Vísir - 31.01.1938, Blaðsíða 3

Vísir - 31.01.1938, Blaðsíða 3
VlSIR Kosningarúpsiit - in í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur níunda sætið í bæjarstjorn Reykjavíkur. Úrslit bæjarstjórnar- kosninga hér í bænum urðu sem hér segir: A-listinn (Samfylkingin) hlaut 6464 atkv. og kom að 5 mönnum. B-listinn ( Framsóknar- fl.) lilaut 1442 atkv. og kom að 1 manni. C-listinn (Sjálfstæðisfl.) hlaut 9893 atkv. og kom að 9 mönnum. D-listinn (Þjóðernissinn- ar) hlaut 277 atkv. og kom engurn að. 154 seðlar voru auðir, 50 atkv. ógild. Atkvæðaseðlar komu frá 18280 kjósend- um. Hlutfallstala níunda mannsins á C-listanum varð 1099 % en sjötta manns á A-listanum 1077V3- Skorti þannig að eins 132 atkvæði á að A-listinn kæmi að Á Akureyri fóru leikar þann- ig, að listi sjálfstæðismanna og óháðra iiorgara kom að fjórum mönniim, framsóknarmenn 3, kommúnistar 3 og sósíalistar 1. Atkvæði féllu þannig: A-listi (A.) .................... 230 B-listi (F.) .................... 708 C-listi (K.)..................... 566 D-listi (S.)................... 898 í kosningunum 1934 fengu sjálfstæðismenn 3 fulltrúa (410 atkv.), framsóknarmenn tvo (377), sosíalistar tvo (210), (406). Þá kom auk þess listi Jóns Sveinssonar bæjarstjóra að tveim mönnum (355) og listi iðnaðarmanna einum (154). í Hafnarfirði urðu úrslitin þau, að samfylkingin liélt velli, en hefir þó tapað frá bæjar- stjórnarkosningunum 1934. — Nu fengu listarnir þessi at- kvæði: A-listi (A.).................. 983 B-listi (S.) ................ 969 Árið 1934 fengu sósíalistar og kommúnistar samanlagt 1029 alkv., en sjálfstæðismenn 823 atkv. Siglufjörður. Þar urðu úrslit- in þau, að sjálfstæðismenn fengu 3 menn kosna, fram- sóknarmenn 1 og rauðliðar 5. A-listi (rauðliðar) ...... 672 B-listi (Framsókn) ...... 253 C-listi (Sjálfstæðisfl.) .... 386 Sú atkvæðagreiðsla, hvort sérstakur bæjarstjóri slcyldi verða, fór á þá leið, að 671 voru með því en 419 á móti. 1934 fóru kosningar svo í Siglufirði að sjálfstæðismennirnir höfðu 3 fulltrúa (366), framsóknarm. 2, (210) séisialistar 2 (204) og kommúnistar tvo fulltrúa (225). 1 Vestmannaeyjum urðu úr- sjötta manninum. Talning atkvæða var lok- ið um kl. 6Y2 í morgun. Nokkuð var um breytingar á atkvæðaseðlum, en ekki eru líkur til þess að þær breytingar hafi áhrif á úr- slit kosninganna. Af C-listanum náðu kosn- ingu: Guðm. Ásbjörnsson út- gerðarmaður, Bjarni Bene- diktsson prófessor, Jakob Möll- er alþm., Guðrún Jónasson frú, Guðm. Eiríksson húsameistari, Valtýr Stefánsson ritstj., Helgi Hermann Eiríksson skólastj., Jón Björnsson kaupmaður og Gunnar Thoroddsen lögfr. Af B-Iista náði kosningu Jónas Jónsson skólastjóri. Af A-lisla voru kosnir Stef- án Jóh. Stefánsson hrm.. Ár- sæll Sigurðsson bókari, Soffía Ingvarsdóttir húsfrú, Jón Axel Pétursson frkvstj. og Björn Bjarnason iðnverkamaður. — Iiéðinn Valdimarsson var sjötti maður listans, Einar 01- geirsson sá sjöundi, Har. Guð- mundsson sá áttundi o. s. frv. slitin þau, að sjálfstæðismenn háru sigur iir hýtum og fengu fimm fulltrúa. Tölur eru þessar þaðan: A-listi (rauðl.) ............ 655 B-listi (Frams.) ............ 195 C-listi (Sjálfst.) .......... 866 D-listi (Þjóðerniss.)....... 