Morgunblaðið - 11.07.1959, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.07.1959, Blaðsíða 14
14 MORCVNfíf/AÐlÐ Laugardagur 11. júlí 1959 Chevrolet Glæsileg, sérstaklega vel með farin Chevrolet Bel Air ’55 einkabifreið til sölu. Bifreiðin er sjálfskipt, með vökvastýri og ,,power“ hemlum. Bifreiðin verður til sýnis og sölu í dag og á morgun kl. 2—6 e.h. báða dagana á Melhaga 10. S í LD Vantar nokkrar vanar síldarstúlkur til Raufarhafnar. Upplýsingar í síma 34580 og Raufarhöfn í síma 25. GUNNAR HALLDÓRSSON H.F. Viðaruli og hessían (þéltur) fyrirliggjandi. Ó.V. Jóhannsson Co. Hafnarstræti 19 — Sími 12363. Innheimtumaður óskast nú þegar til innheimtu á félagsgjöldum. Umsóknir sendist til afgr. Mbl. fyrir miðvikudags- kvöld, merktar: „Innheimtumaður—9898“. L O K A Ð vegna sumarleyfa frá 11. júlí — 4. ágúst. Blindravinafélag íslands Ingólfsstræti 16, sími 14046. Ptrket T-Ball Hagsýnn maður! Hann veit að skriftin verður að vera jöfn og áferðarfalleg. Þessvegna notar hann hinn frábæra Parker T-Ball . . . þann gæða- penna sem skrifar jafnt og áferðarfallega. Gefur strax og honum er beitt. Rispar ekki. Pourcus kúla einkaleyfi PARKERS Blekið streymir um kúluna og matar hina fjölmörgu blekholur . . . Þetta tryggir að blekið er alltaf skrifhæft í oddinum. Parker kúlupenni A PRODUCT OF THE PARKER PEN COMPANY 9-B214 Alma Jóhannsdóttir Möller IHinningarorð ALMA var fædd á Blönduósi 1. maí 1890, dóttir hjönanna Al- vildu f. Hansen og Jóhanns G. Möller kaupmanns. Alma var yngst af stórum systkinahóp. Þrettán ára gömul missti hún föður sinn ,én ólst upp með móð- ur sinni og systkinum á mesta rausnar- og myndarheimili. Af kunnngum er mér sagt að frú Möller hafi aldrei fallið verk úr hendi, og stjórn heimilisins hafi verið með stakri prýði. Það mun aðallega hafa verið Ólafur Möller, sem stjórnaði verzlunin- inni eftir lát föður síns. Möllers- heimilið var mjög glaðvært og alveg sérstaklega músikalskt, — mjög mikið um söng og hljóðfæra slátt. Það kom fljótt í ljós, að Alma var sérstaklega músíkölsk og trú hneigð, hún treysti strax sem unglingur á handleiðslu Guðs. Þegar Ólafur Möller dó í blóma lífsins, fluttu þær mæðgur til Lúsindu dóttur frú Möller og tengdasonar hennar Gísla ísleifs- sonar sýslumanns á Blönduósi og dvöldu þar þangað til Gísli flutt- ist til Reykjavíkur 1913, en þá fluttu þær mæðgur til Sauðár- króks. Sumarið 1914, 10. júlí, giftist Alma Runólfi Björnssyni á Korn- sá og hófu þau búskap á parti af jörðinni. Kornsárheimilið var eitt framsta heimili í Austur-Húna- vatnssýslu um mennngar- og myndarbrag. Móðir ölmu flutt- ist mð henni að Kornsá og dvaldi þar til dauðadags. Kynni okkar ölmu hófust sum arið 1916, en ég dvaldi allt sum- arið á heimili Björns móðurbróð- ur míns og hans ágætu konu, Ing- unnar frá Melum. Á Kornsá sé ég ölmu fyrst, þessa ungu og glæsi legu kaupstaðarstúlku, sem þá var orðin sveitakona og tveggja barna móðir. Ég dáðist oft að Ölmu fyrir hvað hún lagði sig alla fram við að rækja sem bezt móður- og húsmóðurstörfin. Hún var alltaf glöð og spaugsöm, sí- vinnandi og aldrei heyrðist öf- undarorð frá henni, þó við, hitt unga fólkið, færum að skemmta okkur í útreiðartúrum o.s.frv., en Alma yrði að vera heima hjá börnum ^ínum. Hún tók með innilegri gleði þátt í því, sem ég sagði henni frá ferðum mínum og skemmtunuM, en aldrei var hún glaðari