Tíminn - 16.04.1946, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.04.1946, Blaðsíða 2
2 TÍMIM, þrlðjiidaginn 16. apríl 1946 68. blað /•riifjjvdtitiur 1S. upríl Spánarmálin Þótt undarlegt megi teljast, hefir furðu lítið verið rætt um þá ákvörðun kommúnista í Al- þýðusambandi íslands að leggja afgreiðslubann á allar spænskar vörur. Hér er þó tvímælalaust um verknað að ræða, sem brýt- ur gegn íslenzkum lögum, og er stórháskalegur fyrir viðskiptin út á við. Eigi þessum ofbeldis- mönnum að haldast það uppi að hafa þannig lögin að engu og hindra viðskiptin við einstakar þjóðir, er sannarlega erfitt að vita upp á hvaða ofbeldisverk- inu þeir taka næst. Röksemdir kommúnista fyrir þessum verknaði eru þær, að einræðisstjórn fari með völdin á Spáni. Ætti að fylgja þessari reglu út í æsar, má fljótt sjá út i hvaða ógöngur það leiðir. Þá mætti ekki hafa nein við- skipti við Rússland, því að þar situr að völdum enn augljósari einræðisstjórn en á Spáni. Þá væri ekki hægt að skipta við Pólland, Júgóslavíu og ýms önnur lönd, þar sem bersýnilegt er, að einræðisstjórnir fara með völd. Einmitt þeir markaðir, sem kommúnistar hafa lagt mesta áherzlu á að vinna, myndu lok- ast af sjálfu sér, ef þessari reglu yrði fylgt. Enn tilfinnan- legra yrði þetta þó, ef kommún- istar færðu sig upp á skaftið með þá túlkun, sem iðulega get- ur nú að líta ,í Þjóðviljanum, að eiginlega séu það fasistar, sem fari með völdin í Bretlandi og Bandaríkjunum, og vitan- lega ber þá ekki frekar að skipta við en Franco! Viðskiptatapið er þá ekki að- alháskinn, sem felst í þessari stefnu. Fyrir smáþjóð, sem viil vera sjálfstæð og laus við er- lend afskipti, er það höfuðnauð- syn, að það sé grundvallarregla í alþjóðamálum, að erlend þjóð skipti sér ekki af innanlands- málum annarrar þjóðar. Smá- þjóðin á að gera sitt til, að þessi regla sé haldin í heiðri, en á ekki að stuðla að því, að hún sé brotin niður. Það er því alveg sama frá hvaða sjónarmiði er litið á 'þetta Spánarbann kommúnista. Það verður altaf andstætt og ósamrímanlegt íslenzkum hags- munum. Það er líka fullkomlega af <erlendum toga spunnið. Rúss- ar eru upphafsmenn þessarar baráttu gegn Spánarstjórn, og þykjast ætlar að sýna með því, að þeir séu sérstaklega miklir ■andstæðingar fasismans. Kom- múnistasellurnar í öðrum lönd- um — og þá einnig hér á ís- landi — eru svo látnar leika sama leikinn. En um þetta verð- ur helzt sagt hið gamalkveðna: Heyr á endemi. Engum ferst síður að látast berjast gegn fas- istum með þessum hætti en Rússum, sem gerðu griðasátt- málann við Hitler 1939 og sáu honum fyrir ýmsum nauðsyn- legum hráefnum til hernaðar fyrstu tvö ár styrjaldarinnar. Og þáð var á þeim tíma, eða veturinn 1941, sem íslenzku kommúnistarnir kröfðust þess, að ekki yrði gerður viðskipta- samningur við Breta, nema jafnframt yrði samið við þýzku nazistana líka! Enginn tekur það því alvar- lega, þótt þessir menn reyni nú að auglýsa sig sem einhverja forvígismenn í baráttunni gegn fasismanum. Og íslenzka þjóðin krefst þess Daníel Kristjánsson, Belgalda: Bilaauglýsingar ríkisstjórnarinnar Það er engin nýlunda, þótt nú- verandi ríkisstjórn gefi út til- kynningar um hin og þessi „ný- sköpunarplön", og oftast er ný- byggingarrráð tengt þar við sögu. Eitt af ,nýsköpunarplönunum“ er auglýst var með miklu yfir- læti á síðastliðnu hausti, var um innflutning á jeppabílum, er dreifa ætti um sveitir landsins í stríðum straumum, og eftir til- kynningunum að dæma virtust aðaláhyggjurnar vera þær, að hinir ,,þverlunduðu“ bændur mundu verða tregir til að not- færa sér þessa miklu og óverð- skulduöu umhyggju stjórnar- valdanna. En bændurnir brugðust að þessu sinni trausti ríkisstjórn- arinnar. Þeir pöntuðu full 2000 bíla. En ekki er fengin fullkom- in vissa fyrir innflutningi á meir en 80 bílum. Vonir standa þd til, að þeir geti orðið 240, er koma á árinu. Það er áreiðanlegt, að núver- andi forráðamenn hefðu aldrei auglýst þessi tæki á þann hátt, sem gert var, ef þeir hefðu bú- izt við jafn mikilli eftirspurn sem raun varð á. Að þessu leyti brugðust því bændur ,trausti“ núverandi forráðamanna þjóð- arinnar. Bændur tóku „jeppa- auglýsingarnar“ fyrir alvöru, en ekki á þá lund, að á bak við lægi umkomuleysi og mont. Auglýsingarnar væru aðeins til að „sýnast“. Sagan er hálfsögð af þessu fargani. Búnaðarfélag íslands er fenginn sá vandi í hendur, að úthluta þessum ^montauglýs- ingagripum“ ríkisstjórnarinnar. Þegar forráðamenn í þeirri stofnun kynntu sér málið til hlítar, töldu þeir líklegustu leið- ina að biðja stjórnir hreppabún- aðarfélaganna að hola þessari „tálbeitu" niður í hlutaðeig- andi hreppum. Víða er það í hreppsfélögum, sem jeppapantanir eru 10, og dæmi mun vera um fleiri pant- anir. Það liggur í hlutarins eðli, að það er illt verk og vanþakk- látt að úthluta einum bíl upp í 10 pantanir, enda mun svo kom- ið, að sumir hafa algerlega gef- izt upp við slíkt starf. En víða hefir þettá valdið leiðindum og úlfúð innan hreppsfélaganna, því að hver bóndi segist hafa sama rétt til að fá bíl og bónd- inn, er verður fyrir því happi að hljóta hnossið. Ef fullkomin heilindi hefðu verið um innflutning „jeppabíl- anna“, áttu þeir að komast á- lagningarlaust í hendur hlut- aðeigendum. — Ríkisstjórnin þekkir sína og hlynnir að þeim. Heildsali í Reykjavík hefir einkaumboð með bílana, og fær Búnaðarfélag íslands eða aðrar stofnanir, er bændur ráða yfir, áreiðanlega, að þessi yfirskins- barátta Rússa gegn fasismanum verði ekki látin verða þess valdandi, frekar hér en í öðr- um lýðræðislöndum, að þjón- ustumenn þeirra geti einskis- virt lögin og spillt viðskiptum við aðrar þjóðir. íslenzka stjórn- in, og þó einkum utanríkismála- ráðherrann, verður að skerast hér í leikinn og ómerkja þennan ofbeldisverknað. Verði það ekki gert, hefir stjórnin auglýst sig sem fullkomna undirlægju kom- múnista og þjóðin veit þá hvað henni ber að gera í kosningun- um í vor/ engan íhlutunarrétt um verð- lag á þeim. Þegar ég á tal við einhvem stjórnarliðann úr Reykjavík, sem flestir eru „innblásnir af nýsköpunaranda" ríkisstjórnar- innar, en „biblíu“ „andans“ er að finna á „plötu“ forsætisráð- herrans, er leikin var tvisvar sinnum í útvarpinu forðum, og auk þess birt í blöðum, — þá telja þ^ssir góðu menn, að mik- ill hljóti sá munur að vera, að fá nóg af nýtízku vélum til alls, er vinna þurfi í sveitinni, miðað við „gamaldagsbaslið", er áður hafi ríkt. Þegar þessum mönnum er bent á, að lítið hafi komið af vélum til landbúnaðarstarfa, umfram það, sem komið hafi árlega