Vísir - 19.05.1952, Blaðsíða 1
42. árg.
Mánudaginn 19. maí 1952
111. tbl.
Elísabet fær
sér skemmti-
snekkju. -
Einkaskeyti frá A.P. —
London í gær.
Konimgsfjölskyldan brezka
hefir nú pantað fyrstu
skemmtisnekkjuna sína í 53
ár, en hún verður ekki full-
gerð fyrr en árið 1954. Smíði
slíks skips var fyrirhuguð
fyrir stríð, en féll niður af
eðlilegum ástæðum á stríðs-
árunum. Verður snekkjan
smiðuð hjá skipasmíðastöð
þeirri, er smíðaði „Drottn-
ingarnar“, hafskipin miklu.
Hún verður um 4000 lestir,
380 fet á lengd og 55 á
breidd, hraðinn 21 míla á
klst. Hún mun kosta um
milljón punda, og verður
breytt í spítalaskip, ef stríð
brýzt út.
met ús' atnerískw fluff*
i.
Slóð efftif fflugmennina
sásl h|á þvi.
Laust fyrir hádegi bárast þær fregnir frá leitar-
flokkum þeim, sem eru á Eyjafjaliajökli, að fundist
hefði lítilsháttar brak úr fiugvéiiimi og hjá hví hefðu
sézt fótspor, sem ætlunin var að fylgja. Það var ieitar-
flokkurinn undir stjórn Árna Stefánssonar, sem parna
var á ferð, og tiikynnti þetta til fiugvélar, sem var á
fiugi yfir jöklinum og sendi tiíkynningu þegar áfram
hingað.
Stolið rúmlega 70 þús kr,
úr læstum peningaskáp.
Sögulegir bílaþjófnaðir í nótt.
Um helgina voru framin mörg innbrot og þjófnaðir hér í
bænum. Á einum staðnum var stolið yfir 70 þús. kr. í pening-
um, annarsstaðar miklu af skartgripum og loks var stolið 3
bifreiðum.
I fyrrinótt var brotizt inn í
verzlunina Fálkann á Lauga-
vegi með því að brotin hafði
verið rúða í hurð á bakhlið
hússins, en hendi síðan smeygt
inn um rúðuna og smekklásinn
opnaður.
Úr verzluninni var innan-
gengt upp á loft, en þar eru
skrifstofur fyrirtækisins.Skrif-
stofuhurð hafði verið sprengd
upp og síðan sprengdar upp
hirzlur þar inni og rótað til í
þeim.
Ennfremur hafði verið farið
í peningaskáp með því að
meitlað hafði verið gat á fram-
hlið hans og hann síðan opn-
aður. í skápnum voru samtals
72 þús. kr.; af þeim átti fyrir-
JFwndur Sjálf*
siceðisfélag-
aunu.
Sjálfstæðisfélögin haida
fund í Sjálfstæðishúsinu í
kvöid og ræðir Olafur
Thors formaður Sjálfstæð-
isflokksins um forsetakosn-
ingar. Skorað er á Sjálf-
stæðismenn að f jölmenna á
fundinn, sem hefst klukkan
20,30.
tækið 30 þús. kr., en gjaldkeri
þess átti sjálfur 42 þús. kr.
Voru peningar þessir allir í
reiðu fé.
Reynt hafði verið að sprengja
upp aðra hurð á ganginum á
sömu hæð, en hætt við það aft-
ur.
Húsvörðurinn í húsinu kvaðst
hafa heyrt eitthvert dump um
tvöleytið um nóttina, og leit þá
út um glugga, en sá ekkert at-
hugavert.
Um helgina var farið inn í
trésmíðaverkstæði, sem er til
húsa í Skipholti 7. Þaðan var
ekki saknað neins nema eins
vinnuslopps, sem er brúnn að
lit.
Á laugardagskvöldið var
brotizt inn í kjallaraherbergi á
Hverfisgötu 114 og stolið það-
an 670 krónum úr læstum skáp
í herþerginu.
Lögreglan hefir handtekið
tvo menn er hún grunaði um að
vera valdir að þjófnaðinum og
hefir annar þeirra þegar játað
á sig þjófnaðinn.
Brotizt var í nótt inn í skraut-
gripaverzlun Georgs E.Hannah
á Barónsstíg með því að kastað
var steini í sýningarglugga
verzlunarinnar og hann brot-
inn.
Að því búnu'lét þjófurinn
greipar sópa í glugganum og tók
2 karlmannsarmbandsúr, 4
kvenarmbandsúr, armband,
hálsfesti, tvenna eyrnalokka og
Silfurskál.
En maður nokkur sá til
mannsins, sá þegar hann braut
rúðuna og stakk á sig hlutun-
um úr verzluninni. Og það sem
betra er, hann þekkti þjófinn
og gerði lögreglunni aðvart.
Litlu síðar fann lögreglan
þjófin með þýfið niðri í bæ og
handtók hann. Maður þessi
heitir Baldur Gissurarson til
heimilis að Snorrabraut 40.
Þá var þremur bifreiðum
stolið hér í bænum í nótt.
Var lögreglunni tilkynnt um
hálf fjögur leytið í nótt, að bif-
Framh. a 4. síðu.
Talið sennilegt að mennimir geti
verið á lífi uppi á jöklinum.
Ekki er talið útilokað að áhöfn amerísku björgunarflugvél-
arinnar kunni að vera á lífi, einhversstaðar á Eyjafjallajökli.
í gær fann leitarflokkur er fór upp jökulinn að norðvestan
loftnetsbút áfastan flugdreka, en slíkur útbúnaður er notaður
við sendiiigu neyðarskeyta.
lÍQsningafftondir
á BfaBiu.
