Morgunblaðið - 10.08.1961, Blaðsíða 1
24 siður
48. árgangur
Krúsjeff hvikar ekki:
Þýzkaland veröur malað í
duft verði á okkur ráðizt
Faðmlög
og
kossar
i Kreeml
Moskvu, 9. ágúst — (Reuter)
I GEIMFARINN Ghermann
Titov kom til Moskvuborgar
í dag og var ákaflega fagn-
að. Á flugvellinum tóku m.a.
á móti honurn Krúsjeff for-
sætisráðherra, Tamara, eigin
kona hans, og foreldrar hans.
Krúsjeff kyssti Titov og
faðmaði, en síðan var ekið
inn í borgina, að Rauða
torginu.
Fréttamenn náðu tali af Ta-
möru rétt áður en flugvél Titovs
lenti og kvaðst hún hreykin og
hamingjusöm. Ég er svo tauga-
óstyrk, sagði hún, að ég get
hreynt ekkert annað sagt.
Er Titov gekk niður úr flug-
vélinni, staðnæmdist hann
skammt frá Krúsjeff og skýrði
ihonum hátíðlega frá árangri
geimferðarinnar, en Krúsjeff
hlýddi á með gleðibrosi. Síðan
faðmaði hann geimfarann að sér
góða stund og kyssti innilega á
íbáðar kinnar. Segja fréttamenn
að forsætisráðherrann hafi reynt
sitt ítrasta til þess að ná alveg
utan um breitt bak Titovs, en
tókst ekkj og Tamara stóð hjá
oneð gleðitár í augum.
Er Titov var laus úr faðmi
Krúsjeffs heilsaði hann konu
sinni, ættingjum og vinum.
Laumaðist hann síðan til að kyssa
konu sína aftur svo að lítið bar
é, er hlé varð á kveðjunum.
Hljómsveitir léku ættjarðar-
söngva og flokkssöngva. Hópur
ungra stúlkna köstuðu blómum
til Titovs og sendu honum fing-
urkossa.
• Reiðubúinn
tii hvers sem er —.
Að kveðjuathöfninni lokinni
óku þau Titov, Tamara og Krú-
sjeff inn til borgarinnar í opinni
bifreið. Þúsundir manna fögnuðu
Framhald á bls. 23.
Berlín, 9. ágúst, (Reuter/NTB)
FEIKNLEGUR flóttamanna-
straumur hefur verið frá A-
Þýzkalandi yfir til Vestur-
Þýzkalands síðastliðinn sólar
hring. Hafa komið nærri tvö
þúsund manns yfir landa-
mærin síðustu 24 klst., sem
mun vera mesti fjöldi flótta-
manna á einum degi síðan
Mbl. fékk mynd þessa sím-1
senda i gærkvöldi. Hún sýir-í
ir Nikita Krúsjeff, forsætisráð 7
herra Sovétríkjanna á millil
rússnesku geimfaranna, Gag-1
arins og Titovs. 1
Friðrik
efsfur
í 7. umferð fóru leikar svo á
skákmótinu í Marianske Lazne:
Nimela Friðrik jafntefli.
Barendregt vann Sliwa.
Filip vann Blom.
Johannesen vann Milic.
Bobostov 'vann Gragger.
Jafntefli gerðu Ciric og Gitescu
Biðskákir urðu hjá:
Ljungquist og Szabo.
IUhlman og Perez.
8. UMFERÐ var tefld í gær, og
urðu úrslit þessi:
árið 1953, er uppreisnin var
gerð í A-Þýzkalandi.
Þessi skyndilega aukning
flóttamanna er talin stafa af
miklum ótta fólksins við að
landamærunum verði alveg
lokað.
Frá því um helgi hafa komið
allt frá 1600 flóttamönnum dag-
lega, en í síðustu viku var
meðaltal 1200 á dag. 1 fyrradag
Moskvu, 9. ágúst — (Reuter)
í VEIZLU, sem haldin var í
Kreml í kvöld, Ghermann
Titov til heiðurs, sagði Krús-
jeff, forsætisráðherra, í ræðu,
að engar hótanir gætu hindr
að að Sovétríkin gerðu sér-
staka friðarsamninga við A-
Þýzkaland.
voru skráðir 1741 flóttamaður
á einum degi og í gær 1926. —
Yfirvöld A-Þýzkalands hafa nú
hafið skráningu allra þeirra,
sem vinna í Vestur-Berlín.
