Morgunblaðið - 09.09.1960, Blaðsíða 1
24 síður
47 árgangur
205. tbl. — Föstudagur 9. september 1960
Prentsmið-ja Morgunblaðsins
Ræðir öryggisráð-
/ð Kongó í dag?
Hammarskjöld sakar Belgi um oð hafa
svikizt um oð flytja lið sitt frá landinu
NEW YORK, 8. september. —
(NTB — Reuter) — í dag
var útbýtt til fulltrúa í Ör-
yggisráðinu nýrri skýrslu
Hammarskjölds, framkv.stj.
S. þ., um ástandið í Kongó,
og er búizt við, að fjórði fund-
ur ráðsins um Kongómálið
hefjist þegar á morgun, þar
sem ástandið hefur farið
versnandi á margan hátt und-
anfarið. — Þá hefir Hamm-
arskjöld gagnrýnt Belgi all-
harðlega fyrir að hafa ekki
staðið við skuldbindingar sín-
ar í Kongó.
• Skýrsla Hammarskjölds.
Höfuðatriðin í skýrslu Hamm
arskjölds eru þessi í stuttu máli:
1) Hann gagnrýnir það, að utan
aðkomandi aðilar skuli hafa
blandað sér í gang mála í Kongó
— en nefnir engin nöfn. Hvetur
hann ráðið til að ítreka samþykkt
sýna um, að engir einstakir að-
ilar eða ríki skuli skipta sér af
Kongómálinu. 2) Hann skorar á
þátttökuríki S. þ. að stofna í
skyndi 100 millj. dollara hjálpar
sjóð fyrir Kongó. 3) Hann telur
nauðsynlegt að Kongóher — eða
a.m.k vissár herdeildir hans —
verði afvopnaður.
• Skortur á samstarfsvilja.
Gagnrýni Hammarskjölds á
Belgi kemur fram í skeytaskipt-
um milli hans og belgisku stjórn
arinnar, sem birt hafa verið. Þar
fullyrðir hann m.a., að enn séu
um 650 belgiskir hermenn á
tveim stöðum í Kongó, þrátt fyr
ir margföld loforð belgisku stjórn
arinnar um að hafa lokið brott-
flutningi allra hermanna sinna
fyrir sl. mánaðarmót. — Kveðst
hann harma þann skort á sam-
starfsvilja Belgíu við S.þ., sem
þannig komi berlega fram.
með her
Yfirlýsing Lumumba, er hann hafði knuið
öldungadeild þingsins til fylgis við sig
LEOPOLDVILLE, 8. sept. —
(NTB — Reuter — AFP) —
Lumumba forsætisráðherra
krafðist þess í kvöld, að all-
ar liðssveitir Sameinuðu
þjóðanna yrðu tafarlaust á
brott úr Kongó. — Lumumba
bar fram kröfuna eftir að
hann hafði fengið traustsyfir-
lýsingu öldungadeildar þings-
Nýjar hindranir
kommúnista í Berlín
BERLÍN, 8. sept. (NTB-Reuter)
— Austur-þýzka stjórnin
samþykkti í dag að takmark-
anir á ferðum vesturþýzkra
borgara til Austur-Berlínar
skuli ganga í gildi að nýju,
að því er austur-þýzka frétta-
stofan ADN hermir. — Þetía
er í annað sinn á tíu dögum,
að slíkar takmarkanir eru
settar. Hinar nýju reglur
munu eiga að gilda frá mið-
nætti í nótt. Þær gilda ekki
fyrir íbúa Vestur-Berlínar.
ins, með 41 atkv. gegn 2. Að
atkvæðagreiðslunni lokinni
sagði Lumumba: „Vér verð-
um að krefjast tafarlauss
brottflutnings allra her-
manna S. þ. frá Kongó.“ —
Kvað hann S. þ. raunveru-
lega hafa „hernumið“ landið
með því að taka í sínar hend-
ur flugvellina og útvarps-
stöðina. Hann kvaðst hins
vegar áfram mundu leita eft-
ir tæknilegri samvinnu og að-
stoð samtakanna.
★ ATKVÆÐAGREIÐSLA
OG HERMENN
Hinn eindregni stuðning-
Innrás í
Katanga
SÍÐUSTU fregnir herma,
sem gerðist meðan á -atkvæða
greiðslunni stóð, segir AFP-
fréttaritarinn. Nafnakall var
viðhaft, en rétt sem það var
byrjað tóku hermenn Lum-
umba að streyma inn í þing-
salinn. Höfðu þá tveir þing-
menn greitt atkv. gegn for-
sætisráðherranum. Við komu
hermannanna varð dauða-
hljóð í salnum, — og allir
þingmenn greiddu Lumumba
atkvæði, nema tveir, sem sátu
hjá. —
a
Áður höfðu þingmenn hins
vegar snúizt gegn honum, er
hann vildi fá orðið, áður en hon-
um bar. Fyrstur talaði Albert
Delvaux, ráðherra sá, sem fjall-
að hefir um mál er varða sam-
bandið við Belgíu, en Lumumba
hefir vísað honum úr stjórninni.
