Morgunblaðið - 30.11.1922, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.11.1922, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ Fóðurbætiskaup ssttia aiiir að gera 'hjá Ounnari Þórdarsyni. -- Simi 1072. vsmiMS ígpgSBSsnt KRBBHHBBBE3! ■ssr&^EEiSBEisMaEBKssj tsammmwí Ulsvör á Akranesi fardagaáriS 1922—23. 99 iiaiHi Sanitas(í Konungl. hirðsali Siphon-flöskur hefir verksmiðjan fengið, og get- ur nú framvegis afgreitt Sodavatn á þeim til fastra viðskiftamanna. — Siphon- arnir verða seldir og síðan fylt á þá þegar hver eig- andi óskar þess. 99 S a n i t a scc Talsími 190. A B C er ódýrasta, hreinlegasta, fjölhreyttasta, og i*alla staði lang hesta matvöraversiun borgarinnar, happadrættismiði með hverj- um 2. kr. kaupum. A B C. Simi 242. Box 245. u n i ð að bestu regnkápurnar eru þær s v ö r t u frá Andersen & Lauth. Austurstræti 6. niönnum og sanna hve afskap- ltga blaðinu er ósýnt um að segja satt og ógeðfelt að kannast við þann löst. Er þetta hið lærdóms- ríkasta dæmi fyrir þá, sem ekki eru því kunnugri áður afstöðu 'Tímans til sannleikans. Bæta má því við þessa fræðslu, sem er hjer gefin, að eins og menn muna, beindi sjera Arnór þeim tilmælum til J. J. að hann ijeti uppskátt um það, hvað af Menningarsjóði S. f. S. hefði orð:ð. Því hann er, svo sem mörgnm er kunnugt, horfinn — því líkt sem Tímamennimir hefðu „jet:ð hann ofan í sig“. Siðan þessum tilmælum var beint til J..T. hefir Tíminn komið út — ’’ei' ekki nokkurt orð um menn- ingarsjóðinn. En í stað þess er enn hamrað á sjera Amóri með mfturgengnum ósannindum. Jeg vil nú styðja þessi tilmæli sjera. Arn- órs. Má það ekki minna vera en J. J. geri kaupfjelagsmönuum alt ljóst um það í blaði þeirra hvað af 40,000 kr. hefir orðið. Er það kunnugt, að þeim mun leika mikill hugur á að vita sem :gerst um afdrif þeirra. J. B. Þeir sem eiga að greiða 100 krónur og þar yfir: Agúst Asbjörnsson, Teig 173 kr. Armann Halldórsson, Hofteig 190 ki'. Arnm. Gíslason, Hlíðarenda 100 kr. Bjarni Brynjólfsson, Bæj- arstæði 120 kr. Bjarni Ólafsson skipstjóri 558 kr. Björn Hannes- son, Litlateig 190 kr. Björn Jóps- son kaupm. 120 kr. Böðvar Þor- valdsson kaupm. 600 kr. Eiríkur Guðmundsson, Tungu 150 kr. Ein- ar Ingjaldsson, Bakka 235 kr. Erlendur Jónsson, Suðurvöllum 100 kr. Gísli Daníelsson, Kárahæ 150 kr. Guðjón Jónsson, kaupm. 550 kr. Guðjón Þórðarson, Ökrum 125 kr. Guðm. Björnsson, Miðengi 120 kr. Guðm. Narfasón, Völlum 108 kr. Guðm. Þórðarson, Vega- mótum 105 kr. Guðni Þorbergs- son, Bakkakoti 150 kr. Haraldur Böðvarsson & Co. 2550 kr. (sömu greiða einnig' hæsta útsvar í Sand- gerði s.l. ár, 5500 krónur). Ilall- clór Jónsson, Heimaskaga 250 kr. Hallgr. Jónsson, Miðteig 187 kr. Holsteinagerðin „Lean“ 150 kr. Hinrik Jónsson bakari 120 kr. Bakaríið H. J. & Co. 370 kr. Jón Auðunnsson, Höfn 102 kr. Jón Gunnlaugsson, Bræðraparti 162 kr. Jón Sigurðsson, Vindhæli 102 kr. Jón Ottason, Armóti 150 kr. Jón Olafsson, Stað 185 kr. Kaupfjelag Akraness 300 kr. Níels Kristmanns son, Hofteig 200 kr. Oddgeir Ól- afsson, Svalbarða 120 kr. Ól. B. Bjömsson, Hoffmannshúsi 175 kr. Ólafur Finsen, læknir 225 kr. Ól- afur Hannesson, Torfustöðum 100 kr. Sveinn Guðmnndsson kaupm. 500 kr. Tómas Þorsteinsson, Dals- n inni 100 kr. Vilhjálmur Bene- diktsson, Efstabæ 100 kr. Verslun Bj. Ólafssonar & Co. 300 kr. Þor- steinn Briem, prestur 200 kr. Þórður Ásmundsson kaupm. 