und- anfarið, bregður fyrir undrun- arsvip. Þetta eilífa orðagjálfur um „nýsköpun“ og vélainnflutn- ing, er orðið að veruleika í hug- um margra, er ekki þekkja sannleikann í þessum málum, og þeim er sannarlega vorkunn, þótt þeir trúi, að eitthvað af öllu nýsköpunarmoldviðrinu sé orðinn raunhæfur sannleikur. Það er staðreynd, að mjög lít- ill hluti af stórum jarðyrkju- áhöldum og skurðgröfum fæst innflutt, miðað við þörfina. Margir „nýríkir" menn og aðrir andlega skyldir þeim, er lifa á óarðbærri vinnu (milli- liðastarfsemi), láta allófriðlega í garð bænda, bera þeim á brýn þann slóðaskap, að þeir vilji ekki nýbreytni í búskap og séu ómagar á þjóðfélaginu. Bændur eru ýmsu vanir. En fátt held ég, að þeim sárni meira en að heyra slíka dóma frá þessum ættlerum þjóðfé- lagsins — frá mönnum, sem eyða dýrmætum gjaldeyri í fá- nýt ferðalög til fjarlægra landa — og í innfiutning glysvarnings, sem seldur er hér með marg- földu okri, að viðbættum þeim staðreyndum, að fluttur hefir verið héðan erlendur varningur Þann 26. marz síðastliðinn andaðist norður á Sauðárkróki Pétur Jónsson fræðimaður og fyrrum bóndi á Stökkum á Rauðasandi áttatíu pg eins árs að aldri. Pétur var staddur þar nyrðra í kynnisför og heimsókn hjá vinafólki sínu, Helga Kon- ráðssyni presti og fjölskyldu hans. Banamein hans var hjartabilun. Pétur var jarðsett- ur að sóknarkirkju sinni að Bæ á Rauðasandi 9. apríl. Pétur Jónsson var fæddur í Skáleyjum á Breiðafirði 6. nóv. 1864, að því er hann sjálfur taldi, en samkvæmt prestþjón- ustubókum Flateyjarprestakalls var fæðingardagur hans 28. desember, og skírður var hann á nýársdag 1865. Faðir hans var Jón verzlunarmaður í Flatey, Pétursson merks fróðleiksbónda í Skáleyjum, Jónssonar bónda í Bjarnareyjum og síðar í Skál- eyjum, Péturssonar bónda í Skáleyjum er kallaður var skrif- ari, Jónssonar, Péturssonar. til Danmerkur, er keyptur hefir verið fyrir gjaldmiðil, sem okk- ur vanhagar um til hvers kon- ar véla- og efniskaupa. Fáir finna betur en bændurnir sjálfir, hvar skórinn kreppir að. Til að mæta erfiðleikum áf fólksfæð og dýrtíð hefir fjöldi bænda hug á að eignast litlar dráttarvélar eða jeppabíla til heimilisnota. Þegar jeppaauglýsingarnar komu, trúðu bændur því al- mennt, að hér væri um að ræða þáttaskipti í dáglegum afköst- um. Samkvæmt auglýsingun- um á að vera hægt að nota þessa bíla við slátt, ennfremur til flutninga. Auk þess eru það mikil þægindi fyrir þá, er í dreifbýli búa, að geta komizt til mannfunda án þess að fórna allt of löngum tíma i ferðalög. Að öllu athuguðu er það ekkert undarlegt, þótt mörgum bóndanum þyki þeir „útvöldu“ hafa leikið á sig í auglýsingun- um um „jeppana". Ef fyrirfram var vitað, að ekki var hægt að flytja meira til landsins af bílunum en raun verður á — eða í hæsta lagi 240 bíla — eða ef óvissa ríkti um innflutningsmöguleika — átti aldrei að auglýsa þá til sölu á þann há'tt, er gert var. „Jeppafargan nýsköpunar- innar“ er táknrænt um fram- komu ráðamanna þjóðfélagsins um þessar mundir gagnvart okkur bændunum. Það er verið að leiða bændur af með loforðum í stað athafna. Bændur eru svívirtir af verstu dónum landsins fyrir fram- taksleysi á sama tíma, sem þeim er neitað um nauðsynleg tæki til framleiðslu sinnar. Sú stétt, sem veröur að þola slíkt