Vísir - 29.08.1929, Blaðsíða 3

Vísir - 29.08.1929, Blaðsíða 3
Iðnskólaþing var haldið í Kaupmannahöfn í fyrra mánuði, dágana 10.—13. júlí, og var fulltrúum boðið þangað frá öllurn Norðurlönd- um. Ekki munu fulltrúar héð- an hafa fengið utanfararstyrk itil þess að sækja þing þetta, en greitt mun þó hafa verið fyrir einum fulitrúa þangað frá Ak- ureyri, og héðan fór af liálfu iðnaðarmanna Helgi H. Eiríks- aon, skólastjóri Iðnskólans. Hinum íslensku fulltrúum °var mjög vel fagnað á þinginu, og er þess getið i dönskum blöð- um, að Helgi H. Eiríksson hafi við setningu þingsins flutt því kveðju frá íslandi. — Sú at- höfn fór fram með mikilli við- liöfn í Oddfellow-höllinni, og •var konungur þar viðstaddur og margt annað stórmenni. Erindi voru flutt um ýmisleg •mál, varðandi iðnaðarmenn, og urðu um þau meiri og minni umræður, Má sjá, af blaðafregn- um, að H. H. Eiriksson hefir tekið nokkurn iþátt í þeim um- •ræðum. Sýningar voru haldnar í sam- bandi við þetta þing og gestun- .um var skemt á marga lund. ‘ Hdrrauleprástæínr. „Ekki er ein báran stök,“ má •segja um ástæður fólksins að Krossi á Barðaströnd. Eins og mönnum er i fersku minni, brann hærinn að Iírossi til kaldra kola, ásamt innan- -stokksmunum, matarforða, og bókstaflega öllu fémætu. Alt var Ævátrygt, og komst fólkið með naumindum út, klæðlaust eða klæðlítið. Áður en þessi hörmu- 'legi atburður gerðist, höfðu liin ólánssömu lijón átt að stríða við langvarandi veikindi eins af börnum sínum, veikindi, sem orsökuðust af brunaslysi, og reyndust bæði erfið og langvar- andi .Ennfremur hafði bóndinn nýlega keypt matarforða lianda beimili sinu, og fórst liann all- nr í brunanuin. Fjölskyldan, þ. e. hjónin og sjö börn þeirra, öll innan við •fermingaraldur, ásamt aldráðri móður bóndans, stendur nú uppi bjargarlaus. Þó að kalla megi, að hjónin væri bjargálna, úður en bruninn varð, þá eiga þau nú ekkert eftir annað en fénað sinn. Ennþá einu sinni fá nú hinir órlátu og lijálpsömu Reykvik- ingar tækifæri til að rétta bág- stöddu fólki lijálparhönd, — fólki, sem vantar fæði, klæði og búsaskjól. Þ. Ath. Afgreiðsla Vísis tekur fúslega á móti samskotum banda þessu bágstadda heimili. Haldið tönnam yðar vel trelnnm, og þá losnið þér Tlð ýmsa 8júkflóma — en til þess þurfið þér besta tann- pastað — KOLYNOS. Fæst í flestum verslunum borgarinnar og í helldsölu iUá Cal. 12 og 16, æ 88 einnig fjárskot 22 short og long I fyrirliggjandi. | Verðið mjög sanngjarnt. Simi 720. Flugfélag Isiands. Flugfélag íslands hefir fastar áætlunarferðir til Vestmanna- eyja á hverjum föstudegi kl. 9.30 f. h. Nú vildi svo til, að ég keypti farmiða til Eyja síðast- liðinn mánudag, með Súlunni til Eyja á föstudag þ. 23. ágúst, en þann dag var mjög livast á norðan, og var þess vegna ekki flugveður, og sama veður var daginn eftir, en á sunnudag 25. var bliðu-veður og logn. Þá fór ég niður á skrifstofu Flugfélags- ins og spurðist fyrir um, hvort ekki mundi verða flogið til Eyja þann dag, en þá fékk ég þau svör, að það væri mjög mikill norðanstormur við Eyjarnar og ]^pss vegna ekki flugfært. — Mér þótti þetta mjög undarlegt, þvi að allir, sem þekkja nokkuð i Eyjum, vita það, að það er besta veðrið i Eyjunum þegar liann er á norðan og á ytri höfninni er alveg logn og engar öldur. Svo liringdi ég upp mann í Eyjunum og spurði um veður og fékk þau svör, að þar