1200 kr. — Alls jafnað niður 23055 kr. á 344 gjaldendur. Dagbók Næturlæknir: Ólafur Þorsteinsson. Lyfja'búðunum lokað kl. 7. síðdegis. Vörður í Laugavegs Apóteki. Verslnnarmannafjelag Reykjavíkur. I’undur og spilakvöld á Hótel Skjald- breið kl. 81/2 í kvöld. Botnía fer hjeðan til Vestfjarða seinni partinn í dag. Farþegar eru fáir. Meðal þeirra er Ólafur Proppé alþingismaður. Trúlofun sína hafa nýlega opinber- að ungfrú Guðmunda R. Guðmunds- dóttir Brekkustíg 1 og Róbert Vest- mann Kárastíg 12. Böggild sendiherra Dana hjer var meðal farþega á Botníu hingað. Rannsókn er nú lokið fyrir nokkru í því, hvort nokkru hefir verið stolið úr vörugeymsluhúsi Vaðnesverslunar, sem branu um daginn. Er það full- víst, að því er lögreglan segir, að er.gu muni hafa verið stolið. Lög- reglan heldur að sjálfsögðu áfram leit að þeim, sem valdir eru að brun- anum, en er enn svo skamt á veg komin, að ekkert verður um þá rann- sókn málsins sagt í bráð. Fillefjeld kom hingað í gær. Kom það frá Spáni og ætlaði til Eyrar- bakka, en kom hiiigað vegna þoku og kolaleysis. Kosning 1 sáttanefndarmanns og 1 varamanns fór fram hjer í bænum í gær, og mun það vera sá kvrlátasti kosningadagur, sem lengi hefir komið hjer í Reykjavík. Kosinn var í sátta- nefndina próf. Ólafur Lárusson með 40 atkv., en varamaður præp. hon. Ivristinn Daníelsson með 23 atkv. — Alls greiddu 69 atkvæði. Áður hafa flestir kosið við sáttanefndarkosn- ingu 24, en fæstir 3, og er því stór- um best að verið nú. Pósthúsið. Hjer í blaðinu var minst á það í gær, að óheppilegt væri, að anddyri pósthússins skyldi vera lok- að svo snemma á þeim tíma, þegar skip koma, að þeim, sem þyrftu að ná brjefum og blöðum úr pósthólf- um sínum, ynnist ekki tími til þess. Ut af þessu hefir dyravörður póst- hússins beðið að láta þess getið, að höfuðástæðan til þ.ess að anddyrinu væri lokað svona snemma væri sú, að allskonar slæpingjar og götulýður safnaðist inn i anddyri hússins og slcildi þar eftir mestu óþrif, seml ekki væri hægt að nefna á prenti, og til þess væru dæmi, að anddyrið hefði verið gert að drykkjukrá, eftir að póstþjónar hefðu hætt að vinna þar á kvöldin. Yæri því ógerningur að halda anddyrinu opnu langt fraan á kvöldið fyrir þessar sakir. Sjálfsagt. er rjett frá þessu skýrt, og er þá pósfhúsinu vorkunn, þó það loki and- dyrinu tímanlega á kvöldin. En til mála gæti það komið, að pósthúsið hefði þarna vörð, er annaðist það, að elfki safnaðist neinn óþjóðalýður þar saman, meðan anddyrið væri opið. Ekki væri það heldur úr vegi, að einhverjum 16gregluþjóninum væri fal- ið að líta inn í anrddyri pósthússins öðru hvoru, ef það gæti orðið til þess að fækka þar fundahöldum slarkara og*slæpingja. Yirðist það ekki nema sanngjörn krafa, því eins og nú hag- ar til, koma pósthólfin oft og’einatt ekki að þeim notum, sem til er ætlast. Njörður kom nýlega af veiðum með 1100 ka.ssh og fór strax með aflann til Englands. Fnllveldisdagurinn, 1. desember er á morgun. Eins og getið hefir verið um í blöðunum og sjá má á auglýs- ingu hjer í blaðinu í dag, hefir há- skólinn og séúdentaráðið gengist fyrir ýmiskonar hátíðahaldi og skemtunum A morgun, og er með þeim skemtunum hafin sókn frá stúdenta hálfu til þess að koma upp stúdentahústað, sem hjer er afarmikil þörf fyrir. Áður hafa flestir skólar gefið frí þennan dag, og fullyrt er það, að nú muni þeir gera það allir. En væri ekki vel til fundið og sjálfsagt, að alment frí yrði í bænum þennan dag, nú og framvegis? Þó ekkert annað bæri til en það, að þetta er fullveldisdagur þjóðarinnar, þá er það nægilegt. En ní: hefir það enn bæst við, að æðsta mretastofnun þjóðarinnar hefir gert daginn að sínum degi. Minna má á það líka, að um sumartímann eru gefnir 3 frídagar, sumir. allir og sum- ir að nokkru leyti. Alt virðist mæla með því, að 1 dagur yrði gefinn frí að vetrinum, minsta kosti eitthvað af honum, og þá er enginn dagur sjálf- sagðari en 1. desember. Mundi það hvervetna mælast vel fyrir, að full- veldisdeginum og háskólanum væri sýndur sá sómi. Nýtt tímarit. Á morgun mun verða borið hjer um bæinn nýtt