óréttlæti, verður að standa saman um hagsmunamál sín á öllum sviðum, og bændur mega ekki láta þá „fínu“ úr stjórnar- herbúðunum rugla dómgreind sína í vor. Þessir langfeðgar voru útvegs- bændur og sjógarpar í Breiða- fjarðareyjum; giftust þeir inn í merkar ættir um Breiðafjarð- areyjar og Barðastrond. Móðir Pétur var Guðrún Guð- mundsdóttir bónda í Bjarneyj- um Guðmundssonar. Kona Pét- urs yngra i Skáleyjum og amma Péturs, var Margrét Magnús- dóttir frá Skógum, systir Jochums bónda þar, föður Matt- híasar skálds. Annar sonur þeirra en Jón, var Guðmundur bóndi á Miðnesi, faðir Sigvalda fræðimanns og bónda á Sand- nesi. Kona Jóns í Bjarneyjum og langamma Péturs var Ing- veldur dóttir Ólafs bónda í Skáleyjum Ólafssonar. Meðal barna Ólafs í Skáleyjum var Einar bóndi þar; móðurfað- ir Matthíasar skálds, og Jón bóndi í Hvallátrum, faðir Sig- ríðar í Djúpadal móður Björns ráðherra Jónssonar, og Sesselju í Hólsbúð móður þeirra Herdis- ar og Ólínu Andrésdætra. Indriði Indriðason frá Fjalli: Pétur Jónsson, fræðimaöur frá Stökkum Indriöi Indriðason frá Fjalli skrifar hér um hinn látna fræði- mann, Pétur Jónsson frá Stökkum, er andaðist í vetur i hárri elli. jí ðUaðaHQi Tillaga, sem vekur athygli. Alþýðublaðið segir á sunnu- daginn, að þingsályktunartil- laga Alþýðuflokksins um verzl- unar-, viðskipta-, verðlags- og gjaldeyrismál muni „að vonum vekja athygli allrar þjóðarinn- ar.“ Þetta er vafalaust alveg rétt. Það mun vekja athygli, að Alþýðuflokkurinn er búinn að eiga fulltrúa í ríkisstjórníhni í 18 njánuði, án þess að þeir hafi nokkuð gert til að koma fram endurbótum á þessum sviðum, þrátt fyrir skýlaus loforð í stjórnarsáttmálanum. Og það mun vekja athygli, að Alþýðu- flokkurinn flytur tillögu um, að ekkert skuli gert í þessum mál- um fyrr en á næsta þingi, í stað þess, að strax veröi hafizt handa um endurbæturnar. Heildsal- arnir og verðbólgubraskararnir eiga a. m. k. að fá „frítt spil“ fram á haustið. Það mun alveg óhætt að segja, að hvergi í heiminum muni finnast jafnaðarmannaflokkur, sem heldur þannig á þýðingar- mestu málum umbjóðenda sinna. Jafnaðarmannaflokkarn- ir annars staðar eiga engan Ás- geir Ásgeirsson og Emil Jónsson og þjóna því ekki stórgróðavald- inu. „Glötuðum syni“ fagnað. Ræðuhöldum Jónasar Jóns- sonar í sambandi við búnaðar- málasjóðinn hefir verið tekið með miklum fögnuði í stjórnar- blöðunum. í fyrstu mun þó hafa þótt klóklegast að reyna að dylja fögnuðinn, en ÞjóðViljinn gat ekki bælt hann niður, enda hafði hann yíir mestu að fagna, því að búnaðarmálasjóðsfrv. er fyrst og fremst mál kommún- ista. Þegar Þjóðviljinn hafði riðið á vaðið, gátu Mbl. og Al- þýðublaðið ekki lengur setið á sér. Öll hafa þessi blöð nú birt meira og minna hrafl úr ræðum Jónasar, og þó einkum ósann- indi hans um Framsóknarflokk- inn og Framsóknarmenn. Þann- ig reynir Þjóðviljinn að gera mikið veður úr þeirri skröksögu, að Hermann Jónasson hafi sagt, að Búnaðarfélagið og Stéttar- sambandið ættu að vera virki Framsóknarflokksins. Var það líka næsta trúlegt, að kommún- istarnir reyndu að gera sér mat úr þessu, því að einn merkasti lærifaðir þeirra sagði einu sinni, að lygin væri bezta vopnið til aö sundra samtökum alþýðunnar. Hitt er svo eftir að sjá, hvort stjórnarliðið muni