Morgunblaðið - 19.10.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.1918, Blaðsíða 1
Xiavgard. 19: okt. 1918 MORGONBLAÐIÐ Ritstjóri: Viihjálmur Finsca ísafoldarpren! sroiðja Símfregnir. Ritstjórnarsimi nr. 500 Atkvæðagreiðslan. í dag á atkvæðagreiðslan um sambandssamninginn að fara fram. Þá eiga íslenzkir kjósendur að skera úr því hvort þeir vilja aðhyllast samninginn sem cefndir komust að við Dani í sumar — hvort þeir vilja að ísland verði fullvalda riki i kon- ungssambandi einu við Danmörku, hvort þeir vilja fá islenzkan siglinga- fána, hæstarétt fluttan heim o. s. frv. Það hefir verið rætt og ritað svo rnikið um þennan samning að það er óþarfi hér að minnast á einstök atriði hans. Þjóðin þekkir hann og hiin veit væntanlega að með hon- um fá íslendingar alt það, sem þeir hafa verið að berjast fyrir síðustu áratugina. En það er ekki nóg að menn séu ánægðir með samninginn. Menn verða að sýna það í verkiuu með þvi að koma á kjörfund og greiða samningnum atkvæði. Það væri ís- landi til háborinnar skammar ef kjörfundurinn i dag yrði illa sótt- ur. Hvað mundu eriendar þjóðir hugsa um stjórnmála-þroska þessarar þjóðar, ef það bærist til þeirra að atkvæðagreiðsla um það, hvort ís- iand ætti að verða viðurkent fnll- valda riki, hefði að eins engið daufar nndirtektii? Mundu þeir þá eigi gera lítið úr þeirri frelsishreyf- ingu, sem svo mjög hefir gripið um sig á íslandi siðustu áratugina og og valdið hefir látlausum deilum við Dtni? Nei, það má ekki koma fyrir. Hver einasti kosningabær mað- ur verður að rriæta á kjörfundi og greiða þar atkvæði. Og vér viljum i þessu sambandi benda mönnum á, að þeir sem einhverra hluta vegna eiga ekki heimangengt, geta efiir ikveðnum reglum, greitt atkvæði sitt heima. Aðferðin er þessi: Á bæjarfógetaskrifstofuna verður að láta sækja sérstakt eyðublað, sem ætluð eru fyrir kosninguna. Síðan skrifar kjósandi á þann seðil og verð- ur húsráðandi eða sá, sem kemur í hans stað, að votta hvers vegna kjósandi á ekki heimangengt, og að kjósandi sé sá, sem hann tilgreinir á eyðublaðinu. Kjörseðilinn skal s'ðan senda i sérstöku umslagi, sem einnig fæst á bæjarfógetaskrifstofunni, á kjörfuud, og verður bréfið að vera þangað komið áður en atkvæðagreiðslunni er lokið. Hver einasti kjósandi verður að greiða atkv. í dag. Það er engin afsökun þó að menn geti ekki sjálfir mætt á kjörfundi. Menn verða að greiða atkvæði með sambandsamn- ingunum samt. Svar Þjóðverja væntmlegt bráðlega. Likur til þess aö þeir gangi að ðllum skilyrðum Wilions. Khöfn, 17. okt. Reuter símar, að annað svar Þjóð verja sé væntanlegt bráðlega, og likur til þess að þeir gangi að öll- um skilmálum Wilsons. Influenzan i Khöfn Khöfn, 17. okt. Influenzan er tekin að breiðast út aftur og er nú mjög mögnuð. Öll sjiikrahús full og meira en það. Margir menn hafa dáið. Lille og 0»tende fallnar í opinberii tiikynningu frá brezku utanrik'sitjórninni, er hingað kom f gærkvö'di, er sagt frá þvi, að banda- menn hafi tekið borgirnar Liiie og Ostende. Frá Le Cateau. •London 17. okt. Á Le Cateau vígstöðvunum hafa Bretar tekið Hnussy í Selledalnum og handtekið 1500 menn. A suður- stöðvunum veita Þjóðverjar nú öfl- ugra viðnám milli Oise og Aisne, á svokallaðri Hundinglínu. Bak við þá varnarlinu, sem liggur um Serra, Souches og Aisne, hafa óvinirnir enn aðra varnarlínu frá Serre að Ardennes, 15. mílum fyrir norðan Grandpre. Bandamenn hafa komist í Hundinglínuna á mörgum stöðum. Svar Wilsons ókomið til Berlin. I»ingfundi frestaö. Berlin, 17. okt. Svar Wilsons er er.n eigi komið opinberlega til Berlín. Er í fyrsta lagi búist við því í kvöld. Það er þegar farið að unditbúa svar, en auðvitað er ekki hægt að taka neina endanlega ályktun