Vísir - 18.06.1918, Blaðsíða 1

Vísir - 18.06.1918, Blaðsíða 1
Riisijóri og eig&ndi JAKOB MÖLÍ.SB StMl 117 Afgreiðsla 1 AÐ A.LSTRÆTI 14 SIMl 400 8. árg. Þriðjudaginn 18. júní 1918 164. tbl. GAMLA BIO Ballet- dansmærin. (Thanhouser-Film). Áhrifamikill, efnisgóður og vel leikinn sjónleikur) í 8 þáttum. Cliapliii sem afbrýðissamur eiginmaður. I. O O. F. 1006189 — 0. Skrifstofa mnflntningsnefndarinnar er í Kirkjiistræti 8 Opin fyrst um sinn ki. 1-—4. Á skrifstofunni fást eyðublöð undír umsóknir um innflutningsleyfi. Innflutningsnefndin. í NÝJA BÍ0 Prinsessan. Sjónleikur í 3 þáttum um ástir ungrar konungsdóttur. Aðalhlutverkin leika: Nicolai Johansen, frú Fritz Petersen, Aage HerteL. Sjálfboðalið. Drengir og telpur óskast til að selja slaufur og blöð 19. júní. Komi kl. 11 f. h. í Goodtemplarahúsið. L&Kdsspítalasjöðsnef ndin Islandsmálin á þingi Dana. Eftirfarandi útdrátt úr umræiS- imum í danska ríkisþinginu hefij- iréttarritari Vísis í Khöfn símaö, \ cn skeytið tafist eitthvaS á lei'S- inni. Khöfn, 15. júní. Borgbjerg var framsögumaöur ineiri hluta íslancfsmálanefndar- innar í þjóöþinginu, og mælti á þessa leiS: — ÞaS hefir veriö taliS of miki'5 irjálslyndi, a<5 senda fulltrúa til Seykjavíkur. En þar sem vér er- tun vissir um góða afstö'ðu vora í þessu máli, þá þurfum vér eigi að nttast samningaformið. Það er á- reiðanlegt, að nú er heppilegri tími til samninga heldur en nokkru sinni endranær og öll þjóðin mun láta fylgja sendimönnunum óskir «m það, að samningarnir takist veþ «g að háðir málsaðiljar verði á- iiægðir. Ef til vill verður samning-' iinum haldið áfram hér í Kaup- mannahöfn. *Vér verðurn að óska þess samhuga, að árangurinn af scndiförinni verði eigi að eins til f;ess að fullnægja kröfum íslend- inga um sjálfstæði, heldur verði úr |>ví samningar milli tveggja þjóða tim reglulegt ríkjasamband. Framsögumaður minni hlutans johan Knudsen, mælti: Síðan ákveðið var að samningar skyldu fram fara í Reykjavík höf- «un vér haldið fast við það, að sendinefndin hefði takmarkað um- l»oð. — Vér erum fylgjandi að ís- lendingar fái aukið sjálfstæði inn ■a við en vér álítum að sambandinu sé slitið meði því, ef ísland gerist sjálfstætt konungsríki. Vér höll- umst að skoðun dönsku millilanda- uefndarinnar 1907 og höldum sér- staklega fast við það að fáni sé sameiginlegur. Enda þótt dönsku sendinefndarmennirnir kæmust að samningum við Islendinga, þá telj- vm vér oss eigi bundna við það, að fallast á þá sanininga. En þar sem það mundi mjög erfitt að kom- ast hjá því, þá vilja íhaldsmCnn eigi hafa neinn fulltrúa í nefndinni og leggja til að samningum sé frestað. Borgbjerg mælti: Það er auð- vitað að allir flokkar vilja það að íeglulegt ríkjasamband haldist, eu Knudsen rökstyður afstöðu ihalds- manna, að vilja ekki taka þátt í samningum, með því að úrslitin séu óviss. Hvar þekkja menn þess dæmi, að samningar hafi byrjað þannig, að úrslitin væru viss fyrir- fram? Það væri laglegt ef vér skoruðunist nú undan því að semja viö Islendinga. Edvard Brandes, fjármálaráö- herra mælti: Vér getum eigi dreg- ið samningana á langinn með því s.ð ákveða það fyrirfram að hverju vér viljum ganga og að hverju vér viljum ekki ganga. Mér þylcir það leitt, að ósamkomulag skuli vera, hér um þetta mál, því að fulltrúar vorir munu komast að raun um j>að, að öll íslenska þjóðin stendur sem einn maður að baki fulltrúa sinna. En því er eigi að heilsa um dönsku fulltrúana. En þótt liægri menn neiti að taka þátt í samning- unum, ])á munum vér taka þá upp og halda þeim fram af góðum vilja og með bestu vonum um góð- an árangur. í landsþinginu mælti Kragh stuttlega með tillögu meiri hlutans og kvaðst vona það, að þótt samn- ingar hefðu oft farið út um þúfur áður, a‘S nú mætti takast aS kom- ast að heppilegri niðurstöðu og góðum árangri. Alex. Foss, framsögum. minni hlutans, hélt langa ræðu og gerði grein fyrir afstöðu íhaldsmanna. Sagði hann, að með þvi aö senda fulltrúa til Reykjavíkur, væri þeim i rauninni, ef ekki að forminu, gef- ið vald til þess að fullgera samn-- inga, og þyrfti því að takmarka mjög valdsvið nefndarinnar svo að Danir hefðu alveg óbundnar hend- ur eftir, því að eigi væri það til- gangurinn með samningunum að slíta ríkiseininguna. Edvard Brandes studdi mál Kraghs, kvaðst þó heldur hefði kosið að samningar hefðu farið fram í Kaupmannahöfn, en þaS væri ójiarfi að hafna því að setnja i Reykjavík. Sendinefndin mundi eigi fá neitt fullveldi til þess að gera fullnaðarsamninga. Eftir nokkrar lengri umræður var gengið til atkvæðagreiðslu og tillögur meiri hluta nefndarinnar samþyktar. Simskeyti frá fréttaritara Vísis. Khöfn, 16. júní. Frá Rómaborg er símað, að Aust- lyríkismenn hafi hafið grimnii- lega sókn hjá Ostico, Bernta, Biave, á Asiago-hásléttunni, hjá Groppa og á sléttlendinu. Bretar tilkynna að bandamenn haldi sínu i hægra hermarmi, en í vinstra herarmi hafi Þjóðverjar sótt fram um 1000 metra og mn 2500 metra í miðju. •Khöfn, 17. júní árd. Frá Wien er símað, að Austur- ríkismenn hafi ruðst inn i þriðju varnarlínu ítala hjá Brenta og tek- ið 6000 fanga. Fyrir austan Brenta hafa þeir mist aftur ])aö sem þeir liöfðu unnið. Ftá Róm er símað aö áhlaupum óvinanna hafi víðasthvar verið lirundið í fremstu varnarlínu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.