62 Samfylkingin kom að þrem mönnum, tapaði einum til Framsóknar. Atkvæði féllu þannig 1934: Sjálfstæðismenn 808 atkv., kommúnistar 449, so- cialistar 276. ísafjörður. Þar eru hlutföllin óbreytt, hvað fulltrúatölu á- hrærir. Sjálfstæðismenn fengu 570 atkv. og 4 fulltrúa, en rauðliðar 725. Við síðustu bæjarstjórnar- kosningar fengu sjálfstæðis- menn 498 atkv., en rauðliðar samtals 678 atkv. Seyðisfjörður. Þar hafa sjálf- stæðismenn fjóra fulltrúa eins og áður og er jafnframt stærsti flokkurinn. Sósíalistar liafa 3 menn, Framsókn 1 og komm- únistar einn. D-listi (S.) ......... 166 atkv. A-listi (A.) ......... 148 — B-listi (F.) ......... 68 — C-listi (K.) .......... 46 — Við siðustu kosningar í bæj- arstjórn (1934) höfðu sjálf- stæðismenn 203 atkv., samfylk- ing socialista og framsóknar- manna 233 atkv. (5 fulltrúa) og kommúnistar 34 atkv. Nes í Norðfirði. Þar fengu sjálfstæðismenn tvo fulltrúa, framsóknarmenn 1 og socialist- ar 6. A-listi (F.) .......... 84 atkv. B-listi (S.) ......... 141 — C-listi (A.) ..........331 — Patreksfjöfður. Þar voru 390 a kjörskrá, en 325 kusu. Sjálf- stæðismenn fengu 128 atkv., og tvo fulltrúa. Samfylkingin fékk 132 atkv. (2), og Framsókn 62 (!)• —’ í Stykkishólmi urðu úrslitin þau, að sjálfstæðismenn fengu 161 atkv. og fjóra fulltrúa í hreppsnefnd, en samfylking so- cialista og framsóknarmanna fékk 131 atkv. og 3 menn kosna. Á Húsavík fengu sjálfstæðis- menn 95 atkv. og einn mann í hreppsnefnd. A-listinn (F.) fékk 131 atkv., 2 menn, B-listi (A) 74 atkv., 1 mann. C-listi (K) 158 atkv. og 3 menn. í Keflavík fengu sjálfstæðis- menn 3 menn í hreppsnefnd, 335 atkv., en lisli sjómanna- og verkamannafélagsins 214 atkv. og tvo menn. í Keflavík voru 776 á kjörskrá, en 549 kusu. Á Eskifirði var lélegust kjör- sókn á öllu landinu. Aðeins 126 manns kusu af 400 á kjörskrá, eða 31,5% og var það vegna þcss, að sjálfstæðismenn buðu ekki fram og sátu heima. A-listinn (samfylkingin) fékk 86 atkv. og fimm menn kosna, en Framsókn 40 atkv. og tvo fulltrúa. I Borgarnesi voru 344 á kjör- skrá, en 303 kusu. A-listinn, listi sjálfstæðismanna, hlaut 144 atkv., 2 menn, en samfylk- ingin 145 atkv. og 3 menn. C- listi, óháðir, fengu sjö atkvæði. Á Blönduósi voru 223 á kjör- skrá, en 191 kusu. B-listi, sjálf- stæðismenn fengu 105 atkv. og þrjá menn, en A-listi, socialistar og Framsókn, 86 atkv. og tvo menn. Á Akranesi féllu atkvæði sem hér segir: C-Iisti (S.) 356 atkv., 3 menn. A-listi (A.) 274 atkv., 3 menn. B-listi (F.) 145 atkv. 1 mann. Á Eyrarbakka sigruðu sjálf- stæðismenn og hlaut listi þeirra: B-listi (S.) 154 atkv., 3 menn A-listi (Vmfél. Báran) 154 atkv. 3 mcnn. Hlutkesti réði úrslitum. Á Stokkseyri urðu úrslit þessi: C-Iisti (S.) 140 atkv., 3 menn. A-Iisti (alþfl. og framsfl.) 98 atkv., 3 menn. B-listi (Iv.) 1 atkv. einn mann. Hreppsnefndarkosning í Ólafsvík. I Ólafsvík kom fram aðeins einn listi til Iireppsnefndarkosn- inga og náðist samkomulag allra flokka um skipun listans og málefnagrundvöll fyrir starfi lireppsnefndar næsta kjörtímabil. — Fimm efstu menn listans eru: Jónas Þor- valdsson skólastjóri, Magnús Guðmundsson sóknarprestur, Jón Gíslason póstafgreiðslu- maður, Gunnlaugur Bjarnason oddvili og Jóhann Iíristjánsson Kosningarúrslit út á landi formaður. —- Fyrsti og sjötti maður er frá Framsóknar- flokknum, annar, þriðji, sjö- undi og áttundi frá Sjálfstæðis- flokknum, og fjórði, fimti, ní- undi og tiundi frá Alþýðu- Hokknum. Sömuleiðis var sam- comulag allra flokka um skip- un skólanefndar og kom fram einn