Morgunblaðið - 01.02.1964, Blaðsíða 6
6
MORCU NBLAÐIÐ
Laugardagtfr 1. febrúar 1964
Fritz Weisshappel - Minning
H É R er ættartala óþörf. Það
nægir að segja að Fritz Weiss-
happel var músíkættar frá sjálfri
háborg tónlistarinnar, Wien.
Með Fritz Weisshappel er góð-
ur maður genginn, og er hans
sárt saknað af mörgum. Með ein-
stakri þrúðménnsku sinni .og
drenglund vann hann allra
hjörtu. Hann var fæddur í Vín-
arborg, og bar þess óræk merki,
að hann var alinn upp við mikla
tónmenning. Upprunalega var
Weisshappel ráðinn hi/igað sem
celloleikari, en brátt varð píanó-
ið hans aðalhljóðfæri, og var
hann einn þekktasti og eftirsótt-
asti undirleikari okkar um langt
tímaþil. Margir af okkar ágætu
einsöngvurum, sem hann ferðað-
ist með vitt um heim, áttu hon-
um mikið að þakka, og var hann
ekki aðeins hinn trausti sam-
verkamaður þeirra, heldur einnig
hollvinur allra, sem hann vann
með, sökum ljúfmennsku og
mannkosta.
Weisshappel varð eftirmaður
Emils Thoroddsen sem píanóleik-
ari útvarpsins. Með ágætri list
sinni, smekkvísi og allri fram-
komu, naut hann hins fyllsta
trausts og virðingar við þessa
miklu menningarstofnun. Þeg-
ar Ríkisútvarpið tók að sér rekst-
ur Sinfóníuhljómsveitar Islands
var Frits Weisshappel ráðinn
framkvæmdastjóri heftnar. Leysti
hahn það hlutverk sitt, sem önn-
ur, af hendi með mikilli prýði
og samvizkusemi. Minnast þeir,
sem lengst unnu með honum,
hans sem hins snjalla listamanns
og valmennis, sem í einu og öllu
vildi vinna að framgangi og þró-
un íslenzkrar tónlistar og lagði
þar fram mikið af mörkum.
Fritz Weisshappel var glæsi-
.menni, fríður sýnum og vörpuleg-
ur áT velli, hlédrægur en ákveð-
inn í skoðunum og réttsýnn. Er
nú sár harmur kveðinn að konu
hans, frú Helgu og börnunum
þremur. Hinir fjölmörgu vinir
Senda þeim hjartanlegar samúð-
arkveðjur.
Páll ísólfsson.
í
FRITZ WEtSSHAPPEL andaðist
hér í bænum aðfaranótt 28. þ.m.
Hafði hann þá legið rúmfgstur
um skeið, en*kenndi sjúkdóms
þess, er varð honum að aldur-
tila, fyrir rúmu ári, og fór þá
nokkru seinna utan til þess að
leita sér íækninga í Vínarborg.
Weisshappel var einn af kunn-
ustu tónlistarmönnum, sem störf
uðu hér á landi síðustu áratug-
ina, og voru þau störf hans fyrst
og fremst tengd Ríkisútvarpinu.
Hann var pianóleikari þess um
aldaffjórðungsbil, -en varð fast-
ráðinn starfsmaður þess i árs-
byrjun 1939. En um tveggja ára
skeið þar áður hafði hann iðu-
lega unnið hjá útvarpinu í veik-
indaforföllum Emils Thoroddsen.
Weisshappel var fæddur í Vín-
arborg 18. júlí 1908. Faðir hans
var Friederich Weisshappel, pró-
fessor í tónlist og vel þekktur og
vel metinn maður þar í borg á
sínum tíma. Móðir hans var Anne
Troust, sem einnig var á sínum
tíma þekkt ljóðasöngkona og um
skeið prófessox* í tónlist. Þau eru
nú bæði dáin, en systir Weiss-
happels býr í Vínarborg og er
þar líka tónlistarprófessor.
