Morgunblaðið - 26.08.1950, Blaðsíða 1
37. árgangur
194. tbl. — Laugardagur 26. ágúst 1950.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Evrópumeislari í kúluvarpi.
Gunnar Huseby.
Gunnar Huseby Evrópu-
meistari i kúluvarpi
■ «
Orn (lausen varð annar í tugþrautinni.
Guðmundur Lárusson fjórði í 40Q m hlaupi
GUNNAR HUSEBY varði Evrópumeistaratitil sinn í kúluvarpi
á EM í Briissel í gær. Varð hann nú Evrópumeistari í annað j
sinn í röð. Huseby varpaði kúlunni 16,74 m., sem er nýtt ís-
landsmet, nýtt Norðurlandamet og 14 cm. lengra en hið stað-
festa Evrópumet. Huseby vann kúluvarpið með miklum yfir-
burðum, þar sem árangur hans var rúmlega einum og hálf-
um metra betri en næsti maðúr var með.
En það var ekki Huseby^
einn, sem hjelt uppi merki
íslands á EM í gær. Örn j
Clausen háði í allan gærdag
harðvítuga baráttu í tug-j
þraut við Frakkann Hein-
rich, sem var annar á Ólym- 1
píuleikunum 1848. Örn hjeltl
forystunni alveg þar til í
næst síðustu greininni, spjót,
kasti, að Frakkanum tókst að |
' komast fram fyrir hann. —J
Heinrich vann með 68 stiga
mun, en hvorki franska nje
íslenska metið stóðust þessi
átök. Afrek Heinrichs. 7364
í stig, er auk þess besti árang-
ur, sem náðst hefir á EM í
þessari grein.
Guðmundur Lárusson.
Guðmundur Lárusson Ijet
heldur ekki sitt eftir liggja. —
Iiann varð fjórði í úrslitum 400
m. hlaupsins, en var samt mjög
óheppinn með að lenda á 6.
braut, sem er „rothögg" fyrir
400 m. hlaupara.
Torfi og Ásmundur.
Torfi Bryngeirsson sá einnig
um að nafn íslands gleymdist
ekki. Hann varð þriðji í undan-
keppni í langstökki með 7,20
m., og í 200 m. hlaupi varð Ás-
mundur Bjarnason annar í sín-
um riðli cg komst í milliriðil.
ísland hefir nú alls hlotið
17 stig, sem er meira en
margar milljónaþjóðir hafa
fengið. Það er vel gert. —
Nánar um mótið í gær á bls.
2. —
Yfir þúsund manns farasf
í landskjálffum
BOMBAY, 25. ágúst. — Talið
er, að yfir þúsund mánns hafi
farist í landskjálftunUog flóð-
um, sem verið hafa undanfarna
10 daga í Assam. Ah þessum
sömu sökum hafa eyðst 30 þús-
und fermílur lands'. Brýr hefur
tekið af ám, og vegum skolað
burt. Um hálf önnur miljón
manna hefir orðið fyrir tjóni í
landskjálftunum. —Reuter.
Varð ekkerf afverkfalíinu
í Bandaríkjimum
MIKILL LIÐSAFLISAMAIM
DREGIiMIM VIÐ SIIMlMYOIMG
Yarpað 600 smál. af sprengjum á iðjuver N-Kóret*
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB
TÓKÍÓ, 25. ágúst. — í dag var fremur rólegt á vígstöðvunum
í Kóreu og litlar breytingar á vígstöðunni. Sýnt er, að innrás-
arherinn dregur saman lið til sóknar. Á Sinnyondsvæðinu
norðaustan Taegu má nú vænta mikilla átaka. Eru 5 herfylki
á leið til vígstöðvanna þar eða hafa tekið sjer þar stöðu. —
Norðvestur af Haman á suðurströndinni sækja innrásarher-
iinir fast á lið Bandaríkjamanna og fá kommúnistar liðsauka
þangað frá Chinju.
WASHINGTON, 25. ágúst. — í
Bandaríkjunum hafði verið boð
að til allsherjarverkfalls járn-
brautarverkamanna á mánu-
daginn kemur. Til þess að ekki
kæmi til verkfallsins, fyrirskip
aði Truman forseti í dag, að
Bandaríkjaher skyldi taka járn
brautirnar í sínar hendur á
sunnudagskvöld. Er forsetinn
hafði gefið þessa fyrirskipun,
ljetu járnbrautarstarfsmenn
það boð út ganga, að hætt yrði
við varkfallið —Reuter.
Þjóðverjar viija leggja
Evrópuher lið
STRASSBOURG, 25. ágúst: —
Vegna umræðna um stofnun Ev
rópuhers á ráðgjafaþinginu í
Strassborg hafa fulltrúar Þjóð-
verja kvatt sjer hljóðs. Telja
þeir V.-Þjóðverja fúsa til að
eiga hlut að stofnun Evrópu-
hers. — Reuter.
