Tíminn - 29.05.1964, Blaðsíða 16
Föstudagur 29. maí 1964
118. tbl. 48. árg.
Vandalar í
Grænuborg
ALLT INNANHÚSS BROTIÐ OG BRAMLAÐ
KJ-Reykjavík, 28. maí
Það var ljótt um að litast í bama
heimilinu Grænuborg í morgun, er
starfsstúlkurnar komu til vinnu
sinnar. Einhver óboðinn gestur
hafði komið þar um nóttina, rótað
þar öllu til, og brotið og bramlað.
Brotizt hafði verið inn í húsið
bakatil, en síðan farið um allt
heimilið, bókstaflega öllu snúið
við og það brotið, sem hægt var
að brjóta. Ljósakrónumar í loftinu
voru allar mélaðar, fimm rúður
brotnar, tveir gítarar og tromma
mölvuð, útvarpstæki í eldhúsi
maskað. Rótað til í skrifborði for
stöðukonunnar, og farið í peninga
kassa sem þar var, en gripið í
tómt. Aðkoman var sem sagt öm-
urleg í alla staði, og undarlegar
virðast þær hneigðir, sem sá eða
þeir er gerðu þetta, eru haldnir.
í grænuborg era að staðaldri um
60 börn á daginn, en enginn í hús
inu á nóttunni. Verið gæti, að
unglingar hafi verið hcr að verki,
en þó er það ekki fullkannað, og
vinnur rannsóknarlögreglan að
uppljóstrun málsins.
FÉKK ÞANN STÆRSTA
KJ-Reykjavík, 28. maí
Á dögunum barst Tímamim
úrklippa úr blaði frá Banda-
ríkjunum, þar sem sagt er frá
því, að Steingrímur Hermanns.
son hefði sett í stærsta sverð-
fiskinn, sem veiddur hefur ver-
ið við Miami-eyjair á þessari
,,vertíð“.
í blaðaúrklippunni segir, að
sverðfiskurinn hafi verið 524
punda þungur, og auk þess hafi
Steingrímur dregið úr sjónum
11 punda beinfisk, sem þykir
góður fiskur þar vestra. Blað-
ið spurði Steingrím í dag um
þessa miklu veiði, sem þeim
„fyrir vestan" þótti stórkostleg.
— Hvað kom til að þú fórst
á veiðar þama, Steingrímur?
— Ja, eins og lesendum er
ef til vill' kunnugt, þá fórum
vig þrír vestur til Bandaríkj-
anna, til að sitja ráðstefnu um
Surtsey og rannsóknir á eynni.
Á ráðstefnu þessari var pró-
fessor Bauer, sem kom hingað
vegna Surts, og bauð hann
okkur Guðmundi Sigvaldasyni
suður á eyna Mimini, en hún
er ein af Bahamaeyjunum.
Þama skoðuðum við m.a.
Learner marine laboratory, og
fórum út að veiða í boði Bau-
er. í fyrra skiptið út á grynn-
ingar, sem eru á milli Bahama-
eyjanna, og þar fékk ég m.a.
þennan ellefu punda beinfisk,
sem sagt er frá í blaðinu. Hann
er afar harður viðureignar, en
ekki mjög stór, þetta 3—14
pund. í hitt skiptið fór svo pró-
Framhald é IS s!8u
Steingrímur me8 stöngina og
aflann.
FELLIBYLUR GERDIÞUS-
UNDIR HEIMILISLA USAR
Sr. ÓSKAR FINNBOGASON
Sr. STEFÁN LÁRUSSON
Kosið um Odda
FB-Reykjavík, 27. maí
Á sunnudaginn verður kosinn
prestur í Odda á Rangárvöllum.
Þrir prestar sóttu um embættið,
séra Gísli Bi-ynjólfsson, séra Stef-
án Lárusson og séra Óskar Finn-
bogason, en nú hefur séra Gísli
dregið sig til baka. Kosið verður
í Oddakirkju, Keldnakirkju og
Stórólfshvolskirkj u.
Kjörfundur hefst klukkan 13 á
sunnudaginn. Á kjörskrá eru í
Oddasókn 239 manns, í Keldna-
sókn 59 og 143 í Stórólfssókn.
NTB-Hong Kong, 28. maí
Fellibilurinn Viola fór með rúm
lega 112 km hraða á klukkustund
yfir brezku nýlenduborgina Hong
Kong á meginlandi Kína og gerði
þúsundir heimilislausa, en milli
40—50 meiddust. Hin heimsfræga,
Judy Garland, sem stödd var í
Hong Kong, fékk hjartaslag vegna
fellibylsins og liggur nú alvar-
lega veik á sjúkrahúsi, þar sem
; henni er gefið súrefni.
I Fellibylurinn var svo öflugur,
að mörg skip, sem lágu við hafnar
bakkana, losnuðu og köstuðust á
land, og allt atvinnulíf borgarinn
ar stöðvaðist. fbúar Hong Kong
eru þó langt frá því, að vera
örvinglaðir, því að hin gífurlega
rigning, sem fylgdi fellibylnum,
kom sér vel í þeim mikla vatns-
skorti, sem ríkir þar. í dag komu
um 10 milljón lítrar af vatni í
vatnsgeyma borgarinnar. Borgar-
stjórnin ákvað þegar í stað að
létta dálítið vatnsskömmtunina, og
fá íbúarnir nú vatn í fjórar klst.
annan hvern dag, en áður aðeins
fjórða hvem dag.
Aðfallið var í kvöld 1,5 m hærra
en venjulega, og olli flóð sums
staðar töluverðum skemmdum.
í New York var tilkynnt í kvöld,
að söngkonan Judy Garland hefði
verið lögð inn á sjúkrahús í Hong
Kong af því að hún hafi fengið
hjartaslag af völdum fellibylsins.
Er henni stöðugt gefið súrefni og
er ástandið talið alvarlegt.
Judy Garland hefur lengi verið
mjög hrædd við óveður.
-. .jr '' |, "ifl—n Tfi'" SÚREFNISTÆKIN í
SJÚKRABÍLUNUM
HAFA REYNZT VEL
/- JHh < Sjk'j&.i ’ .'■■ ■ * VS/3 t... | j j 1 / Slökkviliðsmennirnir á mynd þetta nolað við hjartasjúklinga inni hér að ofan heita Kristján og ashmasjúklinga, en auk þess Þorvarðsson, til vinstri og Arn- mjög handhægt þegar slys þór Sigurðsson, til hægri. Á bæri aö höndum og fólk ætti milli þeirra er kassi með súr- erfitt um andardrátt. Þá þurfa efnistækjum, en slikir kassar ungbörn oft að fá súrefni úr hafa verið í nokkur ár í öllu-m Lækjunum, og var eitt slíkt sjúkrabílum Rauða krossins í dæmi hér fyrir nokkru, að ný- Reykjavík. Þetta er ekki mik- fætt bam átti erfitt um andar- ið tæki til að sjá, en því nauð drátt, en þá var súrefni úr synlegra er það, er á því þarf tækjum þessum látið leika um að halda. Þeir Knstján og Arn- andlitið og hresstist það von ór sögðu okkur að mest væri bráðar. (Tímamynd—KJ).
I