Weisshappel kom higað til ís-
lands 13. maí 1928, tæplega tví-
tugur. Hann gerðist íslenzkur
ríkisborgari og kvæntist íslenzkri
konu, Helgu Waage, 23. nóvem-
ber 1935. Þau eignuðust þrjú
börn: Elísabet, Gunnar og Frið-
rik.
Weisshappel starfaði hér fyrst
sem cellol-eikari, en síðan sem
píanóleikari og var lengi undir-
Ieikari márgra þekktra inn-
lendra og erlendra söngvara og
lék með kórum. Hann fór t.d.
sex sinnum utan með íslenzkum
kórum, fimm sinnum með Karla
kór Reykjavíkur og einu sinni
með Kantötukór Akureyrar. Tvö
undanfarin ár var hann fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhíjóm-
sveitar íslands á vegum Ríkis-
útvarpsins. _
Hann vaf sæmdur gullriddara
krossi Austurríkis fyrir tónlistar
störf.
Weisshappel var ágætur starfs
maður, áhugasamur, duglegur og
fylginn sér, en lipur og samvinnu
þýðúr. Hann var vel að sér í
sinni grein og af fróðum mönn-
um sagður ágætur píanóleikari.
Hann var einnig vel heima í ýms
um öðrum greinum, s.s. bók-
menntum og myndlist. Hann var
heldur fáskiptinn maður að eðl-
isfari, en gat verið manna glað-
astur í góðum hóp, og gaman-
samur. Mikill fjöldi tónlistar-
manna, sem hann vann með,
minnast hans með mikilli hlýju
og þakklæti.
Síðustu störf hans hér í útvarp
inu voru helguð Sinfóníuhljóm
sveitinni, eftir að Ríkisútvarpið
tók við rekstri hennar öðru
sinni. Hann hafði þá á hendi fram
kvæmdastjórn hennar og leysti
það starf af hendi með ágætum.
Hann hafði bæði listræna þekk-
ingu og hagnýtt lag á þeim mál-
um, sem þar bar undir hann og
átti sinn mikla þátt í því, hversu
giftusamlega tókst til um starf
semi hljómsveitarinnar. Yið,
samstarfsmenn Weisshappels í út
varpinu, minnumst hans með
söknuði, en þakklæti fyrir langa
samvinnu, ljúfa og góða.
V. Þ. G.
t
f DAG fylgjum við til hinstu
hvílu framkvæmdastj’óra okkar,
góðum vini og samstarfsmanni,
Fritz Wðisshappel, sem lézt 28.
þ.m. aðeins 55 ára að aldri. Ör-
lagadísirnar sendu okkur þennan
mann frá framandi landi fyrir 35
árum og hér ílentist hann ís-
lenzku tónlistarlífi til ómetan-
legs gagns.
Þjóðin fékk fljótlega að kynn-
ast píanóleikaranum Fritz Weiss-
happel, en við, sem áttum því
láni að fagna að fcynnast honum
náið, vinna með honum og undir
hans ' handleiðslu munum ætíð
minnast hans sem einstaks prúð-
mennis, gæddum fágætum mann-
kostum. Hvert það verk, sem
hann tók að sér, var unnið af því
líkri alúð, snyrtimennsku og
gaumgæfni að þess þekkjast vart
dæmi. Komu þessir eiginleikar
Weisshappels bezt í ljós þegar
honum var falin framkvæmdar-
stjórn Hljómsveitar Ríkisútvarps
ins og síðar Sinfóníuhljómsveitar
íslands frá 1960; en því starfi
gegndi hann þar til sjúkdómur sá
sem leiddi hann til bana, dæmdi
hann úr leik.
