Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 24
1 Auölýsíngar á bífa Utanhuss augtýsingar aOskonar skitti ofi AUGLYSINGA&SKILTAGERÐIN SF Bergþoruflötu 19 Siini 23442 68. tbl. — Laugardagur 21. marz 1964 Saurar í Kálfshamarsvík í Skagahreppi. Guðmundur bóndi stendur í dyrunum. Björgvin sonur hans stendur hjá honum. (Ljósm. Þórður). Enn hreyfast borð á Saurum: Skápur fellur og mjólkur- bytta þeytist fram Ekki snögg veðra- brigði Mbl. spurði Jón Eyþórsson, veðurfræðing, að' því í gær hvort hann teldi að veður væri nú að breytást og koma hret. Hann sagði að hann gæti ekki séð að yfirvofandi hætta væri á snöggum veðra- brigðum a.m.k. Jón sagði að yndælisveður væri um allt land og mjög að- gerðarlaust veður. í gærmorg un hefði verið 8 stiga hiti í Reykjavík og 7 stig á Akur- eyri. Á Hornströndum gerði hvítt af snjó og var 0 stiga hiti í gærmorgun, en þegar leið á daginn var komin rign ing og 3 stiga hiti. Heit gnfa í geymslu Áfengisverzl- unarirmar ÁFENGISVERZLUN rikisins hef ur geymslu í kjallara í Hallar- múla í sama húsi og fyrirtækið HíbýlapríðL og geymir þar áfeng isbirgðir. Niðurfall er í kjallaranum og af einhverjuin ástæðum rann svo heitt vatn í rörunum, að gufu og hita lagði upp um niður fallið. Við það blotnuðu kassar, og hrundi úr stæðunum, svo eitt hvað af flöskum brotnaði. Einnig losnuðu miðar af heilum flöskum og er talsvert verk að líma á nýja miða og koma þeim fyrir að nýju í kössum. Einn kippnr í Ármúla EINN smákippur fannst um hálf átta leytið í gærmorgun í Armúla við ísafjarðardjúp. En hann var óverulegur í saman- burði við kippina sem hafa fund izt þar að undanförnu, að því er Sigurður Hannesson, bóndi tjáði blaðinu í símtali í gær. Á NÍUNDA timanum í gær- morgun varð það sviplega slys í húsi við Freyjugötu að kona á áttræðisaldri féll af svölum á þriðju hæð hússins og beið bana. Gekk konan eirt út á svalirnar en talið er að hún hafi fengið aðsvif og fallið fram af þeim. Lenti konan á steinsteyptum SKAGASTRÖND, 20. marz. — Fyrirbrigöin á Saurum hafa hald ið áfram, borð henzt til, bytta með mjólk kastast fram af borði og skápur skollið fram á gólf. Mikið hefur verið um manna- ferðir, tvær flugvélar komið með fréttamenn, jarðfræðing og fleiri, og alls komið þar um 30 manns. I fyrrakvöld þegar Margrét á Saurum var að skiija í stóra byttu, vissi hún ekki fyrri til en full byttan hentist fram af borðinu og á hana og fór mjólk- in út um allt gólf. Hún varð þó ekki vör við neina hreyfingu. Ekkert gerðist í alla nótt fram að fótferðartíma. En þá byrjaði borðið í eldihúsinu ao hreyfast. Margrét húsfreyja ætlaði að lúra lengur, því hún var bæði syfjuð og þreytt. En hún vaknaði við að henni fannst rúmið komið á hreyfingu og hún fór á fætur. palli við útidyratröppur niður í kjallara hússins, og lá þar er að var komið. Sjúkrabíll flutti konuna í slysa varðstofuna, en hún var látin er þangað kom. — Nafn hennar er ekki birt að svo stöddu, þar sem ekki hefur náðst til allra nánustu ættingja. í eldlhúsinu fram á gólf og á hvolf, svo sem sagc er fró á bls. 3. Og einnig fór leirtau úr hillu í búrinu og möibrotnaði. Eftir að fólkið fór að koma í dag gerðist ekkert. Eg talaði við Saura í kvöld og þá hafði orðið vart smávegis hræringa. Fólkið úr fyrri flugvélinni var Þjóiarnir iund- ust d Snndskeiði LAUST eftir kl. 4 í fyrrinótt var lögreglunni tilkynnt um að bíl hefði verið stolið í Reykja- vik. Lögreglubíll fór þegar aust- ur fyrir Fjall, en g/runur iá á að þangað hefðu þjófarnir ekið. í Svínahrauni fannst bíllinn mannlaus. Á Sandskeiði voru hinsvegar göngumenn tveir drukknir vel, og