Morgunblaðið - 08.08.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.08.1917, Blaðsíða 1
Miðv.dag 4. árgangr 8. ágúst 1917 M0K6UNBLABID 274. tðlublað Ritstjórnarsimi nr. 500 Ritstjóri: YilhjAlmnr Finsen ísafoldarprentsmiðja Atgreiosmsimi nr. 500 Sjóníeikir i Iðnaðarmannahúsinu næstkomandi f ö s t u d a g kl. 9: Ttlatarakonan í JTlaríij Og Vinnustúlkna-átjijggjur. Nánar á götuauglýsingum. Tekið á móti pöntunum i bókaverzlun ísafoldar. KI fl | Reykjavíknr 1 Bio«raph-Tiieator |BI0 Talslmi 475 Dóttir A|M|| Éwl® smygias ari ^jónleikur í 4 þáttum, 13 IS. 2 atr. Myndin er afarspennandi og leik- in af ágætum ítölsknm Ieikurum. K. F. u. m. VALUB. Æfing í kvöld kl. **/■- Fjðlmennið! Nýr Jacket til sölu af sérstökum ástæðum, með tækifærisverði í Klæðaverzlun H. Andersen & Sön- Frá alþingi. Nýungar. 1. Fiskiveiðasampyktir o% lcndinqar- sjóðir. Frv. stjórnarinnar um það efni er komið úr sjávarútvegsnefnd Ed., sem íalið var að íhuga frv. Nefndin hefir athugað frumvarpið, sem stjórnarfrumvarp og að mestu samandregið eldri lagaákvæði um ýms atriði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum og mótorbátum, alt að 15 smál. að stærð. Helztu nýmæli frumvarpsins eru þessi. 1. Að samþyktir megi ná til báta 20 lesta í stað 15 lesta. 2. Að kaupstöðum Og kauptúnum er heimilaður réttur til að gera samþykt út af fyrir sig. 3. Að samþykt gildi að eins í 10 ár i senn. 4. Að heimilað er að ákveða tals- vert hærra gjald i lcndingarsjóð en áður. Nefndin hefir ekki getað aðhylst aðra aðalbreytingu, að kaupstaður eða kauptún hafi sérstakan rétt til að gera samþykt út af fyrir sig. Nefndin getur heldur ekki séð, að þörf sé á því, að ákveða megi lend- ingarsjóðsgjald hærra en nú er orð- ið, en litur svo á, að slik heimild sé ekki alveg hættulaus fyrir rainni bátana; hins vegar virðist ekkert vera athugavert við það, að hægt sé að miða gjald þetta við lestarrúm báts í staðinn fyrir við hlnt af afla eða^ hnndraðsgjald af afla, ef svo ýnist. Nefndin gerir þvi breytingartillög- ur í þá átt, sem að framan getur og' nokkrar fleiri, mest um orðfæri. Framsögumaður Karl Einarsson. 2. i>Mannjjölqunarfrumvarpiðt, sem Björn Stefánsson flutti, er nú dauðadæmt af allsherjarnefnd neðri deildar. Segir svo í nefndarálitinu: •Nefndin hefir athugað frumvarp þetta og komist að þeirri niðurstöðu, að i þvi felist eigi meira jafnrétti né réttlæti en i núgildandi sveitar- stjórnarlögum. Vera má, að sveitarstjórnarlögun- um sé á ýmsan hátt ábótavant, og ef svo er, fer bezt á þvi, að þau verði tekin fyrir og yfirskoðuð öll í einni heild, en miður heppilegt að smeygja inn smábreytingum, eink- um þeim breytingum, sem skapa jafnvel meira misrétti en lögin eiga i sér fólgið nú. Fyrsta gr. frumv. fer fram á, að hver sá maður, sem þegið hefir sveitarstyrk og hefir 4 börn fram að færa, hafi kosningarrétt og atkvæð- isrétt um öll sveitarmálefni, ef styrk- urinn nernur eigi meiru en 70 kr. með hverju barni, og gæti þetta i mörgum tilfellum réttlæzt og álilist sanngjarnt. En hins verður að gæta, að hér getur staðið til hliðar annar maður, sem Hka hefir 4 börn fram að færa og er hvorki óduglegri né óskynsamari en hinn, en hefir vegna enn erfiðari kringumstæðna orðið að fá sveitarstyrk, sem nemur nokkru meira en 70 kr. — t. d. 75 kr. — fyrir hvert barn og öðlast því ekki þessi auknu réttindi. Við þetta skap- ast misrétti. I annan stað getur komið fyrir, að maður fatlaður eða heilsulítill hafi færri en 4 börn, en verði vegna þeirra óhappa, að hann er ófær til vinnu, að leita á náðir fátækrasjóðs- ins, en geti ekki borgað á ári tutt- ugasta part af skuld sinni — jafnvel þó Htil væri — og fari því á mis við kosningarréttinn, og er þá enn misrétti skeð.