tímarit, Kaupið aðeins góðar vörur. Gleðjið heimilið. Drekkið eimmgis kaffi sem er bú- ið til úr hinu besta Ríó kaffi sem er fáanlegt. Fæst brent og malað aðeins í Verslunin „ þ j ö t a n d i — Lindargötu 43. Þá sem vantar9 Bollapör, diska, þvottabala, rekkjxr voðir, borðteppi, Regnkápur, hálf- klæði, fá það nú fyrir ekki hálf- virði ‘og happdrættismiða í kaup- hæti. nic-msiriDi. er „17. júní“ heitir. Er það prentað j Kaupmannahöfn og er ritstjórinn Þorfinnur Kristjánsson prentari. í ritinu eru ýmsar greinar um íslensk þjóðmál, myndir, smáfrjettir o. fl. Er það í svipuðu formi og „Þróttur“ og kostar 35 aura heftið. Oákveðið u:un vera hvað oft ritið kemur út, en næsta hefti er ætlað að koma út í janúar. Nýokmið talsvert úrval af afaródýrum skófatnaði Gengi erl. myntar. 28. Kaupmaimahöfn. Sterliugspund............ Dollar................... Mörk..................... Sænskar krónur .......... Norskar krónur .. :. .. Franskir frankar......... Svissneskir frankar .. .. I.írur................... Pesetar.................. Gyllini.................. Reykjavík. Sterlingspund............ Danskar krónur .......... Sænskar krónur .......... Norskar krónur .......... Dollar................... nov. 22.17 4.91 0.061/2 132.50 90.80 34.00 91.35 . 23.50 75.60 194.35 25.60 115.75 155.65 106.76 "5.79 Um krabbamein hefir Tuffier prófessor við lækna- háskólann í París nýlega gefið lit eftirtektarverða skýrslu. Segir þar, að þrátt fyrir viðleitni lækna í öllum siðuðum löndum, á því að bera sjúkdóm þennan ofur- liði, fari liann altaf vaxandi og fjölgi dauðsföllum úr krabbameini um 2% á ári. Byggjast skýrslur prófessorsins sumpart á eigin reynd og sumpart á gögnum frá amerískum hagfræðingi. Deyja ár. lega .um 500.000 mauns úr krabba- meini. í Bandaríkjunum deyja 78 af hverjum 100.000. 1 Eng- landi dóu að meðaltali 98 af 100.000 á árunum 1906—’10 og í Hollandi 93, í Frakklandi 73 og á Spáni 44. í Frakklandi fjölgar dauðsföllum úr ltrabba- meini á hverju ári. Flestir þeirra, sem krabbamein verður að bana em á aldrinum 45—50 ára, og 24% fleiri af þeim sem deyja eru konur. Krabba- meinið veldur alveg jafnt dauða hvítra manna og svarta, en eftir- SVEINBJÖRN ÁRNASON Laugaveg 2. Flugl. dagbók Spaðkjöt og rúllupylsur ódýrast og best hjá Bræðrunum Proppé. — Sími 479. — V. Ó. Á. kaffið er bragðbest. 20—30 hestar af töðu geymdir í hlöðu, fást keyptir nú þegar. A. v. á. Stúlka óskar eftir atvinnu við versl unar- eða skrifstofustörf. Tilboð merkt „Atvinna“ sendist Morgun- blaðinu. „Silkikjólar og Vaðmálsbuxur" eru nú sama sem uppseldar, en „Fagri- hvammur“ fæst enn hjá bóksölum. Stúlku vantar mig í vist nú þegar. Olga Hafberg, Lindargötu 1. Útsalan heldur ennþá áfram á I.augaveg 3, með miklum afslætti. Makogi' christal bamatúttur kosta aðeins 30 aura stykkið. Fást aðeins í versluninni „Goðafoss“ á Lauga- vegi 5. — Hangikjötið besta er nú eins og fyrirfarandi ár hjá Jes Zimsen. Mótorolíur til brenslu og smnrn- ings, bestar og ódýrastar hjá K. Stefánsson. Sími 1221. Aðalstræti 11. Vínelló súkknlaði kaupa allir hjá Leví. :— Chocolade Consum Vanille og marg- ar fl. tegundir ódýrar, piparkökur aðeins 2 kr. y2 kgr., appelsínnr 25 aura stykkið og margt fleira er selt mjög ódýrt á Lindargötu 43. X»ítiS herhergi óskast til leigu. — ^-'PPlýsingar Lindargötu 43 (búðin). Athugið! Saum á fötum og tillegg 70 kr. Blá cifjotsföt frá 150 kr. — Laugaveg 34. Duglegir drengir óskast á morgun til að selja nýtt blað á götnnum. Þeir snúi sjer í Þingholtsstræti 16. tektarvert er það, að meðal Indí- ána í Norður-Ameríkn er það al- veg óþekt. Meðal Japana er krabbamein í brjóstinu óþekt, og það hvar svo sem þeir dvelja i heiminnm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.