Morgunblaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 28
jmimtMftfrifr RITSTJORN • PRENTSMIÐJA AFG R EIÐSLA • SKRIFSTOFA SÍMI 10*1QQ PÖSTHÍISSTRÆIH SlMI 17700 FOSTUDAGUR 18. AGUST 1967 Kísilgúrvegurinn ekki út á umdeilda svæðiö — iienici með leyfi ráðlherra MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef^ ur ekki enn tilkynnt ákvörðun sína varðandi lagningu kísilgúr- vegarins svonefnda, við Mývatn. Vegaframkvæmdir voru þegar hafnar og verður haldið áfram þar til ráðherra bannar þær, ef til þess kemur. Búið er að leggja einn kílómeter en áður en um kemur að umdeilda svæðinu verður verkið stöðvað og úrskurð ar ráðherra beðið, ef hann ligg- ur ekki þegar fyrir. Mbl. tókst ekki að ná talj af dr. Gylfa Þ. Gíslasyni í gær, en Birgir Kjar- an, hagfræðingur, formaður Náttúruverndarráðs sagði að hann hefði ekki fengið svar enn Skýrsiurnar frá Þistilfirði ókomnar LANDHEEGISGÆZLAN hafði ekki fengið skýrslur varðskips- ins, sem rannsakaði veiðarfæri báta á Þistilfirði, þegar Morg- unblaðið hafði samband við hana í gær. Ekki munu fara fram neinar frekari rannsóknir fyrr en niðurstöður skýrslnanna liggja fyrir. Þær verða þá vænt- anlega sendar sjávarútvegsmála- ráðuneytinu, sem svo mun hafa samband við viðkomandi sýslu- mann. Biskup ísiands um Bahai-brúðkaupið í Árbœjarkirkju: Undrandi að slík athðfn skyldi fara fram i kristinni kirkju F R É T T Morgunblaðsins í gær um Bahai-brúðkaup í kristinni kirkju hefur vakið allmikið umtal manna á meðal. Hafa menn undrazt það, að Bahai-trúflokkurinn, sem er grein af Múhameðs- trú, skyldi hafa fengið inni í kirkju með helgiathafnir sín- ar, fengið þar að ákalla sinn guð og spámann sinnar trúar. Morgunblaðið hafði í gær „Við vitum ekkert um þettu“ MBL. sneri sér í gær til stjórnarformanns Loft- leiða, Kristján Guðlaugs- sonar, og spurðist fyrir um fregnir þær, er ganga um að Loftleiðum hafi verið boðin lendingarheimild í Austur-Berlín. — Kristján svaraði fyrirspurninni svo: — Við viturni ekkert um þetta mál og höfum engan þátt átt í að efna til blaða- skrifa um það. Hinsvegar höf- um við frétt að þau hafi spunnizt í Þýzkalandi vegna fréttastofufregna, sem út hafa verið gefnar, en af okkar hálfu að tilefnislausu. Hin rétta boðleið í þessu efni er alls ekki gegnium okk- ur, þar sem flugmálastjórn og utanríkisráðuneyti fara með öll okkar erindi út á við í þessu efni, sagði Kristján að lokum. samband við biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, vegna þessa máls. Sagði bisk- up, að honum hefði ekki ver- ið kunnugt um, að til stæði að framkvæma þessa athöfn þarna í kirkjunni, en ef hann hefði vitað það, þá hefði hann beðizt undan því, að athöfnin færi fram. Þá hafði Mbl. einnig ta.1 af prófessornutn í fcrúarbragðasögu, Jóhanni Hannessyni. Rakti han.n í stuttu máli sög.u Bahaitrú- flokksins, sem er grein af Mú- hameðstrú, en fjarsikyMari kristni ©n ýmsiir aðór trúflokk- ar, sem kristnar kirkjur hafa hafa þó ekiki látið fá inni í sín- um húsum með helgiathafnir. Nefndi prófessor Jóhann til fjóra trúflakka, sem stæðu Framhald á bls. 27 Eldur í Fjarðakletti VÉLBÁTURINN Fjarðaklettur GK 210 frá Hafnarfirði tilkynnti í gærkvöldi um kl. 21, að eidur væri laus í vélarrúmi skipsins, þar sem það var statt skammt út af Eldey. Vélbáturinn Sæljónið frá Vestmannaeyjum kom brátt á vettvang og um kl. 23 voru Brúarfoss og vélbáturinn Elding mjög skammt undan. BÝST VIÐ AÐ SiLDIN FARI AÐ ÞÉTTA SIG og koma nœr, sagði Hjáimar Vlihjálmsson EKKI hafa sést nein merki þess ennþá að síldin sé að nálgast strendur laindsins, en