en þegar hún gat gefið sér tíma til að spila fýrir mig á orgelið. Svo liðu árin. Vegir okkar skildu. Börnunum fjölgaði hjá þeim Ölmu og Runólfi, þau urðu alls sjö, og því fylgdu auðvitað ýmsir erfiðleikar eins og gerist. Haustið 1925 kom ég aftur til dvalar í Húnavatnssýslu sem vefnaðarkennari við Kvennaskól- ann á Blönduósi. Þá tókust aftur upp fyrri kynni mín við Kornsár- heimilið. Ég skrapp fram að Kornsá í jólaleyfi og oftar, og alltaf er mér tekið með sömu elskulegu hlýjunni og góðvild- inni. Fann ég að Alma hugsaði fyrst og fremst um börnin sín, hugsaði um að koma þeim tií náms, og að þau gætu orðið sem beztir þjóðfélagsþegnar. Alma skilur útþrá barnanna og að þau laðast ekki að sveitastörfum. Ég hygg að þar hafi oft verið þungur róður fyrir Ölmu, því að Runólf- ur er allur bundinn við sveitina og móður jörð. Bæði voru þau hjón elskulegar manneskjur, já úrvalsfólk, hvort á sínu sviði ,en skapgerð og upp- eldi gerólíkt. Það hlaut því svo að fara að þau slitu samvistum. Eftir það var Alma hjá börnum sínum sitt á hvað, þó nú síðustu árin mest í Keflavík hjá Ingunni dóttur sinni og tengdasyni sínum, Kristjáni Oddssyni. f janúar 1947 varð Alma fyrir þeirri þungu sorg að missa uppáhaldsson sinn, Jó- hann, frá konu og tveimur ung- um sonum. Þá var það trúin á guðs handleiðslu, sem hjálpar henni ,hún var svo sannfærð um framhaldslíf, og að Guð sneri á- vallt öllu á bezta veg. Ég hefi enga konu þekkt, sem var meiri og betri móðir en Alma. Börnin og tengdabörnin sýndu líka í veikindum hennar, að þau kunnu að meta hana og vildu þakka henni. Það var ekki hægt að sýna meiri og betri umönnun en þau gerðu í þessum erfiðu veikindum Ölmu. Ég veit að fyrir það hefir hún beðið þeim Guðsblessunar. Ég þakka þér, Alma mín, margra ára órofa tryggð, öll hlýju orðin og bliðu brosin. Veit ég að þú heldur áfram að fylgjast með öllum þínum vinum og búa í hag- inn fyrir börnin þín. Börnum ölmu og öldruðum bróður, Tómasi, sem nú er einn á lífi af þeim Möllerssystkinum, sendi ég innilegar samúðarkveðj- ur. — En Alma er sæl að hafa fengið að svífa á vængjum morg- unroðans „meira að starfa Guðs í geim“. Ásta Sighvatsdóttir. — Utan úr heimi Framh. af bls. 8 hún var gædd málarahæfileikum, gat hún teiknað mjög laglega og lét því eftir sig allmargar tilfinn- ingaríkar barnaskissur og tré- snit. Bergithe Johannesen hefur sér- hæft sig í vatnslitamyndum, Elin borg Liitzen í ævintýrateikning- um og Fríða Zachariassen dregur upp myndir úr hversdagslífinu í Klakksvik í látlausu formi. ★ William Heinesen telur sig, eins og áður var sagt, ekki mál- ara, en hann er það engu að síð- ur. Hann hefur gert margar skreytingar, nú síðast í nýju skólahúsi í Þórshöfn. Myndir hans eru oft broslegar og ævin- týrakenndar. Kemur það síðar- nefnda einkum fram, þegar hann sækir efni mynda sinna í gaml- ar færeyskar sagnir og kvæði. Sonur hans, -Zacharias Heine- sen, sem nýlega skreytti Gistihús Föroya, stærsta hótel í Þórshöfn, er einn af fáum afstrakt málurum eyjanna. Myndir Bent Restorffs eru einnig undir áhrifum frá tízkustefnum. Einasti myndhöggvari Fær- er Janus Kamban (f. 1912), sem býr í Þórshöfn. Myndir hans eru mótaðar af eftirminnilegum rea- lisma, hámyndir og brjóstlíkön. Sérkennilegasta verk hans er bronzestytta, sem sýnir færeyska dansinn, kveðjudansinn. Kunn- ust er minnismerki hans um