Morgunblaðið - 15.09.1938, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.09.1938, Blaðsíða 3
. Fimtudagur 15. sept. 1938. MORGUNBLAÐIÐ 3 Mikil síld út Herpinótaskip búast aftur ð veiðar Reknetaskip, sem voru aS veiðum út af Siglufirði, sáu í gærmorgun mikla síld úti fyrir firðinum. Torfumar voru mjög stórar. öll herpinótaskip voru hætt veiðum, en er síídarfrjett- m harst, fóru nokkur skip strax að búast á veiðár. Þessi skip fóru á herpinóta- veiðar í gær : Grótta, Snorri, Bagný og Björgvin.Búist var við að fleiri skip færu út í nótt. Reknetáveiði hefir verið góð undanfarna daga, símar frjetta- ritari vor á Siglufirði. Þö hafa gæftir verið stopular. Logn og bjart veður var á Siglufirði í gær, en fjöll hvít af snjó niður í miðjar hlíðar. Flutningaskipið Heien, lest- aði sildarmjöl hjá síidarverk- smiðjum ríkisins í gær. Varðeldar skátanna í gærkvöldi Ijl yrstu opinberu varðeldar skáta á þessu hausti voru suður við Oskjuhlíðina í gær- kvöldi. Mikill mannfjöldi var við- staddur, svo ekki nema annar hver maður sá, hvað fram fór. Yms skemtiatriði voru, svo sem leikrit, ræður, söngur. Fvrst var smáleikrit, er hjet: „Rauðu ná'ttfötin". Næst var sung- ið „0, fögur er vor fósturjörð“. Allur mannfjöldinn tók undir. Næst tók „ókrýndur konungur“ til ináls og var ve! tekið ræðu hans. Þvínæst var sungið „Fyr vai- oft í koti kátt“. Einnig var sýnd hjálp í viðlögum og síðasti smellurinn var cirkus-m aður, sem sýndi iistir sínar. Daníel Gíslason stjórnaði skemtiatriðunum. En því miður voru áhorfendur fremur óspakir, svo mikill tími fór í að þagga nið- ur í þeim og halda þeim í skefj- um. Að endingu talaði sr. Friðrik Haligrímsson nokkur orð, einskon ar ávarp til áhorfenda. Yfirleitt fór þetta vel fram og er óskandi, að skátar hafi fleiri varðeldasýningar 1il skemtunar fyrir bæjarbúa og ágóða fyrir sjálfa sig. Nor&menn eru nú í þann veg- inn að byggja tvter útvarpssendi- stöðvar, hvora með 100 kílówatta- orku. Verður önnur við Álasund og hin við Stavanger. (FÚ) Emil Thoroddsen leikur í út- varpið ki. 8.40 í kvöid á píanóið, sem Pálmar Isólfsson hefir smíð- að og nýlega var frá sagt hjer í blaðinu. Skólar bæjar- ias eru að byrja Háskóíinn verður settur í 20. þ. m. kl. 1 Nd.- sal Alþíngis. Er það fyrsti skóli bæjarins, sem byrjar starfsemi ína á skólaárinu, sem nú er að hefjast. Annars eru skólarnir tið hefja kenslu alment, verða sumir settir 20. september og aðrir 1. október. Skólafólk er nú sem óðast að streyma í bæinn og er þegar farið að setja svip sinn í bæj- arlífið. Mentaskólinn verður settur 20. þ. m. Verða nemendur þar um 260 í vetur. Skólinn starfar raunverulega í þremur aðal- deildum : ganfræða og lærdóms- deild samkvæmt hinni nýju reglugerð skólans og lærdóms- deild samkvæmt gömlu reglu gerðinni. Verslunarskólinn. í honum verða um 300 nemendur í vet- ur, eða álíka margt og í fyrra vetur. Framhaidsdeild verður starfrækt við skólann í vetur, ;en ekki er enn fullráðið hve margir verða í henni. Skólinn verður settur 1. október og byrja inntökupróf næstu daga. Gagnfræðaskóli Reykvíkinga verður settur 20. þ. m. og verða nemendur þar eitthvað á annað hundrað eins og undanfarna vetur. Gagnfræðaskólinn í Reykja- vík verður settur 1. október