Morgunblaðið - 29.06.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1967.
BILALEICAN
- FERÐ -
Daggjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SEN DU M
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
éftirlokun simi 40381
\^>SÍM11-44-44
mufío/fí
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti IL
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifaliö í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAINi
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Síml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
f-7==*0/lA IMGAN
lú&tL/yÆSP
RAUOARARSTlG 31 SlMI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstækl
Útvarps- og sjónvarpstæki
Rafmagnsvörubúðin sf
Suðurlandsbraut 12.
Simi 81670 (næg bílastæði).
Ferðafélag
íslands
FerðaféLag Islands
ráðgerir 4 ferðir um naestu
helgi: Á laugardag kl. 14:
1. Hagavatnsferð
2. Landmannalaugar
3. Þórsmörk
Á sunnudag kL 9.30 ferð í
Haukadal og á Bjamatrfell.
Lagt af stað f allar ferð-
irnar frá Austurvelli.
Nánari uppl. veittar á
sicrifstafu F. í. öldugötu 3,
símar 19533 — 11798.
SAMKOMUR
daglaga mil'li kl. 3 og 7.
KFUM. — Vindádhlíð
Hlíðarstúlkur, fundur verð
ur í dag kl. 4.30. Fjölbreytt
dagskré.
Stjórnin.
Ár, vötn og örnefni
umhverfis Hólm
Karl E. Norðdahl, bóndi
í Hólmi, skrifar:
„Velvakandi!
í dálkum þínum fimmtudag-
inn 15. júní sl. er birt langt
bréf frá bréfritara, sem nefnir
sig Rg., og ber það yfirskrift-
ina „Litazt um eftir réttu máli
(íslenzku) og réttum örnefn-
um.“ Tilefni ritsmíðar Rg. er
smágrein, sem birtist í Mbl. 11.
•maí sl. Rg. hefur fundið sig knú
inn til að „fræða“ höfund
þeirrar greinar sem og aðra les
endur Mbl. um ýmis örnefni
umhverfis Hólm og gengur hon
um vafalaust gott eitt til. I>ví
miður hefur Rg. þó ekki tekizt
betur til en svo, að óhjákvæmi-
legt er að leiðrétta fjolmörg
atriði í grein hans.
Nafnið Hólmsá er mjög gam-
alt. Árið 1887 var fyrst byggð
brú á Hólmsá, þar sem núver-
andi Hólmsárbrú er (og þjóð-
vegur austur fyrir fjall). Þá
brú, sem var 18 álna löng, tók
af í vetrarflóði 1888, sbr. Ár-
ferði íslands í þúsund ár, eftir
Þorvald Thoroddsen. Upptök
Hólmsár eru við Elliðakots-
brekkur.
Fossvallaá, sem Rg. talar um
or ,nú ekki nema nafnið eitt.
Fyrir 1920 rann hún meiri jhkfta
ársins en undanfarna árat.ugi
hefur hún verið þurr nærri
allt árið, rennur aðeins í stór-
leysingum.' Upptök Fossvalla-
árinnar (hún hét reyndar
Lyklafellsá austan Fóellu-
vatna) voru í Engidal og Mar-
ardal í Hengi (ekki á Bolavöll
um) og heitir hún þar Mará.
Sú á hverfur í jörð á Norður-
völlum.
Rg. talar um Selvatnslæk
(öðru nafni Selvatns-ós). Þau
örnefni erU ekki til og hafa
aldrei verið það. Afrennsii
Selvatns heitir einungis Ós og
fellur um Gljúfur og Elliðakots
mýrar í Hólmsá, þar sem heitir
Óskjaftur. Þaðan rennur
Hólmsá norðan við bæinn
Gunnarshólma (hann var
byggður 1928) undir Hólmsár-
brú suður um Heiðartagl. Þar
féll Ármótakvísl (stífluð 1961)
úr Hólmsá í Suðurá. Hólmsá
fellur síðan sem leið líggur
vestur með þjóðveginum norð-
an við bæinn Hólm. Áin heitir
Hólmsá, ekki Bugða, allt vest-
ur á móts við Baldurshaga.
Síðan heitir hún ýmist Hólmsá
eða Bugða þar til hún fellur í
Rafveitulónið. Nafnið Bugða á
þessum hluta árinnar var not-
að af ábúendum Elliðavatns og
Grafar (Grafarholts). Vegagerð
ríkisins brúaði Hólmsá og lagði
veg af Suðurlandsvegi í Rauð-
hóla árið 1926, ekki „setuliðið
hér á árunum eftir 1940“,
eins og greinarhöfundur Rg.
kemst að orðL
Rg. talar um vað á Hólmsá
(eða Bugðu, eins og komizt er
að orði) fast neðan við núver-
andi Hólmsárbrú, og að þar
hafi þjóðleiðin áður legið.
Þetta er rangt. Þarna hefur
aldrei verið vað. Þjóðleiðin lá
hér áður fyrr yfir Ármótakvísl,
sunnan við bæinn Hólm og yf-
ir Hólmsá um % km neðan við
Hólm.
