Morgunblaðið - 20.08.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.08.1959, Blaðsíða 1
46. árgangur 179. tbl. — Fimmtudagur 20. ágúst 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsins Enn fjölgar gervi funglum á lofti // Uppgötvari VI" kominn á braut sina Reynt verður að ná hylki úr honum sem fellur til jarðar í dag SANTA MONICA, 19. ágúst. (NTB-AFP). — í dag, um kl. 7 síðdegis, var enn skotið á loft eldflaug með gervitungli, á vegum bandaríska flotans. Eldflauginni var skotið frá Vandenberg-flugstöðinni í Kaliforníu, og nefnist gervitungl- ið „Uppgötvari VI“. Eftir hljóðmerkjum frá því að dæma, hefur tilraunin gengið að óskum og gervitunglið komizt á fyrirhugaða braut sína um jörðu. Sams konar tilraun var gerð, er „Uppgötvari V“ var kominn á braut sína, en hun mistókst vegna galla á sendistöð hylkisins. Eldflaugin er 23 metra löng. Fyrsta þrepið er af gerðinni Thor. Við tilraun þessa var not- að nýtt eldsneyti — nýtt afbrigði steinolíu — öflugra en Banda- ríkjamenn hafa yfirleitt notað. Reyndar var sams konar elds- neyti í fyrsta skipti notað með góðum árangri, þegar „Uppgötv- ara V“ var skotið á loft sl. fimmtudag. — Nokkrum mínút- um eftir að eldflaúginnni var skotið, heyrðust hljóðmerki, sem gáfu til kynna, að síðasta þrepið méð gervitunglinu væri komið á braut sína um jörðu, samkvæmt áður gerðum útreiknirigum. — Umferðartími hins nýja gervi- tungls verður 90 minútur, og ligg ur brautin yfir heimskautin. Á morgun mun verða sleppt lausu hylki, sem fest er við gervi tunglið, <^g er gert ráð fyrir, að það falli til jarðar við Hawaii. Þar mun sveit flugvéla vera á verði í dag og reyna að fanga hylki þetta, er það fellur. Það er búið sérstakri fallhlíf til þess að draga úr hraðanum. 133 farast í flug- lysi MADRID, 19. ágúst. Brezk Dakota-farþegaflugvél hrap aði í kvöld í fjöllin um 40 km fyrir norðan Barcelona og létust allir sem í flug- vélinni voru, alls 33 manns. Flugvélin, sem var eign brezka flugfélagsins Trans- air, var í Ieiguflugi og voru með henni 27 brezkir stúdentar, sem voru á skemmtiferðalagi, og tveir spænskir stúdentar. Flug- vélin lagði upp frá Barce- lona 10 mínútum fyrir slys- ið og var ferðinni heitið til London. Kommúnistar í Kerala voru fegnir íhlutun sambandsstjórriarinnar segir Nehru Nýju Delhi, 19. ág. NTB/Reuter. NEHRU forsætisráðherra Ind- lands sagði í dag, að fyrirhugað- ar heimsóknir þeirra Krúsjeffs og Eisenhowers hvors til annars vitn uðu um vilja stórveldanna til að leysa alþjóðavandamál á friðsam- legan hátt. í ræðu, sem Nehru hélt í neðri deild þingsins sagði hann, að fyrir aðeins örfáum árum hefði það verið mjög erfitt að koma slíkum heimsóknum til leiðar. Þetta mætti ekki túlka svo, að annar hvor aðilinn hefði breytt um stefnu eða slegið af, heldur væri einungis um það að ræða að leiðtogar stórveldanna gætu nú hitzt og talazt við eins og venjulegir menn, því þeim hefði skilizt að alþjóðavandamál verða ekki leyst með valdi. Nehru vék einnig að ástandinu í Kerala og lagði áherzlu á, að ihlutun sambandsstjórnarinnar og brottvikning kommúnista- Fimmtudagur 20. ágúst. Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Þær sátu heima og hlustuðu. —: 8: Ritstjórnargreinin: Skattráns^- stefnan lamar atvinnulíf og sjálfsbjargarviðleitni. — 9: Grein eftir Knút Þorsteinsson, skólastjóra, um íslenzka æsku. stjórnarinnar í Kerala hefði ver- ið einasta leiðin til að koma þar á friði og reglu. Kommúnistum hefði reynzt erfiðara og erfiðara að stjórna fylkinu vegna hinna miklu og ítrekuðu óeirða og upp- þota, sem þeir ættu þó sjáífir sök á. Hann kvað kommúnistaleiðtog ana hafa verið fegna því, að sam bandsstórnin skarst í leikinn. Stærstu mistök kommúnistastjórn arinnar í Kerala hefðu verið þau að líta á alla þá, sem ekki voru í kommúnistaflokknum, sem fjand menn ríkisins. Ég er hvorki kommúnisti né andkommúnisti, sagði Nehru, en ég held að hinn kreddubundni kommúnismi sé löngu úreltur. Myndin er af þeim Onnu Maríu Rasmussen og Steven Rockefeller, ásamt móður hans, Mary Rockefeller, er sú siðastnefnda kom til Kristianssand á dögunum. ------------------------:-------------------------------------------® Foot landsstjóri gefur skýrslu um Kýpur Crivas er orðinn Grikkjum þungur í skauti Keypti sítar Níkósíu, 9. ágúst. NTB-AFB. GRIKKIR og Tyrkir á Kýpur eiga enn langt í land, áður en hægt verður að segja að gagn- kvæmt samband þeirra ein- kennist af trausti og sam- starfsvilja, segir í skýrslu, sem brezki landsstjórinn á Kýpur, Sir Hugh Foot, birti í dag. I yfirliti yfir þá sex mánuði, sem liðnir eru síðan sáttmálinn um framtíð Kýpur var undirrit- aður í London, segir landsstjór- inn, að fyrri helmingur hins um- samda árs, áður en Kýpur fái sjálfstæði, hafi verið stórtíðinda- laus og allt hafi gengið vel, en fyrir höndum sé mikil vinna, áð- ur en hægt verði að leysa öll þau mörgu vandamál, sem eyjar- skeggjar eigi enn við að stríða. Sir Hugh lætur í ljós ánægju yfir því, að íbúar eyjarinnar hefðu tekið ákvörðun um fram- tíð sína og sagði, að bæði þjóð- brotin væru staðráðin í að vinna bug á öllum erfiðleikum og stofna sjálfstætt lýðveldi eftir nokkra mánuði. Sir Hugh gaf skýrslu sína í sama mund og Grivas hershöfð- ingi hélt uppi áróðri heima í fyrir sameiningu hélt Grikklandi Herter gefur skýrslu PARÍS, 19. ágúst. NTB-Reuter. Herter utanríkisráðherra Banda- ríkjanna mun flytja fastaráði Atlantshafsbandalagsins skýrsiu um fyrirhugaðar viðræður Eisen- howers forseta við Krúsjeff for- sætisráðherra Sovétríkjanna. Herter flytur skýrsluna 4. sept. n.k. eftir að Eisenhower hefur átt viðræður sínar við leiðtoga vestrænna ríkja. Herter gefur skýrsluna sam- kvæmt beiðni fastaráðsins, sem hefur látið í ljós óskir um að ræða síðustu viðburði á alþjóða- vettvangi. Skýrslan verður flutt sama daginn og Eisenhower flýg- ur vestur um haf eftir fundi sína í Bonn, París og London. Búizt er við að utanríkisráð- herra ýmissa smærri aðildar- ríkja Atlantshafsbandalagsins sitji fund fastaráðsins 4. sept. én það hefur enn ekki verið stað- fest opinberlega. Þó er talið alveg víst að utanríkisráðherrar Bene- lux-landanna, Ítalíu og Frakk- lands verði á fundinum. Margar ríkisstjórnir í Vestur-Evrópu hafa látið óskir um að fá að fylgjast með viðræðum Eisen- howers við Krúsjeff og fá vitn- eskju um, hvaða mál verða tekin fyrir af þeim. Kýpur og Grikklands. Það er haft eftir góðum heimildum, að grísku og