kopi á daginn að þar fóru þjófarnir. í þessari sömu ferð ucðu lög- reglumennirnir varir við að-öðr um bíl var ekið með ofsahraða um Suðurlandsveg. Elti lögregl- an, ep missti brátt af bílnum. Fannst bíllinn engu að síður inn an tíðar, en var þá mannlaus. Eigandi hans fannst 5 tírnurn síðar, en kvaðst ekki hafa ekið bílnum. Málið er enn í rannsókn. NESKAUPSTAÐ, 19. marz. — í morgun kom vélskipið Gulifaxi NK 6 hingað til Neskaupstaðar og lagði í land mann, sem hafði veikzt í veiðiferðinni. Kom sjúkrabifreið að skipinu um leið og það kom að bryggju og tók hinn veika mann og flutti hann í sjúkrahúsið hér. Er maðurinn lamaður í fótum. Sjúkraflugvél Björns Pálssonar er væntanleg til að sækja manninn og flytja á Saurum síðari hluta dagsins. En í kvöld kom Björn Pálsson með fréttamann frá Vikunni og hafði sá spánskan túlk með. En sagnir eru um að á nesinu sunnan við Saura sé spönsk dys og sést móta þar fyrir einhverju. Eins gengu nokkrir menn á fjörur, þar á meðal formaður Slysavarnasveitarinnar hér, því sumir vilja setja þetta í samband við að eitthvað hafi rekið þar. Fólkinu var ekkert um þetta í fyrstu. En nú eftir að svo margt fólk fór að koma, er það rólegra, enda ekkert gerzt. — Þórður. Ekki jarðskjálfti Meðal aðkomumanna að Saur- ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til stofnunar Félags sjónvarps- áhugamanna, og hefur stofnfund ur, verið boðaður í Sigtúni (Sjálf stæðishúsinu) á nrorgun, sunnu- dag kl. 4 e.h. Tilefni félagsstofn- unar þessarar eru umræður, sem að undanförnu hafa orðið um sjónvarpsmál á íslandi yfirleitt, til Reykjavíkur. Hann verður lagður í Borgarsjúkrahúsið. Hingað kom einnig í dag brezk ur togari og setti mann í land í sjúkrahúsið. Hafði sá sjómað- ur höfuðkúpubrotnað fyrir 4 mánuðum og legið lengst af í sjúkrahúsi úti, en hugðist nú reyna sjóinn aftur. Hann þoldi ekki vinnuna um borð og varð að fara í land, sem fyrr segir. — Ágúst. Tímabundinn samdráttur á kjötútflutn-. ingum ÓTTARR Möller, forstjóri Eim- skipafélags íslands, skýrði MbL svo frá í feær, að tímabundinn samdráttur hefði orðið hjá félag inu á flutningum frystrar kjöt- vöru frá írlandi til Bandaríkj- anna, en sem kunnugt er hafa þeir flutningar verið nokkur þáttur starfsemi félagsins á undanförnum árum. Óttarr sagði, að markaður fyrir kjöt hefði skyndilega opnast á meginlandi Evrópu og því dregið úr flutn- ingum til Ameríku í bili. Kvað hann þetta tímabundið ástand, sem breytast mundi bráðlega. og áskorun 60 þjóðkunnra manna til Alþingis, um að það hlutist til um að lokað verði fyrir sjón- varpið frá Keflavík. Undirbúningsnefndin hefur starfað nú í vikunni og gert frumdrög að lögum fyrir félag- ið, sem gera ráð fyrir því, að meðlimir í félaginu geti orðið allir þeir íslendingar sem hafa áhuga á að fá notið sjónvarps, Lagauppkastið gerir eindregið ráð fyrir því að stuðlað sé að stofnun íslenzks sjónvarps hið fyrsta, og að þeir, sem vilja, geti notið þeirra sjónvarpssendinga, sem íslendingum er kleift að ná til og tækni leyfir á hverjum tíma. Vonast undirbúningsnefndin fastlega til þess að þeir, sem á- huga hafa á og hlynntir eru sjón varpi, fjölmenni á stofnfund fé- lagsins kl. 4 e.h. á sunnudag, en vísar að öðru leyti til auglýsinga í dagblöðum og útvarpi. (Frá undirbúningsnefnd félagi áhugamanna um sjónvarp). Sjólistæðisfdlb! Varðarkaffið í Valhöll verður ekki í dag I dag kl. 2,30 hentist skápur Kona féll af svöl- um og beið bana Sfúkur maður sóttur tíl Neskuupstuðar Framhald á bls. 23. Félag sjónvarps- áhugamanna stofnað á sunnudag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.