málamanninn V. U. Hammers- haimb, sem stendur fyrir fram- an bókasafnið Kaupmannahöfn. William Heinesen er formaður nefndar, sem annast innkaup íæreyskra listmuna. Vonir standa til, að með tíð og tíma komist hún í þau efni að geta stofnsett safn. Þess vegna er srax byrjað að afla listaverkanna. Stofnuninni var hrundið á fót eftir styrjöldina, og fram til þess hefur nefndín fest kaup á 86 lista- verkum fyrir um 90.000 d. kr. Myndirnar hanga í opinberum skrifstofum, símastöðinni, sjúkra- húsinu, auk þess sem Föroya Bank hefur fasta sýningu á verk- um listasafnsins. Eftir styrjöld- ina var einnig stofnað listfélag, sem skipuleggur sýningar, og er sú stærsta þeirra haldin á Ólafs- vökunni. — Færeysk nútímalist einkenn ist af öflugum framförum, segir William Heinesen. — Orka, sem legið hefur ónotuð í þúsund ár, hefur allt í einu fengið útrás. Hin mikla eftirspurn á einnig rætur að rekja til þess, að það er komið í tízku að kaupa listaverk. Málverkin eru notuð til afmælis- gjafa, brúðkaupsgjafa og gjafa til tiginna gesta. Og allar opin- berar byggingar skulu skreyttar. Ég held, að það sé nú á tímum auðveldarar að komast af sem listamaður í Færeyjum en Dan- mörku. ★ Ef til vill er fjárhagsafkoman betur tryggð í Færeyjum, en viss- ir ókostir eru við það að halda stöðugt kyrru fyrir á þessum einangruðu klettaeyjum. Það er mín skoðun, segir málarinn Ing- álvur av Reyni, sem lokið hefur námi við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn og efnt til nokk- urra sýninga í Danmörku: .— Vinir minir í Danmörku hafa oft öfundað mig, en þeir hafa aldrei fundið til einmannaleikans hér eða gert sér grein fyrir ein- angrunni Þegar ég hélt til Fær- eyja, að loknu námi mínu í Kaup- mannahöfn, hugsaði ég með mér, að það mundi verða dásamlegt að hafa sagt skilið við stórborgina og koma heim í færeýska náttúru. Fyrsta hálfa árið líður manni stórkostlega vel, en einn góðan veðurdag finnur maður skyndi- lega hjá sér knýjandi löngun til að skoða myndir, ekki endur- prentanir listaverkabókanna, heldur lifandi list í safni. Þess á maður engan kost, og fyrir bragðið finnst manni eins og maður sé að þorna og visna. Stundum efast maður um að hafa lent á réttri hillu. Já, ef til vill á hverjum einasta degi. Vanda- málin verða stærri, og það er eins og maður sé klofinn. Snjallast væri að búa til skiptis í Færeyj- um og Danmörku. En það er ekki hægt, þegar maður á sjö barna fjölskyldu. Ekki ætla ég mér að mála til- veruna í Færeyjum of myrkum litum. Maður finnur lifandi á- huga hjá fólkinu bæði í Þórshöfn og úti um byggðirnar; til þess er gott að vita. Tengslin við fólk- ið eru með ágætum. Það fylg- ist með gangi verksins, skoðar myndina frá fyrstu dráttum til innrömmunar. — Hvað finnst yður um nú- tímalist í Færeyjum? __Hún er hvorki fugl né fiskur, hún þarf að taka miklum fram- förum. Margir eru gæddir góðum gáfum, en leiðin er löng. Enn höf- um við ekki fundið tjáningarmál fyrir það, sem einkennandi er í eðli þjóðarinnar. Þegar maður horfir á franskar myndir, efast maður ekki um, að þær eru frá Frakklandi. Sá dagur mun von- andi einnig renna upp, að ekki þurfi að efast um, hvort einhver mynd sé frá Færeyjum. Hudson Rambler bífreið árgangur ’56 til sölu. Upplýsingar í sendiráði Bandaríkjanna Laufás- vegi 21 virka daga frá kl. 9—6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.