Morgunblaðið - 18.09.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.09.1966, Blaðsíða 5
Sunnudagur 18. sept. Í966 MORCUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM j: í HÓLMAVÍK hefur kirkja jj verið í byggingu í allmörg ; ár. Framkvæmdum hefur » miðað hægt áfram sökum : erfiðs fjárhags safnaðarins, !; sem er nú tæplega 400 j: manns. Byggingunni er nú ; það langt komið, að bygging- 1 arnefndin gerir sér vonir um * að unnt verði að taka kirkj- • una í notkun næsta vor. j; Lokið er við að ganga frá j! kirkjunni hið ytra að mestu ;; leyti, búið að einangra húsið ;; og upphitun komin í það, enn I: fremur er búið að klæða ; hvelfingu kirkjunnar, en ; hún er kiædd viði. Sérstakur ; steinn verður lagður í gólf : kirkjunnar. Búið er að kaupa ; steininn, en eftir er að setja : hann í gólfið. Eftir er að Hólmavíkurkirkja vænt- anlega vígð næsta vor Vonir standa til að fram- kvæmdum við byggingu kirkjunnar Ijúki í vetur smíða ailar innréttingar í kirkjuna og ljósabúnað og koma því fyrir, ennfremur að lagfæra lóð umhverfis húsið o. fl. Áætlað er lauslega að framkvæmdir, sem eftir er að ljúka. muni kosta um 800 þús. kr , og verður þá heild- arkostnaður byggingarinnar nokkuð yfir 2 millj. kr. Hólmavíkurkirkja verður hið fegursta guðshús, eins og þeir hafa sannfærzt um, er hana ha^a séð. Hún stendur á hinum fegursta stað og setur mkiinn svip á þorpið. Framkvæmdir við byggingu kirkjunnar hafa legið niðri síðan síðastl. vetur sakir fjár- skorts. Nú er hafin fjáröflun í lokaátakið við bygginguna. Sérstök fjáröflunarnefnd er starfandi beima fyrir, sem aflar fjár í Hólmavík með ýmsu móti. Byggingarnefnd- in hefur gefið út skuldabréfa- lán að uppbæð 500 þús. kr., og er nú hafin sala skulda- bréfanna. Átthagafélag Strandamanna í Reykjavík mun annast sölu bréfanna þar, en form. þess er Sigur- björn Guðiónsson, bygginga- meistari, Langholtsvegi 87. Á Akranesi eru bréfin til sölu hjá Birni H. Björnssyni, lög- regluþjcni, Stekkjarholti 3, og í HóJmavík hj Vígþóri H. Jörundssyni, skólastj., for- manni byggingarnefndarinn- ar. Stofnaður hefur verið minningagjafasjóður Hólma- víkurkirkju. Sjóðurinn, sem þegar hefur gefið kirkjunni drjúgar tekur, hefur gefið út smekkleg minningarspjöld. í Reykjavík fást minninga- spjöldin í Bókabúðinni Álf- heimum 6 og í Bókaverzlun ísafoldar í Austurstræti. Spjöldin fst einnig í Hólma- vík og á Akranesi í Bóka- verzlun Andrésar Níelssonar Skólabraut 2. Þá hafa einnig verið gefin út jólakort til ágóða fyrir kirkjubygging- una. Kirkjunni hefur orðið vel til vir.a í gjöfum og áheit um, einkum nú í sumar. Burtfluft kona úr Hólma- vík hefur gefið kirkjunni ■ 20 þús. kr., önnur kona 5 þús., hjón burtflutt 10 þús. kr., einn velunnari kirkjunnar gaf 20 þós. kr. í orgelsjóð, Verkalýðsfélag Hólmavíkur 25 þús. kr. til búnaðar kirkj- unnar, Sparisj. Kirkjubóls- Fellshr. 10 þús., og fleiri gjaf ir hafa borizt. Fyrir allar þessar gjafir og fjölmargar aðrar ótaldar er bygginga: nefnd kirkjunnar bæði ljúft og skylt að þakka. Nokkrir velunnarar kirkjunn- ar hafa lofað ákveðnum gjöf- um í bjnaði hennar. Það er mikil uppörfun fyrir fátækan söfnuð að mæta slíkri velvild og finna þann hlýhug er fylgir hinum góðu gjöfum. Fyrir því er söfn- uðurinn vongóður um að unnt verði að ná langþráðu takmarki með byggingu kirkjunnar næsta vor. Hólmavík, 9. sept. 1966. F. h. bvggingarnefndar Andrés Ólafsson. Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Þingholtsstræti Aðalstræti Tjarnargötu Barónsstígur Laufásveg 2—57 Lynghagi Freyjugata Laugarósveg Vesturgata 2—44 Snorrabraut Bergstaðastræti Hverfisg. frá 4—62 Karlagata Hringbraut 92—121 Hávallsgata Nesvegur Víðimelur Efstasund Tahð við afgreiðsluna sími 22480. Jftttgtnsirlðfcifr Flytjið vöruna f/ugleiðis Flugfélagið heldur uppi áætlunarflugi milli 13 staða á landinu. Vörumóttakatil allrastaðaalla daga. í Reykjavík sækjum við og sendum vöruna heim. Þér sparið tfma Fokker Friendship skrú- fuþoturnar eru hrað- skreiðustu farartækin innanlands. Þér sparið fé Lægri tryggingariðgjöld, örari umsetning, minni vörubirgðir. Þér sparið fyrirhöfn Einfaidari umbúðir, auðveldari meðhöndiun, fljót afgreiðsia.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.