væri besta veður og sléttur sjór á ytri höfninni. Þetta var kl. 12 á liá- degi; svo hringdi ég upp lir. Walter flugstjóra og sagði hon- um frá þessu, en hann sagði, að það væri sama, þeir færu ekk- ert eftir því, sem hinir og þessir segðu, heldur eftir því, sem hinn nýi veðurfræðingur segði, og það mundi alls ekki verða flogið til Eyja þann dag, og þar að auki væri Súlan farin vestur á ísafjörð og kæmi ekki til baka fyrr en kl. 7—8 um kveldið og þá væri of seint að fljúga til Eyja. En það vildi nú svo til, að Súlan kom kl. 5, en þá þóknaðist þeim að fara að fljúga hringflug yfir bæinn, í staðinn fyrir til Vestmanna- eyja, en lir. Walter sagði, að það yrði flogið daginn eftir kl. 9.30 f. h., ef veður leyfði. Svo fór ég á mánudagsmorgun einu sinni ennþá niður á skrifstofu, og þá voru þeir að hugsa um að fljúga til Eyja, þvi að þá var besta veður, en jjegar þeir eru að ákveða sig, kemur dr. Alex- ander Jóliannesson þar inn, og spurði hr. Walter, hvort Súlan gæti ekki farið kl. 11 vestur á Patreksfjörð með farþega og tekið aðra þar til baka. Og þá segir flugmaðurinn, Niemann lield ég að liann lieiti, að hann vildi mikið heldur fljúga þang- að, heldur en til Eyja, þó að það væri áætlunarferð þangað, og svo var það ákveðið, að fara vestur, en sleppa alveg Eyja- ferðinni, sem var búið að láta minst 3 eða 4 farþega bíða eft- ir í 4 daga. Nú vildi ég spyrja: Er svona lagað forsvaranlegt, að draga mann á þessu í 4 daga og af þeim var i 2 daga ágætis flug- veður. Og svo að segja að ekki verði flogið þangað. Þessi áætl- unarferð fellur niður og því er borið við, að það sé ófært veð- ur við Eyjarnar. Og stjóm fé- lagsins, hefi ég frétt úr ábyggi- legum stað, hefir farið fram á við Vestmanneyinga, að þeir veittu einhvem styrk til flug- ferða til Eyja, en sem betur fer sjá Eyjaskeggjar að sér í því, og veita vonandi engan styrk, úr því að það er ekki hægt að treysta betur á Flugfélagið en þetta. Nú vildi égbiðja stjórn Flug- félagsins um að birta ]iað opin- berlega, hvers vegna Súlan fór ekki i áætlunarferðina til Eyja. Ef til vill liafa þeir fengið meira V I S I R fyrir ferðina vestur en til Eyja, eða að flugmanninum er illa við að fara til Vestmannaeyja, en þá ætti Flugfélagið ekki að vera að auglýsa áætlunarferðir þangað vikulega, til þess að fólk sé ekki að treysta því að geta flogið þangað. Rvík, 26. ágúst ’29. Karl Einarsson, verkstjóri. (1 Bæjarfréttir ( Dánarfregn. í gærkveldi andaðist ekkjan Jóreiður Magnúsdóttir, Ný- lendugötu 11, 67 ára að aldri. Banamein hennar var lungna- bólga. Málverkasýning hefir Kristján Magnússon i Goodtemplarahúsinu i dag og fram á sunnudag. Hún verður daglega opin kl. 10 árd. til kl. 9 siðd. Visir liefir nýlega getið þessa unga málara, sem verið hefir vestan hafs að undan- förnu, og nú er kominn hingað til bæjarins eftir nokkurra vikna dvöl á Þingvöllum og víð- ar hér sunnan lands. Páll V. Bjarnason, sýslumaður Snæfellinga, er staddur hér í bænum. Frá Siglufirði var Vísi símað í morgun, að engin síldveiði hefði verið síð- ustu daga. I siðustu viku var síld næi-ri óseljandi og greiddi bræðsluverksmiðja Goos ekki meira en 3 kr. fyrir málið. En nú mun verðið hækkað svo, að tunnan kostar 30 krónur, kem- ur það af því, að íshúsin hafa orðið of sein að fá sér síld. Tunnulítið hefir verið lengst af á Siglufirði í sumar, en nú er þar nóg af