Morgunblaðið - 02.08.1917, Blaðsíða 1
Fimtudag
4. árgangr
2,
ágúst 1917
268,
tðlublað
Ritstjórnarsíœ! nr. 500
Sjónleijtur i 4 þáttum
eftir Roland Talbor.
Tekinn og leikinn i Englandi af
frægum amerískum leikurum.
Myndin er f'illeg, áhrifamikil og
afarspennandi frá byrjun til enda.
Konráð R. Konráðsson
læknir
Þingholtssttæti 21. Sími 575.
Heima 10—12 og 6—7.
Frá alþingi.
Nýungar.
1. Misœrisskattur aý tekjum.
Bjarni Jónsson frá Vogi flytur frv.
snikið um misærisskatt af tekjum.
x. gr. Hver sá maður er hefir
meiri hreinar tekjur en 2500 kr.
skal gjalda misærisskatt af þeim
tekjum, sem hann hefir fram yfir
þá upphæð.
2. gr. Skattskyldir menn eftir
*l. gr. þessara laga skulu gjalda
sem hér segir:
Af fyrstu 500 kr. fram
yfir 2500 kr. . . . 2%
Af næstu 1000 kr. þar
fyrir ofan .... 3 %
Af næstu 1000 kr. þar
fyrir ofan • • • • 3 Va %
Af næstu 1000 kr. þar
fyrir ofan .... 4o/0
Síðan skal hundraðsgjaldið vaxa
um Va viö hver þúsundaskifti þar
til það nær io°/o. Eftir það vex
það um 2 %o unz það nær 15 %,
en þá um 1 %0 þar til það er
orðið 20%.
3. gr. Hreinar tekjur teljast laun
starfsmanna og tekjur af fyrirtækj-
um að frádregnum kostnaði. Fram-
færslukostnaður heimilisins verður
ekki dreginn frá.
I 4. gr. eru ákvæði um, að stjórn-
jn skipi skattanefnd í hverri sjí-slu
og kaupstað og yfirskattanefnd fyrir
land alt. Mönnum er skylt að taka
við skipun, og nefndirnar eiga að
vinna kauplaust. Þær skulu vinna
eið að starfi sínu.
5. gr. er um að ýmsum stjórnar-
völdum sé skylt að fræða skattanefndir
um hag manna. >Skal það talin em-
bættisafglöpun, ef þessi völd tregðast
við, og varða auk þess sektum frá
200—2000 kr.«
6. gr. ei um að stjórnarráð segi
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
fyrir um hvernig tekjur á að telja
til skatts, en skattanefndir birti og
heimti að menn segi sjálfir til tekna
að viðlögðum drengskap.
7. gr. Nú vanrækir maður að
segja til um tekjur sínar, og skal
þá sknttanefnd setja honum skatt,
en kæra frá hans hendi er ónýt,
nema hann sanni, að gild forföll
hafi valdið þvi að hann sagði eigi
til.
8. gr. Telji maðnr vísvitandi
tekjur sinar rangt, þá skal hann
gjalda skattinn sjöfaldan, nemahann
vilji heldur láta málið koma fyrir
dómstólana. Fara skal með slík
mál sem sakamál, og skal refsað
fyrir sem skjalafals, ef sannast
sviksamlegt framtal.
9. gr. Skylt er bönkum og
öðrum stofnunum til fjárgeymslu
að segja skattanefndum til um ei n
manna i bankanum eða stofnun-
inni og tekjur þeirra af peningum
og verðbréfum.
10. gr. Á skattanefndum hvilir
rik þagnarskylda, en sé afbrugðið
skal það bæta 1000—5000 kr.
11. gr. Vinni skattanefndir verk
sitt seinlega, má knýja þær til
framkvæmda með dagsektum, sem
stjórnarráðið ákveður.
í 12. gr. eru fyrirmæli um hve
nær setja á i skatt. Tekjur frá síð-
asta nýári eru skattskyldar.
13. gr. Fé þessu má verja til
þess að jafna misæri það í verzl-
un, sém leiðir af heimsstyrjöldinni.
Verði afgangur, skal hann renna
í landhelgissjóð.
14. gr. Sá misæriskattur skal
falla niður, sem eigi er fallinn i
gjalddaga, þá er misærinu léttir af.
15. gr. Lög þessi ganga þegar
i gildi og standa til næsta þings.
Greinargerð:
Telja má það vist, að landssjóði
verði féskylft, er nú mun brátt
reka að þvi, að hann þurfi að leggja
fram fé til hjálpar öllum almenn-
ingi. Þess vegna þykir mér rétt
að sjá honum fyrir nokkrum tekju-
auka. Hefi eg leitast við að láta
koma sem léttast niður, en eink-
um er tilætlun min, að lög þessi
afstýri þeim óvinafagnaði, að leng-
ist æfi verðhækkunartollsins*.
Frv. er líkt þvi sem Bjarni flutti
á þinginu 1915, er þá var vísað til
stjórnarinnar með rökstuddri dagskrá.
2. Bœjarstjórnarlöf Isaýjarðar.
Frv. Magnúsar Torfasonar um það
efni er komið úr allsherjarnefnd Ed.
Nefndin gerir nokkrar breytingar
við frv., svo sem að fella úr öll á-
kvæði, er voru miðuð við það, að
Eyrarhreppur sameinaðist ísafirði, en,
frv. um það er nú fallið, svo sem
kunnugt er. Leggur nefndin annars
til, að frv. verði samþykt.
Framsögum. er Magnús Torfason.
