaband.
Síðastl. laugardag voru gefin saman
í hjónaband af sr. Jakob Jónssyni,
ungfrú MSría Björgvinsdóttir, Freyju-
götu 6 og Sigurbjörn Árnason lögreglu-
þjónn frá Vestmannaeyjum.
Erindasafnið.
Þriðja hefti þess er nýlega komið út.
Flytur það að þessu sinni erindaflokk
Sverris Kristjánssonar: Frá Vínarborg
til Versala, er hann flutti í útvarpið
veturinn 1940—41.
Áttræðisafmæli
átti I gær séra Einar Thorlacius fyrr-
um prestur að Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd. Magnús hefir dvalið hér í bæn-
um síðan hann lét af prestsskap fyrir
12 árum síðan. Hann er vel ern og
hefir undanfarið unnið að þvi að und-
irbúa nýja útgáfu á hinni vinsælu
kvæðabók Snót, er lengi hefir verið
ófáanleg.
Prentvilla.
í blaðinu 4. júli var prentvilla í
áætlun raforkumálanefndar á fyrrí
síðu aukablaðsins. Þar stóð að ný
Andakílsvirkjun væri áætluð 780 kw.,
en átti að vera 7800 KW. eins og raun-
ar kom fram síðar á sömu síðu.
Þrjú daudaslys
Síðastl. föstudag varð það
slys í Ljósafossstöðinni, að
Bjarni Ingólfsson frá Stokkseyri
varð fyrir rafmagnsstraum, er
hann var að gera við bilaða
leiðslu, og beið bana af. Reynd-
ust allar lífgunartilraunir ár-
angurslausar. Bjarni var 19 ára.
Síðastl. laugardagskvöld féll
maður á Akureyri af hestbaki,
skammt frá Gróðrarstöðinni, og
meiddist svo mikið á höfði, að
hann andaðist í sjúkrahúsi
skömmu síðar. Maður þessi var
Guðmundur Halldórsson, Hafn-
arstræti 2, Akureyri. Hann mun
hafa lent á vírstreng á síma-
staur og þvi dottið af baki. Hann
var kvæntur maður á fimmtugs-
aldri.
Síð>stl. laugardag varð það
slys hjá Grþf í Lundarreykjadal,
að lítil fólksbifreið valt út af
veginum. Eini farþeginn í bif-
reiðinni, Guðmundur Veturliði
Bjarnason, ætlaði að komast út,
þegar bifreiðin var að velta, en
lenti með höfuðið milli stafs og
hurðar, þegar bifreiðin kom nið-
ur á hliðina. Brotnaði hauskúp-
an og andaðist hann skömmu
síðar. Guðmundur var búsettur
á Akranesi. *
Auk dauðaslysa þeirra, sem
hér hefir verið greint frá, varð
óvenjumargt minni slysa um
seinustu helgi, aðallega bif-
reiðaslysa. Síðastl. föstudags-
kvöld meiddist 12^ ára gamall
drengur á Akureyri, sem bifreið
Emíl Thoroddsen
látínn
Emil Thoroddsen tónskáld
lézt í Landakotsspítalanum að-
faranótt föstudagsins síðastl.
Hann hafði legið þar sjúkur
skamma hríð.
Emil var sonur hinna kunnu
hjóna, Þórðar læknis Thorodd-
sen og Önnu Pétursdóttur Guð-
johnsen. Hann var 46 ára að
aldri, er hann lézt, og var löngu
þjóðkunnur maður fyrir tónlist-
arstörf sín.
Doktorsvörn Sigurð-
ar Þórarinssonar
Föstudaginn 26. maí s. 1. varði
M. Sigurður Þórarinsson fil. lic.
doktorsritgerð um Þjórsárdal og
eyðingu hans við Stokkhólms-
háskóla. Viðstaddir doktorsvörn-
ina var herra Vilhjálmur Fin-
sen sendifulltrúi íslands og
nærri allir íslendingar í Stokk-
hólmi, auk fjölda annarra. And-
mælendur voru próf. Lennart
von Post, Svan Janson, sem áð-
ur var sendikennari í Reykjavík
og norski rithöfundurinn Sigurd
Hoel.
Bók dr. Sigurðar heitir á
sænsku „Thjorsárdalur och dess
förödelse“ og fjallar um fann-
sóknir norrænna fornfræðinga
og náttúrufræðinga í Þjórsárdal
sumarið 1939.
Framkvæmdastjóri
í. S. I.
Þorgeir Sveinbjarnarson í-
þróttakennari á Laugum hefir
verið ráðinn framkvæmdastjóri
íþróttasambands íslands.
Þorgeir Sveinbjarnarson er frá
Efstabæ í Borgarfirði. Stundaði
hann eittí ár nám í leikfimi í
lýðháskólanum á Tárna í Sví-
þjóð, síðar var hann nemandi
við Statens Gymnastikinstitut í
Kaupmannahöfn og lauk prófi
þaðan.
Er Þorgeir kom heim var hann
ráðinn íþróttakennari við al-
þýðuskólann að Laugum í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu og hefir gegnt
því starfi í 12 ár.