« »Fyrir því leggur. nefndin til að frumvarp þetta verði felt.c Framsögumaður er Einar á Geld- ingalæk. 3. Varnarpinq i einkamálum. Allsherjarnefnd neðri deildar hefir athugað frv. þeirra Magnúsar Gnð- mundssonar og G. Sv. um varnar- þing í einkamálum. »Það hefir orðið ofan á i nefnd- inni að ráða hinni háttv. deild til að satnþykkja frv. þetta með einni breyt- ingu, sem tilfærð verður hér á eftii«. Breyting sú, sem nefndin stingur upp á, að gerð sé við frv. þetta, er í þvi fólgin, að mál þau, sem rekin eru samkvæmt lögum þessum utan dómþinghár stefnda, séu jafnan rekin sem gestaréttarmál. Magnús Guðmundsson hefir fram- sögu i málinu. 4. Fjáraukalög. FjárveitinganefndNd. hefir nú lokið við fjáraukalögin 1916 og 1917 og ræðurtilað samþykkja þaumeðýmsum breytingum. Skulu hér taldar nokkr- ar viðbætur, sem nefndin leggur til að veittar verði. Ritfé handa landlækni x þús. kr. Til ljósstöðvar á Kleppi 15 þús. kr. Viðbótarstyrkur til augnlæknis til ferðalaga 400 kr. Til sjúkrahúsa og sjúkraskýla 4200 kr. Til sjúkra- skýlisgerðar á Stórólfshvoli 3 þús. kr. Styrkur handa sjúklingum með hörundsberkla 1 þús. kr. Dýrtíðar- uppbót til pósta 1916 kr. 23865,98. Til Breiðafjarðarbáts 4 þús. kr. Til vélbátaferða á Húnaflóa 5 þús. kr. Til vélbátaferða í Norður-Þinpeyjar- sýslu 8 þús. kr. Til Austfjarðabáts 20 þús. kr. Til Holgers Wiehe sendikennara 1 þús. kr. Styrkinn til að reisa hús yfir listaverk Einars Jónssonar vill nefndin fella niður úr fjáraukalögum, að beiðni stjórnarinn- ar, vegna skorts á efnj, en setja sömu upphæð í fjárlögin. Til Sig- fúsar Blöndals til að fullgera islenzk- danska orðabók 2500 kr. Til við- bótar við fé veitt til kaupa á landi undir kirkjugarð í Reykjavík 6 þús. kr. Um launaviðbót Einars Arnórsson- ar gerði nefndin svohljóðandi ályktun : »Nefndin lætur svo búið standa, sakir þess, að hún telur háskólan- um nauðsyn að njóta starfskrafta þessa manns; en ekki vill hún að þetta sé fordæmi á ókomnum timum*. j. Forkaupsréttur. Landbúnaðarnefnd Nd. sýður nýtt frv. upp úr frv. Jóns frá Hvanná um T71/7/7 BÍÓ St. LlCÍMÍtt. Nútíðar-sjónleikur í 3 þáttum. Aðalhlutv. leika þau Christel Holch, Alf Bllitecher, Gunnar Sommerfeldt. Tölnsett sæti. Erl. simfregnir. frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.). Khöfn 6. ágúst. Tuxen hefir tekið vlð af Görts sem yflrforingi fyrsta hers Dana. Bertelsen liðsforingi hef- ir verið gerður að yflrfor- ingja annars hersins. Wolfif heflr tekið við for- ystu herráðsins. Khöfn 6. ágúst. Kerensky hefir aftur- kallað lausnarbeiðni sfna og samþykt að gegna stjórnarformensku eins og pólitísku flokkarnir hafa farið fram á. Heflr hann lýst því yfir að hann muni stjórna án tillits til neinn- ar flokkaskiftingar í land- inu. Kuelilmann er orðinn ut- anríkisráðherraÞjóðverja. Miðríkjaherirnir hafa tekið Rararcze og sækja fram að Radantz. viðauka við lög um forkaupsrétt leiguliða o. fl. Frv. er á þessa leið i útgáfu nefnd- arinnar: Frv. til laga um forkaupsrétt á sjálfsábúðarjörðum. 1. gr. Þegar jörð í sjálfsábúð er til sölu, skal sá hafa forkaupsréttinn, er sækir um ábúð á henni. Nú sækja fleiri en einn um ábúðina, og selur seljandi þá þeim, er fær ábúð- ina. 2. gr. Nú afsalar sá sér forkaups- rétti, er hann hefir samkvæmt 1. gr., og öðlast þá sveitarfélag það, er örð liggur i, forkaupsréttinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.