Með Fritz Weisshappel er ekki
einubgis genginn afkastamikill
starfsmaður heldur einnig trygg-
ur vinur og félagi, sem gott var
að kynnast og mikið af þeim
kunningsskap að læra. Hann
ávann sér traust og virðingu allra
sem hann umgekkst sakir sinna
meðfæddu mannkosta. Munum
við hljómsveitarmenn fá seint
fullþakkað hans framlag til okk-
ar mála.
Við vottum eftirlifandi konu
hans, Helgu Weisshappel og börn
um þeirra, okkar innilegustu
samúð við missi ástríks eigin-
manns og föður, en vitum að
samvist við slíkan mann skilur
eftir sig minningar sveipaðar
birtu og yl sem mun auðvelda
biðina til endurfunda.
G. E.
t
KVEÐJA FRÁ
KARLAKÓR REYKJAVÍICUR
ÞAB er ætíð sárt að sjá á bak
góðum félaga og vini. Þau hafa
orðið örlögin, að Fritz Weiss-
happel hefur verið kallaður á
brott á bezta aldri. Með honum
missir Karlakór Reykjavíkur
traustan og dyggan félaga og um
leið mikilhæfan listamann, sem
auðgaði kóripn að áliti og frama.
Um 25 ára skeið aðstoðaði hann
kórinn með píanóleik, meðal ann-
ars í flestum utanferðum hans og
ætíð með sama glæsibrag, sem
auðkenndist af leikni og prúð-
mennskut
Þannig var Fritz einnig í fram-
komu. Höfðinglegur í fasi, vin-
gjarnlegur og stilltur vel. í vina-
hópi v&r hann glaður og reifur og
svo íslenzkur var hann í hugs-
unarhætti og athöfnum, að þeim,
sem bezt þekktu hann, fannst
nafn hans hljóma sem íslenzkt
væri.
Söknuður og tregi fyllir hugi
meðlima' Karlakórs Reykjavíkur
við fráfall þessa mæta manns og
fjölmenna þeir í dag til þess að
kveðja heiðursfélaga sinn við há-
tíðlega athöfn í DómkirkjunnL
Eiginkonu hans og börnum, svo
og öllum ástvinum hans, vottar
kórinn dýpstu samúð. Það er
huggun í harmi að geyma minn-
ingu um mætan sómamann.
' R. L
Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélap;sms
..Hu«inn4í
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfél-
agsins Huginn f uppsveitum
Árnessýslu var haldinn í Ara-
tungu 17. þ. m. Formaður fél-
agsins Sigmundur Sigurðsson
bóndi f Syðra-Langholti setti
fundinn o>g stjórnaði honum.
Fundarritari var Steinþór Gests-
son bóndi á Hæli.
Formaður flytti skýrslu stjórn
ar og gjaldkeri Róbert Róberts-
son las reikninga.
í stjóm voru kosnir Sigmund-
ur Sigurðsson formaður, Stein-
þór Gestsson ritari, Róbert
Róbertsson gjaldkeri, Sigurður
Sigurðsson og Ágúst Eiríksson
meðstjórnendur. Varastjóim:
Sveinn Skúlason, Jón Ólafsson,
Jón Sigurðsson, Áslaug Árna-
dóttir og Grímur Ögmundsson.
Þá var kosið í fulltrúaráð,
kj ördæmisráð og endurskoð-
endur.
Að kosningum loknum flutti
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra mjög glögga ræðu um
stjórnmálaviðhorfið. Var ræðu
ráðherrans ágætlega tekið af
fundarmönnum og honum séi'-
staklega þökkuð góð störf sem
landbúnaðarráðherra með kröft-
ugu lófataki. Eftir ræðu ráðherr-
ans urðu nokkrar umræður.
1 — Jón.
Enginn vill borga
brúsann
Nú eiga allir að vera búnir
að telja frám til skatts. Þó er
einn og einn í vandræðum með
að koma dæminu saman og
hefur fengið frest. En frestur-
inn léttir ekki skattinn og það
er því fæstum ánægja að draga
á langinn að skila plagginu.