Kennarapróf
Kennaraprófi í ísleiizkum
fræðum við Háskóla íslands
hafa lokið nýlega: Eiríkur Krist-
insson með 1. einkunn (102y3
stig) og Snæbjörn Jóhannsson
með 1. eink. (90y3 stig).
Erlent yfirltt.
(Framh. af 1. síðu)
höfðingja. Má telja víst, að
mannaskipti þessi stafi meira af
ágreiningi um varnaraðferðir en
veikindum von Rundstedt. Er
það kunnugt, að þeim von Rund-
stedt og Rommel hefir ekki sam-
ið sem bezt. Hitler hefir þó eigi
treyst sér til að fela Rommel yf-
irherstjórnina, en hann er yfir-
leitt illa séður af þýzku hers-
höfðingjunum, er telja hann
hálfgert aðskotadýr. Von Kluge
hefir því verið falin forustan.
Hann nýtur álits hershöfðingj-
anna, en hefir líka reynzt naz-
istum þægur. Von Kluge er einn
þeirra þýzku hershöfðingja, sem
Rússar hafa ákært fyrir stríðs-
glæpi og munu þeir heimta
höfuð hans í stríðslokin.
Þessi mannaskipti sýna það
ennfremur, að grunnt er á því
góða milli nazistaforingjanna og
hershöfðingjanna, þótt allt virð-
ist slétt á yfirborðinu. Rund-
stedt er mesta átrúnaðargoð
hershöfðingjanna,' enda vann
hann einna frækilegustu sigr-
ana í Póllandi, Frakklandi og
Rússlandi fyrstu ár styrjaldar-
innar. Mun Hitler hafa þótt nóg
um herfrægð hans og flutti hann
því til Frakklands. Rundstedt
hefir gert sér lítið far um að
ók á, og á laugardaginn varð
kona í Hafnarfirði fyrir bíl og
meiddist talsvert. Á sunnudag-
inn varð og bílslys í Kjós og
annað í Hvalfirði síðastl. þriðju-
dag og meiddust farþegar tals-
vert í báðum þeirra, en nánari
fregnir af þeim hefir blaðið eigi
fengið.
TSARITSYN Aðalhlutverk: M. Gelovani (Stalin) N. Bogulyobov (Vorishilov) Sýnd kl. 5—7—9. Bönnuð börnum innan 12 ára. h—i-o-OAMIA BÍÓ-o—o—o— Bill sjóari (Barnacle Bill) WALLACE BEERY, LEO CARRILLO. Sýnd kl. 7 og 9. o. •
GLATT Á HJALLA (The More The Merrier) Amerískur gamanleikur. CHARLES COBURN, JOEL McCREA, JEAN ARTHUR. Sýnd kl. 3 og 5. > • OLÍUFUNDURINN (Remedy for Riches EDGAR KENNEDY. JEAN HERSHOLT, Sýnd kl. 3 og 5. .-o—o—o—<—>—o—o—o- >
► nýja e!5.
,Píttsburgh‘
Spennandi og viðburðarík
stórmynd.
Aðalhlutv. leika:
MARLENE DIETRICH,
RANDOLPH SCOTT,
JOHN WAYNE.
Bönnuð börnum yngri en
14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. siðu)
menn bezt lýðræðinu með þvi að
skila auðu í kosningum! Það
færi víst ekki illa fyrir lýðræð-
inu, ef allir tækju upp á því að
skila auðu eins og kommún-
istaþþigmennirnir við forseta-
kjörið?
Hitt er annað mál og að því
leyti er þetta rétt hjá Þjóð-
viljanum, að það væri lýðræðinu
síður en svo nokkur skaði, held-
ur þvert á móti styrkti það í
sessi, ef kommúnistaforsprakk-
arnir og nánasta fylgilið þeirra
héldu því áfram að skila auðu
í kosningum.
MÁLFLUTNINGUR MBL.
Það er gott dæmi um mál-
flutning Morgunblaðsins, að í
forustugrein þess síðastl. laug-
ardag er því haldið fram, að
Tíminn hafi sagt, að stéttamun-
urinn hafi auk'izt hér seinustu
árin á þann hátt, að kjör al-
mennings hafi farið versnandi.
Allir, sem hafa lesið Tímann,
vita að hér er sagt rangt frá.
Hitt vita þeir líka, að er rétt, að
stéttamunurinn hefir aukizt,
þótt kjör almennings hafi held-
ur batnað, því að auðsöfnun
nokkurra manna hefir marg-
faldast í samanburði við bætt
kjör almennings. Þessi fölsun
Mbl. til að leiða athyglina frá
staðreyndunum, sýnir bezt hinn
vonda málstað þess.
vingast við nazista og ýmsir á-
líta, að hann líti alltaf niður á
Hitler. Hann hefir oft verið
sagður líklegastur til að verða
Badoglio Þýzkalands, þ. e. verða
aðalmaður hershöfðingjastjórn-
ar, ef nazistum yrði steypt úr
stóli. Nánasti samverkamaður
hans, Blaskowitz, sem enn ann-
ast. herstjórn á innrásarvíg-
stöðvunum, er sagður eini hers-
höfðinginn, sem hafi andmælt
Hitler í viðurvist hans, enda
missti hann alla herstjórn um
skeið, unz Rundstedt fékk hann
fluttan til Frakklands. Talið er,
að nazistar óttist það alltaf
meira og meira, að hershöfð-
ingjarnir reyni að grípa völdin
í sínar hendur í þeirri von, að
bjarga sér á kostnað nazista.
