Morgunblaðið - 16.02.1918, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.02.1918, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ur fráfall Rússa góðar vonir, enda pótt langt verði að bíða árangursins. Og önnur góð friðarvon byggist i þátttöku Bandarikjanna i ófriðn- um — þótt undarlegt megi virðast. Bandaríkin hafa gleymt Monroe- kenningu sinni og vilja fá að leggja orð í belg, þegar Norðnrálfuríkin fara að semja um frið. Wilson reyndi þetta fyrst með þvi að miðla málum og ef honum hefði tekist það, þá mundi hann sennilega hafa orðið forseti á friðarfundinum. En þegar Tionum tókst það eigi, þá var eigi um annað að gera fyrir hann, held- ur en ganga inn í ófriðinn til þess, að fá að láta til sín taka. Hinn skyndilegi snúningur hans verður eigi skýrður á annan hátt. Og af sömu ástæðu verður það skiljanlegt, að Bandaríkin vilji ekki semja frið enn þá. Þau ætla sér auðvitað ekki að senda miljónaher til Norðurálfu, en þau sjá það, að til þess að þau geti komið fram sem málsaðilji, þá verða þau fyrst að taka þátt i heinaðinum. Þau munu því sennilega reyna að senda svo sem hálfa miljón manna til Evrópu. Þegar þau hafa gert það og Amer- ikumenn hafa barist á vígstöðvun- um og hafa gert hina bandamenn sér háða, þá munu þau gjarna taka að sér að koma á friðarsamningum — þvi að þan hafa aldrei afsalað sér rétti til þess að semja sérfrið. Og fari þau að ræða um frið, þá getur eigi England eitt spyrnt á móti broddunum. Á þennan hátt geta friðslit Banda- rikjanna orðið til þess, að stytta ófriðinn. En áður en farið verður að semja um frið, verður tvent að gerast: í fyrsta lagi verður eigi að eins að komast á friður að austan, held- ur einnig regla og skipulag i Rúss- landi. Og í öðru lagi verða Bandaríkin, þó eigi sé nema að litlu leyti, að hafa tekið þátt í ófriðnum, svo að þau geti hafið friðarsamninga og þannig gert Frakka og ítali óháða Bretum. En hvorttveggja tekur lang- an tíma og þess vegna verða orust- ur að hefjast aftur á vesturvígstöðv- unum í vor og verður þá ekki að ræða um friðarumleitanir fyr en að hausti. Og friðarsamningar taka minst hálft ár. Þess vegna verður eigi saminn fiiður á þessu ári. Hitt og þetta, Bernandino Machado sá sem var forseti i Portugal þegar uppreistin varð þar í vetur og rekinn var frá völdum, er nú fluttur til Parísar og ætlar að setjast þar að. Tveir synir hans berjast í herliði Frakka á vesturvigstöðvunum. Skipatjón Norðmanna. Norsk blöð segja frá þvi, að 90 skipum frá Bergen hafi verið sökt af Þjóðverjum siðan ófriðurinn hófst. Það hefir nú verið daglegur aiburður i Petrograd, siðan keisaranum var vikið frá völdum, að barist st á strætum og gatnamótum. En einhver mannskæðasta hríðin stóð þá á Newsky-torgi, þegar Maximalistar ruddust til valda, og er þessi nynd tekin af þeim atburði. Maximalistar höfðu vélbyssur, og brytjuðu fólkið niður sem hráviði, en þeir sem undan komust, áttu fótum fjör að launa. Reykjavikur til Vestmannaeyja og þar fanst hann fijótt. Skipið er farið héðan og því ólíkiegt að maðurina verði látinn sæta nokkurri hegningu fyrir strokið. Aðaifundur laugardag 16 þessa mán. kl. 7 siðdegis í K F U M Verkmannafél. „Dagsbrún“ heldur fund i kvöld í Goodtemplarahúsinu kl. jlj2 síðd. Félagsmenn fjölmenni. S T I O R N I N. 2 stúlkur sem vilja læra að sauma kápur og kjóla, geta komist að nú þegar i Þingholtsstræti 5. || DAGBOK Gangverð eriendrar myntar. B&nk&r Doll.U.S.A.&Canada 3,50 Pósthús 3,60 Frankl franskur 59,00 60,00 Sænsk króna ... 112,00 110,00 Norsk króna ... 107,00 106,50 Sterllngspund ... 15,70 16,00 Mark 67.00 ... Holl. Florin ... ... ... ... 1.37 Austurr. króna... • •• ... ... ... Hjálparstarfsemi Bandalags k v e n n a. Viðtalstími miðvikud. og föstud. kl. 2—4 á lesstofu kvenna, Aðalstræti 8. Hljómleikar þeir, sem lúðrafólagið »Harpa« efndi til í Iðnó í fyrrakvöid þóttu takast ágætlega. Var húsið nær fult áheyrenda, sem klöppuðu þeim fólögum óspart lof í lófa. Er líklegt að félagið endurtaki skemtunina, svo þeir sem eigi treystu sór út fyrir húss- ins dyr í fyrrakvöld fyrir roki og rign- ingu, geti átt kost á að hlusta á ieik þeirra fólaga. Það viðrar vonandi betur næsta skifti sem Harpa lætur til sín heyra. Alþýðufyrirlestur flytur Arni Páls- son bókavörður í Iðnó á morgun kl. 5 um upphaf ritaldar á Islandi. 3dá bú- ast við miklum fróðleik og mælska A. P. er orðin alkunn. Stroknmaðnrinn af danska segl- Bkipinu »Doris* er nú fundinn. Hann hafði tekið sér far á tlalauda Falk* Botnia kom til K.hafnar á mið- vikudagsmorguninn. Barst símskryti um það hingað í gær. Tímareikningurinn. Sagt er að flýta eigi klukkunui um eina klukku- stund frá 20. þ. m. Veðrið I gær: lx/2 stiga frost kl. 6 að morgni, V/2 stiga frost á há- degi. Harða veturinn sama dag: 2 stiga næturfrost, 2 stigi hiti á hádegi. Genginn í landsuður. Rigning. Isinn fer af höfninui. Grískuprófi hafa þessir guðfræð- isnemendur lokið á Háskólanum'- Arni Sigurðsson ágætiseinkunn(16 st.) Ingimar Jónsson I einkun (13 stig), Sveinn Ogmundsson II. eink. betrí (8 stig). Messað á morgun í frlkirkjunn* í Hafnarfiröi kl. 2 eíðd. sr. 01. Ol- Messað á morgun dómkirkjunn> kl. 11 árd. sr. Joh. f>ork. kl. 5 síðfl- sr. Bj. Jónsson. WiIIemoes fór frá Siglufirði í fyrra' dag snemma eins og fyr er frá skyrfc^ En á Grímseyjarsundi varð hann snúa aftur vegna íss og kom til Siglu fjarðar um hádegi. Þar lá hann Þan® að til í gær. Þá mun hann hafa 8 aðra tilraun til þess að komast auS*l ur um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.