leitarskip fara nú um allan sjó í leit að hetnni. Morgunbiaðið hafði í gær samband við Hjálmar Vilhjálms- son, fiskifræðing, sem var stadd- ur um borð í varðskipinu Ægi um 140 mílur suðaustur af Jan Mayen. „Við erum búnir að vera á ferðinni í viku og höfum einskis orðið varir ennþá. Við byrjuðum fyrir norðurlandi og höfum svo leitað djúpt norður af og djúpt norðaustur af Langanesi. Hafþcr og Snæfuigl hafa líka verið á ferðinni en einskis orðið varir. Meðal annars var leitað djúpt út af austfjörðuim og orðið vart við dreif þar og eins norðaustur af, en engar torfur. Snæfugl er nú norðaustur í hafi og ég býst við að hann komi á veiðisvæðið í kvöld. Ég geri ekki ráð íyrir að síldin, sem er þar, nálgist landið fyrr en í september-októ- ber, í fyrsta lagi. Hinsvegar vit- um við um síld austur- og norð- austur af landinu, eins og ég sagði áðan og ég býst við að hún fari að þétta sig hrvað úr hverju. Hún fór ekki að þétta sig fýrr en eftir miðjan ágúst í fyrra, og þar sem hún virðist ekki eins fljótþrooka í ár, getur það orðið eitthvað seimna, ætli hún fari ekki að nálgast í byrj- un september“. Hafið þið eitthvað kannað Húnaflóa? „Nei, það höfum við ekki cg teljum varla ómaksins vert. Hug rún er farin þaðan, en svo var einhver nnar bótur að spreyta sig þar í dag. En hann fékk ekkert nema síli og loðmu. Það er íslenzk vorgotssíld, sem þarna er á ferðinni, það verður vart við hana á þessum slóðum ár- lega en það er því miður allt of lítið af hen.ni til þess að hægt sé að veiða hana. Við veið um úti fram að næstu helgi, þá tökum við höfn einhversstaðar fyrir austan í einn eða tvo daga áður en við höldum áfram að leita norðustur af landinu. Síðast, þegar Mþl. hafði fregn ir af bátnum, rétt áður en það fór í prentun, hafði tekizt að mestu að ráða niðnrlögum elds ins, en reykur var þá mjög mik ill. Ekki mun áhöfn hafa orðið meint af og var hún ekki í yfir- vofandi hættu er síðast fréttist. S NORSKI ríkisarfinn Harald- !ur slóst í gærmorgun í för með nokkrum reykvískum hestamönnum er þeir teygðn \ gæðinga sína uppi á Kjalar- nesi og þar í grendinni. Var krónprinsinn rúma tvo tíma á hestbaki og hafði látið þau orð falla um gæðing þann er hann sat, að sér þætti hann ( afbragðsgóður reiðhestur. Síð- degis í gær hafði norski sendi herrann boð inni á heimili sínu og komu þangað um 300 I manns. Var margt Norðmanna ( þar sem- búsettir eru hér á Iandi og í þeim hópi aldurs- forseti Norðmanna hér, frú I Eilingsen. í gærkvöldi hafði ríkisarfinn boð inni í Hótel Sögu þar sem voru 120 gestir. í dag kveður hann ísland og heldur heim til Noregs með þotu Flugfélags tslands frá Keflavíkurflugvelli. — Hann kveður Ásgeir Ásgeirsson for- seta hér í Reykjavík, snæðir með honum ásamt nokkrum öðrum hádegisverð í Nausti, en forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, verður fyrir | fylgdarliði því er fylgir ríkis- arfanum út á Keflavíkurflug- völl. Á myndinni eru tveir reykvískir hestamenn með ríkisarfanum, þeir Guðmund- ur ’Gíslason og Emanuel Mort- ens með hjálminn. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson) U- Pétur H. Jakobsson, prófessor Gísli Fr. Petersen, prófessor Skipaðir prófessorar DÓSENTARNIR Pétur H. Ja- kobsson, yfirlæknir, og dr. Gísli Fr. Petersen, yfirlæknir, hafa verið skipaðir prófessorar í læknadeild Háskóla íslands frá 1. júlí 1967 að telja. Pétur H. Jakobsson, hefur um langt ára- bil verið yfirlæknir fæðinga- deildar Landsspítalans en Gísli Fr. Petersen, yfirlæknir við röntgendeild Landsspítalans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.