Delvaux hafði stutt þá ákvörð-
un Kasavubu forseta að reka
Lumumba úr embætti, og gerði
hann nú grein fyrir þeirri af-
stöðu sinni og kvað hana hafa
verið löglega í alla staði. Lum-
umba hugðist svara, en þá mót-
mæltu margir þingmanna og
Framh. á bls. 2.
ÞETTA er mynd af fyrstu
þrýstiloftsflugvél í heimi, sem
getur hafið sig til flugs og
lent — lóðrétt. Það er að von-
um, að slíkt veki athygli, þeg-
ar menn hafa óttazt, að
þoturnar mundu krefjast sí-
fellt lengri og dýrari flug-
brauta. — Flugvéi þessi er
brezk og nefnist Short SC-1.
Hún vakti mesta athygli alls,
sem fram kom á flugsýning-
unni miklu í Farnborough í
Englandi, sem hófst um s.l.
helgi. — Þar er einnig til sýn
is nokkur hluti af annarri
slíkri flugvél, orrustuþotunni
Hawker 1127, sem mikil leynd
hvílir enn yfir.
Þrjár franskar
kjarnasprengjur
PARÍ8, 8. sept. (Reuter). —
Hið útbreidda blað „France Soir“
sagði í dag, að Frakkar myndu
að líkindum sprengja þrjár
kjamorkusprengjur í Sahara
einhvern tíma frá því í nóvember
í ár til apríl 1961.
— ★ —
Jacpues Bergeal, vísindafrétta-
ritari blaðsins, sem staddur er í
Kaupmannahöfn í sambandi við
alþjóðlegt þing kjarnorkufræð-
inga þar, sagði í frétt sinni, að
sérfræðingar hafi upplýst, að
sprengingarnar muni fara fram
á Hoggarsvæðinu sunnarlega á
eyðimörkinni — og verði fyrsta
sprengingin neðanjarðar.
— ★ —
Frakkar hafa sprengt tvær
kjarnasprengjur, hina fyrri 13.
febr. og þá síðari 1. apríl sl.
Danir kjósa í nóvember
— um skattamálin fyrst og fremst
Enn syrtir í álinn
fyrir GaitskeH
Kaupmannahöfn, 8. sept.
(Einkaskeyti frá fréttaritara
Morgunblaösins).
VIGGO KAMPMANN for-
sætisráðherra hefir ákveðið
gefið í skyn, að þingkosning-
ar í Danmörku muni fara
fram í nóvember n. k. — og
verði fyrst og fremst kosið
um stefnuna í skattamálum.
— ★ —
Ekki hefir kosningadagur end-
anlega verið ákveðinn, en mun
verða kunngerður, þegar þingið
kemur saman til skammrar setu
hinn 4. október. Sennilega fara
kosningarnar þó fram 22. nóv.,
hálfu ári áður en núverandi kjör-
tímabil rennur út.
— ★ —*
Forsætisráðherrann hefir lát-
ið svo um mælt, að efnahags-
ástæður séu tryggar í Danmörku,
varnarmálin hafi verið endur-
skipulögð og miklar umbætur
verið gerðar á sviði þjóðfélags-
mála og lista — en eftir sé að
koma á nauðsynlegri breytingu
skattakerfisins. — Ekki muni
reynast unnt að framkvæma
hana með æskilegu meirihluta-
fylgi skömmu fyrir kosningar.
Auk þess sé réttast að gera sér
sem gleggsta grein fyrir sjónar-
armiðum kjósenda ,áður en
breytingarnar séu gerðar.
að um 300 manna her Lum-
umba-stjórnarinnar sé nú
kominn inn í Katanga-hérað-
ið. — Hafi herlið þetta farið
yfir Luika-ána á norður-
mörkum Katanga í morguns-
árið.
Samkvæmt góðum heim-
ildum í Elisabethville byrj-
uðu hermenn Lumumba þeg-
ar að leita uppi nafnkunna
fylgjendur Tshombes forsæt-
isráðherra, og hafa þeir þeg-
ar komið fjölmörgum fyrir
kattarnef.
♦-------------------------♦
ur, sem Lumumba fékk í öld-
ungadeildinni (að vísu voru
29 þingmenn fjarverandi),
verður að skoðast í ljósi þess,
DOUGLAS, eyjunni Mön, 5. sept.
(Reuter) — Þing brezku verka-
lýðssamtakanna hér samyþkkti
í dag einróma ályktunartillögu,
þar sem eindregið var haldið
fram gildi þjóðnýtingar í iðnað-
inum — og bæri að auka hana.
— ★ —
Þessi samþykkt fer í bága við
yfirlýsta stefnu Gaitskells, for-
ingja Verkamannaflokksins, sem
og önnur samþykkt þingsins í
landvarnamálum í gær. Er hann
nú talinn í erfiðri aðstöðu, er
floWcsþing Verkamannaflokks-
ins hefst í næsta mánuði — og
auknar líkur til, að hann kunni
að verða undir og þá sennilega
hverfa frá stjórnmálaafskiptum.
— ★ —
Segja má, að allur þorri
brezkra biaða hafi í dag beint
harðri gagnrýni að þingi verka-
lýðssamatakanna fyrir samþykkt
hinna andstæðu tillagna í varn-
armátum í gær. — Fara mörg
blöð hinum háðulegustu orðum
um þann hráskinnaleik og tala
um „hneyksli" og „ómerkilega
skopsýningu"