• Menn blygðast sín
Meðal flóttamanna í dag var
einn af dómurum hæstaréttar
Austur-Þýzkalands, Horst Het-
zar. Með honum flýðu níu
manns úr fjölskyldunni. Dóm-
arinn lét svo um mælt við vest-
ur-þýzka lögfræðinga við kom-
una vestur um, að löggjöfin í
Austur-Þýzkalandi væri komin
á svo lágt stig, að menn þar
blygðuðust sín fyrir að starfa
sem lögfræðingar.
Krúsjeff sagðist ekki ætla,
að sú ráðstöfun leiddi til
styrjaldar, því að enginn
nema vitfirringur gæti tekið
upp á því að svara svo frið-
samlegri aðgerð með styrjöld.
— En það eru til brjálaðir
menn, sagði Krúsjeff — og
því verðum við að vera við
öllu búnir.
Krúsjeff endurtók hvað
eftir annað í ræðu sinni, að
Sovétríkin vildu frið og ógnuðu
engum. En réðist einhver á
Sovétrikin gætu Rússar ekki lit-
ið á það öðruvísi en sjálfsmorðs
tilraun. — Við veitum fé til að
smíða eldflaugar og atómvopn
og þau eru ekki ætluð til að
sneiða niður pylsur, sagði for-
sætisráðherrann.
• Mynd framtíðarinnar.
Krúsjeff skýrði frá því að
rússneskir vísindamenn hefðu
sagt honum að þeir gætu búið
til sprengjur með afli 100
milljón tonna af TNT og gætu
einnig smíðað eldflaug til að
skjóta slíkri sprengju. Slík er
mynd framtíðarinnar, sagði
Krúsjeff.
Krúsjeff hélt ræðu þessa í
Kreml yfir borðum, sem svign-
uðu af krásum, að því er Tass
fréttastofan segir — otg kvaðst
ekki vilja vekja mönnum óhug
yfir máltíðinni. En við erum raun
sæismenn, sagði hann Og skiljum
hvernig ástatt er í heiminum. Við
trúum því að skynsemin sigri,
að skýin greiðist frá sólinni svo
hún fái aftur skinið, bætti hann
við.
Síðar í ræðu sinni sagði Krú-
sjeff: — Trúið þið virkilega
að unnt sé að skaða okkur? —
Við beygðum okkur ekki fyr
ir Þjóðverjum, þegar þeir
voru í nágrenni Moskvu og
Stalingrad. Heldur nokkur að
við munum beygja okkur fyr-
ir Adenauer? Trúi Adenauer
því, að hann geti fengið
Þýzkaland sameinað með
styrjöld og álrás á okkur, þá
verður engin þýzk þjóð til
meir, Þýzkaland allt verður
þá malað í duft.
39
fórust
STAVANGUR, 9. ágúst —
(Reuter). — Saknað er
brezkrar tveggja hreyfla
flugvélar, með 34 skóla-
drengjum og tveim kennur-
um þeirra auk áhafnar. Tal-
ið er líklegt að vélin hafi
lent í sjónum og hafa skip
og flugvélar leitað ákaft í
allt kvöld.
Vélin, sem er af gerðinni
Vickers Viking átti að lenda
á Sola flugvelli. Rétt áður
en hún skyldi lenda rofnaði
allt samband við hana. Regn
var og hvassviðri.
Flugvélin var í eigu brezka
flugfélagsins Cunard-Eagle.
Áhöfn var þrír menn. Skóla
piltarnir voru á leið til
Noregs í skólaferðalagi
ásamt kennurum sínum.
Framhald á bls. 23,
IMesti fjöldi flótta-
manna síðan 1953
IMær 2000 manns flýðu frá
A-Þýzkalandi yfir til V-Þýzka
lands á einum sólarhring