Morgunblaðið - 08.05.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.05.1966, Blaðsíða 5
Sunmmagur 8. maí 1966 MORGUNB LAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM vn> gcngum á eftir honum niður kjallaratröppurnar. Sólin skein úti, en í kjallar- anum geislaði litadýrðin af málverkum hans. Hann er Iágur maður vexti, en hnell- inn, þéttur á velli og þéttur í lund, alpahúfa hylur koll- Þarna stendur Helgi Bergmann í lágreista kjallaranum sínum innan um málverk. Hann setti upp sparihattinn til að koma betur út á myndinni. Aipahúfan hafnaði neðan við „palettuna“. Honum svipar til Picassó og málar í varla mann- gengum kjallara Helgi Bergmann opnar málverka- sýningu i Kópavogi inn á honum, og það slær okkur undir eins, hvað hann er svipaður Ficassó í útliti. Við erum í heimókn hjá Helga Bergmann listmálara, sem ætlar að fara að opna málverkasýningu núna um helgina suður í Kópavogi, og segist bjóða öllum landslýð til nýs Kópavogsfundar í Fé- lagsheimilinu í Kópavogi, neðri sal, og sýningin byrjar kl. 7 í dag, og verður svo framvegis opin frá kl. 4—10 á hverjum degi, og allir vel- komnir, eins og segir í aug- lýsingunum. „Sjáðu nefnilega til“, segir Helgi Bergmann, þegar við erum farnir að virða fyrir okkur málverkin í kjallaran- um, en það er vinnustofa hans, „ég mála í öllum stíl- um, er ekki bundinn við neitt sérstakt listform, heldur mála ég eins og mér sýnist og svo er það fólksins að finna út, hvað ég er að meina. Ég fyrirlít alla stílsdýrkun ég mála allt milli himins og jarðar, landslag, menn og skepnur, báta og svo alls- kyns fútúriskar myndir, hérna eru t.d. tvær slíkar. Önnur heitir Hráskinnaleik- ur, en hina nefni ég: Ef til vill á morgun.“ Það er lágt undir loft í kjallaranum, því að botninn var hafður svo þykkur, en þetta kemur ekkert að sök, listamaðurinn er eins og áður segir lágur vexti og notar ekki hatt, aðeins alpahúfu, nema þegar hann er að spóka sig niður í bæ og sækja í sig veðrið og andagiftina. „Ég er fæddur í Ólafsvík fyrir mörgum árum, en ég er samt ekki orðinn ýkja gam- all. Ég er sem sagt Ólsari að uppruna og byrjaði snemma að sækja sjó. Maður varð að gutla þetta með til þess að heita maður með mönnum, og bróðir minn var formað- ur á „smáptmg“. Svo lagði ég á Fróðárheiði og hélt suð- ur í Reykjavíkursæluna, og hóf nám í málaraiðn. Dvald- ist ég líka alllengi í Dana- veldi. Fyrstu sýningu mína hélt ég 19 ára gamall í salnum í K.F.U.M. húsinu, og ég fékk lofsamlegan dóm í Fálk- anum í október 1928. Þar segir t.d. þetta: „Hefir hann engrar tilsagnar notið enn- þá, og þegar tillit er tekið til þess, verður eigi annað sagt en að myndirnar beri vott með listhneigð.“ Já, heyrðu annars, ég hef ekki bara málað landslag á striga og pappír, heldur hef ég málað heilt íslandskort, þetta sem er á veggnum hjá Ferðaskrifstofu ríkisins. Auð- vitað er ég trúr ætt minni og upphafi, og hef málað margar myndir frá Snæfelis- nesi. Sjáðu t.d. þessa frá Dritvik. Þetta er Trölla- kirkja. Þar á bak við er smáhola, og menn trúðu því í gamla daga, að þarna væri hellir, sem næði alla leið í land. Ekki veit ég neitt um það, en ég held svo sem það geti verið. Og þarna trónar Bárður Snæfellsás, eins og hann er séður frá Gufuskál- En þú skalt ekki halda, að ég ætli að sýna eintóm oiíu- málverk á þessari sýningu. O, ekki aldeilis. Hérna eru nokkrar kolteikningar handa unga fólkinu, sem er að stofna heimili og vantar ó- dýrar myndir á veggina. Svo sýni ég nokkrar skop- myndir af mjög merkum mönnum, en ég hef hug á að gefa skopmyndir mínar út í bók í haust.“ Og með það gengum við upp úr kjallaranum á Grundarstíg 21, og við okk- ur blasti nýhlaðinn himinn- Ihár steinveggur. „Hérna í skotinu og sól- inni mála ég stundum, þegar liggur vel á mér, en annars er þessi vegg-ur alveg splúnkunýr, og hann kom ekki til af góðu, því að kon- ur hér upp á Bérgstaðastræti hafa notað þetta sund til að stytta sér leið í mjólkurbúð- ina, en mér fannst þessi um- gangur trufla mig. Ég sat þarna einu sinni í króknum og var að mála, og koma þá tvær konur askvaðandi, svo ég varð að hrökklast burt, svo þær gengju ekki yfir mig. Heyri ég þá að eldri konan segir við hina yngri: „Naumast er það bölvuð frekjan í karlinum." „Mamma“, sagði þá telp- an, „hann heyrir ennþá í okkur“. Þá kallaði óg til þeirra: „Já, og það verður enn meiri frekja, því að nú loka ég þessum gangvegi‘, og daginn eftir hlóð ég vegg inn. Mætti maður eiga sína lóð í friði!“ Og við héldum inn í setu- stofuna hjá þessum ungkarli og gæddum okkur á randýr- Framhald á bls. 30 Helgi Bergmann stcndur hjá eintu málverki sínu: Á kambin- um, en það er frá Bolungavík. óshyrna og Snæfjallaströnd í baksýn. WlHKf LAND- -ROVER FJÖLHÆFASTA FARARTÆKID A LANDI BENZÍN EÐA DIESEL H Ell D V n Z L U X I H HEKLA hf HAPPDBÆTTl HASKOLA ISLANDS 5. flokkur. 2 á 500.000 kr. 1.000.000 kr. Á þriðjudag verður dregið í 5. flokki. 2 - 100.000 — 200.000 — 52 - 10.000 — 520.000 — 2,100 vinninga að fjárhæð 5.800.000 krónur. 280 - 5.000 — 1.400.000 — 1.760 - 1.500 — 2.640.000 — Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja. Happdrætti Háskóia Ísiands Aukavinningar: 4 á 10.000 kr. 40.000 kr. 2.100 5.800.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.