Svo bíðum við og vönum, að
skattur keisarans verði ekki
allt of þungbær. Annars virð-
ast upphæðirnar ekki skipta
allt of miklu máli, því menn
barma sér jafnmikið hvort sem
þeir borga lítið eða mikið. All-
ir heimta auðvitað nýja vegi,
sjúkrahús og flugvelli við
hverja hundaþúfu, en enginn
vill borga brúsann eins og gef-
ur að skilja. Fæstir fara í auka-
vihnu til þess að auka tekjur
rikis og bæjar, heldur til þess
að geta keypt sér þvottavél eða
bíl. Svo tala aukavinnumenn
um* „þessa bölv. • . . stórlaxa,
sem allt svíkja undan skatti.“
Var í vandræðum
Maður nokkur, sém vann
fyrir mig smáverk á síðasta ári,
hringdi í mig í vikunni — og
spurði:
„Heyrðu, ætlarðu að gefa
þetta upp?“
,,Já, ég man ekki til að talað
hafi verið um annað“
„Það var ágsett“, sagði hann
og andaði greinilega léttara —
„ég hef nefnilega alltaf beðið
alla um að gefa ekkert upp til
skatts — og svo áttaði ég mig
á því í gærkveldi, að ég gæti
ekki sýnt fram á að ég hefði
lifað nema einn mánuð á ár-
inu.“
Hann er sjálfsagt ekki sá eini,
sem lent hefur í vandræðum.
Kunningi minn, sem stendur í
húsbyggingu, sagði mér, að
þegar hann fékk múrarana
hefðu þeir sett það skilyrði, að
vinnulaunin yrðu ekki gefin
upp til ’skatts. Húseigandinn
spurði þá:
„Hvernig á ég að gefa hús-
byggingarskýrslu fyrir stein-
hús án þess að láta neitt múr-
verk koma fram?“
Eftir mikið Þjark var samið
um að gefa heiminginn upp.
Tíann svindlar meira
Ég nefni ekki múrara vegna
þess að ég telji, að þeir séu
eitthvað verri en aðrir. Senni-
lega gera flestir sig seka um
að skjóta einhverju undan —
og það er e.t.v. þess vegna að
enginn virðist í rauninni óá-
nægður með fyrirkomulagið.
Það er masað um að þetta sé
ekki gott ástand — og þá bent
á Pétur og Pál, sem liggja und-
ir grun um að hafa haft svo
og svo miklar tekjur, en að-
eins fengið þetta eða hitt lítil-
ræðið í skatt og útsvar. Menn
eru sem sagt óánægðir vegna
þess, að þeir halda, að náung-
inn hafi getáð svindlað meira
en þeir sjálfir. Þáð er sjald-
gæft aðTieyra talað um þetta af
heilindum.
Dýrt að vera
heiðarlegur
Það, sem mér finnst þó alvar
legast við þetta ágpeta fyrir-
komulag, er, að kerfið opnar
þorra fólks allar leiðir til svika,
en neyðir það jafnframt til að
gefa drengskaparyfirlýsingu
um að rétt sé talið fram. Þegar
menn eru búnir að gefa dreng-
skaparyfirlýsingu í 10 ár sam-
fleytt um að sviknar tölur séu
réttar, þá geta menn gefið
drengskaparyfirlýsingu um allt
milli himins og jarðar án til-
lits til sannleika málsins.
Þessi mylla stuðlar því ekki
aðeins að óréttlátri niðurjöfnun
opinberra^gjaida, heldur gerir
hún heiðarlegum mönnum mjög
erfitt að vera heiðarlegir gagn-
vart sjálfum sér og samfélag-
inu.
----- x ©PIB
ÞURRHLO0UR
ERL ENDINGARBÉZIAR
BRÆÐURNIR OKMSSON hf.
Vesturgötu 3.
Simi 11467.