Morgunblaðið - 09.10.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.10.1960, Blaðsíða 1
I 40 síður (I. og II.) og Lesbók 47 árgangur 231. tbl. — Sunnudagur 9. október 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins Læknavísindin vinna enn sigur Komizt fy* ir mjaðmaliðhlaup nýfæddra barna LÆKNAVÍSINDUNUM hef- ur nú tekizt að sigra að fullu eina af þeim þjáningum, sem fylgt hafa mannkyninu frá örófi alda. Það eru sænskir vísindamenn og læknar, sem hafa komizt að því, hvers vegna talsvert mörg ungbörn ganga úr mjaðmalið við fæð- ingu. En þetta hefur valdið mörgum, þegar þeir vaxa upp þjáningum og bjargarleysi. Það er nú komið upp, að kirtlavökvi frá móðurinni veldur þessu. Er nú hægt að forðast þetta með ollu á fæð- ingardeildum. Aðgerð Lorenz Svenska Dagbladet í Stokk- hólmi greinir frá þessum sigri læknavísindanna í fyrradag. Það greinir frá því að mjaðmarlið- hlaup hafi komið fyrir að jafnaði hjá einu af hverju þúsundi fæddra barna. Sjúkdómurinn hef ur verið þekktur frá fornu fari. Lengi vel voru engin ráð til gegn honum og orsakaði hann mikinn fjölda bæklaðra og bjargarlausra. Um siðustu aldamót fann aust- urríski læknirinn Lorenz upp að- ferð til að setja börnin í liðinn. En það var erfið aðgerð og þurfti barnið að vera í gipsi eitt til tvö misseri. Aðferð hans hefur síðan verið fylgt lítið breyttri. Menn hafa komizt að því, að þeim mun betri árangur náðist með aðgerð Lorenz eftir því sem barnið var yngra, þegar hún var framkvæmd. En sjaldnast varð vart við missmiðina fyrr en barn- ið fór að ganga Qg oft kom það fyrir að það dróst síðan í 1 til 2 ár að menn leituðu læknis. Alþingi sett n morgun EINS og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu verður reglu- legt Alþingi 1960 sett á morgun, mánudaginn 10. október. Athöfnin hefst með guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni kl. 13,30 Séra Bjarni Sigurðsson, prestur á Mosfelli, prédiaar, en dr. Páll ísólfsson leikur á orgelið. Að guðsþjónustu lokinni fer þingsetningin fram í sal neðri deildar Alþingis. Finnar beita sér fyrir efiingu Norðurlandaráðs Akveðið í Harpsund að draga hvergi úr starfsemi þess STOKKHÓLMI, 8. okt. — Það var ákveðið á fundi for- sætisráöherra Norðurland- anna og forseta Norðurlanda- ráðsins að draga á engan hátt úr starfsemi ráðsins. Öllum tillögum um að fækka fund- um ráðsins eða takmarka um- ræðuefni þess var stungið undir stól. Þessu veldur fyrst og fremst eindregin krafa Barizt I Dresden í A - Þýzkalandi BERLÍN, 8. okt. — Alvarleg uppþot urðu sl. laugardag í Dresden í Austur-Þýzkalandi. Fréttir af þeim bárust fyrst til Vestur-Berlínar á fimmtu- daginn og síðan hafa borizt frásagnir sjónarvotta af þeim. Alger þögn ríkir um þennan viðburð í austur-þýzkum blöðum. Dresden-sýkin í Dresden hefur lengi verið veitt einna mest mótspyrna gegn valdi kommúnista 1 Austur- Þýzkalandi. Þar urðu mjög mikl- ar og blóðugar óeirðir í júní Frainh. a bls 2. Finna um að Norðurlanda- ráðið verði eflt sem mest til þess að mynda tengilið milli N or ður landaþ j óðanna. ★ Ráðherrar Norðurlanda og for- setar Norðurlandaráðs héldu fund með sér í Harpsund, sænska forsætisráðherrabústaðn- um á fimmtudag og föstudag. — Fundinn sátu Viggo Kampmann forætisráðherra Danmerkur, J, Sukselainen forsætisráðherra Frh. á bls. 23 Ætlc þeir oð svíkja í skipulagsmáíum alþýðusamtakanna ? A FUNDINUM í Trésmíða- félaginu sl. miðvikudagskvöld voru fulltrúaefni kommún- ista þaulspurðlr um afstöðu þeirra til þess máls, sem for- seti ASÍ hefir sagt að yrði annað aðalmál Alþýðusam- bandsþingsins, skipulags- breytingarnar á alþýðusam- tökum. Samkvæmt þeim tillögum mun Trésmiðafélagið sem önnur félög innan ASl leggjast niður sem sjálfstætt félag og renna inn í heildarsamtök byggingariðnaðar- ins. __ Mál þetta hefir áður borið á góma í félaginu og um það verið gerðar ályktanir. Kommúnist- arnir í stjórn félagsins hafa svo sem þeirra var von og vísa, svik- izt um að taka málið til um- ræðu í félaginu og senda félags- mönnum tillögurnar til aflestrar, þrátt fyrir það að einróma sam- þykkt á fjölmennum fundi í sumar fæli þeim að gera það. Þegar þeir á félagsfundinum voru minntir á þetta og þess krafizt, að þeir gæfu skýr svör um afstöðu þeirra á Alþýðusam- bandsþingi ;il málsins, þögðu " . Frh. á bls. 2. SÍÐUSTU áratugina hafa jökl ar landsins hraðminnkað. Síð an reglulegar mælingar hóf- ust um 1930 hafa skriðjöklarn ir t.d. stytzt um 500—1000 m. og þynnzt verulega. Myndin hér til hliðar sýnir vei hvernig komið er fyrir Okinu. Jökullinn hefur eyðst svo mjög að gígurinn er orðinn auður nema í botninum og er hann nú fyrir utan fönnina. Á korti Þorvaldar Thoroddsen, sem gert var um 1890, er Ok- ið 35 ferkm. á stærð, skv. her- foringjaráðskortinu frá 1910 er hann 15 ferkm. og skv. amerísku korti, sem gert var 1945 er jökuilinn ekki nema J ferkm að flatarmáli. Þess ber þó að geta að kort Þorvaldar Thoroddsen er ónákvæmt og s ekki byggt á öruggum heim- ildum. Og enn minnkar Okið, eins og myndin sýnir, sem tekin I var úr lofti fyrir nokkrum dögum, er jöklarannsóknar- nenn flugu yfir hálendið. Ný sigdæld Svo er hér önnur merkiieg mynd, sem tekin var i sömu flugferð. Hún sýnir hvað gerð- ist uppi í Vatnajökli, norður af Grímsvötnum, þegar hlaup ið kom í Skaftá fyrstu dagana í sept. og brennisteinslyktin fannst víða á Norðurlandi. Eft- ir að hitinn þarna undir jökl- inum hefur verið búinn að bræða talsvert vatnsmagn, hef ar það brotizt fram í Skaftá. Og þá hefur jökullinn yfir taðnum sigið og sprungið. Myndin sýnir sigdæld þá sem þarna hefur myndast. Myndirnar tók Birgir Kjaran

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.