listi og eru efstu menn hans sömu menn og áður liafa verið kosnir af hreppsbúum í kólanefnd. Var livorki kosið í lirepps- nefnd eða skólanefnd, en aðeins sýslunefnd. (FÚ). Slys. Jarðarför systur okkar og móðursystur, Bjargap Havsteen fer fram þriðjudaginn 1. febrúar frá dómkirkjunni. — Athöfnin hefst kl. 1 með bæn á Laugavegi 37. Jarðað verður í Fossvogi. Iíristín Havsteen, Anna Havsteen, Emma Guðjónsdóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar og bróður, UlPiebL Hansen, Stefanía G. Hansen, börn og systkini. 30. jan. FÚ. I gærmorgun vildi það slys til á Jarlsstöðum í Aðaldal er Björn Sigtryggsson bóndi ætl- aði að slcjóta liund, að skotið hljóp aftur úr byssunni i andlit mannsins. Maðurinn lieldur lífi, en hefir hættulega áverka á höfði. Hrakninoar á fróðárhii Pósturinn á leiðinni milli Ól- afsvíkur og Grafar í Milda- lioltshreppi, Ágúst Ólason, bóndi að Máfahlíð, lenti í hrakningum á Fróðárheiði í gær. Með honum var Björn Nikulásson bóndi, að Böðvars- holti og fóru þeir frá Ólafsvík í gærmorgun kl. 8, en þegar þeir voru komnir upp á lieið- ina skall á þá norðaustan liríð- arveður. Voru þeir með' 3 hesta, en þegar þeir komu á lieiðina var Ágúst orðinn svo þreyttur af að brjóta fyrir hestun- um, að hann ætlaði að reka þá niður eftir. Þá varð hann þess var, að hestarnir vildu slá sér undan veðrinu, svo að hann fór fyrir þá og beindi þeim í veðr- ið. — Litlu síðar hröpuðu báðir mennirnir og tveir hestanna fram af snjóhengju. Var þetta í svonefndu Egilsskarði og höfðu þeir lirapað um 100 metra liæð. Sakaði þá ekki vegna þess að snjór var mikill. Þeir urðu að yfirgefa hestana og komast til bæjar — Knarrar i Breiðuvík - kl. 20 i gærkveldi og var veður þá svo vont, að enginn heima- manna þar treysti sér til þess að leita liestanna. Kl. 3 i nótt birti hríðina og þá fundu þeir báða liestana og einnig hinn þriðja, sem að líkindum hefir lirapað síðar. t morgun hélt pósturinn áfram ferð sinni, þá í björtu veðri. (FÚ. í gær.). Samvinnubátar Seyðisfjarðar — fjórir að tölu — lögðu af stað til Keflavíkur aðfai’anótt 27. þessa mánaðar. — í gær lágu bátarnir veðúrteptir í Hornafirði. (FÚ í gær). Ör Skagaflrði. MÆÐIVEIKIN. Mæðiveikin liefir borist á tvo bæi i Skagafjarðarsýslu — Hól- kot í Staðarhreppi og Halldórs- staði i Seylulireppi. í Hólkoti hefir öllu fé þegar verið lógað og að sögn fréttaritara er talað um að lóga einnig öllu fé á Ilalldórsstöðum. Er eiganda það í sjálfsvald sett meðan hann liefir féð i strangri gæslu. Nýja varnargirðingu er verið að und- irhúa í liéraðinu og hafa staur- ar verið reknir niður með vest- anverðum Héraðsvötnum eystri norðan frá sjó óg suður um Akra. Komið hefir til orða að leggja girðinguna þaðan um Vatnsskarð vestur í Blöndu, en ekki er það fullráðið. Ágætur þorskafli hefir verið i allan vetur i Skaga- firði innanverðum og nokkur millisíld. Fiskur hefir einnig verið þar tvo undanfarna vetur en í vetur hefir fiskurinn verið vænstur og talsvert af fiskinum er með þroskuð hrogn og svil. Til skamms tíma liafa úti- gangshross i héraðinu verið i haustlioldum og víða hefir sauðfé litið verið gefið annað en síldarmjöl með beitinni. FÚ. Vígbúnaðor Banda- rlkjamanna fagnað- arefoi. London 30. jan. FÚ. 1 ræðu, sem hann flutti í London i gær, sagði Duff-Coo- per, fyrverandi hermálaráð- herra Breta, að Englendingar yfirleitt fögnuðu mjög þeim