Hraunsnef er aðeins eitt,
ekki tvö eins og greinarhöfund
ur telur. f Silungapoll fellur
Hraunlækur að norðan og kem
ur upp í Hraunsnefi. Úr Sil-
ungapolli fellur Silungapollsá
sunnan við Höfuðleðurhól, jök
ulnúna grágrýtisklettaborg.
Silungapollsá sameinast Ár-
mótakvísl við Ármót og heitir
eftir það Suðurá. Stóra tjörn-
in vestur af Gvendarbrunnum
heitir Hrauntúnsvatn og því
síður Helluvatn eins og Rg.
talar um. Helluvatn er vatnið
sunnan Rauðhóla. Segja má að
Rg. sé nokkur vorkunn að
rugla saman örnefnunum
Hrauntúnstjörn og Helluvatni,
þar sem nafnavíxl hafa orðið
á þessum vötnum á herforingja
rábskortinu frá 1908 af þessu
svæði. Og enn gengur þessi
sama vitleysa aftur á endur-
skoðuðu korti Landmælinga ís
lands frá' 1964, útgefnu 1966
(blað 27, mælikvarði 1:100000).
Má því segja, að erfiðlega ætli
að ganga að kveða þennan
draug niður.
Suðurá féll áður í Hraun-
túnstjörn í tveimur kvíslum
um Hranntúnshólma. Sunnan
Hrauntúnstjarnar má enn sjá
tóftarbrot af eyðibýlinu Hraun
túni. Úr Hrauntúnstjörn féll
Krikjuhólmakvísl til norðvest-
urs í Helluvatn og Kirkju-
hólmakvísl til norðvestúrs I
Helluvatn og Kirkjuhólmaá til
suðvesturs í Kirkjuhólmatjöm
og þaðan í norðvestur í Hellu-
vatn. Á milli þessara kvísla er
Kirkjuhólmi.
Helluvatn (suður af Rauð-
hólum) dregur nafn af Hell-
unni, sléttri hraunklöpp 1
Uelluvaði, sem er neðst 1
Kirkjuhóknaá. Þar sem sú á fell
ur í Heljuvatn, er mjög djúpur
hylur (um 4—5 faðmar 6
dýpt) og heitir Helluvatnsker
eða Kerið, kunnur veiðistaður.
Vatnsveita Reykjavíkúr hefur
iiú „lokað“ Hrauntúnstjöm og
hefur hún hvorki að- né frá-
rennsli. Hefur Suðurá nú venð
veitt beint í Helluvatn.
Áin, sem fellur úr Hellax-
vatni í Elliðavatn heitir alls
ekki Dimma eins og Rg. held-
ur fram og hefur aldrei heitið,
heldur EHiðavatnsáll oftast
nær kölluð aðeins Áliinn. Yfir
hann liggur brú af Sundholti
og þaðan vegur í Heiðmörk.
Áður fyrr voru vötnin tvö,
Elliðavatn og Vatnsendavatn.
Tanginn Þingnes (nú eyja)
skipti þeim að sunnan. Úr
Vatnsendavatni féll Dimma og
dró nafn af djúpum og dökkum
hyljum. Nú er þetta breytt.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
hefur gert stíflu þvert yfir Ell-
iðavatnsengjar og báðar árnar
(Dimmu og Bugðu) og mynd-
að eitt stórt stöðuvatn núver-
andi Elliðavatn.
Greinarhöfundur Rg. vixðist
ekki vita, að slakkinn frá
Rauðavatni til suðurs, þar
sem vegurinn liggur yfir vatns
hornið, heitir Margróf (það
örnefni vantar reyndar einnig
á kort af Reykjavík og ná-
grenni, sem út kom í fyrra) og
hann talar um dálitla hraun-
strýtu með nafninu Hólma-
skyggnir þar, sem árnar komu
saman. Ekki er þetta hraun-
strýta, heldur melhóll, og nafn
ið mun vera Vatnsendaskyggn
ir, en ekki Hólmaskyggnir.
Mun nú látið staðar numið
að sinni, en margt er enn ósagt
um örnefni á þessum slóðum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Karl E. Norðdahl,
Hólmi.
> 1 1 j í I búð - Háaleitisbraut fil sölu 5 herbergja íbúð á 1. hæð í Háa- eitishverfi. Harðviðarinnréttingar. »kip & fasteignir lusturstræti 18 — Sími 21735. íftir lokun 36329.
] t n íeztu þakldr il allra, sem á fimmtugs afmæli mínu glöddu nig með nærveru sinni, heillaskeytum og gjöfum. Einar Dagbjartsson, Ásgarði.
AFGREIÐSLLSTÚLKA
Afgreiðslustúlka óskast i húsgagnaverzlun vora nú þegar eða
síðar — Umsækjendur komi til v/i
morgun á skrifstofu vora
Laugavegi 26