fyr en stjórninni hefir verið afhent svar Wilsons. Næsta líkisþingfundi, sem ákveðinn var á morgun, hefir orðið að fresta vegna þess hvað svar Wilsons hefir tafist. Það er búist við því, að hægt sé að halda fundinn á mánu- dag eða þriðjudag, en þó er það enn óákveðið. Scheer, foringi flotamálaráðsins, kom hingað i dag. Sóknin í Sýrlandi. London, 17. okt. Helmingur Sýrlands er nú á valdi bandamanna, þar á meðal Tripolis og Baalbek, sem er áttatíu milum norður af Damaskus. Sex hundruð og sextiu Tyrkir voru handteknir i Beiiut og 500 í Baalbek. Tyrkir reyna ekki að verjast fram- sókn bandamanna til Aleppo. Sjálfstæði Pólíands. London, 17. okt. Það er tilkynt frá Ziirich, að sam- kvæmt teknum ályktunum pólskra, austurríkskra og prússneskra fulltrúa, hafi Póllaud veríó auglýst sjálfstætt riki. Var sjálfstæðinu fagnað i Warschau á mánudaginn með mikl- um bátiðahöldum. Upplausn Austurríkis. Þrjú keiáararíki. Berlín, 18. okt. Frá Wien er símað: I keisaralegri tilkynmngu, sem gefin var út í dag er gert ráð fyrir að stofnað verði austurríkskt keisaradæmi (úr hinum þýzku héruðum þess), keisaradæmið Haliex (Ukraine og Austur Galizia) og keisararíkið Illyria (suðslavnesku löndin). Hmum pólska hluta Galizin verður gefið ieyfi til þess að sam- einast konuugsríkinu Póllandi. Um Triest verður eigi tekin á- kvörðun að svo stöddu. Ríki þessi eiga öll að hafa hina sömu yfir- stjóm og sameiginiega utanrikisstjórn og löggjöf. Vegna Ungverjaiands hefir engin ákvörðun eun verið tekin viðvíkj- andi Rúmeníu, Bosníu og Herze- gowinu. Uppþot á þingi Ungverja. Khöfn, 17. okt. (Frá fréttaritara Morgunblaðsins). Frá London er nú fregn Reuters um uppgjöf Þýzkalands borin til baka. Bandamenn hafa sótt fram um 8 milur á Douaille-vígstöðvunum og handtekið 4000 menn. 5 srgsngt 342. tðlublaö Afgreiðsiusimi nr 500 Þegar fregnirnar um það að Aust- nrriki ætti að leysast upp i bands- ríki, kom til Budapest, varð uppþot mikið í ungverska þinginu. Sjálf- stæðisflokkurinn krafðist þess, zð friður væri saminn þegar í stað og kvaðst vera vinveittur bandamönnum, » Astandið í Miklagarðí ÞjóOverjar komnir til MikiagarOs á herskipum. London 17. okt. »Times« segir þá fregn frá Bern að Þjóðverjum og flokki Ungtyrkjia sé nú veitt mótspyrna í Miklagarðí og stjórn Ungtyrkja sem varð að fara frá, reyni að trufla störf hinnar nýju stjórnar. Tuttugu herskip, undir forystu þýzkra liðsforingja, hafa komið til borgarinnar frá Svana- hafi til þess að vernda Ungtyrki meo valdi og koma í veg fyrir það, að nýja stjórnin fari að dæmi Búlgara. Stigamenn handteknir. Maðnr sleginn i rot og 430 krónum stolið. Á miðvikudagskvöldið kom ung- lingspiltur til manns nokknrs, er Bjarni Símonarson heitir, og bauð að selja honum 2 flöskur af áfengi á 6 kr. hverja. Bjarna þótti þetta góð kaup og varð við beðni piltsins um að verða samíerða inn á Lind- argötu, því að þar væru flöskurnar geymdar undir báti. A Laugaveginum slógust tveir aðrir menn með í förina, en þegar að bátnum kom, veit Bjarni ekki fyr en hann var sleginn hnefahögg í andlitið svo hann fellur í öngvit. Þegar Jiann raknaði við voru pen- ingar nans horfnir, 430 krónur að sögn hans sjálfs. Morguninn eftir handsamaði lög- reglan 3 menn, sem grunur lék a, að væri við glæp þenna riðnir. Haía tveir þeiira að sögn játað á sig þáttöku á glæpnum. Mennirnir era þeir Sig. Sigurðsson frá Kvívelli á Miðnesi og Magnús Gottskálsson vestan af Myrum. En þriðji mað- urinn heitir Þorsteinn jóhannsson austan úr Mýrdal. Bjarna Símonarsyni líður eftir at- vikum vel. Var læknis vitjað tií hans og kvað Bjarni hafa fengið töluverðan áverka á höfði. S^" Munið að greiða atkvæði i dag!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.