Kosningar standa fyrir dyr-
um á Italíu næstkomandi sunnu
dag.
Voru kosningafundir víða
haldnir í gær og m. a. var
75.000 manna útifundur haldinn
í Rómaborg.
Lögreglan dreifði 3000 manna
liði nýfasista. Reyndu þeir að
ganga fylktu liði um göturnar.
Prin v í’sbbsbs 23
sSníkit' bbí 32.
Prins tefldi fjölskák í Hafn-
arfirði í gær, vann 19 skákir,
gerði 8 jafntefli, en tapaði 5.
Báðar einvígisskákimar við
Guðjón fóru í bið. Þar hefir
Guðjón vinningsmöguleika í
fyrri skákinni, en jafnteflis-
möguleika í þeirri síðari.
Talið er víst að útbúnaður
þesi geti einungis verið úr
týndu vélinni, og gera menn sér
nú vonir um, að ef til vill kunni
mennirnir fimm að vera á lífi.
í dag munu margir leitarf lokkar
leita auk flugvéla, sem fljúga
munu yfir jökulinn, ef veðúr
leyfir.
Eins og skýrt hefir verið frá
áður í blaðinu hefir ekkert til
amerísku flugvélarinnar spurzt
síðan kl. 14,35 á föstudag, er
hún var send til aðstoðar ame-
rískri flotaflugvél, sem var með
bilaðan hreyfil.
Vart varð við flugvélina í
Múlakoti og Merkurbæjum og
samkvæmt því virtist hún
stefna í línu á Goðastein, sem
er hátindur Eyjafjallajökuls.
Er flugvélin svaraði ekki kall
merki frá Keflavíkurflugvelli,
var strax send önnur björgun-
arflugvél frá Keflavík, en hún
varð að snúa við aftur vegna
slæmra veðurskilyrða.
Flugumferðarstjórnin leitaði
allra upplýsinga um ferðir flug-
vélarinnar, sem saknað var.
Jafnframt var flugbjörgunar-
sveitinni tilkynnt hvernig kom-
ið var. Brá hún þegar við og
sendi nokkrar bifreiðar með
hjálparsveitina austur. Tveir
leitarflokkar höfðu bækistöð að
Stóru-Mörk, en einn á Þorvalds
eyri. Lögðu þeir strax á jökul-
inn er austur kom. í birtingu á
laugardag var jökullinn hulinn
í dimmviðri, enda slydda og
hríð og veðurofsi svo mikill að
varla var stætt og varð því að
hverfa frá leitinni í svip.
Ráðist til uppgöngu á ný.
Um fimmleytið á laugardag
lögðu leitarflokkarnir, sem
höfðu bækistöð í Stóru-Mörk
upp að nýju, með tjöld og við-
leguútbúnað og gerðu ráð fyrir
að dvelja á jöklinum þar til er
birti. Hafði Landssíminn lagt
leitarflokkunum til talstöðvar
fyrir bifreiðar og gönguflokka,
énda kennt sveitinni meðferð
þeirra. Voru leitarflokkarnir
stöðugt í sambandi við bifreiðar
sveitarinnar, sem aftur höfðu
fjarskiptasamband við Gufu-
nes og Hornafjörð. Þessir leitar-
flokkar komu aftur til byggða í
gærmorgun og hafði annar
flokkurinn orðið að skilja tjöld
sín eftir á jöklinum vegna ó-
veðurs.
Meðan þessu fór fram var
frekari undirbúningur hafður
með höndum á Keflavíkurílug-
velli, og var þaðan sendur belta
bíll í gær, en áhöfn hans eru
tveir menn frá herliðinu og tíu
manna leitarflokkur frá flug-
björgunarsveitinni. Var lagt af
stað á bifreiðum frá Stóru Mörk
en erfitt reyndist að koma
henni upp fyrsta hjallann og
var þá leitað fyrir sér í Syðstu-
Mörk og gekk þá allt greiðlegar
og var bifreiðin komin upp á
jökulröndina seinni hluta dags
í gær og var þá ætlunin að
halda rakleitt upp á hájökulinn.
Björgunarflugvélar hafa
komið frá Nýfundnalandi og
Evrópti til Keflavíkurflugvall-
ar og voru þær flugvélar að
minnsta kosti tilbúnar að hefja
leitarflug. Hafði birt lítið eitt
á jöklinum, en lágjökullinn var
hulinn þoku. Þrjár smáflugvél-
ar björgunarsveitarinnar flugu
austur, en gátu ekki aðhafzt
sökum óveðurs.
Póstferðir
hregtast.
Nokkrar breytingar hafa orð-
ið á póstferðum í bili sökum
skömmtunar á flugvélabenzíni.
Fyrst um sinn fer Gullfaxi til
Bretlandseyja og Kaupmanna-
hafnar á mánudögum og kem-
ur aftur á þriðjudögum. í þess-
ari viku er aukaferð, því að
Gullfaxi sækir danska leikflokk
inn á miðvikudaginn. Norður-
landapóstur kemur með amer-
ískri flugvél á laugardögum og
Ameríkupóstur kemur á
fimmtudögum milli 11 og 12.
Gullfoss fer til Leith og Kaup
mannahafnar þann 24. maí og
Drottningin 27.
Eldfter í oliu-
geymfum í Texas
Mikill eldur geysaði í lok
fyrri viku í borginni Corpus
Christi í Texas.
Kviknaði í olíugeymum og leit
um tíma út fyrir, að eldur
mýndi granda aliri borginni. —
Fyrir afburða dugnað slökkvi-
og hjálparliðs tókst að hindra
útbreiðslu eldsins. Tjónið er á-
eetlað yfir 1 millj. dollara.