og nemendur í honum verða rúm- lega 200. Iðnskólinn verður settur 1. okt. kl. 7 e. h. Nemendafjöldi þar verður líkur og undanfarna vetur, eða hátt á annað hundr- að. Stýrimannaskólinn verður sett- ur um mánaðamótin, en setn- ingardagurinn hefir enn ekki yerið ákveðinn. Nemendur verða um 60 í vetur, eða álíka og í fyrra. Vjelstjóraskólinn verður sett- ur 1. október. Enn er ekki kunn- ugt hve nemendur verða þar margir, þar sem umsóknarfrest ur um skólavist er ekki útrunn- inn fyr en 20. þ. m. Kvennaskólinn. Ekki hafa enn verið teknar ákvarðanir um hvenær skólinn verður settur. NÝTT ZEPPELÍNS- LOFTFAR. Ijondon í gær. FÚ. Hið nýja þýska Zepþelin-loft- far fór frá Friedrichshafen í dag í reynsluflugferð yfír 'Bod- en-vatn. Meðal farþega voru ýms- ir þýskir embættismenn og dr. Eckener, sem gaf hinu nýja loft- skipi heitið „Graf Zeppelin". Iíið fræga, gamla loftskip með þessn nafni verður rifið. Lestrarfjelag kvenna heldur á- ríðandi fund í kvöld á Amtmanns stíg 5. Leigngarðar bæjarin§ —^ Vaxandi áhugi fyrfr garðrækf Samtal við garðyrkjuráðunaut Ahugi Reykvíkinga fjrrir garðrækt fer vaxandi. Þar sem því verður við komið, hefir fólk garð við hús sín og ræktar þar nauðsynlegustu garðávexti og grænmeti fyrir heimilin. í Kringlumýri Garður og skýli í Kringlumýri. En fólk, sem ékld getur haft nokkra garðhólu, þar sem það býr, verður að leita annað óg: léngra og leigja sjer garðstæði. Reykjavíkurbær hefir haft all-stór svæði í ÚtjÖðrum bæjar- ins, sem hafa verið skift niður í hæfilega stór garðstæði fyrir meðal heimili, og lei'gð út þeim, sem áhuga hafa fyrir garðrækt. Er nú svo komið, að öll garð- stæði, sem bærinn hefir á að skipa, eru þegar leigð út. Rek- ur brátt að því, að bærinn þarf að fara að finna hý garðstæði, til þess að geta fullnægt eftir- sp'urn þeirra, sem hug hafa á því, að fá sjer garð. Elstu leigugarðar bæjarins munu vera Aldamótagarðarnir sunnan við Gróðrarstöðina. En þeir eru 63 að tölu. Næstir eru Melagarðarnir við Sandvíkur- veg, sunnan við íþróttavöll 65 talsins, Sauðagerðisgarðar fyrir sunnan Verkamannabústaðina, 18 talsins, Gróðrarstöðvargarð- ■arnir, sétir eru um 70, og nýj- ustu gttrðárnir, Kringlumýrar- garðarnir, 421 að tölu. Matthías Ásgeirsson, garð- yrkjuráðunautur bæjarins, hef- ir umsjón með leigugörðum þessum og sjer um leigu þeirra. Frjettaritari frá Morgunblað- inu fór með Matthíasi inn í Kringlumýri um daginn og fekk ýmsar upplýsingar hjá honum um garðana þar, og tilhögun þeirra. Þeir eru frá því í hitteð- fyrra, 37 hektarar lands sam- tals. Er öHu þar skipulega fyrir- komið, görðunum skift niður eftir vissum götum (Á—G göt- um) og hver garður 500—1000 ferm. að stærð. Leiga fyrir hvert garðötæði er 10—25 krónur á ári, en þar sem land hefir verið leigt órutt, hefir það verið leigt éndur- gjaldslaust fyrstu þrjú árin. — Verkfæri verða garðleigjendur að leggja sjer til sjálfir og girða garðana. í flestum görðum er komið fyrir skýlum, og er ætlast til að þau verði öll bygð í svipuðum stíl, svo að þarna geti orðið fal- legt svæði, þegar garðarnir eru komnir 1 rækt. ★ Kvað garðyrkjuráðunautur garðana enn misjafnlega hirta, fólk gerði sjer ekki ljóst, hve mikinn skaða það gerði sjálfu sjer og öðrum með því, að hugsa ekki um garðana sem skyldi. En framvegis yrði strangara eftirlit haft með hirðu þeirra, og kom- ið gæti til mála, að setja leigj- endum viss skilyrði í þeim efn- um, og svifta þá leigu, sem ekki uppfyltu þau. Enda ekki ósann- gjarnt, þar sem miklu færri en vildu, gætu fengið garða. Eins yrði lögð rík áhersla á, að fólk sýndi ýtrasta hreinlæti í hví- vetna. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU Aðrar frjettir í stuttu máli SAMKOMULAG. London í gær. FÚ. amkomulag hefir orðið með Japönum og' Rússum um það, að skipa sameiginlega nefitd til þess að rannsaka landamæra- deiluna við Chang-kufeng. Verða í nefndinni tveir með- limir af hálfu Rússa og tveir af hálfu Jaþaná. HERNAÐARÁSTAND í CHILE. London í gær. FU. tjórnin í Chile í Suður-Ame- ríku hefir lýst yfir fjögurra mánaða hernaðarástandi í land- inu og er það gert vegna hinnar niishepnuðu byltingartilraunar, sem nazistar gerðu í Santiago á dögunum. PALESTÍNA. London í gær. FU. tór farþegabifreið var sprengd í loft upp í dag við norður- landamæri Palestínu. Tíu Arabar biðu bana, en tíu særðust. Herlið hefir verið sent til Jerú- salem vegna árásar, sem óaldar- flokkur gerði í gærkvöldi á póst- liúsið. Tveir Gyðingar hafa verið drepnir í Jerúsalem. BRETAKONUNGUR HRAÐAR SJER TIL. LONDON. London í gær. FÚ. Samkvæmt opinberri tilkynn- ingu, er gefin var út í Bucking- ham-höll í dag, er Georg kon- ungur væntanlegur frá Balmo- ral til London í kvöld. * Áður hafði verið ákveðið, að hann kæmi annað kvöld og yrði viðstaddur jarðarför Arthurs prins af Connaught á föstudag, en konungur ákvað að koma þegar í kvöld, til þess að ræða ■ við ráðherra sína um horfur í alþjóðamálum. Á trillubát milli íslands og Danmerkur Færeyingurinn Sophus Gjö- veraa, sem í fyrra sigldi smá 'trillubát sínum frá Seyðis- firði um Færeyjar til Noregs einn síns liðs, er nú kominn í samskonar leiðangur aftur. Símaði hatín .frjettaritara Morgun- blaðsins. á Seyðisfirði í gær, frá Sande váag í Færeyjum, aö hann væri þ&ng- að kominn á trillubát sínutn heilu og höldnu. Engmn á Seyðisfirði vissi um ferðalag hans, en Sophus hefir stundað þorskveiðar á trillubát sínum frá Seyð- isfirði í sumar. Báturinn er tæplega tvær smálestir að stærð. Frjettaritari voru á Seyðisfirði tel- ur að Sophus ælti sjer á trillubátnum til Noregs og Danmerkur. Rúmlega 4 þús. börn I skólum bæjarins Barnaskólar bæjarins tóku til starfa um síðustu mánaða- mót og hófst þá kensla í 7, 8, 9 og 10 ára bekkjum. Eldri íiem- endur byrja í skólunum 1. októ- ber. Alls munu verða á 5. þúsund böm í barnaskólum bæjárins í vetur, sem skiftast þannig milli skólanna: Austurbæjarskólinn 1830 börn. Miðbæjarskólinn (áætlað) 1630— 1650. Laugarnesskólinn (áætlað) 360. Skildinganesskólinn 300. Vestur-lsiendingur á þingi Þjóðabanda- lagsins Me ð a 1 fulltrúa á þingi Þjóðabandalagsins í Genf, sem stendur fyir þessa dagana, er Mr. Joseph Thorson, Vestur- íslendingur. Hann er einn af fulltrúum stjórnarinnar í Kan- ada. Mr. Joseph er fæddur fyrir vestan, en foreldrar hans flutt- ust hjeðan vestur. Þau voru ættuð úr Árnessýslu. Mr. Joseph Thorson var kjör- inn heiðursdoktor við háskóla íslands árið 1930.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.