tunnum, þvi að hvert tunnuskipið kemur þessa dag- ana á fætur öðru til einkasöl- unnar. Trúlofun. Nýlega hafa birt trúlofun sína ungfrú Sigriður Gísladótt- ir Hamragörðum, Eyjafjöllum, og Ólafur Jónsson, bifreiðai’- stjóri lijá B. S. R. Óðinn fór í gærkveldi áleiðis til Aber- deen. Meðal farþega voru Niels Dungal læknir, Friðrik Dungal, síra Jóhannes Gunnarsson, Frið- rik Gunnarsson o. fl. Samábyrgð íslands. Skrifstofa samábyrgðarinnar er flutt í hús Eimskipafélags Is- Jands, aðra hæð, herbergi 28. Höfuðdagur er í dag. Til veiða fóru í gær Skúli fógeti og Otur, en í morgun Baldur og Gylfi. — ís er nú sagður farinn af Halamiðum og þvi hafa skip- in farið til veiða. G.s. Island fór frá Kaupmannahöfn í gær kl. 10 árdegis. G.s. Botnia fór frá Leith kl. 7 í gærkveldi. Ms. Dronning Alexandrine fór í gærkveldi kl. 8. Meðal farþega voru Haraldur Sigurðs- son og frú, Halldór Sigurðsson úrsm., Björn Sigurðsson, Gísli Halldórsson, stud. jiolyt., Hall- dór Kjartansson, Ungfrú Elsa Nielsen, frú Tribom, Ármann Rr. Eyjólfsson, ungfr. Ellen Brunn o. fl. Knattspyrnumótið. Iíappleikurinn í gærkveldi fór á þá leið að Víkingur sigraði Fram með 3 : 2. Fékk Vikingur vitisspymu á síðustu minútu og reið það baggamuninn. Mótið heldur áfram anað kveld kl. 6% Brúarfoss fór héðan i gærkveldi kl. 10. Meðal farþega voru: Capt. Ás- pinall, Mr. Copland, Björn Bjömsson, Páll ísólfsson og frú, Guðm. Thoroddsen á leið til Lundúna. Ætlar að dveljast í Englandi nokkurar vikur, Guðm. Björnson, landlæknir, frk. Rigmor Hanson, Inga Lisa Hultquist, frú Ingibjörg Steins- dóttir, Jón Blöndal, Gísli Gests- son, stúdent, Agnar Norðfjörð, Ingimundur Guðmundsson, Guðm. Bjarnason, Pétur Daní- elsson, Þórður Þorbjarnarson, Gunnar Bjarnason, Eiríkur Ein- arsson. Á sunnudaginn kemur verður kept um Kapp- róðrarhorn Islands úti við sund- skálann i Örfirisey. Ennfremur verður þreytt 200 stiku bringu- sund og 50 stiku sund, frjáls að- ferð, fyrir drengi. Kept verður um sundþrautarmerki I. S. 1. Vegalengd, 1000 stikur. Til þess að vinna merkið, verða konur að synda vegalengdina á 30 mín. eða skemri tíma, og karlmenn á 26 mín. Þeir sem keppa vilja um sundþrautar- merkið gefi sig fram við sund- skálavörð fyrir þ. 31. þ. m, Áheit á Strandarkirkju, afli. Vísi: 5 kr. (gamalt áheit) frá konu, 15 kr. frá ekkju. Gjöf til fátæku konunnar á Elli- heimilinu: 2 kr. (álieit) frá G. H. Islanfl í erlenflnm Möíura. Blaðið „Morning Post“ í Lon- don birtir ]i. 6. ágúst ágæta grein um skilvrði á íslandi til Tjðruhampur til þéttingar með gluggum bestur og ódýrastur bjá Skipasmíðastðð Reykjavíkur. Ódýrt. Kaffi frá 1 kr. pakkinn, kaffi* bætir frá 50 aur. st, smjörlíki frá 85 aur. stk., sætsaft 40 aur. pe!« tnn, riklingur nýkominn. Terslunin FELL, Njálsgötu 43. Sími 2285; Þnrkaður smáfisknr, selst afar ódýrt í nokkra daga. Hjörtnr Hjartarson, Bræ5raborgar8tíg 1. Sími 1256. Lokuð bitreið 5 manna, lítiö notuð til sölu með tækifærisverði. Upplýsingar gefur Þorkell Þorleifsson, Þingholtsstræti 24. Heima eftir kl. 6. Tikadreng vantar á Goðafoss. líppl. hjá hrytanum. sumarferðalaga. Eru ítarlegar og þarfar upplýsingar í grein- inni, sem er skrifuð af mildlli vehild í garð íslands og íslend- inga, enda er höfundur liennár Mr. Little kennari, sem hér er búsettur og öllum að góðu kunnur. (F.B.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.