ísafoldarprentsmiðja
3. Mali og vigtartœki.
Allsherjarnefnd Ed. hefir einnig
athugað frv. stjórnarinnar um mæli
og vigtartæki. Ræður nefndin til að
það nái fram að ganga með allmörg-
um breytingum á orðfæri. M. a.
vill nefddin breyta »mæli og vigtar-
tæki* I:
mælitæki og vogaráhöld.
4. Bifreiðar.
Frá allsherjarnefnd Nd. er komið
svo hljóðandi álit um bifreiðafrv.
Einars Arnórssonar:
Nefndin hefir athugað frumvarp
þetta og leyfir sér eindregið að ráða
háttv. deild til að samþykkja það
með tveimur viðaukatillögum.
1. Viðaukatillagan geymir i sér
breytingu á 2. gr. bifreiðalaganna.
Munur á téðri gr. og viðaukatillög-
unni er fólgin þar í, að stjórnarráð-
ið getur eftir viðaukatillögunni tak-
markað eða bannað bifreiðaaksty á
vegum eða vegaköflum, enda þótt
hann verði eigi talinn hœttulegur eða
til sérlegra óþæginda ýyrir aðra um-
ýerð. Það er nægilegt til slíks banns
eða takmörkunar, ef akstur veldur að
öðru leyti óþægindum. Næturakstur
hér' í Reykjavik er t. d. nú þegar
að verða plága mörgum manni, og
miðar aðallega til þess að skemta
nautnasjúku fólki, sem eigi virðist
annað hafa að gera við tíma sinn
eða fé, en að leita sér næturskemt-
ana í bifreiðum.
í sambandi hér við má annars
geta þess, að bifreiðaferðir innan
bæja eða kauptúna hér á landi eru
svo að segja eingöngu til skemtun-
ar. Bæjarmenn nota eigi bifreiðar til
starfa sins eða frá honum, og þvi
sýnist alls engin ástæða til að leyfa
hraðari akstur en svo, að hættulaus
verði og til sem allra minstra ó-
þæginda að unt er.
2. Viðaukatillagan hefir þá breyt-
ingu að. geyma á 1. málsgr. 7. gr.
bifreiðalaganna, að ökumönnuœ skuli
skylt að stöðva, eigi að eins bifreið-
ina, heldur og gangvélina (mótorinn)
þegar hestar hræðast eða óróast. Nú
er það svo, að þeir stöðva að visu
vagninn, en neita að stöðva vélina,
af þvi að þeim sé það eigi lögskylt.
Vélin heldur þvi áfram, en hljóð
hennar eru nægileg til að trylla áður
hrædda eða órólega hesta.
3. breyt.till. er til hagræðis bif-
reiðaeigendum. (Sú brtt. er um að
lögin öðlist þegar gildi, en stjórnar-
ráðið geti veitt frest til að fullnægja
ákvæðunum um hraðamæli og leið-
armæli).
Framsögumaður er Einar Arnórs-
son.
Úr neðri deild i gær.
1. Frv. um framlenging á gildi
laga um vörutoll; 2. umr.
Frv. samþ. og visað til 3. umr. í
e. hlj.
Afereiðsinsimi nr. 500
gaiBtagaEBEawiiMiiiLjiBE
JlÚJTi BÍÓ
Gimsteinaþjófar.
Leynilögreglusjónleikur
í 3 þáttum.
Leikinn af Nord. Films Co.
Aðalhlutverkin leika:
Ebba Thomsen-Lund.
Th. Lund, Robert Dinesen,
Henr. Seemann, Johs. Ring.
Mynd þessi er frá upphafi til
enda jafnspennandi.
— Töiusett sæti. —
witiiii iiiii 1 j, jii, ■
4 maima hljóðfæraflokknr
(Orkestei)
fæst á Café frá ij. ágúst.
Tilboð, merkt: » M u s i k «, með
kaupupphæð, leggist inn á afgreiðslu
Mbl. fyrir 6. þ. m.
Jarðarför Jósefs sðl. Jónssonar sem and-
aðist 17. júli, fer fram frá heimili hans,
Syðri-Klöpp við Óðinsgötu, 2. ág. kl. IP/j.
Aðstandendnr hins látna.
2. Frv. um breyting á og við-
auka við lög um heimild fyrir lands-
stjórnina til ýmsra ráðstafana út af
Norðurálfuófriðnum; 2. umr.
Frv. samþ. og vísað til 3. umr. í
e. hlj.
3. Frv. um þóknun til þeirra
manna er vitni bera fyrir dómi; 2.
umr.
Frv, samþ. með dálitlum breyting-
um og vísnð til 3. umr. i e. hlj.
4. Tillaga til þingsál. um útveg-
un á nauðsynjavörum; síðari umr.
Till. samþ. með breytingum og
agfreidd ti' stjórnarinnar.
5. Frv. um heimild handa bæjar-
og sveitarstjórnum til að taka eign-
arnámi eða á leigu brauðgerðarhús
o. fl.; 3. umr.
Eftir nokkrar umræður var frv.
tekið út af dagskrá.
6. Frv. um viðauka við lög um
samþyktir um kynbætur hesta; 2. umr.
Frv. samþ. og vísað til 3. umr. í
e. hlj.
7. Frv. um breyting á 1, gr. toll-
laga fyrir ísland; 2. umr.
Frv. samþ. með litlum breytingum
og vísað til 3. umr. með öllum greidd-
um atkv. gegn einu.
8. Frv. um skipulag kauptúna og
sjávarþorpa; 1. umr.
Guðm. prófessor Hannesson hefir
samið frv. um þetta, en Magnús Pét-
ursson flytur það. Fór flutnings-