tyrk- nesku fulltrúarnir á Kýpur sem vinna að því að gera drög að stjórnarskrá fyrir eyjuna séu komnir í ógöngur. Nefnd- in hætti störfum skyndilega i síðustu viku vegna ágreinings um væntanlegt valdsvið for- setans og varaforsetans, en hinn fyrri verður af grískum uppruna og sá síðari af tyrk- neskum. Grikkir á Kýpur segja, að tyrkneski minnihlut- inn heimti, að varaforsetinn fái sömu völd og forsetinn Framh. á bls. 19. I * s \ Fyrstu bingkosn- ss \ ingar i Malaja S SINGAPORE, 19. ágúst. NTB | j AFP. — Hilli 75% og 80% s J af íbúum Malaja-ríkjasam- i S bandsins, sem eru 2 milljón- \ i ir, tóku £ dag þátt í þing- s \ kosningum í fyrsta sinn. Kos- i S ið var í neðri deild þjóðþings • i ins, en þar eiga sæti 104 s • menn. Við kosningarnar voru i S 253 menn í framboði, og eru ■ S þeir annað tveggja meðlim- \ • ir í einum af sex stjórnmála- S ( flokkum Malaja eða óháðir. ■ S Þrír þingmenn neðri deildar ( i hafa þegar verið kosnir og S ^ eitt þingsæti verður autt um i S sinn af sérstökum ástæðum, ; i þannig að í dag voru kjörnir S • -a aa » 100 menn. Þingflokkarnir, sem að rik s s \ | isstjórninni standa, vilja hafa \ S brezkan her í landinu, en ^ ) stjórnarandstæðingar ekki. s í kvöld var tilkynnt að sam ) s ( ----------------—----------s S steypuflokkar stjornarinnar ; ) undir forsæti Abdul Rahmans s | hefðu fengið hreinan meiri- ) S hluta á þingi. Eftir var að ^ ) telja atkvæði í 15 kjördæm- S ^ um síðast þegar til fréttist, en ) S stjórnarflokkarnir höfðu þeg ^ j arfengið 61 þingmann kjör- s \ inn' | handa elsk- unni sihni KRISTIANSAND, Noregi, 19. ág. (Reuter). — Þau Anna María Rasmusst.- og Steven Rockefeller hafa varlr stundlegan frið fyrir blaðamönnum þessa dagana. — 1 dag gátu þau þó „laumazt" inn í Kristiansand, án þess nokkur vissi — . verzlunarerindum. — En friðurinn stóð ekki lengi. — Er þau ætluðu að fara að ganga inn í hljóðfæraverzlun eina, bar einhver kennsl á þau. Og það var eins og við manninn mælt — nær samstundis var þar kominn hóp- ur blaðamanna og ljósmyndara, eins og þcir hefðu sprottið upp úr jörðinni. Elskendurnir sluppu naumlega inn fyrir Jyr verzlunarinnar — og fengu lokað þeim við nefið á 50 fréttahaukum og fjölda for- vitinna bæjarbúa, s.em þust höfðu að. — Þarna inni dvöldust þau hálfa stund, og Steven keypti m. a. fagran sítar handa elskunni sinni — og auðvitað nótur með. —: Er þau loks komu út úr búð- inni aftur, blossuðu perur ljós- myndaranna og spurningunum rigndi. — En þau veittu frétta- snápunum enga úrlausn, fyrr en heim kcm til gistihússins, þar sem móðir Stevens dvelst einnig. — Þar ræddi hann stuttlega við fréttamenn til að seðja sárustu forvitni þeirra. Að því búnu héldu þau þrjú, Anna María, Steven og frú Rocke feller, ÖL til klæðskerans, sem er að leggja síðustu hönd á brúð kaupsföt unga milljónarans. — Koma „milljónapabbans", Nel- sons 'ttockefellers, er boðuð á föstudat, — en brúðkaupið * fer fram á laugardag, sem kunnugt er. Cífurlegur ferða* mannastraumur austur um haf OSLÓ, 19. ágúst NTB. — Á þessu ári er búizt við 700.000 bandarísk- um ferðamönnum til Evrópu, og af þeim leggja um 150.000 leið sína til Norðurlanda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.