fréttum, að Bandaríkin ætluðu að auka herafla sinn að mikl- um mun. Sterkur amerískur her, sagði hann, væri ein besta tryggingin fyrir frið og öryggi í heiminum. Bænarskrár trá Gyðingnm. London 30. jan. FÚ. Þjóðabandalagsráðinu liafa borist fjórar bænarskrár frá Gyðingum í Rúmeníu. Forseti ráðsins sagði i gær, að hann myndi mæla með því, að full- trúar Breta og Frakka skipuðu ásanit sér, nefnd til þess að ræða um ,meðfe!rð (þéirra og rannsókn á máli rúmenskra Gyðinga. fleimilisiínaðarféiag Norðnriands Heimilisiðnarfélag Norður- lands hélt aðalfund sinn á Ak- ureyri 23. þ. m. Skýrslur fé- lagsins sýndu, að veittur hafði verið styrkur til 18 námskeiða á liðnu ári og til þess varið kr. 1390,00. Stjórn félagsins skipa frú Elísabet Friðriksdóttir, Jón Jónatansson, Bernhard Laxdal, Magnússína Kristinsdóttir og Guðrún Ólafsdóttir. Sprengingin við Róm. Það var opinberlega tilkynt í gærkveldi í Róm, að 9 menn hefðu farist við sprenginguna, sem átti sér stað í hergagna- verksmiðju um 30 enskar mil- ur fyrir utan horgina í gær. — Þetta er tala þeirra, sem fundist liafa líkin af, en þeir, sem voru sjónarvottar að at- burðinum, fullyrða, að 50 mann, að minsta kosti, liafi farist. í hinni opinberlegu yfir- lýsingu er sagt, að um 200 manns hafi særst, en aðrar fregnir herma, að þeir séu á fjórða hundrað. Ljósmyndarafélag Islands hélt aðalfund sinn síðastlið- inn föstudag. — í stjórn félags- ins cru: Ólafur Magnússon, Carl Ólafsson og Þorleifur Þorjeifs- son og fulltrúi í Iðnráði er Sig- urður Guðmundsson. Félagið var stofnað 1926 og er stéttar- félag ljósmyndara hvar'sem er á landinu. Félagið vinnur að hagsmunamálum Ijósmyndara og gegn öllu, sem brotið getur í bága við hagsmunasamband þeirra. Félagið hefir á undan- íörnum árum komið i fram- kvæmd ýmsum áhugamálum og kjarabótum fyrir stéttina og má þar til nefna: Sameiginlegt verðlag á myndum og lokunai’- tíma í vinnustofum. Sérstaklega hefir félagið vakandi áhuga á þvi, að framfylgt sá ákvæðum Iðnlaganna, gagnvart atvinnu- réttindum lærðra Ijósmyndara. (FO). Samandregnar fréttir Mesta skipaútgerðarborg Norð- urlanda. Seinuslu siglingamálaskýrsl- ur leiða i ljós, að Oslo er nú mesta skipaútgerðarborg Norð- urlanda með 1.613.000 smálest- ir brutto. Þar næst kemur Berg- en, Ivaupmannahöfn, Gauta- borg, Tönsberg, Stokkhólmur, Haugasund, Stavanger, Sande- fjord og Arendal. NRP—FB. 50 ÁRA STARFSAFMÆLI HERSINS í OSLÓ. Fimtíu ára starfsafmæli Sáluhjálparhersins i Oslo var hátíðlegt lialdið í gær með sam- komu í samkomusal Háskólans„ Meðal viðstaddra voru lconungs- hjónin, Olafur konungsefni og Martha krónprinsessa, Ny- gaardsvold forsætisráðherra og kirkjumálaráðherrann, Kirkju- málaráðherrann fluttí ræðu og óskaði Hernum til liamingju með afmælið og blessunar í framtiðinni. NRP. — FB. Furuseth, Bandarikjamaður af norskum ættum, fyrrum for- seti Alþjóðasjómannasambands- ins, er látinn í Washington, 84 ára að aldri. Sjöfartstidende, sem skrifar um lát hans, segir að hann hafi verið mesti sjó- mannaleiðtogi, sem uppi hafi verið nokkuru sinni. Enginn liafi gert sjómannastéttinni líkt því eins mikið gagn og hann. — Koht utanríkismálaráðherra hefir simleiðis heðið norska sendiherrann í Washington að færa amerísku sjómannafélög- unum samúð Norðmanna i til- efni af fráfalli Furuseths. — NRP. — FB.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.