framvegL, gleðjast eins mikið yfir hinum glataða syni, sem það þykist hafa heimt heim og hjálpar því nú til með miklum dugnaði að koma fram einu versta níð- ingsverkinu gegn bændum. Menn, sem hafa snúizt gegn for- tíð sinni og hugsjónum, hafa aldrei reynzt giftmniklir, þegar þeir fóru að þjóna sinum gömlu fjendum. Ólafur og Brynjólfur minnast Roosevelts. Síöastl. föstudag var liðið eitt ár frá dánardægri Roosevelts forseta. Þess var minnst virðu- lega víða um lönd. Ólafur Thors og Brynjólfur Bjarnason minnt- ust þess lika á sína vísu. Þeir létu ríkisútvarpið flytja all- langa grein úr rússneska blað- inu „Pravda“, þar sem Roose- velts var aðallega minnst í þeim tilgangi að fara með óhróður og svívirðingar um núv. forystu - menn Bandaríkjanna. Fæstir útvarpshlustendur munu hafa kunnaö að meta þessa smekk- vísi Ólafs og Brynjólfs, en hins vegar mun þetta hafa gert. mörg um þeirra ljósara, að útvarpið er ekki nema að nokkru leyti ís- lenzkt, meðan núverandi stjórn fer með völd. FYLGIST MEÐ Þið, sem í strjálbýlinu búið, hvort heldur er við aió eða 3 sveit! Minnist þess, að Tlmlni) er ykkar málgagn og málsvari. Sýnið kunningjum ykkar blaðið og grennslizt eftir því, hvort þeir vilja ekki gerast fastir áskrif- endur / Pétur Jónsson frá Stökkum. Foreldrar Péturs voru ógift og fárra daga gamall var hann tek- inn í fóstur af Margréti föður- systur sinni og manni hennar Magnúsi Jónssyni bónda að Miðjanesi og ólst hann upp hjá þeim. Ekki naut hann neinnar fræðslu í uppvexti fremur en títt var um börn alþýðufólks á þeim árum. Sextán ára fluttist Pétur með fóstru sinni, er þá hafði misst mann sinn, að Auðs- haugi á Barðaströnd til Einars Gíslasonar er var bræðrungur við Magnús mann hennar. Eft- ir ársdvöl þar skildu leiðir með Pétri og Margréti fóstru hans, fór hún þá að Haga, en Pétur réðist út í Svefneyjar til Snæ- bjarnar Kristjánssonar er þar bjó þá, en síðar í Hergilsey. Eft- ir tveggja ára dvöl hjá Snæbirni fór Pétur aftur að Auðshaugi til Jóns Þórðarsonar bónda þar. Á vist með Jóni var Pálína syst- ir hans. Þau voru börn Þórðar hreppstjóra frá Djúpadal Þor- steinssonar prests í Gufudal, en séra Þorsteinn var þriðji mað- ur í beinan karllegg, og voru allir prestar, frá séra Þórði Guð- mundssyni á Grenjaðarstað, er draugurinn drap og frá segir í þjóðsögum; séra Þórður sá, er þótti einn skarpgáfaðasti lær- dómsmaður sinnar tíðar, var föðurbróðir Jóns skálds á Bæg- isá Þorlákssonar. Eftir fjögurra ára veru á Auðshaugi flutti Pétur að Þór- isstöðum, (Gull-Þórisstöðum) við Þorskafjörð til Þórðar föður þeirra systkina er þá bjó þar. Ári síðar tókst ráðahagur meó Pétri og Pálínu og tóku þau þar við búi. Þau bjuggu síðan fjög- ur ár á. Þórisstöðum, þá eitt ár á Barmi og fluttu síðan að Fossá á Hjarðarnesi; þar bjuggu þau í fimm ár við erfið kjör. Þá urðu eigendaskipti að Fossá og enn lá fyrir þeim búferlaflutningur. Fór Pétur þá að Syðra-Hamri og var þar eitt ár. Þá losnaði Auðshaugur úr ábúð því Jón mágur hans hafði keypt hálfan Skálmarnesmúla og flutti þang- að. Komst Pétur þá að Aups- haugi og hugði gott til staðfestu þar. Bjó hann á Auðshaugi í þrjú ár og leið þar vel. Þá varð hann að víkja þaöan fyrir Sig- urði stúd. Pálssyni er náði bygg-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.