KOMIVIIJNISTAR UNDIR-
BIJA MÁLAMYNDAKOSN-
INGAR í A-ÞÝSKALANDI
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BERLÍN, 25. ágúst. — Fyrsta landsþing þjóðfylkingar komm-
Flokkur í herkví
Yfirherstjórn S. Þ. býst við
meiri háttar sókn þá og þegar.
Á Taeguvígstöðvunum hafa
Bandaríkjamenn umkringt sveit
kommúnista. í henni eru 200
menn, leifar 1000 manna hóps,
sem varð viðskila frá megin-
hernum fyrir nokkrum dög'um.
Norðvestan Taegu hafa Banda-
ríkjamenn upprætt með öllu
aðra smádeild innrásarhersins.
Austurströndin
Á austurströndinni hafa kom
múnistar rekið 3 km. fleyg inn
í varnarlínu Bandaríkjamanna
fyrir norðan bæinn Kigye. Hafa
norðanm. haldið uppi sókn á
þéssum vígstöðvum um nakkura
daga skeið, én Bandaríkjamenn
hafa lítinn bilbug látið á sjer
finna. Ætla norðanmenn að
rjúfa veginn milli Uisong og
Yongchon og bi’jótast til Taegu
að austan.
únista hófst í kvöld á hernámssvæði Rússa í Berlín. Wilhelm
Pieck, forseti A-Þýskalands, ávarpaði þingið og sagði m. a.,
að allir Þjóðverjar væntu þess af þinginu, að það veitti þeim
nýjan þrótt í baráttunni fyrir friði, einingu, lýðræði og efna-
hagslegri viðreisn. —
Hann varð annar
í fugþraufðnni.
©
Örn Clausen
SÓREY — Það bar við fyrir
skömmu í Sórey í Danmörku, að
7 ára snáði fann einseyring á
götu. Jafnaldri hans kom aðvíf-
andi og vildi slá eign sinni á
fund þenna. Þeirra skiptum lauk
svo, að finnandinn fjell í götuna
og handleggsbrotnaði.
'Fjögur þúsund konimúnistar
á þinginu
Þing þetta sækja 4 þxis. kom-
múnistafulltrúar frá öllu Þýska
landi. Er talið, að 1500 þeirra
sjeu frá V.-Þýskalandi, og hef
ir mestur hluti þeirra farið
ólöglega yfir á hernámssvæði
Rússa.
Bjóða einir fram
Þinginu er ætlað að standa 2
daga. Verður þar samin stefnu-
skrá ,,lýðræðissamsteypunnar“,
en svo kalla kommúnistar sig í
,,kosnirigum“ þeim, er fram eiga
að fara í A.-Þýskalandi í októ-
ber í háust. Óþai’ft er að taka
það fram, að enginn fær að
bjóða frám í kosningum þessum
nema samsteypa þessi, þ. e.
kommúnistar.
Loffvarnaæfingar hófust
í gær í V-Evrópu
PARÍS, 25. ágúst. — í dag
hófust þriggja daga loftvarna-
æfingar Brússelríkjanna. Taka
þátt í þeim flugvjelar frá Bret-
landi, Hollandi, Belgu og Frakk
landi. Einnig eru flugvjelar úr
flugher Bandai’íkjamanna í V-
Þýskalandi. „Árásir“ voru gerð
ar á París, Brússel, Amsterdam
og ýmsar iðnaðarborgir og iðju-
ver.
Suður-vígstöðvarnar
Fyrir vestan Masan á suður-
ströndinni eru 2 óvinaherfylki,
sem sækja að 25. herfylki
Bandaríkjam., en það ver leið-
ina til Fusan, aðalbækistöðvar
Bandaríkjahers. Kommúnistar
sækja þarna fram með þunga
skriðdreka og ljetu Bandaríkja
menn lítið eitt undan síga.
Miklar loftárásir
Flugsveitir S. Þ. hafa haft
sig mjög í frammi í dag og gert
velheppnaðar árásir á öllum
vígstöðvum og fyrir norðan 38.
breiddarbaug. í seinustu árás-
um sínum vörpuðu bandarísk
risaflugvirki 600 smál. af
sprengjum yfir iðjuver í N.-
Koreu.
Þátfur kínverskra !
kommúnista í Kóreu-
sfríðinu
VVASHINGTON, 25. ágúst.
Formælandi Bandaríkja-
hers skýrði frá því í dag,
að tveir herir kínverskra
kommúnista væri nú
komnir að landamærum
Manchuríu og -Kóreu. Þá
er talið, að seinni hluta
júlí hafi 120 þungir
skriðdrekar komið til N-
Kóreu frá hafnarborginni
Drisen í Manchuríu. Þá
segir í sömu frjettum, að
kínverskir kommúnistar
búi sig undir að flytja her
gögn til Kóreu. — Reuter.