Kunna mannaskiptin í Frakk-
landi að vera í einhverju sam-
bandi við þennan ótta nazista.
Auk bardaganna um Caen,
hafa einnig geisað harðar or-
ustu á Cherbourgskaga, þar sem
Bandaríkjamenn sækja fram
suður eftir skaganum. Hefir þar
oft komið til ægilegra bardaga.
Bandaríkjamenn vinna þó alltaf
heldur á. Þeir hafa nú tekið La
Haye og sækja fram til St. Lo,
Lessay og Sainteny.
Yfirburðir flughers Bapda-
manna á mjög mikinn þátt í
sigrum þeirra í Normandí. Auk
árásanna á sjálfar varnarstöðv-
ar Þjóðverja, hefir hann tor-
veldað alla aðflutninga þeirra
og má segja, að allar helztu
samgöngustöðvar í nánd inn-
rásarsvæðisins séu í rústum.
Þrátt fyrir þessar miklu árásir,
dregur lítið úr loftárásum á
þýzkar borgir, einkum hefir
undanfarið verið ráðizt á olíu-
vinnslustöðvar Þjóðverja.
Bandamenn láta mjög lítið af
því, að Þjóðverjar hafi unnið
tjón á innrásarskipum þeirra.
Hafa þeir nýlega tilkynnt, að
engu innrásarskipi þeirra hafi
verið sökkt af völdum kafbáta,
nema e.t.v. einu, en mörgum kaf-
bátum hefir verið sökkt. Þá segir
í sömu tilkynningu, að Þjóðverj-
ar hafi undanfarið misst marg-
fallt fleiri kafbáta, en Banda-
mann kaupskip, þótt miðað sé
við að allt kaupskipatjón Banda-
manna. Þeir gera og lítið úr
hraðbátum Þjóðverja.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem hjálpuðu
við leit litlu dóttur okkar,
Kristbjargar Róseliu________________
og fyrir auðsýnda samúð og liluttekníngu við jarðarför
hennar.
Klúku í Bjarnarfirði, 30. júní 1944.
FRÍÐA INGIMUNDARDÓTTIR. SIGURÐUR ARNGRÍMSSON.
Maðurinn minn,
JÓ\ JÓ\SS«\
bóndi á Vestrl-Loftsstöðum, lézt aðfaranótt þess 6. þ. m.
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR.
r——- ~~------------------------------------------*---*1
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auösýndu okkur
vinarhug, með gjöfum, blómum og skeytum á 25 ára
giftingarafmœli okkar þ. 28. júni.
Guð blessi ykkur öll.
ÞORBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR. LÁRUS KJARTANSSON.
Kœrum vandamönnum, Austur-Landeyingum og öðrum,
er sendu mér gjafir, heillaskeyti og á einn eða annan hátt
sýndu mér vinahót á 70 ára afmœli mínu, fœri ég hér
með mínar innilegustu þakkir.
Guð veri með ykkur.
KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Bakka.
- --------—-----—------------— —.— ------j
LJÓSMYND AF
W
Fyrsta forseta Islands
ætti að vera á hverju heimili á landinu.
VEGNA FJÖLDA FYRIRSPURNA skal það tekið fram, að HERRA
FORSETI ÍSLANDS, SVEINN BJÖRNSSON, hefir veitt mér leyfi til
útgáfu af mynd þeirri, sem ég hefi tekið af honum á ljósmynda-
stofu minni. Myndirnar verða í 18X24 cm. stærð (og eftir sam-
komulagi stærri).
VERÐ:
Olíumyndir 50 krónur og á venjulegum
ljósmyndapappír 20 krónur. —
EKKI VERÐUR TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM í SÍMA.
MYNDIRNAR TIL SÝNIS Á LJÓSMYNDASTOFUNNI.
Loftnr
Konunglegur sænskur hirðljjósinyndasiniður.
\ÝJA RÍÓ.
Brunatryggingariðgjöld
af húseignuni í lögsagnarumdæmi
Rey k jj a ví kur.
Það tilkynnist húseigendum i Reykjarvík hérmeð, að
gjaldseðlar fyrir brunatfýggingariðgjöld 1944, verða
settir í póst nú næstu daga. Gjalddagi er 15/júlí 1944,
og ber að greiða iðgjaldið í skrifstofu félagsins, Aust-
urstræti 10 (3. hæð).
ALMENNAR TRYGGINGAR H.F.
TÍMIW er víðlesnasta auglýsingablaðið!